Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2001, Blaðsíða 1
15
\ *<
t
V&fíJBL
Fimmtudagur 4. janúar 2001
Aukin abyrg
Ólafur Jón Ormsson, fyrir-
liöi KR, er besti leikmaður
fyrri hluta að mati blaðamanna
DV-Sport. Ólafur Jón skoraði
18,8 stig að meðaltali í 11 leikj-
um og var aðalmaðurinn á bak
við sex sigurleiki liðsins i röð
þar sem liðið náði að brjótast
út úr kreppu þeirri sem heltók
Vesturbæinga í byrjun móts.
Ólafur Jón hefur verið
óstöövandi eftir að Keith
Vassell kom aftur og er Ólafur
með 26,8 stig, 53,7% skotnýt-
ingu, 55,6% þriggja stiga nýt-
ingu (20 af 36) og 93,8% vítanýt-
ingu í þeim fjórum leikjum
sem Vassell hefur notið við.
Frammistaða Ólafs á siðasta
ári hefur heldur ekki farið
fram hjá forystumönnum
körfuknattleikshreyfmgarinn-
ar því hann var valinn
körfuknattleiksmaður ársins
2000 ekki alls fyrir löngu.
DV-Sport tók Ólaf tali eftir
að hafa afhent honum bikar
fyrir að vera besti leikmaður
fyrri hluta Epsondeildarinnar.
Hvaða máli skiptir þaó fyrir
þig sem leikmann aó fá þessar
vióurkenningar frá KKÍ og DV-
Sport?
„Þessar viðurkenningar eru
mikill heiður fyrir einstakling
eins og mig og ég er að sjálf-
sögðu mjög ánægður með að
hafa orðið fyrir valinu. Ég lít á
þessar viðurkenningar sem
staðfestingu á því að siðasta ár
hafl verið ágætt hjá mér. í
mínu'tilfelli er samt varla hægt
að líta á þetta sem einstaklings-
verðlaun því ég tel mig vera
miklu meiri liðsmann heldur
en þann sem skapar mikið upp
á eigin spýtur. Ég er háður því
að hafa góða leikmenn í
kringum mig til að
spila vel og þaö er eng-
in spurning að félagar
mínir í KReiga stóran
hlut i þessum titlum,"
sagði Ólafur.
Hef þroskast mikiö
„Það er deginum ljós-
ara að ég hef þroskast
mikið bæði sem leik-
maður og einstaklingur
undanfarið ár. KR-liðið
er ungt að árum og við
„eldri“ mennirnir höfum þurft
að axla aukna ábyrgð. Sú
ábyrgð hefur gert mér gott og
ég tel mig betri leikmann fyrir
vikið.
Við erum núna fyrst að ná
þeim stöðugleika í leik okkar
sem við viljum hafa eftir
hörmulega byrjun og ég held
að við getum litið þokkalega
bjartsýnir til seinni hlutans í
deildinni," sagði Ólafur.
Kanalaus lið
„Ástæðan fyrir slæmu gengi
okkar í byrjun held ég að sé sú
að við spiluðum of marga leiki
gegn liðum án útlendings, unn-
um allt og ofmátum sjálfa okk-
ur. Síðan komu Kanamir til
landsins, liðin styrktust en við
stóðum i stað. Það var ekki
fyrr en við vissum að Keith
kæmi sem dæmið fór að snúast
við. í dag erum við í ágætri
stöðu, allt hefur verið á uppleið
undanfarnar vikur og þegar
menn eins og Bow og Hermann
koma inn á fullu eftir meiðsli
verðum við sterkir," sagði
Ólafur Jón Ormsson, fyrirliði
íslandsmeistara KR. -ÓÓJ/ósk
Bunce í bið
Forráðamenn Breiðabliks hafa mikinn áhuga á að fá nýsjálenska vam-
armanninn Che Bunce til liðs við sig á ný en hann lék með liðinu fyrir
tveimur árum við góðan orðstír.
