V MANUDAGUR 2. JULI 2001 I>V Fréttir I I l h Orkureikningar Akurnesinga lækka um 60-70 milljónir á ári: Enn nánara samstarf við II rgina hugsanlegt - segir bæjarstjórinn á Akranesi DV, AKRANESI: Akurnesingar munu fá lægri orkureikninga eftir að sameining orkufyrirtækja þeirra og Orku- veitu Reykjavíkur gengur í garð í lok ársins. En fleira kann að vera fram undan í samstarfi nágranna- bæjanna, Reykjavikur og Akra- ness. DV tók Gísla Gíslason, bæjar- stjóra á Akranesi, tali í gær. Eins og DV greindi frá verða Hitaveita Akraness og Andakílsár- virkjun sameinuð Orkuveitu Reykjavíkur þann 1. desember. Gísli Gíslason segir að ávinningur Akurnesinga við sameininguna verði margs konar: í fyrsta lagi lækka orkureikn- ingar bæjarbúa verulega eða sem nemur allt að 60-70 milljónum króna á ári. Þyngst vegur lækkun á heitu vatni eða um 34% og raf- magn til heimila lækkar um 11% að meðaltali og til fyrirækja um að meðaltali 5%. Að auki verður gjaldskrá fyrirtækja endurskoðuð til frekari lækkunar. Þá má nefna að með þessari aðgerð verður orkumálum Akurnesinga komið í örugga höfh. Áhætta okkar af óvissu í breyttu raforkuumhverfi og óhagstæðri gengisþróun verður eytt, jafnframt því sem við leggjum öfluga eignarhluta inn I mjög sterkt fyrirtæki sem mun til fram- tíðar eflast. Þannig verða hags- munir bæjarbúa best tryggðir bæði hvað varðar eignarhlut okkar í orkufyrirtækjum og hvað varöar eins hagstæða gjaldskrá og kostur er," sagði Gísli Gíslason. En hvað með önnur hugsanleg samstarfsverkefni? Hvað það varðar þá verða hags- munir bæjarbúa látnir ráða ferð- inni sem og áhugi annarra að taka þátt í samstarfi við okkur. Því er hins vegar ekki að neita að vera kann að mögulegt sé að efna til samstarfs á sviði almenningssam- Fá Borgnesingar heita vatnið á sama verði og ^^ Akurnesingar? Tvær gjald- skrár í sama I fyrirtæki DV, BORGARBYGGÐ: Á fundi bæjarráðs Borgarbyggðar í gær var fjallað um áform Akranes- kaupstaðar um að leggja 53,7% eign- arhlut sinn i Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar inn í Orkuveitu Reykjavíkur en Borgarbyggð á 21,3% í HAB, Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar, Borgarfjarðarsveit á 4,3% og ríkissjóður 20,7%. Málið var rætt en það liggur ekkert fyrir um hver afstaða Borg- arbyggðar verður," segir Stefán Kalmansson, bæjarsrjóri Borgar- byggðar, við DV þegar hann var spurður um nýjustu tíðindi af orku- málum á Vesturlandi. Það er eðli- legt að menn kynni sér þá stöðu sem upp er komin, spyrjist fyrir um áform hins nýja meirihlutaeiganda á Hitaveitu Akraness og Borgar- fjarðar (HAB), gangi þessi mál eftir eins og fram hefur komið í fjölmiðl- um. Það virðist liggja fyrir að HAB muni selja Akurnesingum heitt vatn á sama verði og Orkuveitan gerir í Reykjavík. Við eigum eftir að fá að vita hvort HAB ætlar þar með að vera með tvær gjald- skrár gagn- vart við- skiptavinum sínum eða bjóða Hita- veitu Borgar- ness að kaupa vatnið á sama verði. Það verður farið yfir þessi mál með skipulögðum hætti og svo sjáum við hvernig málin