Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2000, Blaðsíða 4
4
Fréttir
MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2000
I>V
Skiptar skoðanir um byggingu íþróttahúss á Hvammstanga:
Menningarfólk
gegn íþróttahúsi
DV. HVAMMSTANGA:____________________
Mjög skiptar skoðanir eru um þau
áform meirihluta sveitarstjómar
Húnaþings vestra að ráðast í bygg-
ingu íþróttahúss á Hvammstanga. Á
fundi menningar- og æskulýðsráðs í
síðasta mánuði var mælt gegn fyrir-
hugaðri íþróttahússbyggingu á
þeirri forsendu að hingað til hefði
sveitarfélaginu ekki tekist að tryggja
nægjanlegt fjármagn til frágangs,
viðhalds og rekstrar þeirra íþrótta-
mannvirkja sem fyrir eru, svo sem
vallanna uppi í Kirkjuhvammi og á
Reykjum.
Allmiklar umræður uröu um þessa
fundargerð á fundi sveitarstjómar
nýlega. Elín R. Líndal oddviti lagði
fram bókun þar sem borin er til baka
fullyrðing frá nefndum fundi menn-
ingar- og æskulýðsráðs um að „erfið-
lega gangi að fá fjármagn til reksturs
og viðhalds þeirra mannvirkja sem
fyrir em“, og segir Elín þær fullyrð-
ingar út í hött, þar sem á þessu ári
verði varið 20,8 milljónum til æsku-
lýðs- og íþróttamála, nær þrefalt því
sem varið var til málaflokksins á ár-
inu 1998. Og alls vom framlög til við-
halds íþróttamannvirkja orðin á
þessu ári 7,724 milljónir, 21. septem-
ber sl.
Ólafur Óskarsson í Víðidalstungu,
einn fulltrúi minnihlutans, vakti at-
hygli á því að meirihluti fagnefndar
sveitarstjórnar mælti gegn byggingu
íþróttahúss á Hvammstanga. Tók
Ólafur undir þessi sjónarmið og
sagði íþróttahússbygginguna fráleita.
Þorsteinn Helgason á Fosshóii
lagði fram langa bókun og telur að
sveitarsjóður sé ekki í stakk búinn
að ráðast í svo stóra framkvæmd og
við það mundu skuldir sveitarfélags-
ins vaxa þannig að óvarlegt sé. Hann
segir enn fremur að almenna sam-
stöðu um málið skorti. Síðan segir
Þorsteinn í bókun sinni:
“Einnig fer íbúum fækkandi ár frá
ári og því miður er ekki að sjá neina
breytingu á því á næstunni. Þá er
gott íþróttahús á Laugarbakka sem
dugir okkur alveg við þær aðstæður
sem við búum við í dag þannig að
bygging íþróttahúss yrði offjárfesting
sem engan veginn er hægt að verja
við núverandi aðstæður," sagði Þor-
steinn og jafnframt að nær væri að
sameina fólk heldur en að sundra
því. -ÞÁ
Rjúpnaveiðin:
Fáir fuglar og dreifðir
„Ég man eftir
þessu ástandi áður,
það er mjög lítið
um fugl og hann er
dreifður mjög um
landið. Það þarf að
kólna ogsnjóa til að
hann þétti sig,“
sagði Sigmar B.
Hauksson formaður
Skotveiðifélags ís-
lands í samtali við
DV í gærkvöld. Rjúpnaveiðin hefur
verið sáralítil víða um land það áem
af er tímabilinu og margir hafa
fengiö lítið sem ekkert. Líklega hafa
verið skotnar á milli 6000 og 7000
þúsund rjúpur, sem þykir ekki mik-
ið. „Fuglinn er í hæstu hæðum og
er mjög dreifður þar, þama er nóg
fyrir fuglinn að bíta og brenna. Ef
maður kíkir í veiðibækur kemur
þetta ástand fyrir á fjögurra til
flmm ára fresti, svo maður hefur
séð þetta ástand áður. Það mesta
sem ég hef frétt eru 40 rjúpur, en
sjálfur hef ég fengið lítið, ætli mað-
ur fari nokkuð að ráði fyrr en kóln-
ar og fer að snjóa,, sagði Sigmar B.
