Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš Vķsir - DV

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 149. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš Vķsir - DV

						MÁNUDAGUR 2. JULI 2001

Fréttir

I>V

Matvöruverð hækkar eftir því sem austar dregur á Suöurlandi:

Ein dýrasta mat-

vöruverslun í heimí

- segir formaður verkalýðsf élagsins í Vík í Mýrdal eftir verðkönnun í bænum

DV, SUDURLANDI:

„Ég ákvað 1 framhaldi af verð-

könnuninni sem var tekin á Selfossi

og birtist í DV á fimmtudaginn að

bera saman verðlagið í verslun

Kaupáss hf., Kjarval, hér í Vík við

niðurstóðu könnunarinnar á Sel-

fossi. Með þeim samanburði stað-

festist grunur minn um að hér væri

verðlag talsvert hærra en á Sel-

fossi," sagði Eiríkur Tryggvi Ást-

þórsson, ibúi í Vík í Mýrdal. Eirík-

ur sem er formaður verkalýðsfélags-

ins Vikings segir aö sér hafi í raun

ekki komið verulega á óvart sá

verðmunur sem hann uppgötvaði í

könnun sinni. „En að verðlagið hér

væri 16 prósentum yflr meðalverð-

inu á Selfossi finnst mér einum of,"

sagði Eiríkur. Hann segist ekki get-

að fundið tilheyrandi skýringu á

verðmuninum. „Fjarlægðirnar eru

tæplega það sem getur réttlætt

þetta. Það getur ekki verið að vörur

þurfi að hækka þetta mikið þó að

DV-MYND SIGURDUR K. HJÁLMARSSON

Dýr aðföng

Eiríki Tryggva Ástþórssyni, verkaiýös-

foringja í Vík í Mýrdal, blöskrar verö-

lagningin á lífsnauðsynjum í sínum

heimabæ, Verölagið er enn dýrara

en í dýrustu búðinni á Selfossi.

þær séu fluttar hér á milli sýslna á

Suðurlandi," sagði Eiríkur.

50% hærra verð

Innkaupakarfan í Víkinni kostaði

5.173 krónur. Það er 229 krónum

hærra en dýrasta karfan kostaði í

KÁ á Selfossi. Verðmunurinn milli

Kjarval í Vik og i Bónuss á Selfossi

er hins vegar 1.796 krónur eða

49,6%. í verðkönnun Eiríks studdist

hann við körfu DV í verðkönnun-

inni á Selfossi. Af þeim 15 tegund-

um sem voru í körfunni reyndust

aðeins tvær ódýrari í Víkinni en

hæsta verð á Selfossi, rauð paprika

og agúrka. Þrjár vörutegundir voru

jafndýrar og hæsta verö, bananar,

tómatar og kókómjólk. Það eru því

tíu tegundir sem eru dýrastar í

Kjarval í Vík, samanborið við versl-

anir á Selfossi. Ef aðeins eru teknar

dýrustu vörutegundirnar á Selfossi

er karfan i Vík samt 111 krónum

dýrari en það samansafn. Sjá töflu.

"Fyrst að verðlag á íslandi er það

hæsta í Evrópu, miðað við nýgerða

könnun, þá hlýtur það vöruverð

sem við búum við hér í Víkinni að

vera eitt það hæsta í veröldinni.og

því miður endurspeglar það ekki

það launaumhverfi sem við búum

við hér í Mýrdalnum," sagði Eirík-

ur Tryggvi Ástþórsson, verkalýðs-

leiðtogi í Vík I Mýrdal að lokum.

NH

	Vík	Self.	Self.

		lægst	hæst

"Maraþon-color	712	499	676 kr.

