Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2000, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2000, Blaðsíða 2
16 25 -v Sport Stelpurnar fá líka Kjörísbikar Derby enn án sigurs - liðið gerði markalaust jafntefli við West Ham Derby County og West Ham skildu jöfh, 0-0, í tilþrifalitlum leik liðanna i ensku úrvalsdeild- inni í knattspyrnu í gærkvöld. Þaö verður því enn bið á fyrsta sigri Derby í deildinni þegar 12 umferðir eru að baki. Liðið er í neðsta sæti með sex stig, einu stigi minna en Bradford sem er næstneðst. Leikurinn á Pride Park var lítið fyrir augaö og skapaði hvorugt liöið sér almennilegt tækifæri. Pa- oli Di Canio hjá West Ham átti hörkuskot undir lokin en Matt Poom, markvörður Derby, varði. Með jafnteflinu er West Ham i 15. sæti með 12 stig. Derby er búið að gera fimm jafntefli á heimavelli og tapa ein- um. Staða Jim Smith knattspymu- stjóra er orðin veik og hefur Colin Todd verið ráðinn honum til aö- stoðar. -JKS í gær var ljóst að KKÍ mun einnig standa fyrir Kjörísbikar kvenna í vetur en fyrirtækjabikar karla er nú haldinn í flmmta sinn. Átta lið mun taka þátt í fyrsta fyrirtækjabikar kvenna sem nú er kenndur við Kjörís. Eftirtalin lið mætast heima og heim- an í átta liða úrslitum: Hamar-Kefla- vík, ÍR/Breiðablik-KR, Njarðvík-fS og Grindavik-KFÍ. Þetta eru öll fimm liö 1. deildar og þrjú liö úr 2. deild en gaman er að sjá að Hamarsmenn eru komnir með kvennalið sem er tilbúið í slaginn. Úrslitin fara síðan fram helgina 16. til 17. desember næstkomandi. -ÓÓJ Unglingasundmót Ármanns um helgina: Skagakrakkar Unglingasundmót Ármanns fór fram um helgina en mótið markaði upphafið á sundvetr- inum hjá yngsta sundfólki landsins. Eins og fram kom í gær á unglingasíöunni unnu Keflavík og SH flest verðlaun að vanda en ekki má gleyma ungu sundfólkiun ofan af Akra- nesi sem stóð sig frábærlega. Skagamenn unnu 13 verð- laun í yngstu flokkunum, það er hjá hnokkum og hnátum. Þrenn af þessum verðlaunum voru gull, þrenn voru silfur og sjö voru brons. Ekkert félag vann fleiri verð- laun hjá yngsta fólkinu og það er því greinilega mjög gott ung- lingastarf komið í gang á Akra- nesi. -ÓÓJ slógu í gegn í Sundhöllinni Hér að ofan má sjá Aþenu R. Júlíus- dóttur (í miðju) og Huldu Halldórs- dóttur (lengst til hægri) á verðlauna- palli í 50 metra bringusundi hnátna. Aþena vann fern verölaun, tvö gull og tvö silfur á mótinu og er mjög efnilega sundkona, sérstaklega ( stuttu sundunum þar sem bæði hennar gull komu í hús. Erla Arnardóttir úr SH (lengst til vinstri) vann sex verölaun, þar af 3 gull. Til vinstri eru verðlaunahafar í 50 metra bringusundi hjá hnokkum. Frá vinstri talið: Þorbjörn H. Heiö- arsson, |A, Leifur Guðni Grétarsson, ÍA, og Ólafur Páll Ólafsson. Ólafur Páll stóö sig frábærlega um helgina og vann öll önnur sund nema þetta þar sem Skagamennirnir unnu tvö- faldan sigur. DV-myndir Óskar Grunnskólamótið í knattspyrnu: Fellaskóli vann Fellaskóli tryggði sér á dögunum sig- ur í grunnskólamótinu í