Bunce er samningsbundinn liði á Nýja-Sjálandi og á i erfiðleikum með
að losna frá liðinu fyrir næsta sumar. Samningur hans rennur út um
næstu áramót og vonast Blikar eftir að Bunce gangi að nýju í raðir fé-
lagsins áður en tímabilið hefst á næsta ári. -ósk
Bandaríski framherjinn Ali Curtis, sem leikið hefur
með háskólaliði Duke undanfarin Qögur ár, mun að öllum
líkindum spila með Breiðabliki næsta sumar. Blikar
þekkja vel til skólans þvi Atli Knútsson, markvörður
þeirra, var þar við nám. Auk þess er miðjumaðurinn Ro-
bert Russell, sem spilaði með Breiðabliki á síðasta ári,
samherji Curtis i Duke. Curtis var valinn leikmaður árs-
ins í háskólaboltanum í fyrra og þykir vera mjög skæður
sóknarmaður. Hann skoraði 15 mörk og átti 9 stoðsend-
ingar á síðasta tímabili og skoraði alls 53 mörk á þeim
fjórum árum sem hann lék með Duke. Samkvæmt for-
ráðamönnum Blika er nú unnið að því að fá Curtis og
Russell til landsins fyrir næsta sumar og vonast þeir að
málin skýrist fyrir næstu mánaðamót. Það sem gæti
eyðilagt áform Blika er að þeir yrðu valdir í hinu árlega
vali fyrir bandarísku atvinnumannadeildina i
knattspymu en það val fer fram í næsta mánuði. -ósk
DV-mynd Þórhailur
DV-Sport-verðlaunin:
bestir í fyrri umferð
DV-Sport hefur veriö að verölauna það
körfuknattleiks- og handboltafólk sem hefur
skarað fram úr í vetur og í gær fengu
körfuknattleiksmenn viðurkenningu fyrir
fyrri hluta Epsondeildarinnar í körfubolta.
1 opnu DV-Sport í dag má ftnna allt um
hvaða leikmenn og lið stóðu öðrum framar
í fyrri hlutanum sem var mjög jafn og
skemmtilegur.
Ólafur Jón Ormsson, fyrirliði KR, var
einróma valinn af blaðamönnum DV-Sport
besti leikmaður fyrri hluta Epsondeildar-
innar. Aðrir sem voru tilnefndir: Eirikur
Önundarson, ÍR, Magni Hafsteinsson, KR,
Logi Gunnarsson, Njarðvík, Sveinn Blön-
dal, KFÍ, Páll Axei Vilbergsson, Grindavík,
Bragi Magnússon, Haukum, Brynjar Karl
Sigurðsson, Val, og Óðinn Ásgeirsson, Þór
Ak.
Valur Ingimundarson var við sama tæki-
færi kosinn besti þjálfari fyrri hluta en
hann hefur leitt Tindastólsliðið til sigurs í 9
af 11 leikjum fyrir jól, liðið er í 2. sæti í Ep-
sondeidlinni, komst í undanúrslit Kjörísbik-
arsins og átta liða úrslit Doritos-bikarsins.
Aðrir sem voru tilnefndir: Sigurður Ingi-
mundarson, Keílavík, Pétur Ingvarsson,
Hamri, Ingi Þór Steinþórsson, KR, og Alex-
ander Ermolinskij, Skallagrími. -ÓÓJ
vr, : » Hér sést Ólafur Jón Ormsson,
besti leikmaður fyrri hluta Epson-
ijf' S,deildarinnar aö mati DV-Sport,
> 'íi v'XZ kl meö bikarinn en á myndinni hér aö
| H ofan til hægri sést Valur Ingimund-
• ■ arson, þjálfari Tindastóls og besti
“ X' .1 -f/ þjálfari fyrri hlutans meö bikarinn
; Mmat-JS fyrir framan leikmenn sína.
mmmm