"1 kg rauð paprika	849	539	898

"Gunnars-majo. 250 c	98 kr.	67	88

"Bananar1 kg	225 kr.	49	225

"Tómatar 1 kg	498 kr.	169	498

"Agúrkur1 kg	398 kr.	239	399

"Maxvell-kaffi, 500 gr	429 kr	329	409

°Ora-fiskbollur, heild.	312 kr	195	279

"Royal-lyftiduft í dós	338 kr.	243	314

°Camembert-ostur	289 kr.	221	279

"Létt og laggott	185 kr.	155	179

"1 I mjólk	82 kr.	73	81

°2 I kók	220 kr	183	219

"Kókómjólk 250 ml	59 kr	41	59

"Cocoa puffs 553 g	479 kr.	335	459

"Samtals karfa:	5.173	3.437	5.062

Raforkuframleiðsla að hefjast í Súgandafirði:

Raforkubændur reisa stöðvarhúsið

DV, SUDUREYRI:

Bændurnir í Botni II og Birkihlíð

i Súgandafirði hafa unnið að þvi nú

um nokkurt skeið að koma upp

vatnsaflsvirkjun á landi sínu. Fram-

kvæmdir hófust í vor og er nú unn-

ið að því að reisa stöðvarhúsið.

Virkjunin mun framleiða 230-500

kílówött af rafmagni eftir árstíðum.

Þegar hefur verið gengið frá sölu á

rafmagninu til Orkubús Vestfjarða.

Fyrir skömmu kom færeyska fiutn-

ingaskipið Skandia með rör frá

Sandevik í Noregi til virkjunarinn-

ar. Um er að ræða um tvo kílómetra

af rörum úr trefjaplasti og mesta

flutningsgeta um 500 sekúndulítrar.

Stofnað hefur verið einkahlutafé-

lag um virkjunina.

Birkir í Birkihlíð segir vonir

standa til að hægt verði að fram-

leiða rafmagn öðru hvoru megin við

áramótin. „Við erum fullir bjartsýni

þrátt fyrir það að gengið hafi fallið

verulega undanfarið sem raskar að

sjálfsögðu öllum arðsemisútreikn-

ingum. Ég tel að víðar séu tækifæri

til að virkja hagkvæmt á Vestfjörö-

um."                                        -VH

DV MYND VALDIMAR HREIÐARSSON.

Rörin komin

Bræðurnir Björn og Svavar Birkissynir taka á móti rórunum sem fara í aðveitulögn til virkjunarinnar.

Háskóli íslands bregst við nýrri aðalnámsskrá:

Inntökuskilyrði í endurskoðun

Nú er unnið að því 1 Háskóla ís-

lands að skilgreina og endurskoða

inntökuskilyrði til samræmis við

nýja aðalnámsskrá sem farið er að

vinna eftir í framhaldsskólum

landsins Þá er unnið að leiðbein-

ungum fyrir framhaldsskólanema

um æskilegan undirbúning fyrir

nám í HÍ. Aðalnámsskráin felur í

sér breytingar á þvi hvemig stúd-

entsprófið er samsett og hvaða leið-

ir eru í boði til að ljúka stúdents-

prófi á bóknámsbrautum.

Þórður Kristinsson, kennslustjóri

i Háskóla Islands, sagði að inntöku-

skilyrði gætu breyst aö einhverju

marki í HÍ við endurskoðunina.

Ekki hefði verið tekin ákvörðun um

í hverju þær breytingar yrðu fólgn-

ar.

„Þetta snýst einkum um aö við-

komandi einstaklingur hafi þann

undirbúning sem hann þarf til að

n w 'i «r*»!i

9111II

.--.....'¦ ¦       ''"

m - ¦» w n - T T !T *

w f | m ir if q? f W jj

Inntökuskilyröi til skobunar

Vinna stenduryfír í Háskóla íslands við skilgreiningar á inntókuskilyrðum til

samræmis við nýja aðalnámsskrá í framhaldsskólum landsins.

geta tekist á við námið í háskóla,"

sagði hann. „Hins vegar er ekkert á

döfinni að gera einkunnir að ein-

hverju skilyrði i þessu sambandi. „

Þórður sagði horft til samsetning-

ar á náminu, þ.e. hvaða greinum

viðkomandi nemandi hefði lokið.

Meðan ekki væru samræmd próf í

tilteknum greinum væri saman-

burður á einkunnum varasamur. í

framtíðinni mætti gera ráð fyrir

samræmdum prófum í íslensku,

ensku og stærðfræöi i framhalds-

skólunum. Með því yrði allur sam-

anburður auðveldari. Þá kæmi til

greina að láta útkomu úr framhalds-

skóla ráða að einhverju leyti, til

dæmis ef breytt yrði fyrirkomulag-

inu á inntöku nemenda í greinar

svo sem heilbrigðisgreinar þar sem

nú væri takmörkun með samkeppn-

isprófum.

