Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš Vķsir - DV

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 149. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš Vķsir - DV

						10

MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2001

Utlönd

DV

Skotbardagar við landa-

mæri ísraels og Líbanon

Mikill órói hefur verið á átaka-

svæðum fyrir botni Miðjarðarhafs

yfir helgina, þ.á m. hefur ísraelsher

skotið á skotmörk í Líbanon.

Á föstudaginn skutu meðlimir úr

skæruliðasamtökum Hizbollah

sprengjum frá bækistöðvum sínum

í Líbanon að tveimur landamæra-

stöðvum ísraela.

Einn hermaður særðist í

árásinni. ísraelar svöruðu fyrir sig í

gær þegar herþotur skutu á loft-

varnarstöð á vegum sýrlenska hers-

ins við landamæri ísraels og Lí-

banon.

Samkvæmt fréttum særðust þrír í

árásinni, einn líbanskur hermaður

og tveir sýrlenskir. Israelar halda

því fram að sprengjuárásin á föstu-

dag hafi verið gerð með leyfi sýr-

lenska hersins.

Samtök Hizbollah svöruðu

árásinni með skotárásum á stöðvar

ísraelska hersins meðfram landa-

mærunum.

Varnarmálaráðherra ísraels,

Binyamin Ben-Eliezer, svaraði að-

spurður að ekki væri hætta á að

þessar skærur gætu þróast út í alls-

Sprengjurnar yfirfamar

Tveir ísraelskir hermenn gera sprengikúlur reiöubúnar í landamærastöö viö

landamæri ísraels og Líbanon í gær.

herjar stríð. Hann telur að þau lönd

sem liggja kringum ísrael eigi það

sameiginlegt að vilja ekki draga

Mið-austurlönd inn í eitt allsherjar

stríð, ekki einu sinni Sýrland.

Einn 15 ára palestínskur drengur

lést af skotsárum sem hann hlaut á

föstudaginn. Hann var skotinn þeg-

ar hópur palestínskra ungmenna

kastaði grjóti að ísraelskum her-

mönnum.

ígær felldi ísraelsher fimm

Palestínumenn til viðbótar. Tveir

létust í skotbardaga eftir að her-

menn komu að þeim við að koma

fyrir sprengju nærri ísraelskri her-

stöð á Vesturbakkanum. Samkvæmt

fréttum frá fréttastofu Reuter féllu

þrir i viðbót þegar ísraelsk herþyrla

skaut á bíl þeirra. Samkvæmt

palestínskum embættismönnum

voru þeir allir þrir meðlimir Jihad-

samtakanna.

Sami embættismaður sagði þessa

árás sýna fram á það að Sharon hafi

engan áhuga á vopnahléi því er

Bandarikjastjórn kom í gegn og

stendur enn þrátt fyrir áframhald-

andi átök.

Svíþjóð:

Eldur í ferju

Eldur kom upp í sænskri ferju í

gærkvöldi á leið til Trelleborg í Svi-

þjóð frá þýsku hafnarborginni

Sassnitz.

237 farþegar voru um borð í ferj-

unni, sem er rekin af Scandline, en

engan sakaði.

Ferjan var stödd um 25 sjómílur

suðaustur af Sviðþjóð þegar eldur

kom upp í vélarrúminu. Áhöfn

skipsins tókst að hefta útbreiðlsu

eldsins með því að loka vélarrúm-

inu.

Ferjan átti síðan að sigla til

næstu hafnar annaðhvort með eigin

vélarafli eða í togi.

Mikill viöbúnaður var vegna elds-

ins. 10 skip og nokkrar þyrlur voru

í viðbragðsstöðu ef rýma þyrfti ferj-

una en til þess kom ekki.

Verktakar,

útgerðarmenn,

bændiir og

aðrir

[ tækí og vélar

Höfum ávallt á lager

ýmsar gerðir víra.

•  Stálvír

¦   Kranavír

¦   Riðfrírvír

Göngum frá endum

í samræmi við óskir

kaupenda.

Sveittir og olíubornir í tyrkneskri glímu

Hópur fílelfdra tyrkneskra glímukappa fylgist álengdar meö átökum félaga sinna á árlegu móti í hefðbundinni tyrk-

neskri glímu sem fram fór ígær. Glíman heitir Kirkpinar og viröist svipa til grísk-rómverskrar fjölbragöaglímu. I Kirkpin-

ar eru keppendur smurðir i olíu sem gerir öll tök mun erfiðari. Rúmlega 900 manns tóku þátt í mótinu.

Átök eftir friðsama

helgi í Makedóníu

Netagerð

Jóns Holbergssonar ehf

Hjallahraun 11,

220 Hafnarfjörður

sími: 555 4949

Stjómarher Makedóniu rauf frið-

sama helgi með stórskotaliðs- og

þyrluárásum á svæði í haldi al-

banskra skæruliða í gærkvöldi. Eng-

ar fréttir bárust af mannfalli eftir

átökin.

