Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2001, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2001, Blaðsíða 14
í f ó k u s ú r f ó k u s hverjir voru hvar Á Næsta bar á fimmtudagskvöld- iö ! síðustu viku sást til þeirra Grétars Mars Jónssonar og Eg- ils Ólafssonar og seinna um kvöldið skundaöi inn höpur al- þingismanna sem hvíldu sig eftir erfiða törn. Stærsta nafniö þar var auðvitaö ísólfur Gylfi Pálma- son en hina tekur ekki einu sinni aö nefna. Þaö var nóg af fólki á frumsýn- ingunni á gamanleiknum Fífl í hófi í ís- lensku óperunni slðastliöið föstudags- kvöld. Þar mátti að sjálfsögöu sjá framleiö- endurna Baltasar Kormák og konu háns Lilju Pálmadóttur, og þá voru foreldrar Balta, Baltasar eldri og Krlstjana á svæö- inu, Haligrímur Helgason mætti meö Hall- geröi dóttur sína, Þorfinnur Ómars- son tók líka fjöl- skylduna með, Snæfríður Inga- dóttir, fréttakona af SkjáEinum, Jón Ásgeir Jóhannes- son Bónusmaöur, Pálína Jónsdóttir leikkona, Magnús Geir Þóröarson, leikhússtjóri í lönó, Harpa Magnadóttir, eiginkona Baldurs Trausta Hreinssonar, og Ingvar Þóröarson athafnamaður. Skuggabarinn var fullur af fal- legu fólki um síöustu helgi þegar World Class hélt árshátíð sína þar. Bjössi Leifs boss leiddi aö sjálfsögðu hóþinn en annars sást í fólk eins og nýkrýnda ung- frú ísland.is, Kolbrúnu, Bigga tenór, Hólmgeir Baldursson, Jón Kára, Vidda sem sást alltaf á Glaumbar, Elínu Oasis, Lovísu Guömundsdóttur Play- boy sem dansaði mikiö, Raul einkaþjálfara og Simba og Jónas klippara sem mættu meö Svavari Erni sem var með kladdann á lofti. Bjarni Bragi hljóömaður lét sig ekki vanta, Jón Arnar Magnússon tugþrautar- maöur tók sér frí frá æfingum, Christine frá Allied Domec, Addú sem var á SkjáEinum ásamt Erlu r&b, Sóley plötusnúöur þaut um allt gólfiö þannig aö þaö hvein í, Hannes, markaösmaöur frá SkjáEinum, Hanna frá Sól-Víkingi, Slg- ríöur Beinteins- Tíska-Gæðí-Betraverð Níu ungmenni á Akureyri hafa sett upp hina umdeildu vefsíðu theperma.net, Síðan, sem fjallar um akureyrskt djamm- og menningarlíf, hefur valdið míklu fjaðrafoki og vefsmiðirnir hafa verið sakaðir um að vera að stuðla að drykkju ungmenna og fleiri dauðasyndir. Þórunn Þorleifsdóttir hafði uppi á Ragnari Frey Pálssyni, stofnanda síðunnar, og fékk hann til að svara fyrir sig. er kynlíf dóttir söngkona, Dabbi diskó og Maríkó Margrét og vinkonur hennar voru vægast sagt viiltar á gólfinu og leiddist strákunum þaö ekkert rosalega. Á Rex sást í þá Sverri Rafnsson Rósenberg-mann, Jón Ólafsson tónlistarmann, Jakob Frímann Magnússon tónlistarmann og Ásgeir Sigurvinsson, fyrrum knattspyrnumann. Á Astro sást í fólk eins og Siggu Beintelns og vinkonur hennar, Magga Bess, Sigga úr Betrunarhúsinu, Elínu og Maríu FM sem voru á gólfinu og Önnu Sig- uröar eróbikkgellu. Lóa Oasis skemmti sér vel meö Gunnu og Hönnu frá íslensk Amer- íska, Katrín Bigfoot var meö stuöið á hreinu, Árni Mágus, Einar Ágúst Víöisson Skltamórall, Siggi Zoom, Sævar Pétursson skemmti sér án Lindu systur og atvinnuveitanda hans, Árni Snævarr fréttamaöur var ný- kominn af Kreml-fundi, Júlli Kemp kvikmyndamaöur, Friörik Stefánsson kom alla leiö úr íþróttahúsinu í Njarövlk, Guöjón OZ-maður lét sig ekki vanta og Hrafnhildur Hafsteins og Ásta kona Magnúsar Ver voru góöar saman. Pétur Ottesen lét stór- karlalega, Gunna Dís FM957, Sistó, Bjartmar dansari, Sigmar Guömundsson fréttamaöur sleppti rokkaragallanum og skrensaöi ! r&b, Stebbi úr Djúpu lauginni, Pétur Blöndal alþingis- maður var meö eldri mönnum á svæðinu, Gunnar Ólason sýndi lúkkiö sem á aö sannfæra Evr- ópu í söngkeppninni frægu og Haukastelpurnar Harpa Melsted og Guöný Agla voru góöar (er ekki úrslitakeppni i gangi?). Jón Ólafsson tónlistarmaður lét óvænt sjá sig, Þór Jós- eps var ekki langt undan, Magnús Ármann, Áki Pain og Jón Gunnar Geirdal skemmtu sér saman, Eva Sólan sást! námunda viö þær Díönu Dúu og Birtu Björns auk Örnu Playboy. Hanni