Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2001, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2001, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2001 Fréttir IOV DV-MYNDIR GVA Þingvörðurinn Guömundur Guöbergsson þingvöröur í vinnuaöstööu sinni í nýja húsinu. Utfararskreytingar kistuskreytingar, krossar, kransar, blómaskreytingar, blómvendir, Sími 461 5444 Glerárgata 28. Akureyri AKUREYRI I. Jl ~Ia. Býflugan og blómið. ....... EHF 1 Nýsmíði og Viðgerðir Tungusíða 19 Akureyri Sími 899-6277 Svandís Geri við og sauma hvers konar tjöld- og tjaldvagna, einnig yfirbreiðslur yfir tjaldvagna, gasgrill, snjósleða, kerrur, sandkassa, báta ofl. Geri við og skipti um rennilása á fatnaði, vinnugöllum, kuldagöllum ofl. Iðnaðarog bílskúrshurðir Smíöum eftir máli áe™1?! /AFLRÁS tilboð Einhöfða 14« 110 Reykjavík sími 587 8088 •fax 587 8087 Utsýni yfir Austurvöll Útsýniö úr nýja húsinu er ekki amalegt oggeta þingmenn horft yfir Austurvöll og fylgst meö því sem er aö gerast viö þinghúsiö. Nefndarsvið Alþingis flytur í nýtt húsnæði: Kostnaðarsamara en gert var ráð fyrir Þlngflokkur Sjálfstæðisflokks- ins og nefndarsvið Alþingis hafa flutt inn í nýjar skrifstofur í hús- næði við Austurstræti 8. Ríkis- endurskoðun hefur að undan- fornu unnið að þvi að gera úttekt á verkinu og mun skila skýrslu um málið á næstu dögum. Fullyrð- ingar hafa verið uppi um að verk- ið hafi fari langt fram úr upphaf- legri áætlun. Að sögn Karls Kristjánssonar, fjármálastjóra Alþingis, er nýja húsnæðið sem er á tveimur hæð- um einnig ætlað fyrir þingnefndir og nefndarsvið þingsins. Þá er ver- ið að innrétta aðstöðu fyrir fjár- laganefnd í húsinu við Austur- stræti lOa. „Við höfðu ekki fengið endalegar tölur um kostnaðinn við húsið en eigum von á að Fram- kvæmdasýsla ríksins skili þeim af sér fljótlega, „ segir Karl. Starfsmaður Framkvæmdasýslu rikisins segir að kostnaðurinn við verkið hafi verið meiri en gert var ráð fyrir 1 upphafi. Hann segir að forsendurnar sem gengið hafi ver- ið út frá í byrjun hafl breyst og kostnaðurinn því meiri. Hann nefnir sem dæmi að verkið hafi Skrifstofa þingmanna í nýja húsinu í Austurstræti eru alþingismenn Sjálfstæöisflokksins meö skrif- stofur og eins og sjá má á skrifstofu Drífu Hjartardóttur eru þær búnar öllum þægindum. verið unnið á meiri annatíma en gert var ráð fyrir í upphafi. Starfs- maðurinn segir að kostnaðurinn við verkið sé ekki óeölilegur mið- að við það sem Alþingi sé að fá. Hann segir að mikil hagræðing sé fyrir þingið að fá eitt húsnæði undir allt nefndarsvið stofnunar- innar en Alþingi kemur til með að leigja húsnæðið. -MA Breiðdalsvík: Nýja íþróttahúsið vigt DV, BREIDDALSVIK: Laugardagurinn rann upp með sól- skini og logni, mikill hátíðisdagur því þá skyldi nýja íþróttahúsið á Breiðdalsvík vígt. Undanfarna daga hefur verið unnið fram á nætur við aö gera allt tilbúið fyrir vígsluna og hafa velflestir íbúar byggðarlagsins lagt þar hönd á Húsiö blessaö. Séra Þórey Guömundsdóttir blessar nýja íþróttahúsiö. DV-MYND HANNA INGÓLFSDÓTTIR. Bæjarfeöurnir keppa. Sveitarstjórnarmenn Breiödais og Stöövarhrepps tókust á í fimmþraut og þóttu sýna góöa takta. Dagskráin var í höndum grunn- skólans, leikskólans, tónlistarskólans og Ungmennafélagsins Hrafnkels Freysgoða. Hún hófst með því að sveitastjórinn Rúnar Björgvinsson setti hátíðina, séra Þórey Guðmunds- dóttir flutti blessunarorð. Börn úr tónlistarskólanum, grunnskólanum og leikskólanum sungu og léku á hjóðfæri undir stjórn Eyjólfs Ólafs- sonar tónlistarkennara. Flutt voru ávörp og kveðjur og húsinu færðar gjafir frá einstaklingum, félögum og stofnunum. Vel hefur gengið að fá styrki til kaupa á nauðsynlegum búnaði og áhöldum sem eru merkt styrktaraðil- um og verða þeir skráðir á skjal sem varðveitt verður á áberandi stað í íþróttahúsinu. Keppt var í ýmsum greinum, t.d. kepptu sveitastjórnir Breiðdals og Stöövarhrepps í fimm- þraut sem búin var til af heima- mönnum, körfubolta, og mældur var hraði á bolta hjá börnunum af ratar- mæli en í húsinu er fullgildur körfu- boltavöllur. Að lokum bauð Breiðdalshreppur upp á kaffiveitingar sem grunnskól- inn sá um. -HI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.