Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2001, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2001, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 2. APRÍL 2001 19 I>V Sport - KR vann öll mót í vetur og kórónaði tímabilið með Islandsmeistaratitli Hugarfarið - skilur liðin að, segir Henning, þjálfari KR KR-stúlkurnar hefja Henning Henningsson þjálfara sinn á ioft fagnaöarlátunum. „Viö áttum von á því að þetta yrði erfitt þar sem Keflavík er með mjög gott lið. Hugarfarið skilur þessi lið að. KR-stelpurnar höfðu rétt hugarfar til að ljúka þessu og klára þessa titla sem komnir eru í hús. Ég átti alls ekki von á því að vinna þetta 3-0, þó svo að maður vonaði það. En ef hugarfarið og viljinn er til staðar þá er ekkert lið sem stenst okkur snúning," sagði Henning Henningsson, þjálfari KR. En hver er skýringin á því að liðið vinnur örugglega í Keflavík en lendir í basli á heimavelli. „Pressan á heimavelli er miklu meiri þar sem við eigum að vinna heimaleikina. Viö gátum verið aðeins afslappaðri í Keflavík þar sem kröfumar um sigur eru ekki eins miklar. Þar máttum við tapa en hérna heima eigum við að vinna. Þetta er eina skýringin sem ég hef á þessu. Heather hefur komið sér vel eftir að hún gekk til liðs við okk- ur en ég er á því að hún hafi ekki breytt öllu. Að mínu mati eru Kan- amir að þurrka hvor annan út þar sem báðar era mjög góðar. Á endan- um em það heimastelpumar sem eru að klára þessi mót. Ef þessi hópur heldur áfram þá er ekkert lið sem ógn- ar honum í dag og hægt að byggja á þessum kjarna í framtíðinni. Það er ekkert komið í ljós hvort ég verð áfram en ég á von á því að mér verði boðinn áframhaldandi samningur," sagði Henning að lokum Björt framtíð hjá KR „Það er alltaf gaman að vinna Keflavík í úrslitaleikjum. Við vissum allan tímann að þetta yrði erfitt þvi það eru allir leikir í úrslitakeppni erf- iðir,“ sagði Gréta María Grétarsdóttir, leikmaður KR. „Við komum kannski ekki alveg nógu stemmdar en unnum samt. Við eram með yfirburðalið í deildinni og höfum sýnt það í vetur. Við slökuð- um aðeins á í þriðja leikhluta og héld- um kannski að þetta væri komið en það má ekki í úrslitakeppni og það sýndi sig. En við tókum okkur saman í andlitinu og sýndum karakter • og kláruðum þetta. Það er björt framtíð hjá KR og ef við höldum sama mann- skap getur þetta lið unnið fleiri titila næstu árin. Heather Corby hefur komið sterk inn í liðið og fellur vel inn í hópinn. Keflavík byrjaði tíma- bilið vel en eftir að liðið skipti um þjálfara náði það ekki að halda sömu stemningu, fyrir utan það að vera ekki með eins gott lið og við,“ sagði Gréta. -BG Kristfn B. Jónsdóttir, fyrirliði KR, sækir aö körfunni í leiknum gegn Keflvíkingum í KR-húsinu á laugardaginn. Marín Rós Karlsdóttir, Keflavík, reynir hvaö hún getur til aö hefta hana. DV-myndir E.