10 FÖSTUDAGUR 23. MARS 2001 UPPBOÐ Framhald uppboös á eftirfarandi eignum verður háö á þeim sjálf- um, sem hér segir: Gnitanes 6, 0201, 175,4 fm íbúð á efri hæð ásamt 41,8 fm bílgeymslu m.m., Reykjavík, þingl. eig. Kolbrún Eysteins- dóttir, gerðarbeiðendur Hreinsun og flutningur ehf., íbúðalánasjóður, Lífeyris- sjóður starfsmanna ríkisins, B-deild, og Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 27. mars2001,kl. 10.30.________________ Hamraberg 8, Reykjavfk, þingl, eig. Gunnar Þorsteinn Jónsson, gerðarbeið- andi Lífeyrissjóðurinn Framsýn, þriðju- daginn 27. mars 2001, kl. 13.30. Kóngsbakki 10, 0302, 89,4 fm íbúð á 3. hæð m.m., Reykjavík, þingl. eig. Herdís Hrönn Arnadóttir og Aðalsteinn Guð- mundsson, gerðarbeiðandi Ibúðalána- sjóður, þriðjudaginn 27. mars 2001, kl. 14.00._____________________________ SÝSLUMADURINN f REYKJAVÍK UPPBOÐ Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Stillholti 16-18, Akranesi, sem hér segir á eftir- ______farandi eignum:______ Háteigur 2, Akranesi, þingl. eig. Skúli Garðarsson og Sigþrúður Guðmunda Sig- fúsdóttir, gerðarbeiðendur fbúðalánasjóð- ur, lslandsbanki hf., Kirkjusandi, Skelj- ungur hf. og Sturla Þórðarson, fimmtu- daginn 29. mars 2001, kl. 14.00._______ Heiðargerði 24, efri hæð, Akranesi, þingl. eig. Ástrós Brynjólfsdóttir og Brynjar Þorlákur Emilsson, gerðarbeiðendur Akraneskaupstaður og Ibúðalánasjóður, fimmtudaginn 29. mars 2001, kl. 14.00. Höfðabraut 1, hluti0201,Akranesi, þingl. eig. Sigurður Þór Mýrdal Gunnarsson, gerðarbeiðendur Akraneskaupstaður og Ibúðalánasjóður, fimmtudaginn 29. mars 2001, kl. 14.00._____________________ Kirkjubraut 6a, Akranesi, þingl. eig. Ul- rika Margareta Iwarsson og Valdimar Bjarni Guðmundsson, gerðarbeiðendur Akraneskaupstaður, Akranesveita, fbúða- lánasjóður og Vátryggingafélag fslands hf., fimmtudaginn 29. mars 2001, kl. 14.00._____________________________ Merkigerði 6, efri hæð, Akranesi, þingl. eig. Guðmundur Smári Guðmundsson, gerðarbeiðendur Spölur ehf. og Vátrygg- ingafélag íslands hf., fimmtudaginn 29. mars2001,kl. 14.00.________________ Skarðsbraut 3, hluti 010L Akranesi, þingl. eig. Knattspyrnufélag I.A., gerðar- beiðendur íbúðalánasjóður og Lffeyris- sjóður verslunarmanna, fimmtudaginn 29. mars2001,kl. 14.00._____________ Vesturgata 93, efri hæð, 0201, Akranesi, þingl. eig. Jóna Ágústa Adolfsdóttir og Páll Jónsson, gerðarbeiðandi fbúðalána- sjóður, fimmtudaginn 29. mars 2001, kl. 14.00._____________________________ Vogabraut 46, Akranesi, þingl. eig. Ragn- ar Valgeirsson, gerðarbeiðendur Véla- verkstæðið R.Á.S. ehf., fimmtudaginn 29. mars2001,kl. 14.00._____________ Ægisbraut 11, Akranesi, þingl. eig. Guð- mundur Georg Guðmundsson, gerðar- beiðendur Akraneskaupstaður, Bygginga- félagið Byggir ehf., Logi ehf., og Sæplast hf., fimmtudaginn 29. mars 2001, kl. 14.00._____________________________ SÝSLUMAÐURINN Á AKRANESI Utlönd I>V Geimstöðin Mir steyptist í Kyrrahafið í morgun: Eldglæringar yfir Fijíeyjum Rússneska getmstööin Mir steyptist i Kyrrahafið í morgun eft- ir stórkostlega eldglæringasýningu yfir Fijieyjum. Þar meö var bund- inn endi á fimmtán ára glæstan feril geimstöðvarinnar á sporbaug um jörðu. Stjórnstöðin skammt utan við Moskvu sendi lokaboð til geim- stöðvarinnar rétt rúmlega fimm í morgun og ræsti hreyfla hennar til að breyta stefnunni svo hún myndi falla á fyrir fram ákveðinn stað fjarri mannabyggð í Kyrra- hafi. Við sáum fimm eða sex brot með mikinn reykhala og þetta stóð yfir í tíu til fimmtán sekúndur. Nokkrum síðar heyrðist tvisvar að hljóðmúrinn var rofinn," sagði Mark Baker, ljósmyndari Reuters- fréttastofunnar á Fijieyjum. Þetta var beint fyrir ofan okkur, undir skýjunum. Svona nokkuð upp- lifir maður ekki nema einu sinni." Ástralskir embættismenn í Can- berra sögðu í morgun að þeir teldu að Mir hefði fallið í afskekktan hluta Kyrrahafsins sem kallaður er kirkjugarðurinn", um þrjú þús- und kílómetra frá Pitcairneyjum sem Bretar ráða yfir. Þetta gerðist nákvæmlega á þeim stað sem rússneska geimvís- indastofnunin hafði spáð fyrir, milli Ástraliu og Chile," sagði Dav- id Templeman, forstöðumaður al- mannavarna i Ástralíu. Þjóðir í Suður-Kyrrahafi voru