MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2001 Fréttir E»V Eldsvoði á Hólum í Gaulverjabæjarhreppi: Mildi að bóndinn var enn á fótum - vinnuf ólkiö vaknaði við vondan draum DV, SELFOSSI: Við vorum sofandi uppi á lofti, ég og vinnumaðurinn, þegar eldur- inn kom upp. Helgi, húsbóndinn á bænum, var sem betur fer ekki farinn að sofa í sinu herbergi sem er á miðhæðinni. Hann vakti okk- ur samstundis þegar hann varð reyksins var. Þá fórum við Ólafur strax fram úr rúmunum. Þá vissi ekkert okkar hvaöan reykurinn kom," sagði Áslaug Árnadóttir, ráðskona hjá Helga ívarssyni, bónda að Hólum í Gaulverjabæjar- hreppi, við DV. Eldur kviknaði í kjallara íbúðar- hússins að Hólum aðfaranótt laugar- dagsins. Talið er að kviknað hafi í út frá hleðslutæki fyrir rafgeyma í kjall- ara hússins. Áslaug segir að hurð í anddyri hússins hafi verið lokuð. Við útihurðina er einnig hurð niður í kjallara hússins þar sem eldurinn kraumaöi. Þegar hurðin í anddyrinu var opnuð gaus reykurinn um allt húsið og þá hafi íbúarnir vitað hvað- an reykurinn kom. Við sáum ekki handaskil þegar við fórum í gegnum reykjarmökk- inn," sagði Áslaug. Hún segir að þeg- DV-MYND NJÓRÐUR HELGASON Frá brunastað Helgi ívarsson, bóndi á Hólum, og Ólafur, vinnumaöur hans, viö upptakastað eldsins. ar þau vöknuðu hafi verið þunnur reykur um allt húsið en þykkt reykj- arkóf hafl farið um allt þegar opnað var fram í anddyrið. Strax eftir að fólkið var komið út úr húsinu fór bóndinn aftur inn i húsið og hringdi á slökkviliðið á Sel- fossi sem kom skömmu síðar á stað- inn og réð niðurlögum eldsins. Ás- laug segir að geysilegar skemmdir séu innanhúss af reyk og sóti. Það er ekki hægt að finna stað hér inni þar sem hann hefur ekki komist, inn í skápa og ofan í hirslur," sagði Ás- laug. Hún segir að i kjallaranum hafi mestar skemmdir verið næst elds- upptökunum, þar hafi plast og annað sviðnað. Húsið var reykræst strax eftir að slökkvistarfi lauk. Við höfum eldað matinn hér inni þrátt fyrir allt. Húsbóndinn og vinnu- maðurinn sváfu hér í nótt en ég reikna með að sofa fyrst hér nú í nótt, aðfaranótt mánudagsins. Helgi fór fyrstu nóttina upp á Selfoss, því þeir vildu lita á hann vegna gruns um reykeitrun. En við vinnufólkið fórum hér á næsta bæ sem heitir Tunga, þar hefur fólkið verið okkur afskaplega velviljað og hjálpað okkur á allan hátt og er ég því afskaplega þakklát. Þau sóttu okkur stax um nóttina til aö veita okkur húsaskjól og aðra hjálp eftir eldsvoðann," sagði Áslaug Árnadóttir, ráðskona að Hól- um, við DV. -NH Gott start hjá Strætó bs. Göð stemning á strætóhátíö Stukku sumir hærra en aörir. DV-MYND ÞOK Nýtt strætisvagnafyrirtæki tók til starfa í gær. Það heitir Strætó bs. og nær leiðakerfi þess frá Kjalarnesi suður til Hafnarfjarðar. Því er ætlað að efia almenningssamgöngur á svæðinu, auka hagkvæmni og bæta þjónustu. Strætó bs. varð til við sameiningu SVR og AV en farþegar með þeim voru samtals um 9,2 millj- ónir á síðasta ári. Nýja fyrirtækið er í eigu allra sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu og vígðu full- trúar þeirra nýja hringleið um Reykjavík og Kópavog í gær, ásamt stjórn fyrirtækisins og fleiri gest- um. Bílstjóri i ferðinni var stjórnar- formaðurinn, Skúli Bjarnason, en hann kynntist akstri strætisvagna á námsárum sinum. Strætó bs. hélt fjölskylduhátíð við bækistöðvar sínar í Mjóddinni síð- degis í gær. Þar voru veitingar og skemmtiatriði af ýmsu tagi. Meðal annars stökk norsk-islenski ofur- huginn Arne Aarhus ofan úr 75 metra háum byggingarkrana og spennti fallhlíf á leiðinni niður. -Gun Egilsstaöir: Stútur í grjóturð Mikil ölvun var á Egilsstöðum á laugardagsnótt og var nokkuð um pústra; þrjár líkamsárásir, þar á meðal eitt nefbrot. Tveir voru tekn- ir fyrir að keyra ölvaöir. Annar þeirra hafði þá þegar keyrt út af veginum og velt bíl sínum niður í