Að sögn vitna heyrðist vélbyssu-

skothríð í kringum þorp í fjallshliö-

um við bæinn Tetovo, hvar skærulið-

ar ráða ríkjum. Auk þess var fall-

byssum skotið að fjallaþorpunum.

Einnig sást til tveggja Mi-24-her-

þyrlna fljúga í áttina að þorpinu

Radusa, rétt við landamæri

Makedóníu og Kosovo. Skömmu síð-

ar kváðu við 10 sprengingar. Radusa

er á valdi skæruliða Albana og mik-

ið hefur verið um bardaga í kringum

þorpið síðan átök þjóðarbrotana

hófust fyrir fjórum mánuðum.

Átökin í gær hófust aðeins örfáum

Bló&þyrstir hermenn?

Makedónskur hermaður bendir hér

á að hann kallar sig vampíru.

klukkustundum eftir að James

Pardew, sérlegur sendifulltrúi

Bandaríkjastjórnar, lenti í Makedón-

íu til að vinna að lausn í deilum þjóð-

arbrotanna tveggja. Pardew, sem

vinna mun með Francois Leotard,

sendifulltrúa Evrópusambandsins,

hvatti leiðtoga samsteypustjórnar

Makedóníu, sem i sitja bæði fulltrúar

meirihluta Slava og minnihluta Al-

bana, til að stöðva ofbeldið og hefja

viðræður þegar i stað. Hann sagði að

pólitísk lausn væri eina lausnin tO

að koma í veg fyrir að átökin leystust

upp i allsherjar borgarastyrjöld.

Vestræn stjórnvöld hafa gagnrýnt

albanska skæruliða fyrir að nota

vopnaða baráttu til að ná fram mark-

miðum sínum. Þau hafa einnig gagn-

rýnt makedónsk stjórnvöld fyrir

hörð viðbrögö.

Stuttar fréttír

Móðgaði samflokksmenn

Michael Ancram,

frambjóðandi til

leiðtoga íhalds-

flokksins breska,

hefur ásakað keppi-

naut sinn, Kenneth

Clarke, um að hafa

móðgað samflokks-

menn sína með um-

mælum þess efnis að flokkurinn

þyrfti að takast á við sársaukafullar

staðreyndir um flokkinn undir

stjórn Williams Hague undanfarin

fjögur ár.

Átta þúsund strandaðir

Verkfall rútubílstjóra á sólar-

strandareyjunni Mallorca olli því að

um 8000 manns voru strandaglópar

á fiugvellinum í Parma. Ástæðan er

sú að flugi hefur verið seinkaö

vegna skorts á fólksfiutningum til

og frá flugvellinum. Verkfallið náði

einnig til eyjanna Ibiza og Menorca

sem liggja nærri Mallorca.

Uti um Kyoto-sáttmálann

Junichiro Koizumi, forsætisráð-

herra Japans, og George W. Bush

Bandaríkjaforseti hittust um helg-

ina. Deilumál þjóðanna fengu enga

lausn. Japan hefur hins vegar

ákveðið að fylgja Bandaríkjunum í

að samþykkja ekki Kyoto-sáttmál-

ann. Það gott sem gerir út af við

sáttmálann.

Olíuframleiðsla sú sama

Aðildarríki OPEC hafa ákveðið

að auka ekki olíuframleiðslu þrátt

fyrir að Irak hætti sínum út-

flutningi.

Cheney ferskur

Talskona     vara-

forseta   Bandaríkj-

m anna, Dick Cheney,

I sagði fjölmiðlum í

gær að Cheney liöi

vel eftir aögerð þar

sem hjartagangráð-

ur   var   settur   í

hann. Búist var við

Cheney i vinnu í dag.

írak gagnrýnir framsal

Yfirvöld i írak sendu í gær frá sér

yfirlýsingu þar sem framsal

júgóslavneskra yfirvalda á Slobodan

Milosevic er fordæmt á þeim for-

sendum að raunverulegir stríðs-

glæpamenn eins og Ariel Sharon

gangi lausum hala.

11 falla í átökum

11 stjórnarhermenn í Yemen féllu

í skotbardaga við hermenn ættbálka

á föstudaginn.

Pinochet á spítala

Augusto Pinochet,

fyrrverandi einræö-

^i isherra Chile, var

fluttur í skyndi á

sjúkrahús í gærdag

vegna vandamála

tengdum blóðþrýst-

ingi. Pinochet þjáist

einnig af elliglöpum

og sykursýki og hefur fengið tvö

slög.

Hvetur til friðarviðræðna

Jóhannes Páll páfi II hvatti í gær-

dag stríðandi fylkingar stjórnvalda

og skæruliða Tamíla á Srí Lanka til

að hefja friöarviðræður og binda

enda á nærri tveggja áratuga vopn-

aðar erjur.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
14-15
14-15
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40