MANUDAGUR 18. DESEMBER 2000 Fréttir I>V Uppkaup húsa á hættusvæði í Bolungarvík er feimnismál: Snjóflóðavarnir hamli gegn fólksf lótta - ófulhiægjandi snjóflóðavarnir fyrir 520 milljónir króna eða uppkaup fyrir 100 til 400 milljónir Sandkorn Fyrirhugaðar framkvæmdir við snjóflóðamannvirki fyrir ofan byggðina í Bolungarvik eru taldar kosta um 520 milljónir króna. Það jafngildir um hálfri milljón króna á hvern íbúa bæjarins. Þrátt fyrir þá varnargarða sem nú er fyrirhugað að gera verður áfram að rýma þau hús sem næst fjallinu standa. Ef engir varnargarðar yrðu byggðir myndu uppkaup húsa á mesta hættusvæðinu 1 Bolungarvík hins vegar ekki kosta nema 140 til 400 milljónir króna. Ekki hefur verið léð máls á því að kaupa upp hús við Dísarland þar sem snjóflóð hef- ur fallið á að minnsta kosti þrjú af sex hús- um í götunni. Þessir íbúar verða áfram í hættu og þurfa að rýma hús sín ef hættuástand Hörður Krístjánsson að rýma allt að 60 hús til viðbótar sem hugsanlega gætu fallið undir þá skilgreiningu sem ýtrasta hættumat gerir ráð fyrir. Við ýtrustu skil- greiningu á snjóflóðahættu gæti hún varðað allt að 500 íbúa í pláss- inu en að öllu jöfnu ekki nema 50 til 150 manns. Óróleiki þrátt fyrlr varnargarða Ljóst er að íbúum þeirra húsa sem næst fyrirhuguðum mannvirkj- um munu standa verður ekki rótt þrátt fyrir varnargarðana. Hafa sumir þeirra óskað eftir uppkaup- um húsa sinna Innlent fréttaljós skapast, þó áhættan minnki eitthvað með tilkomu garðanna. Það vekur athygli að ef engir garðar yrðu gerðir þyrftu íbúar 12-14 húsa að yfirgefa heimili sín strax og einhver hætta skapast. Eft- ir þvi sem hættan eykst fjölgar þeim húsum sem áætlanir yfirvalda gera ráð fyrir að séu rýmd. Hugsanlega gæti þurft að rýma ailt að 40 hús. Að mati margra heimamanna er ólík- legt talið að nokkurn tímann þurfi blaðamaður eins og Olgeir Hávarðarson og fjölskylda. Lög um Ofanflóða- sjóð gerir ekki ráð fyrir að bæði sé hægt að byggja hundruð milljóna króna varnarmann- virki og kaupa upp hús á sama tíma. Þetta er tekist á um í Bolungarvík nú. Olgeir hefur lýst því yfir að menn þurfi ekki að óttast að hann hlaupi á brott úr bænum ef húsið verði keypt af honum, hann vilji aðeins flyta sig á öruggari stað. Lítið hefur verið fjallað um hug- myndir sem lúta að því að gera enga varnargarða heldur einungis að kaupa upp hús á svæðinu sem í Snjóflóöahættusvæoi í Bolungarvík Skyggða svæðiö sýnir þann hluta Bolungarvíkurkaupstaöar sem hugsanlega gæti verið i hættu ef aftakasnjóflóð félli úr Traðarhyrnu. Það sem talið er raunverulegt hættusvæði í dag er þó mun minna. Nú er beðið er eftir endan- legri skilgreiningu a hættumati sem á að klárast á næsta ári samkvæmt reglugerð frá því í sumar. Dfsarland 10 og 14 í Bolungarvík Líklega væri bæði ódýrara og öruggara að sleppa snjóflóðavörnum aö mestu eða öllu leyti og kaupa þess í stað upp öll hús viö Dísarland og nálægar göt- ur. Hugmynd sem fáir vilja ræða í heyranda hljóði. mestri hættu eru. Ljóst er að sveit- arstjórnarmenn óttast þá umræðu af hræðslu við að missa enn fleiri íbúa en orðið er suður á mölina. Ef þessi móguleiki væri hins veg- ar i alvöru uppi á yfirborðinu væri verið að tala um uppkaup á að minnsta kosti 14 húsum, eða jafnvel allt að 40 húsum, allt eftir því hvað menn telja síðan ásættanlega áhættu varðandi þau hús sem eftir standa. Miðað við þann kostnað við snjóflóðamannvirkin sem nú er gert ráð fyrir má ætla að mjög ásættan- legt kaupverð 14 húsa miðað við markaðsverð í Bolungarvík gæti verið um 140 milljónir króna. Upp- kaup á 40 húsum myndu samkvæmt þessu kosta opinbera aðila um 400 milljónir króna. Miðað við reynsl- una og kaupverð fasteigna á hættu- svæði í Hnífsdal má leiða að því lík- um að allt að 50-60 hús fengjust fyr- ir sömu upphæð og nú er ætlaö að setja í varnir sem fyrirfram er vitað að muni ekki verða fullnægjandi í Bolungarvík. -HKr. Vilja auka öryggi Hvalf jaröaganga: Spölur á ekki fýrir myndavél DV, HVALHRÐI:____________________________ Margvíslegar ráðstafanir voru gerðar á nýliðnu starfsári Hvalfjarð- arganga til að tryggja enn frekar ör- yggi vegfarenda í göngunum