úr Skímó var mættur og Þór Bæring meö Huldu konunni sinni, Siguröur Kárl SUS-ari lagöi á ráöin um byltingu og! nágrenn- inu var útvarpsmaðurinn Rúnar Róberts, á næsta borði sat svo Halli Hansen og meö honum Heiðar Austmann af 'FM957. Svavar og Simbi klipparar voru góöir saman og Gummi Jóns úr Sálinni stimplaði sig inn sem fastagestur. Kristur er i fókus. í síðustu viku trommuðu breskir vísindamenn upp með nýtt lúkk á karlinn sem eyöilagöi allar altaristöflur landsins. Þær einar sluppu sem voru illa gerðar fyrir eða svo listrænar að enginn vissi yfir höfuö hvaö var að gerast á myndinni. Kristur er líka sá besti til að lífga upp á almanakiö. Allt sem hann gerði hittir í mark í kristnum nútímanum þótt hann hafi ekki verið jafn vinsæll þegar hann lifði. Þaö er eiginlega alveg sama hvað hann tók sér fyrir hendur, allt kemur þaö okkur til góöa i dag. Hann fæddist og viö fáum jól, hann reið á asna á pálmablööum og viö fáum þennan fina pálmasunnudag (sem er vel að merkja ekki kenndur við Pálma Matthíasson). Ekki líöur á lóngu þar til Kristur fær sér að borða, deyr og ris upp aftur og þá fáum við heila páskahátíö til að nærast á safaríkum steikum. Við upphaf föstunnar fáum viö rjómabollur og saltkjöt og á föstunni boröum við svo nákvæmlega þaö sem okkur dettur í hug. Kristur - gerir lífiö skemmtilegra. Tepruskapur er úr fókus. Meö nokkuð jöfnu millibili rýkur lítill en meðvitaöur hluti landsmanna upp til handa og fóta vegna myndbirtinga eða fréttaflutnings. Þetta fólk afneitar stórum hluta heimsins og vill að aörir taki þátt í blekkingunni meö þvi. Meðvitaða fólkiö vill eflaust setja þaö ! lög að speglar á sundstöðum séu aldrei fyrir neðan mittishæð svo það þurfi ekki að horfast í augu við óæðri hluta líkama slns sem vel að merkja stendur fyrir vexti og viðgangi mannkynsins. Meðvitaða fólkið vill helst takmarka heimssýn allra við þá mynd sem birtist í fallegum ímyndarauglýsingum í sjónvarpinu. Þannig er fólki talin trú um aö það vilji lifa en það er stóri misskilningurinn. Það er engin tilviljun að fólk hættir að hlusta á Dýrin í Hálsaskógi. Þetta er bara svo helvíti leiðinlegt. Við skulum bara horfa framan ! heiminn eins og hann er og ef við erum eitthvað ósátt við hann þá er bara að breyta honum. Heiminum verður hins vegar ekki breytt með því að líma yfir typpi á auglýsingum eða birta ekki /iðkvæmar fréttir og fréttamyndir. „Síðasta haust fór ég að mynda vini og kunningja í partíum með stafrænni myndavél og setti svo upp síðu þar sem félagarnir gátu skoðað myndimar. Til að byrja með var ég einn með síðuna og skrifaði vikulega pistla, sýndi myndir og fleira bull. Svo fór ég að fá póst frá einhverju fólki sem sagðist skoða síðuna reglu- lega. Þetta vatt upp á sig og ég var farinn að fjalla meira og meira um djammlíf Akureyrar í máli og mynd- um. Ég lokaði síðunni í desember vegna atviks sem kom upp milli mín og ónafngreinds skemmtistaðar. Ég fékk til liðs við mig þá Daða og Hjalta forritara og saman sáum við um útlit, hugmyndavinnu og forrit- un fyrir nýja djammsíðu. Pungsveittir unnum við þrír að nýju síðunni milli jóla og nýárs og opnuð- um hana 22. janúar 2001. Við bjugg- umst aldrei við því að síðan yrði svona vinsæl en um 5 þúsund manns heimsækja theperma í hverri viku og nú erum við níu talsins sem vinn- um að henni,“ segir Ragnar Freyr. Menntaskólahúmor og - hroki Daði Ármannsson og Hjalti Jakobsson eru forritarar, Helen Simm, Njáll Björgvinsson, Anna Guðbrandsdóttir, Jón Hjörleif- ur og Fjölnir Guðmannsson eru pistlahöfundar og Auðunn Níelsson er ljósmyndari. Þau, ásamt Ragnari Frey, mynda theperma-crewið. Þau eru öll i kringum tvítugt og flest Akureyring- ar í húð og hár. Siðan þeirra fjallar ekki bara um djammið heldur má þar finna tónlistar- og kvikmynda- gagnrýni, getraunir, linka og ýmis- legt fleira. „Vefsíðan er laus við öll formlegheit og þar ræður mennta- skólahúmorinn ríkjum. Þó hópurinn á síðunni sé þröngur reynum við að fara víða með efnið og gera þetta sem skemmtilegast fyrir notand- ann.