ÓI. KR sigraði Keflavík, 64-58, í þriðja leik liðanna i úrslitum 1. deildar kvenna og þar með tryggðu KR-stelp- urnar sér íslandsmeistaratitilinn og unnu einvígið, 3-0. KR er vel að titl- inum komið og virðist vera með yfir- burðalið þetta tímabilið og því til staðfestingar er hægt að benda á að liðið hefur unnið alla þá titla sem í boði hafa verið. Keflavík mætti til leiks án Birnu Valgarðsdóttur sem er meidd og var það slæmt fyrir gestina. Jafnræði var með liðunum i fyrsta leikhluta og voru leikmenn eins og Erla Þorsteins- dóttir sem stigu upp fyrir Keflavik. Schwartz í villuvandræöum KR tók síðan yfirhöndina í öðrum leikhluta og réðu gestimir ekkert við Heather Corby. Brooke Schwartz, erlendur leikmaður í liði Keflavíkur lenti í villuvandræðum i fyrri hálfleik og fjórðu villu sinni þegar skammt var til leikhlés. KR byrjaði seinni hálfleikinn af miklum krafti og virtist vera að skilja gestina eftir. Munurinn fór í 15 stig, 51-36, en þá sýndi Keflavíkurliðið hvað í því býr og gerði 16 stig í röð, þar af þrjár 3ja stiga körfur. Þar með var Keflavík komið einu stigi yf- ir og óvænt spenna allt í einu komin í leikinn. Jafnt var eftir þriðja leik- hluta, 54-54. Barningur í fjóröa leikhluta MikO barátta var síðan í fjórða og síðasta leikhluta og gekk báðum lið- um illa að finna körfuna. Schwartz fékk síðan fimmtu villu sína þegar fimm og hálf mínúta var eftir af leikn- um. Eftir það virtist KR vera með þetta í hendi sér og Hanna Kjartans- dóttir tryggði KR sigur með því að gera fjögur síðustu stigin í leiknum. Eftir frábæran þriðja leikhluta náði Keflavík ekki að fylgja honum eftir og gerði liðið aðeins fjögur stig í síðasta leikhluta. KR var betri aðilinn þegar leikur- inn er gerður upp i heild og sýndi styrk með því að klára leikinn eftir að hafa lent í vandræðum um tíma í þriðja leikhluta. Hetaher Corby er heldur betur búin að gera það gott eft- ir að hún gekk til liðs við félagið og hefur KR ekki tapað leik eftir komu hennar. Hanna átti góðan leik en hún hefur fallið svolítið í skuggann eftir að Corby kom en núna náðu þær vel saman. Helga Þorvaldsdóttir átti fin- an leik og lék síðustu tvo leikina mjög vel og sýndi hvað í henni býr eftir að hafa verið frekar róleg í vetur. Krist- ín Jónsdóttir, fyrirliði liðsins, hafði hljótt um sig að þessu sinni en hefur verið frábær í vetur og kemur sterk- lega til greina sem besti leikmaður deildarinnar. Gréta Grétarsdóttir er mikilvæg fyrir liðsheildina og var engin breyting á því í þessum leik. Hún spilaði fina vörn og tók m.a. átta fráköst. Reynsla Guðbjargar Norð- fjörð hafði mikið að segja fyrir KR og leiðtogahæfileikar hennar komu að góðum notum í úrslitakeppninni. Keflavík mætti hreinlega ofjörlum sínum að þessu sinni. Það hljóta að vera mikil viðbrigði fyrir félagið að hafa ekki Önnu Maríu Sveinsdóttur á vellinum. Margar efnilegar Liðið er enga síður mjög efnilegt og engin ástæða fyrir Keflavík að ör- vænta með allar þessar efnilegu stelp- ur í liðinu. Kristín, Erla og Schwatz voru bestar í leiknum og munaði mik- ið um framlag Erlu og Kristínar sem skoruðu einungis fiögur stig saman í síðasta leik en gerðu 39 stig að þessu sinni. Það var þó ekki nóg en ekki verður skuldinni skellt á Schwartz sem hefur leikið frábærlega fyrir Keflavík eftir að hún komst inn í hlutina hjá liðinu. -BG 1. DEIID KVENNA ' Sjötta áriö i röö var íslandsbikar- inn í kvennakörfunni afhentur í vestur- bæ en jafhframt aðeins i annað skipti sem heimastúlkur fengu bikarinn afhentan á heimavelli sínum. Árin 1996-1999 var bik- arinn afhentur í Hagaskóla en sfðustu tvö árin í Frostaskjóli. Oddatöluárin í kvennakörfunni virðast hafa tvennt i for með sér - Keflavík nær ekki að verða meistari og úrslitaeinvígið hefur