og þar verður hreint ekki látið staðar numið. Stjórnarformaður Spalar, Gísli Gíslason, sagði á aðalfundi fé- lagsins í dag að öryggismálin væru stjórn Spalar sérstakt metnaðarmál. Hann greindi frá þvi að rækilega hefðu verið kannaðir möguleikar á aö setja upp fullkomið myndavéla- kerfi i göngunum. í ljós kom að kostnaður við slíka framkvæmd yrði á bilinu 50-60 mUljónir króna, sem þótti of stór biti, í bili að minnsta kosti. Stjórn félagsins ákvað því að fresta fram- kvæmdum að sinni og bíða eftir nið- urstöðum skýrslu sem væntanleg er frá Efnahagsstofnuninni i París, OECD, um öryggismál í jarðgöng- um. Hins vegar bauð stjórn Spalar embætti ríkislögreglustjóra að félag- ið myndi greiða stofnkostnað við að setja upp hraðamyndavélar í göng- unum og taka þátt í rekstri þeirra. Boðið var þegið en enn hefur ekki orðið af framkvæmdum. Gisli Gísla- son sagði að ráðamenn Spalar teldu brýnustu öryggisþætti ganganna vera þá að halda umferðarhraðan- um niðri. -DVÓ Hvalfjarbargöngln Stjórn Spalar vill tryggja frekara óryggi ígöngunum. "Umsjón: Gyifi Kristjánsson netfanfí: sandkorntíff.is Falinn bæjarstjóri Kristján Þór Júlíusson bæjar- stjóri á Akureyri á það gjarnan til að taka þátt í lífinu með þegnum sín- um" og bregða á leik ef möguleiki er á, enda tekur hann síg mátulega hátíðlega. Nú, þegar miðbæjarkaup- menn á Akureyri berjast af alefli gegn nýju Glerártorgi og efna til upp- ákoma er bæjarstjórinn með i leikn- um, alveg eins og hann er til í að láta sjá sig á Glerártorgi sé eftir því leitað. Á laugardaginn var eitt af skemmtiatriðunum" ímiðbæ Akur- eyrar að finna bæjarstjórann. Hann átti að fela sig á miðbæjarsvæðinu og veita átti heppnum finnanda verð- laun. Þegar þetta var skrifað var ekki vitað hvort bæsi" var fundinn. Dansinn stiginn Bjarni Fel. I íþróttafréttamaður j heldur sinu striki á j ríkisfjölmiðlunum | og gefur ekkert eft- ir. Hann fór mik-1 inn í lýsingu sinni á bikarleik Fram | og Hauka í hand- boltanum í síðustu' viku, en þar gekk mikið á og menn tóku hver annan engum vettlingatök- um. Bjarni tiundaði þetta skiimerki- lega í beinni lýsingu af leiknum og þegar honum fannst leikmenn takast heldur harkalega á kom þetta gull- korn: Hér er mikill darraöardans stiginn." Framarar lutu svo í gólf- dúk" en það er næsta víst" að þeir voru ekki ánægðir með það. Það er alltaf gaman að Bjarna og enn er hann ókrýndur konungur þegar íþróttalýsingarnar eru annars vegar. Merkílegar rjúpur Skotveiði- menn í Eyja- firði eru ekki mjög hressir þessa dagana, enda hefur verið erfitt að fi stunda veið- arnar í haust, tíðarfar hefur lengst af verið mjög óhagstætt, frekar lítið virð- ist vera af fugli á svæðinu og hann styggur ef til hans sést á annað borð. Á einum stað hafa menn þó frekar get- að gengið að fugli vísum en á öðrum stöðum, en það er við utanverðan Eyjafjörð að austanverðu. Þar bannaði að vísu umhverfisráðherra mönnum að skjóta rjúpur í haust vegna ein- hverra rannsókna. Rannsóknarrjúp- urnar" hafa hins vegar tekið upp á því að íljúga með senditæki vísindamann- anna inn á bannsvæðið, væntanlega vegna þess að þar eru byssur bannað- ar. En rjúpurnar hafa hins vegar hrunið þar niður, sennilega hafa senditækin drepið þær einhverra hluta vegna. Afleiðingin er m.a. sú að byssulausir skotveiðimenn fá sér gjarnan göngutúr á svæðinu og tína þar upp dauðar rjúpur i jólamatinn, enda ekkert að hafa annars staðar. Enn Kækkar það Stangaveiöímenn hlusta hins vegar forviða á þær frétt- .. ir sem berastáf Blöndu, eri áin var boðin út í haust. Akureyringar sérii I hafa haft ána á I leigu undanfarin I ár buðu víst um 7 milljónir í hana og hækkuðu sig verulega frá sl. sumri. Það dugði þó skammt því Stangaveiðifélag Reykja- víkur og Árni Baldursson sem helst hafa stuðlað að síhækkandi veiðileyf- um hér á landi undanfarin ár fóru í enn eitt verðstríðið og herma fregnir að SVFR hafi boðið 10,5 milljónir og Árni 11 milljónir og hreppt hnossið. Oft og iðulega er vatnið í Blöndu svo drullugt að ekki er hægt að veiða í því og þá húkka menn að sögn. Veiðileyfin í Blöndu næsta sumar verða því án efa dýrustu húkkleyfi sögunnar.