í lokin. Skortveiðimenn sem DV
- beðið eftir snjó og frosti
ræddi við um helgina
voru á sama máli og
formaður Skotveiðifé-
lagsins, lítið hefur sést
og veiðast af fugli. Og
hann er mjög dreifður
í því fíðarfari sem
núna er um landið.
Þetta gæti breyst
næstu daga, allavega
fyrir norðan, þar er
spáð
kólnandi veðri. „Ég
fékk mér góðan
labbitúr vestur í Döl-
um og ég sá ekki fugl,
hvað þá spor eftir
hann. Þetta gerðist
lika hjá mér fyrir hálf-
um mánuði,, sagöi
veiðimaður sem var
Búðardal, á leiðinni
suður fyrir heiðar,
rjúpnalaus eftir helg-
ina. Og annar var við
veiðar í Öxarfirði og
þar hafði hann haft 9
fugla, eftir tveggja
daga veiði.
-G.Bender
DV-MYND BENOER
Kátur veiðimaöur
Þessi veiöimaöur er himinlifandi meö veiöi sína. Aörir eiga erfiöari tíma og flengjast um fjöll
án þess aö fá fugl.
Svo viröist sem eyöublaöahönnuöir
Hagstofunnar kunni ekki stafrófiö.
Öll trúfélög íslands eru hér skráö í
stafrófsröö nema þjóökirkjan sem er
talin fyrst. Ástæöan er sú aö sam-
kvæmt lögum er þjóökirkjan ekki
skráö trúfélag.
íslensk lög:
Þjóðkirkjan
er ekki skráð
trúfélag
Á eyðublaði því sem fólk fyllir út
hjá þjóðskrá Hagstofu íslands, þegar
það skráir sig i trúfélag eða utan
þeirra, virðist sem hönnuður blaðsins
hafi aðeins ruglast í stafrófinu sínu.
Öllum 23 trúfélögunum sem skráð
voru hjá Hagstofunni hinn 1. janúar
2000 er raðað i stafrófsröð á eyðublað-
inu, nema þjóðkirkjunni, sem er
skráð fyrst, á undan Ásatrúarfélaginu
og Zen á íslandi - Nátthaga.
Hjá Hagstofunni fengust þau svör
að lögum samkvæmt væri þjóðkirkjan
ekki og hefði aldrei verið skráð trúfé-
lag. Þar af leiðandi var ekki með réttu
hægt að setja þjóðkirkjuna meðal trú-
félaganna þegar eyðublaðið var hann-
að. Þá var brugðið á það ráð að setja
þjóðkirkjuna fyrst og telja svo hin
réttnefndu skráðu trúfélög upp í staf-
rófsröð á eftir þessari algengustu trú
íslendinga.
Hins vegar fellur skráning manna
innan þjóðkirkjunnar undir lög um
skráð trúfélög íslands. -SMK
Austfirskar verk-
smiðjur græða á
kolmunnanum
í gær höfðu borist 220 þúsund tonn
afkolmunnatilbræðsluhjá fiskimjöls-
verksmiðjunum, þar af um 197 þúsund
tonn frá íslenskum skipum.
Hraðirystihús Eskifjarðar hefúr tek-
ið á rrióti 50 þúsund tonnum af
kolmunna til bræðslu á árinu, Síldar-
vinnslan í Neskaupstað hefur tekið á
móti rúmlega 43 þúsund tonnum og SR-
mjöl hf. á Seyðisfíröi tæpum 42 þúsund
tonnum. Hjá þremur verksmiðjum SR-
mjöls hf. á Seyðisfirði, í Helguvík og á
Raufarhöfn var alls búið að taka á móti
50.200 tonnum af kolmunna það sem af
er vertíðinni. -DVÓ
Veörið i kvöld
Lægir austan til
Að mestu þurrt á Suövestur- og Vesturlandi en
vætusamt í öðrum landshlutum. Lægir
talsvert austan til á landinu er kemur fram á
morgundaginn. Hiti 1 til 10 stig, mildast
syöst.