“ Allt efnið sem er að finna á síðunni er komið frá meðlimum theperma.net sem vinna þetta launa- laust. „Ég ákvað að engin gröðastarfsemi skyldi tengj- ast nýju vefsíðunni. Við ger- um skiptisamninga við fyrir- tæki þannig áð þau fá auglýs- ingu og við fáum eitthvað til að gefa, til dæmis í getraunaleikjum. Þannig verður síðan skemmtilegri, við fáum fleiri heimsóknir og meira umtal.“ Lögreglan virðist líka vera með áhyggjur og hefur tvívegis talað um okkur í fjölmiðlum. Við viljum bara þakka henni kær- lega fyrir því betri auglýsingu gátum við varla fengiö. Lögreglan með auglýs- ingastarfsemi Ragnar segir að þó vefsíðan sé að- allega um akureyrskt djammlíf þá skoði fólk hana úti um allt land. „Við fáum ekki enn að ríða út á þetta en vonandi mun þetta viðtal breyta því,“ segir Ragnar og hlær. En síðan er lika mjög umdeild og hafa vefsmiðirnir verið gagnrýndir fyrir að stuðla að drykkju ungmenna. „Unga kynslóðin fllar síðuna en sú eldri virðist ekki vera eins ánægð. Nýlega birtist grein í Degi um hve mannskemmandi netsíður af þessu tagi eru. Lögreglan virðist líka vera með áhyggjur og hefur tvívegis talað um okkur i fjölmiðlum. Við viljum bara þakka henni kærlega fyrir , , því betri auglýsingu gátum við varla fengið. Heimsóknirnar juk- ust töluvert eftir þessa umfjöllun," bætir hann við. „Við höfum talað við lögfræðinga sem voru á einu máli um að á síðunni væri ekkert sem ætti að valda okkur vandkvæðum. Fólk hefur sagt að við séum að stuðla að unglingadrykkju en það mætti frekar segja að við séum frumkvöðlar í að sýna ástandið sem unglingar eru í um helgar. Það erum ekki við sem búum vandann til, hann er til staðar þó við tökum ekki myndir af þvi.“ Ragnar segir það sjaldgæft að theperma.net hafi gert einhvern skandai. „Við eigum myndir og efni sem gæti valdið miklu hneyksli ef það yrði birt, til dæmis myndir af þekktum einstaklingum fjölmiðlafólki, þingmönnum og litlum stelpum. En við vitum hvað við eig- um að birta og hvað ekki þannig að fátt hefur verið um stóra skandala," segir hann. Ef þiö birtið mynd af Suölu Björg- vins, ölvaðri og í sleik, og hún vildi aó myndin yrði tekin út, mynduð þió veröa við ósk hennar? „Ef við birtum mynd af Svölu blindfullri að telja tennurnar í einhverjum strák þá yrði hún tafarlaust tekin út ef Svala bæði um það. Fólk einfaldlega hringir eða skrifar tölvupóst ef það er ósátt við eitthvað. En ef fólk getur lát- ið eins og fifl á opinberum skemmti- stöðum, af hverju má þá ekki hafa mynd af því á einhverri vefsíðu? Þeg- ar það er orðið edrú getur það ekki horfst í augu við það sem gerðist. En menn eru almennt kurteisir þegar þeir tala við okkur og við reynum að vera kurteis til baka og virða skoðan- ir þeirra." Hop frá grámyglu hvers- dagsins Vefsíðan er í stöðugri vinnslu og Ragnar segir að búast megi við nýjungum á næstunni. „Við höfum gert samning við Erotica Shop og munum við sjáifsagt gera eitthvað skemmtilegt úr því. Einnig höfum við byrjað að plotta gagnvirka framhaldsteiknimyndasögu þar sem notendur ráða sjálfir söguþræðinum. Við ætlum að hanga meira úti á götu þegar sumra fer og spyrja gangandi fólk spjörunum úr. Einnig erum við að prófa okkur áfram með að setja video- myndir inn á vefinn. Við ætlum að leita uppi ungt hæfileikafólk á Akur- eyri og forvitnast um það og jafnvel birta eitthvað tengt því og fleira. Einnig ætlum við að halda fleiri permapartí. Þetta er svona í megin- atriðum það sem er á döfinni hjá okk- ur en það er alltaf pláss fyrir fleiri hugmyndir." Afhverju haldið þió aö djammið veki alltaf jafnmikla athygli? „Djammið er skemmtilegt og hop frá grámyglu hversdagslífsins. Djammið er stelpur, djammið er strákar. Djam- mið er andlitsfarði. Djammið er ölvun, vinir, tónlist, trúnó, skandalar og síð- ast en ekki síst: djammið er kynlíf."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.