knattspyrnu með því að vinna lið frá Hvassaleitis- skóla, 1-0, í úrslitaleik. Atli Þór Sig- urðsson skoraði markið sem færöi Fellaskóla þennan titii í fyrsta sinn í 11 ár. Fellaskóli vann sinn riðil og lagði síðan liö frá Foldaskóla í vítakeppni í undanúrslitunum. Liðstjóri liðsins er Stefán Halldórs- son, íþróttakennari við skólann, en liöið skipa eftirtaldir strákar: Aron Már Bergþórsson, Atli Þór Sig- urðsson, Brynjar Óli Guðmundsson, Gústaf Adólf Gústafsson, Helgi Mich- ael Guðmundsson, Ingþór Theodór Guðmundsson, Róbert Hjálmarsson, Rúnar Þór Kristjánsson, Sigurður Rúnar Sigurösson, Smári Helgason. -ÓÓJ + ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2000 ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2000 Sport Stúdínur á toppinn - eftir 55 stiga heimasigur á Grindavík 1. DEILD KVENNA Is 5 3 2 323-266 6 leiki inni. KR 3 2 1 202-162 4 Bæði lið voru ísköld í byrjun og ætl- Keflavík 3 2 1 207-156 4 uðu aldrei að ná að byrja leikinn. KFl 2 1 1 120-120 2 Fyrstu 14 skotin geiguðu og fyrsta Grindavík 3 0 3 109-257 0 stigið kom ekki fyrr en eftir fjórar og Stigahæstar: Jessica Gaspar, KFÍ .............22,5 Bima Valgarðsdóttir, Keflavík . 15,3 Hanna B. Kjartansdóttir, KR . . . 15,3 Hafdís Heigadóttir, ÍS...........14,6 Kristín B. Jónsdóttir, KR .......12,7 Flest fráköst: Hafdís Helgadóttir, ÍS...........12,6 Jessica Gaspar, KFÍ ...............9,5 Erla Þorsteinsdóttir, Keflavik ... 9,0 Lovísa Guðmundsdóttir, ÍS.........8,2 Hildur Sigurðardóttir, KR.........6,3 Flestar stoðsendingar: Gréta María Grétarsdóttir, KR . . 5,0 Kristín Blöndal, Keflavík ........5,0 Jessica Gaspar, KFÍ ..............4,5 Lovísa Guðmundsdóttir, ÍS.........4,0 Marín Rós Karlsdóttir, Keflavík . 3,3 Flestir stolnir boltar: Jessica Gaspar, KFÍ ........... Tinna Björk Sigmundsdóttir, KFÍ Gréta María Grétarsdóttir, KR Hafdis Helgadóttir, ÍS......... Bima Valgarðsdóttir, Keflavik Hanna B. Kjartansdóttir, KR .... 2,7 Helga Þorvaldsdóttir, KR ........2,7 Flest varin skot: Hafdís Helgadóttir, ÍS........ Lovísa Guðmundsdóttir, ÍS .. Erla Þorsteinsdóttir, Keflavik Besta vitanýting: Stelia Rún Kristjánsdóttir, IS Hanna B. Kjartansdóttir, KR Hildur Sigurðardóttir, KR .. Kristjana B. Magnúsdóttir, ÍS .. 5,0 ..3,5 . . 3,3 . . 2,8 . . 2,7 . . . 3,8 . . . 2,8 . . . 2,0 . 93,3% . 90,9% . 80,0% 80,0% Jessica Gaspar, KFl...........79,4% Stúdínur komust á topp 1. deildar kvenna í körfubolta með 85-30 sigri á Grindavík í Kennaraháskólanum í gær. ÍS hefur tveggja stiga forskot á KR og Keflavík sem eiga reyndar tvo Kristjana B. Magnúsdóttir skorar hér tvö af 18 stigum sínum gegn Grindavík í gær. Til varnar er Bára Hlín Vignisdóttir hjá Grindavík. DV-mynd E.