Sólargangur og sjávarfoll
REYKJAVIK
AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 17.17
Sólarupprás á morgun 09.08
Síódegisflóö 20.13
Árdegisflóó á morgun 08.33
16.51
08.04
00.46
13.06
^♦''.VINDÁTT
“■"\viNDSTYIIKUR
í metriim á sekúnðu
IOTSKÝJAÐ HÁLF-
SKÝJAO
RIGNING SKÚRift
ÉUAGANGUR ÞRUMU-
VEÐUR
Nfrost hbðskirt
£3 0
SKÝJAÐ AISKÝJAO
SLYDDA SNJÓKOMA
SKAF- ÞOKA
RENNINGUR
Skýríngar á veðurtáknum
10V-Hm
-10°
Vindm
Vindurinn
Vindurinn hefur veriö aö láta finna
fyrir sér á síöustu dögum. Hann blés
þó ekki eins hressilega og geröist á
Washingtonfjalli í New Hampshire í
Bandaríkjunum áriö 1934 en þá
mældist mesti vindhraöi sem mælst
hefur í heiminum og var hann 362
km/klst.
Veöriö a niorgun
Skúrir og rigning
Norðan og noröaustan 8 tiil 13 m/s en 13 til 18 norðvestan til. Víöa
skúrir eöa rigning, einkum norðan- og austan til. Hiti 1 til 6 stig.
Miðviktula
Vindur:
13-18 r
J
rþjT
Hiti 1° til 6°
Fimmttubi
Vindur:
13—18 m/%
Hiti 1° til 6
m
Noröan 13 til 18 m/s og
slydda eöa snjókoma meö
köflum noröan til en
fremur bjart sunnan- og
suövestanlands. Kólnandl
veöur og frystir víöa.
Noröan 13 til 18 m/s og
slydda eöa snjókoma meö
köflum noröan til en
fremur bjart sunnan- og
suövestanlands. Kólnandi
veöur og frystir víöa.
Fostiiclagi
iit
Vindur.
3-13
m/s\
Hiti 1° tii 6°
«4
Norölæg átt, 8 tll 13 m/s
og slydda eða snjókoma
norðan tll en úrkomulaust
sunnan til.
AKUREYRI rigning
BERGSSTAÐIR hálfskýjaö
BOLUNGARVÍK rigning
EGILSSTAÐIR
KIRKJUBÆJARKL. skýjaö
KEFLAVÍK skýjaö
RAUFARHÖFN rigning
REYKJAVÍK skýjað
STÓRHÖFÐI alskýjaö
5
6
6
6
6
6
5
6
6
BERGEN skúr 9
HELSINKI snjókoma 2
KAUPMANNAHÖFN léttskýjað 12
ÓSLÓ skýjaö 9
STOKKHÓLMUR slydduél 10
ÞÓRSHÖFN skúr 9
ÞRÁNDHEIMUR úrkoma 5
ALGARVE léttskýjaö 20
AMSTERDAM skýjaö 10
BARCELONA mistur 20
BERLÍN léttskýjaö 15
CHICAG0 hálfskýjaö 4
DUBLIN rigning 7
HAUFAX alskýjaö 8
FRANKFURT skýjaö 13
HAMBORG skýjaö 12
JAN MAYEN skýjaö 4
LONDON hálfskýjaö 12
LÚXEMBORG skýjað 11
MALLORCA léttskýjaö 23
MONTREAL alskýjað -1
NARSSARSSUAQ heiöskírt -6
NEW YORK heiöskírt 4
ORLANDO þokumóöa 13
PARÍS skýjaö 13
VÍN skýjaö 20
WASHINGTON léttskýjaö 13
WINNIPEG heiöskírt 3