Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2000, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2000, Blaðsíða 30
14 FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 2000 Tilvera I>"V Bryan Adams hjálpar Emmu Kryddpían Emma Bunton vinnur nú hörðum höndum að útgáfu sólóplötu og fær til þess góða aðstoð frá Bryan Adams. Nýja sólóplatan á að koma út eftir áramótin og imdanfarna mánuði hefur Emma verið önnum kafin við lagasmíði. Hún hefur samið ílesta textana sjálf en einnig leitað til Bryans. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Bryan starfar með Kryddpíunum. Hann átti þátt í sólóplötu Mel C. Emma og Bryan munu hins vegar ekki syngja dúett. Emma segir að það verði mikill gítarleikur á nýju plötunni hennar. Bara smáágrein- ingur segir Lucy Lucy Liu gerir ekki mikið úr deil- um hennar og Bills Murrays við tökur kvikmyndarinnar um englana hans Kalla. „Þetta var ekk- ert rifrildi, heldur listrænn ágrein- ingur,“ segir Lucy í viðtali við bandaríska sjónvarpsvísinn. „Hann túlkaði atriði á einn veg- inn og ég á annan. Og svo fóru sög- ur á kreik um að ég hafi slegið til hans. En hann er 185 sentimetrar á hæð.“ Heimildir hermdu að hún hefði orðið gaga við tökur í apríl. Lucy er sennilega þekktust fyrir framgöngu sína i sjónvarpsþáttaröð- inni um Ally McBeal. Elton John ekki á því að hætta Breski skallapopparinn Elton John sá að sér um helgina og snar- hætti við að hætta í poppinu eftir næstu plötu. Hann hafði þó tilkynnt það fyrir troðfullu húsi í Madison Square Garden í New York á fóstu- dag. Talsmaður Eltons segir kapp- ann hafa viðurkennt um helgina að hann hafi talað tóma steypu á föstu- dag. Hann afsakar það með því að tæknin hafi verið að stríða poppar- anum og því hafi hann látið þessa dellu flakka, sisona. DV-MYND ÖRN ÞÓRARINSSON. Danskir hestaáhugamenn Danska fjölskyldan Óskar og Lise ásamt dótturinni Jósefinu og strákunum William og Alexander. Við komum hing- að aftur og aftur - segja danskir íslandsvinir og hestaáhugafólk sem komu hingað í 15 sinn DV, SKAGAFIRDI:______^ ____________ „Við erum hér á Islandi í fimmt- ánda skiptið og munum áreiðanlega halda áfram að koma og dvelja hér. Við höfum tekiö sérstöku ástfóstri við Fljótin. Bæði eigum við þar góða kunningja sem lána okkur hross meðan við dveljum þar og svo finnst okkur afar skemmtilegt að fara í útreiðartúr fram Flókadalinn. Þar fyrir framan byggðina er nátt- úran ósnortin og kyrrðin og frið- sældin alveg einstök. Þessa ósnortnu náttúru sem almenningur, jafnvel frá öðrum löndum, getur ferðast um að vild hafið þið Islend- ingar fram yfir flesta aðra og það hlýtur að gera landið eftirsóknar- vert fyrir þá sem vilja slaka á fjarri umferð og skarkala,“ sögðu hjónin Óskar Christensen og Lise Alexand- ersen þegar blaðamaður tók þau tali er þau dvöldu hér á landi í sumar . Þau hjón búa í Kolding á Jótlandi ásamt þremur bömum sínum. Ósk- ar stýrir einu af stærri frystihúsum landsins en Lísa er ljósmóðir. Fjöl- skyldan er öll mikið áhugafólk um hross og á nokkra íslenska hesta. Fyrsta hrossið þeirra var frá Kýr- holti í Skagaflrði. Það varð m.a. til þess að þau fóru að koma til íslands í stóðréttir. Þannig hafa þau fjórum sinnum komið í Laufskálarétt. Alls hafa þau keypt hér á landi um 30 hross en nokkuð af þeim fyrir aðra. Síðustu 2-3 árin hafa þau ekki keypt neitt og segja ástæðuna sum- arexemið. Það valdi því að íslensk hross séu ekki nálægt því jafn eftir- sótt í Danmörku og var fyrir nokkrum árum. Óskar kom fyrst hingað til lands árið 1984 og þá sem sölumaður. Hann hélt áfram að koma hingað í viöskiptaerindum næstu ár og tók þá fjölskylduna með sér. Nú kemur fjölskyldan hingað eingöngu sem ferðamenn og dvelur hér 2-3 vikur í einu, þó ekki árlega því þau segja að það kosti talsvert mikla peninga að ferðast hingað og líka að dvelja á ís- landi. Þau hafa ferðast talsvert um landið, m.a. farið hringveginn. I sumar lögðu þau leið sína um Snæ- fellsnes og fóru þá m.a. yfir Snæ- fellsjökul á vélsleðum sem þeim þótti talsvert ævintýri. „Okkur hefur líkað mjög vel hér á landi, bæði varðandi viðskipti og margvísleg samskipti. íslendingar eru yfirleitt mjög hjálpsamir, allir vilja greiða götu okkar. Svo höfum við líka kynnst og notið íslenskrar gestrisni, ekki síst varðandi hrossa- viðskiptin. Þess vegna komum við til Islands aftur og aftur.“ -ÖÞ Krakkar á f jölbraut á Akranesi: Taka upp útvarpsþátt fyrir BBC DV, AKRANESI: ~ Dálítið sérstakur og spennandi at- burður átti sér stað í Fjölbrauta- skóla Vesturlands á Akranesi í gær. Þá voru þrír nemendur og einn kennari að störfum i hljóðveri skól- ans við aö taka upp lestur á nokkrum textum fyrir útvarpsþátt sem BBC er að gera um víkinga. DV-MYND DANÍEL V. ÓLAFSSON. Fjölbraut vinnur fyrir BBC Upptakan fór snuröulítiö fram í fjölbrautaskólanum í gærdag. Hér er lesiö upp og tekiö upp á band. Frá vinstri á myndinni eru Fríöa Bjarnadóttir, Ásdís Kristinsdóttir kennari, Guömundína Arndís Haraldsdóttir og Jóhann Pétursson. Þátturinn verður sendur út í des- ember og jafnframt verður sett upp vefsíða í tengslum við hann þar sem FVA verður sérstaklega getið. í þættinum verða lesin tvö erindi úr Hávamálum, texti sem lýsir því að vikingar hafi tekið sér bólfestu í nafngreindum héruðum á Bretlandi og auk þess kynningartexti á nú- tímaíslensku. Tildrög þessa eru þau að leitað var til Hörpu Hreinsdóttur, kennara við FVA, um aðstoð við að fá ís- lenskan upplestur í umræddan þátt, en íslenskan er það nútímatungu- mál sem mest líkist máli víkinga á 10. öld. Harpa er stjórnandi í gras- . rótarsamtökum áhugamanna um víkinga, The Viking Network. Þeir sem lesa eru nemendurnir Fríða Bjarnadóttir, Guðmundína Arndis Haraldsdóttir og Jóhann Pétursson, og Ásdís Kristinsdóttir kennari. Tæknimaður er Helgi Þór Hreiðars- son, nemandi í FVA. Það er gaman fyrir skólann og nemendur hans að fá þetta tækifæri og gott til þess að vita að hér er aðstaða til að taka upp útvarpsþátt sem fullnægir kröf- um BBC. -DVÓ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.