þróast," sagði bæjar- stjórinn. Annars vil ég nota tækifærið og óska Akurnesingum til hamingju með þá lækkun á orkuverði sem þeir virðast eiga í vændum með þessum samruna," sagði Stefán Kalmansson bæjarstjóri. -DVÓ Stefán Kalmansson. áL-aiásS' fiííarthií élífá ^oW%&$^ stórhöfda 27 yr fVZ' ^ ^»1^ m-tmm.1 CCO'JÍ'JC «« DQC.A»C W. > ^ ^ Ka RaFmagnsgítar, £_ magnari m/offokt, ' r ól og snúra. Aður 40.400 kr. . . . , a Nú 27.900 kr. . M0&^^ -^ HljÓmborö >A frá 3.900 JC '«"^ Rafmagnsgítarar WV frá 15.900 ir gangna, hafnarmála og í fleiri málaflokkum. Reyndar má telja nauðsynlegt að sveitarfélögin frá Reykjanesi að Selfossi og norður fyrir Hvalfjörð láti gera sameigin- legt svæðisskipulag þar sem Ijóst er að mikil þróun mun eiga sér staö á þessu svæði í komandi fram- tíð," sagði Gísli Gíslason, bæjar- stjóri á Akranesi við DV. -DVÓ __ Innköllun: Rafræn skráning hlutabréfa Flugleiða hf. frá og með 30. júlí 2001 Mánudaginn 30. júlí 2001 verða hlutabréf i Flugleiðum hf. tekin til rafrænnar skráningar hjá Verðbréfaskráningu íslands hf. í samræmi við ákvörðun stjórnar Flugleiða hf. þar að lútandi. Þar af leiðandi verða engin viðskipti með hlutabréf félagsins þann dag. Frá þeim tíma ógildast hin áþreifanlegu hlutabréf í fyrirtækinu í samræmi við ákvæði laga og reglugerðar um rafræna eignarskráningu verðbréfa. Nánar tilgreint verða öll hlutabréf í Flugleiðum hf. tekin til rafrænnar skráningar en þau eru í þremur flokkum, auðkennd raðnúmerum J300001 J800000; N000001 - N400000; S000001 - S030000 og gefin út á nafri hluthafa. Utgáfudags er getið á hverju bréfi. Hér með er skorað á alla eigendur ofangreindra hlutabréfa sem telja nokkurn vafa leika á að eignarhald þeirra sé réttilega fært í hlutaskrá Flugleiða hf. að staðreyna skráninguna með fyrirspum til hlutaskrár Flugleiða hf., Reykjavíkurflugvelli, 101 Reykjavík, eða í síma 5050-289, netfang: shares@icelandair.is. Komi í ljós við slíka könnun að eigendaskipti hafi ekki verið skráð ber eigendum að færa sönnur á þau gagnvart félaginu fyrir áðurnefndan dag. Enn fremur er skorað á alla þá sem eiga takmörkuð réttindi til ofangreindra hlutabréfa, s.s. veðréttindi, að koma þeim á framfæri við fullgilda reikningsstofhun, þ.e. banka, verðbréfafyrirtæki eða sparisjóð sem gert hefur aðildarsamning við Verðbréfaskráningu Islands h£, fyrir skráningardag. Athygli hluthafa er vakin á að hin áþreifanlegu hlutabréf félagsins verða ógild sjálfkrafa og því er ekki þörf á að skila þeim til félagsins. Jafhframt er vakin athygh á að ferh rafrænnar skráningar hefur engin áhrif á möguleika hluthafa til að eiga viðskipti með hluti sína í félaginu að undanskildum sjálfum skráningardeginum. Að lokinni rafrænni skráningu þurfa hluthafar að fela reikningsstofnun umsjón með eignarhlut sínum í félaginu til að geta framselt hluti sína svo sem vegna sólu eða skipta. Reikningsstofhun mun í þessu skyni stofha VS-reikning í nafhi viðkomandi hluthafa. Hluthöfum félagsins verður kynnt þetta bréfleiðis. Stjórn Flugleiða hf. I ^at Eíl mmm Jr^ I ^i MmM ÍT^í I I %