endað 3-0. Keflavík hefur þannig verið íslandsmeistari 1994, 1996, 1998 og 2000 en misst titilinn jafnóðum 1995,1997, 1999 og 2001. Öll oddatöluárin (1993, 1995, 1997, 1999 og 2001) í sögu úrslitakeppni kvenna hafa úrslitaeinvígin endað 3-0 en aldrei á sléttu árunum þar sem meðal ann- ars tvö einvígi hafa farið í oddaleik. Hanna B. Kjartansdóttir varð um helg- ina fyrsta konan til að fagna fimm íslands- meistaratitlum eftir úrslitakeppni. Hanna varð enn fremur fyrsta konan til að vinna tvo titla með 2 félögum en hún varð einnig meistari með Keflavík (1993 og 1994), Breiðabliki (1995) og KR (1999). Hanna hefur veriö i sigurliöi í 18 af 25 leikjum sínum 1 lokaúrslitum úrslita- keppninnar og með því að skora fjögur síðustu stigin í lokaleiknum um heigina varð hún stigahæsti leikmaður lokaúrslit- anna frá upphafi. Hanna, sem hefúr skor- að 330 stig i 25 úrslitaleikjum, skaut sér upp fyrir Önnu Maríu Sveinsdóttur (328) og Guðbjörgu Noröfjörð (326). Guöbjörg Norófjörö fagnaði loksins ís- landsmeistaratitli i sínu númeri (14) og það gerði hún í 30. leik sínum í lokaúrslit- um úrslitakeppninnar en hún og Kristín Björk Jónsdóttir, fyrirliði KR, bættu báð- ar metið sitt í ár og hafa leikið 30 af 33 úrslitaleikjum um Islandsmeistaratitilinn frá upphafi keppninnar 1993. Helga Þorvaldsdóttir, leikmaöur KR, hefur verið í sigurliði í ellefu úrslitaleikj- um í kvennakörfunni í röð. Helga meidd- ist i úrslitaleik meistarakeppninnar haustið 1999 og lék ekkert meira með það tfmabil en tímabilið á undan hafði KR-Iið- ið unnið alla fjóra úrslitaleiki sína (einn í bikar og þrjá í lokaúrslitum úrslita- keppni). Helga sneri til baka í haust og í vetur hefur KR-liðið unnið alla sex úrslita- leiki sína (einn í Kjörísbikar, einn i Reykjavikurmóti, einn í bikar og þrjá í lokaúrslitum úrslitakeppninnar). Heather Corby, kanadískur leikmaður KR, setti met í lokaleiknum er hún varð fyrsta konan til að taka 9 sóknarfráköst í einum leik í lokaúrslitum kvenna. Metið átti áður Sóley Sigurþórsdóttir sem tók 8 slík fyrir KR frá 1997. Crony setti einnig frákastamet í fyrsta leiknum er hún tók 19 fráköst en Corby tók alls 52 fráköst í þremur Ieikjum gegn Keflavík, eða 17,3 að meðaltali. -ÓÓJ KR-Keflavík 64-58 2-0, 2-5, 9-7, 15-15, (19-20), 25-20, 33-22, 37-24, (41-32), 43-32, 43-36, 51-36 (54-54), 56-55, 60-58, 64-58. Stig KR: Heather Corby 17, Hanna Kjartansdóttir 15, Helga Þorvaldsdótt- ir 12, Gréta María Grétarsdóttir 7, Kristín Jónsdóttir 6, Guðbjörg Norð- fjörð 4, Sigrún Skarphéðinsdóttir 2. Stig Keflavikur: Kristin Blöndal 19, Erla Þorsteinsdóttir 12, Brooka Schwartz 9, Marín Rós Karlsdóttir 8, Svava Stefánsdóttir 7, Sigríður Guð- jónsdóttir 2, Bonnie Lúðvíksdóttir 1. Fráköst: KR 45, 14 í sókn, 31 í vörn (Corby 18), Keflavík 42,12 í sókn, 30 í vörn (Schwartz 14). Stoðsendingar: KR 18 (Corby 7), Keflavík 17 (Marín, Schwartz 4). Stolnir boltar: KR 11 (Helga 3), Keflavík 6 (Kristín, Theódóra 2). Tapaöir boltar: KR 15, Keflavík 17. Varin skot: KR 1 (Corby 1), Keflavík 5 (Erla 5). 3ja stiga: KR 3/11, Keflavík 7/24 Víti: KR 15/24, Keflavík 7/10 Dómarar (1-10): Leifur Garðarsson og Rúnar B. Gíslason (8). Gœói leiks (1-10): 7. Áhorfendur: .300 Maður leiksins: Heather Corby, KR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.