ÓI. flórir íslenskir Norðurlandameistarar í dansi krýndir um helgina íslenskir unglingar náðu mjög góðum árangri á Norðurlandamóti unglinga í samkvæmisdönsum sem fram fór um helgina í Helsinki í Finnlandi. Af þeim fjórum íslensku pörum sem þar kepptu náðu þrjú í úrslit og tvö i gull. Gullhafarnir voru þau Jónatan Amar Örlygsson og Hólmfríður Björnsdóttir úr Gulltoppi í 11-12 ára flokki og ísak N. Halldórs- son og Helga Dögg Helgadóttir úr Hvönn. ísak og Helga Dögg vom þarna að verja Norðurlandameistaratitil sinn í keppni 25 para en Jónatan og Hólmfríður vom að keppa á mótinu í fyrsta sinn og í þeirra flokki vom 13 pör. Ætla á heims- meistaramótiö ísak og Helga Dögg hafa æft af miklum krafti undanfarið og stunda bæði skólann af kappi, enda bæði komin í framhaldsskóla. Dansinn er erfið íþrótt sem krefst mikils aga, einbeitingar og þrotlausra æfmga og virðist það hafa skilað sér hjá parinu. „Við ætluðum okkur að vinna og verja titilinn frá því í fyrra og það tókst,“ segir ísak. „Við höfum dansað saman í rúmt ár, byrjuðum í júní á síðasta ári og höfum náð vel saman. Við æfum flesta daga vikunnar aðra en sunnudaga og það gengur náttúrlega misjafnlega eins og í öðm,“ bætir Helga Dögg við. Ef langt á að ná í dansinum þarf að ferðast mikið og víða og hefúr parið ekki farið varhluta af því eða kostnaðinum við það. „Við erum að fara um 10 utanlandsferðir á ári og um næstu helgi förum við út þriðju helgina í röð,“ segir Helga en ísak telur ferðimar vera nærri 20. Það fer ansi mikill peningur í þettá, segir Helga. „Það gengur þokkalega að kosta þetta en má ganga mikið betur,“ bætir ísak við. Við fáum styrk frá Kópavogsbæ til einstakra keppna og getum nú leitað til ÍSÍ eftir að dansinn var viðurkenndur sem íþrótta- grein," bæta þau við. Við ætlum okkur að fara á heimsmeistaramótið í desember 2001. Til þess að komast þangað þarf að vinna úrtökumót, hér er það tíu dansa keppni sem ræður og það kemst eitt par frá hveiju landi á mótið sjálft. Það verða um 50 pör þar í keppninni en við stefnum hátt.“ Geisluöu af ánægju Jónatan og Hólmfríður hafa dansað saman i á íjórða ár og byrjuðu snemma að dansa, Jónatan þegar hann var fimm ára en Hólmfríður þegar hún var sjö ára. Þau æfa 4-5 sinnum í viku og leggja hart að sér við æfíngar og keppni. „Þetta var fyrsta Norðurlandamótið okkar en ekki fyrsta mótið erlendis þar sem við kepptum í Þýskalandi í ágúst og síðan erum við aö fara til Kaupmannahafnar," sögðu þau þegar DV-Sport dró parið út af æfmgu í gær í Dansskóla Jóns Péturs og Köru. Þau segjast hvergi nærri hætt og ætla sér fleiri sigra erlendis. Þau voru hæstánægð með árangurinn og sögðu það gaman að hafa sigrað, sem von er, og ánægjan skein úr andlitum þeirra þegar fólkið á staðnum óskaði þeim til hamingju með afrekið. -ÓK hálfa mínútu. Grindavík hélt í við ÍS í fyrri hálfleik en ÍS leiddi 34-17 í hálf- leik. ÍS tók síðan öll völd í seinni hálf- leik og kom muninum vandræðalaust upp í 55 stig. Þórunn Bjamadóttir, María B. Leifsdóttir og Kristjana B. Magnúsdóttir léku best hjá ÍS. Þórunn skoraði meðal annars 7 stig og tók 5 fráköst í síðasta leikhlutanum. Hjá Grindavík hitti Sandra Guð- laugsdóttir vel úr þriggja stiga skotun- um en slæm hittni liðsins inni í teig var helsta orsök fyrir lágu stigaskori, þær hittu aðeins i 5 af 40 tveggja