„Það skal undirstrikað í þessu

sambandi, að aðgangur að háskólan-

um er opinn. Við reynum að taka

inn alla sem uppfylla inntökuskil-

yrði," sagði Þórður.

Hann kvaðst búast við að Háskóli

íslands gæfi út leiðbeinigar til fram-

haldsskólanna í haust. Nemendurn-

ir gætu þá skipulagt nám sitt í sam-

ræmi við þær leiðbeiningar.

-JSS

Hefti potturinn

Umsjón: Sigurður Bogi Sævarsson

netfang: sigurdur@ff.dagur.is

Mörður í fullu fjöri

Mörður Árnason islenskufræð-

ingur kann svo sannarlega þá list

að valda usla með beinskeyttum

skoðunum sínum. Fólki er enn i

fersku minni.

þau læti sem

urðu vegna |

þess að Mörð-

ur fékk það I

samþykkt i út-

varpsráði að

Evrvisjónlag ís-

lendinga skyldi

flutt á islensku.

Nú hefur Mörð-

ur skorið upp herör gegn rasisma

innan íþróttahreyfingarinnar og

ekki stendur á viðbrögðunum. Fót-

boltabullur með þær skoðanir að

örstutt sé á milli svertingja og apa

hella sér yfir íslenskufræðinginn í

afkimum Netsins. Ekki er búist

við því að Mörður skipti um skoð-

un í þessu máli eins og Evró-

visjónmálinu forðum...

Garðabæjarspildan

Fornvinur Marðar Árnasonar,

prófessor Hannes Hólmsteinn

Gissurarson, á sér líka baráttu-

mál. Hann hefur um árabil haldið

á lofti meint-

um siðlausum

viðskiptahátt-

um Jóns

Ólafssonar

Skífustjóra

sem dvelur í

velllystingum í

Lundúnum.

Hannesi Hólm-

steini hefur

orðið tíðrætt um málefni Jóns sem

og Garðarbæjarlandið sem fjár-

málajöfurinn keypti fyrir 700 millj-

ónir króna en getur ekki losnað

við. Nú mun rofa til varðandi sölu

landsins ef marka má vefsíðu ís-

landsnets sem staðhæfir að landið

verði selt í smáum spildum til

verktaka....

Flótti?

Frétt um brotthvarf dagskrár-

stjórans Páls Baldvins Baldvins-

sonar af Stöð 2 hefur vakið mikla

athygli. Páll Baldvin hefur haft

sterka stöðu

sem einn hejsti

ráðamaður

sjónvarpsris-

ans. Talið er að

með þessu sé

Páll Baldvin að

axla sinn hluta ]

ábyrgðar þess I

að uppsagnir I

áskrifta hafa'

sópast inn það sem af er árinu. Nú

spyrja menn hvort fleiri toppar

séu á förum og er þar horft til

sjálfs forstjórans, Hreggviðs

Jónssonar sem hlýtur að eiga erf-

iðar stundir...

Kratinn kinnarjóði

Eins og DV greindi frá um helg-

ina er Helgi Pétursson meðal um-

sækjenda um starf í nýsköpunar-

deild Orkuveitu Reykjavíkur sem

nýlega var

auglýst laust

til umsóknar

: - og er raun-

ar fullvíst

talið að Helgi

hreppi þetta

starf. Með

þessu mun

hinn kinnar-

jóði Ríó-maður

í borgarstjórn

vera að bjarga sér fyrir horn, en

bæði hann og aðrir innan Reykja-

víkurlistans telja að pólitískur fer-

ill Helga sé á enda. Bæði hafi

hann ekki þótt neitt heljarmenn á

sviði borgarmálanna en einnig sé

tæpast vært fyrir fyrrverandi

framsóknarmann að sitja sem

krati í borgarstjórn, á sama tíma

og Samfylkingin er að bíta í

skjaldarrendur á öllum sviðum -

þar á meðal í borginni.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
14-15
14-15
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40