grjóturð. Hann sakaði ekki, slapp með skrámur. Að sögn lögreglunnar á Egilsstóöum mættu hátt í 1000 manns á dansleik í bænum og skemmtu sér margir fram á bjartan morgun, í misjöfnu ástandi. -jtr Bílvelta í Selvogi Hollenskt ferðamannapar velti bíl í Selvogi um klukkan tvö í gær. Þau sluppu ómeidd en bifreiðin skemmd- ist mikið. Nokkuð algengt er að ferða- menn velti bílum sínum á malarveg- inum suður með sjó. Kaflinn er vin- sæll en flestir ferðamenn eru óvanir akstri á malarvegum. -jtr DV-MYND ÓMAR GARÐARSSON Glæsilegur Þaö var hátíðisdagur þegar Huginn kom til heimahafnar eftir langa siglingu. Huginn til Eyja: Eitt öflugasta skip flotans DV, VESTMANNAEYJUM: Nýtt og glæsilegt nóta- og togveiði- skip, Huginn VE 55, kom til heima- hafnar í Vestmannaeyjum á föstudag eftir liðlega þriggja vikna siglingu frá Chile þar sem skipið var smiðað. Hug- inn er með öflugustu skipum íslenska flotans með 5.800 hestafla aðalvél. Hann er 68 m langur og 14 m á lengd. Burðargetan er 2000 tonn af síld, loðnu eða kolmunna og er þá miðað við að farmurinn sé kældur en annars getur hann borið vel yfir 2000 tonn. Eigandi Hugins er Huginn ehf. sem er i eigu Guðmundar Inga Guðmunds- sonar, skipstjóra og útgerðarmanns, og fjölskyldu hans. Skipstjóri er Guð- mundur Huginn Guðmundsson. Skipið fer sennilega á kolmunnaveiðar. Gert er ráð fyrir fullvinnslu um borð og verður tækjabúnaði komið fyrir í haust. -ÓG Veðrið í kvöld -."^-í>i C T &ís>. f* .10« Sóiargangur og sjávarföil I Veótiö á rrrorgu n REYKJAVIK AKUREYRI Sólarlag í kvöld 23.55 00.27 Sólarupprás á morgun 03.09 02.00 Siodegisflóð 16.29 23.02 Árdegisflóð á morgun 04.46 09.19 Bkýrlngar á veðurtáknum Í**-VINDÁTT ^0°-<----HITI -10° ^MFROST Veörífr á liátíegl í C "^VINDSTYRKUR í mstrtim á sekónttu HEIÐSKÍRT Hlýtt í innsveitum noroaustanlands Suðvestan 5-8 og léttir heldur til norðaustan til á landinu en áfram verður dálítil rigning norövestan til. Hiti 8 til 15 stig en 15 til 20 stig í innsveitum norðaustanlands. *> C> ^3 O ILSKÝJAC HALF- SKÝJAO w SKÚRIR SKYJAD ALSKVJAÐ SLVDDA SNJOKOMA Q il V ^ +" EUAGANfiUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENS'INGUR -jhunsm Búið aö opna Sprengisandslei Hálendisvegimir eru nú óðum aö opnast. Fært er um Sprengisand, Kjöl Kaldadal og Fjallabaksleiðir, nyrðri og syöri. Einnig er búið aö opna veginn upp í Laka og eru áætlunarferðir að hefjast þangað. Þá er fært í Heröubreiðarlindir en ekki lengra eftir þeirri slóð. ¦¦W Skúrir sunnan- og vestanlands Fremur hæg suðlæg eða breytileg átt og skúrir, einkum sunnan- og vestanlands. Hiti 8-13 stig. Vindur: \^- 4-7«,'» Hiti 8° til 18° Fremur hæg vestlæg eoa breytlleg átt og viöa bjart vebur en þykknar upp vestan tll með kvöldlnu. Hlti 8 tll 18 stlg, hlýjast Inn tll landslns. Vindur: V 5-8 nv*-^ Hiti 8° tit 18° Fremur hæg suftvestlæg eða breytlleg átt og víoa skúrlr e&a dálitll rignlng. Hltl 8 tll 13 stlg. Vindur: r 4-8m/ií-^ Hiti 8° tii 13° Hæg suðvestlæg e&a breytileg átt. Víða skúrir eða Jafnvel rlgnlng. Hitl 8 tll 13 stig. AKUREYRI skýjaö 9 BERGSSTAÐIR alskýjað 7 BOLUNGARVÍK skýjaö 11 EGILSSTAÐIR 12 KIRKJUBÆJARKL. rign. á síö. kl. 10 KEFLAVÍK rigning 10 RAUFARHÖFN skýjaö 7 REYKJAVÍK rign. á síð. kl. 10 STÓRHÖFÐI súld 9 BERGEN súld á síð. kl. 12 HELSINKI léttskýjað 12 KAUPMANNAHÖFN skýjað 20 ÓSLÓ skýjað 19 STOKKHÓLMUR skúr 16 ÞÓRSHÖFN skýjaö 10 ÞRÁNDHEIMUR skúr 14 ALGARVE heiðskírt 30 AMSTERDAM léttskýjaö 20 BARCELONA léttskýjaö 26 BERLÍN skýjaö 20 CHICAGO skýjaö 20 DUBUN léttskýjað 22 HALIFAX þokumóöa 17 FRANKFURT skýjaö 23 HAMBORG skýjaö 19 JAN MAYEN þokumóöa 4 LONDON léttskýjað 24 LÚXEMBORG skýjaö 21 MALLORCA léttskýjað 31 MONTREAL alskýjaö 21 NARSSARSSUAQ skýjaö 12 NEW YORK skýjaö 26 ORUNDO skýjaö 25 PARÍS léttskýjaö 23 VÍN skýjað 23 WASHINGTON skýjað 24 WINNIPEG heiðskírt 7 "lé-^ii^^aakk^d^wi.-, ¦AJHtoJHNtM^^WBMIgtgM