stiga skotum sínum (13%). Stig ÍS: Kristjana B. Magnúsdóttir, 18 (4 stolnir, hitti úr 7 af 11 skotum), María B. Leifsdóttir, 15 (6 stolnir), Þórunn Bjamadótt- ir, 13 (9 fráköst, 6 í sókn, 4 stoðsendingar), Júlia Jörgensen, 11, Hafdís Helgadóttir, 8 (9 fráköst, 6 varin skot, 4 stolnir, 3 stoðsending- ar), Stella Rún Kristjánsdóttir, 8, Lovísa Guðmundsdóttir, 6 (9 fráköst, 5 varin), Jó- fríður Halldórsdóttir, 4, Cecilia Larsson, 2. Stig Grindavikur: Sandra Guðlaugsdóttir, 15 (4 þriggja stiga körfur), Ema Rúna Magn- úsdóttir, 6 (6 fráköst, 4 stolnir), Jovana Stef- ánsdóttir, 5, Sigríður Anna Ólafsdóttir, 4 (8 fráköst, 3 stoðsendingar). -ÓÓJ + Jónatan Arnar Orlygsson og Hólmfríöur Bjömsdóttir úr Gulltoppi meö bikarana sem þau unnu i flokki 11 til 12 ára á Norðurlandamótinu í dansi sem var haldiö í Helsinki (Finnlandi um helgina. DV-mynd E.ÓI. NBA-deildin í körfubolta: Portland tapar -1 þriðja sinn í fyrstu fjórum leikjunum Fimm leikir fóru fram í NBA- Shaq Sterkur í deildinni í nótt. Utah Jazz heldur nágrannaslagnum áfram sigurgöngu sinni og vann Úrslit leikja í fyrrinótt: sinn Qórða leik í röð en lítið L.A. Lakers-L.A. Clippers 108-103 gengur hjá Portland Trailblazers O'Neal 39 (15 fráköst, 5 varin), Rider 22, sem tapaði sínum þriðja leik af Bryant 21 - Odom 19 (15 fráköst, 6 fjórum, nú gegn Sacramento stoðs.), Mclnnis 19, Nesby 17. Kings, 79-75, þar sem Chris Phoenix-Houston......104-99 Webber var sterkur í liði Robinson 30, Kidd 18 (9 stoðs.), Rogers 18 Sacramento með 29 stig. - Mobley 27, Francis 24, Williams 11. úrsiit ieikja í nótt: Stockton og Malone bestu Oriando-Seattie ......no-99 leikmenn fyrstu vikunnar McGrady 31, Armstrong 20, Amaechi 20, Utah Jazz hefur byrjað tímabilið Doleac 17 - Lewis 28, Payton 23 (10 vel og unnið fjóra fyrstu leiki sína. stoðs.), Baker 10 (13 frák.). í gær voru lykilmenn liðsins, John Denver-Dallas ....... 96-108 Stockton og Karl Malone, valdir LaFrentz 23, Pack 17, Van Exel 13, bestu leikmenn fyrstu vikunnar. McDyess 12 - Finley 26, Nowitzki 18, I þessum þremur sigurleikjum Eisley 14, Alexander 14. skoraði Stockton 15,3 stig að Utah-Minnesota....... 98-92 meðaltali, gaf 12,3 stoðsendingar í Malone 22 (15 frák.), Starks 16. Stockton leik á móti aðeins 4 töpuðum 13, Manning 13 - Brandon 25, Gamett 22, boltum til samans í þeim öllum auk Billups 19, Szczerbiak 16. þess að hitta úr 65,5% skota sinna. Vancouver-Atlanta .... 97-87 Malone skoraöi 31,7 stig, tók 9 Abdur-Rahim 18, Harrington 18, fráköst og hitti úr 54,2% skota Dickerson 14 - Wright 19 (14 frák.), sinna. Engir tveir leikmenn hafa Henderson 19, Jackson 15. leikið jafnmarga leiki saman í sögu Sacramento-Portland.. 79-75 NBA og þessir tveir eða yfir 1100 Webber 29, Divac 16 (11 frák.), Christie 8, leiki. í þessari viku lagði Utah J. Barry 8 - R. Wallace 24, Pippen 13, meðal annars meistarana í Lakers Stoudamire 8, D. Davis 6 (11 frák.). á þeirra eigin heimavelii. -ósk/ÓÓJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.