Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2001, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2001, Blaðsíða 1
15 Vialli tekinn viö Watford Gianluca Vialli var í gær ráðinn knattspyrnustjóri hjá enska 1. deildar- liðinu Watford. Hann tekur við starfínu af Gordon Taylor sem ákveðið hef- ur að hætta öllum afskiptum af knattspyrnu eftir áratuga störf á þeim vett- vangi. Vialli var rekinn frá Chelsea í upphafi þessa tímabils og hefur síð- an setið á skólabekk í knattspyrnuþjálfarafræðum til að sækja sér réttindi. Vialli er ætlað að rífa upp félagið og koma því í úrvalsdeildina að nýju. Eins og kunnugt er leikur Heiðar Helguson landsliðsmaður með Watford. -JKS Dómstóll sem ÍSÍ skipaði í málum vegna meintra brota um lyfjaeftirlit: Tveir dæmdir í eins mánaðar keppnisbann Lyfjadómstóll íþrótta- og Ólymp- íusambands íslands dæmdi í gær tvo körfuknattleiksmenn í mánað- ar keppnisbann vegna neyslu á ólöglegum fæðubótarefnum. Efnið efedrín fannst í sýnum hjá þeim báðum, annar þeirra hafði neytt orkudrykkjarins Diet Fuel og hinn efnsins Ripped Fuel. Báðir upp- lýstu fyrir dómnum að þeir hefðu ekki vitað að þessi vara innhéldi efnið efedrín. Leikmennirnir sem hér um ræð- ir eru Kristinn Friðriksson, sem leikur með Tindastóli, og Lýður Vignisson úr Haukum. Þeir eru úti- lokaðir frá þátttöku í íþróttaæfing- um og íþróttakeppni, sem fram fer á vegum ÍSÍ, sambandsaðila þess eða félaga eða deilda innan þeirra, Kristinn frá 12. april 2001 og Lýður frá 17. apríl 2001. I ákæruskjali segir að Kristinn Friðriksson hafi verið valinn til lyfjaeftirlits á vegum Heilbrigðis- ráðs ÍSÍ, í deildarleik Hauka og Tindastóls þann 4. mars. í munn- legum málflutningi kom fram að ákærði hefði neytt svonefnds „Diet Fuel“ fyrir umræddan leik og ekki vitað að drykkurinn innhéldi efnið efedrín. í ákæruskjali segir að Lýður Vignisson hafi verið valinn til lyfjaeftirlits á vegum Heilbrigðis- ráðs ÍSÍ í deildarleik Hauka gegn Tindastóli þann 4. mars. Ákærði hélt ekki uppi vörnum en kom fyr- ir dóminn og skýrði sitt mál. kvaðst hann hafa neytt efnisins Ripped Fuel fyrir umrræddan leik og ekki vitað að það innihéldi efedrin. Kvaðst hann hafa notað efnið í Bandaríkjunum við æílngar og keppni að ráði þjálfara en þar var efnið selt án takamarkana á al- mennum markaði. Körfuknattleikskonan Kristín Björk Jónsdóttir úr KR, sem einnig féll á lyfjaprófi, var sýknuð af öll- um kröfum Heilbrigðisráðs ÍSÍ. Vegna asmaveiki tók hún inn lyf samkvæmt læknisráði en henni láðist hins vegar að tilkynna um notkunina og gat ekki um hana þegar hún fyllti út prófskýrslu við lyfjaeftirlit. Þá var máli Heilbrigðisráðs ÍSÍ gegn Kenneth G. Corb, Skautafélagi Akureyrar, vísað sjálfkrafa frá dómi. Ákærði var fundinn sekur um lyfjanotkun í Hollandi og dæmdur þar í eins árs keppnis- bann. Þeim dómi var ekki áfrýjað og er þar því um að ræða lokanið- urstöðu í máli ákærða sem dómur þessi ekki bær til þess að endur- skoða. Ber því að þeirri á ástæðu . . Norðmadurmn John Carew i iiði Valencia f.' ’ fagnar markaíausa jafn- íefiinu gegn Leeds t fyrri íeík liðanna í und- §& anúrsiitum meistara- deifdar Evrópu á Elfand |jk Road f gærkvöld. A inn- tygjg feítdu myndinni er Mark Viduka. soknarmaður Ljæds. og virðist ekki of feé^jr með niðurstoð- ur?a. Siðari leikurinn ’ verður < Valencía næsta rtíSbíStfivort íiðið tryggír sér sifi. í ursUtaleikn- Reuter tf t’fH; 16-17 Hvít-Rússar kalla á Jakimovich Hvít-Rússar hafa valið hóp til undirbúnings fyrir leikina í for- keppni evrópskra landsliða í handknattleik gegn íslendingum. Á hópnum má greinilega merkja að þeir ætla að tjalda til öllum sínum þestu leikmönnum og hef- ur m.a. verið kallað á Mikhail Jakimovich sem leikur með spænska liðinu Portland San Antonio sem vann sigur í meist- aradeild Evrópu um síðustu helgi. Jakimovich er leikreynd- asti og einn besti leikmaður í röðum Hvít-Rússa um árabil en hann hefur uni tíma ekki gefíð kost á sér í landsliðið. I hópnum er nokkrir leikmenn sem leika í Þýskalandi og má þar nefna Siniek, leikstjórnanda Lemgo, og Klimovets sem leikur á línunni hjá Flensburg. Fyrri leikurinn við Hvít-Rússa verður í Minsk 3. júní og sá síðari í Reykjavík 10. júní. Leikirnir skera úr um hvor þjóðin tryggir sér sæti í úrslitakeppni Evrópu- mótsins í Sviþjóð í janúar nk. Guðmundur Guðmundsson, nýráðinn landsliðsþjálfari, til- kynnir islenska landsliðshópinn um hádegisbilið í dag. -JKS Ólafur átti stórleik Ólafur Stefánsson, handknatt- leiksmaður hjá þýska liðinu Magdeþurg, átti stórleik með lið- inu í gærkvöld þegar það sigraöi Hameln, 23-25, á útivelli í úr- valsdeildinni. Ólafur skoraði tíu mörk, þar af fimm þeirra úr víta- köstum. Flensþurg, sem fylgir Magde- þurg eins og skugginn í toppþar- átunni sigraði Willstátt, 29-18, og Kiel vann Eisenach, 27-17. Magdeburg er efst með 52 stig eða jafnmörg og Flensburg en miklu betra markahlutfall. Lemgo er í þriðja sæti meö 50 stig. -JKS Blackburn í úrvalsdeildina Blackþum Rovers tryggði sér sæti í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöld þegar liðið sigraði Preston, 0-1. Blackburn fylgir því Fulham beint upp í úrvals- deildina en íjögur næstu liö fyr- ir neðan fara í umspil um eitt sæti til viðbótar. Bjarki Gunn- laugsson lék síðustu 15 mínút- urnar fyrir Preston í leiknum. Þá sigraði Crystal Palace lið Portsmouth, 2-4, en bæðin liðin berjast við fall í 2. deOd. -JKS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.