við öllu búnar í morgun ef ske kynni að brak úr geimstöðinni félli á þurrt land en ekki í sjóinn. í stjórnstöðmni í Rússlandi voru margir súrir á svipinn þegar enda- lok Mir voru orðin að veruleika. Jafnframt voru menn stoltir af því afreki sínu að hafa haldið Mir á lofti þrisvar sinnum lengur en áform voru um i upphafi. Mir hefur lokið sigursælli göngu sinni," sagði þulur í stjórn- stöðinni. Hún átti engan sinn líka í sögu geimrannsókna." Geimstöðin, sem vó 136 tonn, hafði verið á sporbaug um jörðu frá árinu 1986. Mikill meirihluti geimstöðvar- innar brann upp þegar hún kom inn í gufuhvolf jarðar en 20 til 40 tonn, að talið er, féllu í hafið. Geimstöðin Mir á leiö í hafiö Mikið sjónarspil blasti vlö íbúum Fijieyja í Kyrrahafi í morgun þegar brak úr rússnesku geimstööinni Mir þutu yfir him- inhvolfíö með tilheyrandi eldglæringum og reykjarstróki. Brakið úr geimstöðinni féll í Kyrrahafið fjarri allri mannabyggð, eins og rússneskir geimvísindamenn höfðu skipulagt. Staðurinn þar sem Mir féll hefur viðurnefnið kirkjugarðurinn. Iðnaðar og bílskúrshurðir Enn einn harmleikur í Kaliforníu: Skothríð í skóla tilboð «ff5 /AFLRAS Einhöfða 14» 110 Reykjavík sími 587 8088 ^8X587 8087 Unglingspiltur með krúnurakað höfuð, sem hafði komið sér fyrir í leyniskyttustellingum, hóf skothríð á framhaldsskólann sinn í El Cajon, einu úthverfa borgarinnar San Diego í Kaliforniu, í gær. Skotmað- urinn hæfði að minnsta kosti fimm manns áður en lögreglan skaut á hann og særði. Ekki eru nema þrjár vikur síðan annar unglingur skaut tvo skólafé- laga sína til bana i öðrum úthverfa- skóla i San Diego. Tæpir tíu kíló- metrar skilja skólana að. Skotmað- urinn í gær hafði verið lagður i ein- elti af skólafélögum sínum, rétt eins og fyrri pilturinn. Lögreglan sagði að skotmaðurinn héti Jason Hoffman og væri átján ára gamall. Hann var ekki vinsæll. Ég frétti að honum hafi verið strítt," sagði einn nemendanna við fréttamenn. Stuttar fréttir Biðin verður ekki löng Igor Ivanov, ut- anríkisráðherra Rússlands, sagði í viðtali við banda- rísku sjónvarps- stöðina CNN í gær að Bandaríkjamenn myndu ekki þurfa að bíða lengi eftir að Rússar svöruðu í sömu mynt og vísuðu bandarískum stjórnarerindrekum úr landi. Fyrr um daginn hafði verið greint frá því 50 rússneskum sendimönnum yrði vísað frá Bandaríkjunum I kjölfar handtöku njósnarans Hanssens. Fjármálaiögum flýtt Fjármálaráðherrar Evrópusam- bandsins samþykktu í gær að flýta setaingu laga um eftirlit með fjár- málaheiminum. Bandidosmorð í Köben Ekki er talið útilokað að fyrrver- andi Bandidos-leiðtogi í Kaup- mannahöfn hafi verið myrtur í fyrrakvöld af þvi að hann hafi ving- ast við deild Vitisengla. Blóöug föt viö skólann Lögregla hefur girt af framhalds- skóla í Kaliforníu þar sem unglingur hóf skothríð í gær og særði nokkra. Njósnavélar til Kosovo Bandaríkin ætla að senda nokkr- ar litlar njósnaflugfélagar til Kosovo þaðan sem albanskir skæru- liðar og vopn streyma til Makedón- íu. Átök brutust út á ný í Makedón- íu i gær milli skæruliða og stjórnar- hermanna. Bové í fangelsi Franskur áfrýj- unardómstóll dæmdi í gær bónd- ann José Bové í 3 mánaða fangelsi fyrir árás á McDon- ald's veitingastað. Bové kvaðst ætla að áfrýja dóminum til Hæstaréttar. Hann réðst á veitingastaðinn í suðurhluta Frakklands ásamt nokkrum öðrum til að mótmæla tollum Bandaríkj- anna á franskar sælkeravörur eins og osta og gæsalifur. 11 múmíur fundnar Fornleifafræðingar hafa fundið 11 múmíur í eyðimörkinn í vestur- hluta Egyptalands. Múmíurnar eru um 1800 ára gamlar. Annan styður Bildt Kofi Annan, fram- kvæmdastjóri Sam- einuðu þjóðanna, sagðist í gær vilja að Carl Bildt yrði áfram sendimaður samtakanna á Balkanskaga. Bildt hafði sætt gagnrýni vegna setu í stjórn sænsks olíufyrirtækis sem átt hafði þátt í að flæma íbúa í Súdan frá stórum landsvæðum vegna olíubor- unar. Þrýst var á Bildt að segja af sér starfinu hjá SÞ vegna málsins. Annan kvaðst hafa miklar áhyggjur af þróun mála í Makedóníu. Myndirnar seldust ekki Fimm nektarmyndir af kvik- myndagyðjunni Marilyn Monroe, sem voru til sölu á uppboði í Los Angeles í gær, gengu ekki út. Heildarboð fyrir myndirnar fór upp i 850 þúsund dollara.