Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2000, Blaðsíða 1
19
NBA-deildin í nótt:
Carter kóngur
Vince Carter var hetja Toronto
Raptors þegar liðið lagði New York
Knicks, 70-68. Hann stal einum
bolta, tók eitt varnarfrákast og skor-
aði úr þremur vítaskotum á síðustu
hálfri mínútu leiksins eftir að New
York hafði verið yfir, 68-67.
Úrslitin í nótt:
Toronto-New York............70-68
Carter 24, Williamson 16, Oakley 14 (11
frák.) - SpreweU 18, K. Thomas 12 (10
frák.), Rice 10, Houston 9.
San Antonio-Denver.........96-102
D. Robinson 23 (12 frák.), Duncan 17 -
LaFrentz 28 (13 frák.), McDyess 19 (12
frák.), Van Exel 18 (11 stoðs.).
Golden State-Houston........95-98
Jamison 23 (11 frák.), Porter 20, Jackson
15 (10 frák.), Hughes 15 - M. Taylor 22,
Mobley 20, Francis 16 (12 stoðs.)
-ósk
Örn Arnarson sést hér synda í
200 m baksundi í lauginni í
Valencia í gær en þetta var í
þriöja sinn í röö sem Örn
vinnur í greininni á EM í 25 m
laug. Örn fagnar sigri sínum á
minni myndinni fyrir neöan.
Reuter
Fótboltinn
vinsælastur
Nú er úrvinnslu starfsskýrslna
ISI lokið og ljóst að félagar f
íþróttahreyfmgunni eru rúmlega
123.000 og iðkendur um 75.500 sem
er nokkur aukning frá fyrra ári.
Sem fyrr eru flestir iðkendur i
knattspyrnu en athygli vekur að
golf er í öðru sæti og þjóðaríþrótt-
in, handboltinn, er aðeins í sjö-
unda sætið með, sem dæmi, yfir
1000 færri iðkendur en körfubolt-
inn. Skipting á milli iþróttagreina
er eftirfarandi.:
Knattspyrna 15.498 iðkendur
Golf 8.097 iðkendur
Hestaíþróttir 6.782 iökendur
Körfuknattleikur . . 5.783 iðkendur
Badminton 5.452 iðkendur
Frjálsar íþróttir . . . 5.229 iðkendur
Handknattleikur .. . . 4.741 iðkandi
Fimleikar . 3.921 iðkandi
Sund
Skíðaíþróttir 2.284 iðkendur
Dans 2.056 iðkendur
Blak 1.662 iðkendur
Skotfimi 1.453 iðkendur
Skautaíþróttir .... .996 iðkendur
íþróttir fatlaðra .... . 992 iökendur
Júdó . 962 iökendur
Borötennis . 902 iðkendur
Tennis . 856 iðkendur
Keila . 483 iðkendur
Siglingar .476 iðkendur
Skylmingar . .427 iðkendur
Glíma . 405 iðkendur
Lyftingar . 310 iðkendur
Hjólreiðar . 155 iðkendur
TaeKwonDo . .105 iðkendur
Veggtennis . .100 iðkendur
Fallhlifastökk . . 69 iðkendur
Verðlaun DV-Sport veitt um helgina
Líkt og í handboltanum mun DV-Sport veita þeim leikmönnum verð-
laun í karla- og kvennaflokki í körfunni sem skara fram úr í vetur.
Fyrsta verðlaunaafhendingin í vetur verður í Strandgötunni um helg-
ina þegar DV-Sport veitir þeim stelpum verðlaun sem náðu bestum ár-
angri í fyrri hluta 1. deildar kvenna. Auk þessa er besti leikmaður og
besti þjálfari verðlaunaður í þessum hluta kvennakörfunnar. Fyrri
hlutinn verður síðan gerður upp í mánudagskálfi DV-Sport. -ÓÓJ/SK
Örn Amarson varð í gær Evrópu-
meistari í 200 metra baksundi í 25
metra laug á EM í Valencia á Spáni,
þriðja árið í röð. Timi Arnar var
1:52,90 mín. og varð hann 0,6 sekúnd-
um á undan næsta manni. Örn setti
nýtt nýtt íslands- og Norðurlanda-
met f sundinu en fyrra metið átti
hann sjálfur, 1:54,20 mín., sett í
Lissabon fyrir rétt um tveimur
árum. Króatinn Gordan Kozulj varð
annar í sundinu, en hann átti besta
tímann í undanrásum í gærmorgun.
Öm bætti sig um rúmar þrjár sek-
úndur frá því í undanrá' m
Úrslitin í gær:
1. Öm Arnarson . . . 1:52,90 mínútur
2. Gordan Kozulj..........1:53,50
3. Blaz Medvesek..........1:54,61
4. Viktor Bodrogi ........1:55,52
5. Jorge Sanchez .........1:56,21
6. Sander Ganzevles ......1:57,38
7. V. Nikolaychuk ........1:57,50
8. Stephen Parry..........1:58,22
Ómar Snævar Friðriksson, SH,
keppti í gær í undanrásum í 200 m
fjórsundi og 400 m skriðsundi en
varð síðastur í báðum greinum.
-ósk/ÓK
Úrslit í i ;iöri. kai /enna:
Fjögur frækin
- spennandi körfuboltahelgi hjá stelpunum
Það er spennandi körfu-
boltahelgi fram undan hjá
konunum þvl þá verður í
fyrsta sinn spilað til úr-
slita í fyrirtækjabikar
kvenna. Kjöris styrkir
keppnina í ár líkt og hjá
körlunum þar sem Grind-
víkingar tryggðu sér sigur
á dögunum.
Það má með sanni segja
að hin fjögur fræknu í
kvennaboltanum séu kom-
in alla leið í úrslit því KR,
KFÍ, Keflavík og ÍS eru
flögur efstu lið 1. deildar
kvenna og hafa öll verið
að vinna hvert annað i
vetur. Það má því búast
við mjög spennandi og
skemmtilegum leikjum.
Fyrri undanúrslitaleik-
urinn á laugardag er á
milli Keflavíkur og KFÍ.
Liðin skiptu með sér sigr-
um í 2 leikjum í Keflavík
um síðustu helgi en ísa-
Qarðarstelpurnar, sem
hafa komið svo á óvart i
vetur, eiga von á miklum
stuðningi til að hjálpa
þeim við að vinna fyrsta
stóra titilinn á ísafiörð. •
Keflavíkurliðið hefur
misst reynslumikla leik-
menn frá því í fyrra en
hefur aftur á móti mörg-
um ungum og leiknum
stelpum yfir að ráða.
KR og ÍS skiptu einnig á
milli sín sigrum í leikjum
vetrarins, ÍS vann fyrri
leikinn á heimavelli sín-
um en KR heimaleikinn
sinn örugglega.
Stúdínur fá liðstyrk í
leikinn með Signýju Her-
mannsdóttur sem gæti
hugsanlega reynst KR erf-
ið en Stúdínur eiga fyrir j
tvo sterka leikmenn undir
körfunni og taka þær bæði
flest fráköst og verja flest
skot 1 deildinni. i
KR-liðið hefur verið að
fmna sig betur og betur
eftir því sem liðið hefur á j
veturinn og liðið er á
toppnum sem stendur. j
Fyrri leikurinn er j
klukkan tvö en seinni
klukkan 4 og úr-
slitaleikurinn er síðan dag-
inn eftir klukkan 4. Allir
leikimir eru í Strandgötu i
Hafnarfirði. -ÓÓJ