Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš Vķsir - DV

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 149. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš Vķsir - DV

						-T

I

MANUDAGUR 2. JÚLI 2001

35

I>V

Tilvera

Afmælisbarniö

Jerry Hall 45 ára

Fyrrum frú Mick Jagger

og einnig fyrrum súpermód-

el, Jerry Hall, er afmælisbarn

dagsins. Jerry Hall, sem enn

þann dag í dag vinnur lítils

háttar við sýningarstörf, þótti sýna mikla

þolinmæði í sambúð sinni með Jagger

sem á mjög bágt með sig þegar kemur að

kvenfólki. Jagger og Hall eiga fjögur börn

sem Hall hefur umráð yflr. HaU er banda-

rísk og er frá Texas og á hún tvíburasyst-

ur sem heitir Terry. Auk sýning?rstarfa

hefur Hall leikið í kvikmyndum og á

sviði og skrifað i tískublöð. Síðasta afrek

hennar var að taka við af Nicole Kidman

í leikritinu Blue Room í London.

Gilriir fyrlr þriðjudaginn 2. júlí

Vatnsberinn (20. ian.-18. febr.l:

I Velgengnl þinni virð-

ast engin takmörk sett.

Allt sem þú tekur þér

fýrir hendur heppnast.

Þáð er ekki laust við að ýmsum

þyki nóg um.

Fiskamir (19. febr.-20. mars):

Þér finnst þú mæta

-¦miklu mótlæti þessa

dagana en það gæti

einungis stafað

af því að þú ert svartsýnn.

Hrúturinn (21. mars-19. apríll: |

f\^ Vertu bjartsýnn því nú

^•wmJifer að rofa til í fjár-

\j^M    málunum. Þú uppliflr

^^ eitthvað

óvenjulegt í kvöld og ýmislegt

kemur þér á óvart.

Nautið (20. aoríl-20. maí):

/            Það er ekki auðvelt að

¦ Jj^^^ 8era Þér til hæfis í dag

^^y^ ÞvíaðÞúbýstviðof

\^f     - miklu. Fólk finmir til

vanmáttar gagnvart þér og forð-

ast þig.

Tvíburarnir (21. maí-2i. iúníi:

Rómantíkin kemur við

'sögu í dag og þú átt

mjóg ánægjulegan dag

með ástvini.

Vinir þínir eru þér ofarlega í

huga í kvöld.

Krabbinn (22. iúní-22. iúlíl:

Hvort sem sem þú

I hyggur á ferðalag eða

einhvers konar mann-

fagnað skaltu ekki bú-

ast við of miklu. Þá er hætt við að

þú verðir fyrir vonbrigðum.

UÓnið (23. iúlí- 22. áeústl:

Þú færð einkennilegar

fréttir af fjarlægum

vini þínum og þær

gætu valdið

þér áhyggjum sem reynast þó al-

veg ástæðulausar.

Mevjan (23. ágúst-22. seot.):

*^y   Þú kemst að þvi hve

-'^^^^ mikilvægt það er að

^^^|Lhalda góðu sambandi

^     F við þína

nánustu. Félagslifið er með lif-

legra móti.

Vogln (23. sept.-23. okt.):

Upplýsingar sem þú

færð reynast þér

gagnslitlar. Þú verður

að fara á

stufana sjálfur og kynna þér mál-

in ofan í kjölinn.

Sporðdrekl (24. okt.-21. nóv.l:

, Gamall draumur þinn

t virðist um það bil að

prætast. Þetta verður á

_| margvíslegan hátt sér-

stakur gleðidagur hjá þér. Happa-

tölur þinar eru 7,19 og 34.

Bogamaður (22. nóv.-21. des.):

IFjölskyldumeðlimur

fangrar þig eitthvað í

| dag og þú ættir að

E reyna að leiða

hann njá þér. Forðastu allar deil-

ur.

Stelngeltln (22. des.-19. ian.1:

Þú ert ekki vel upp

lagður í dag og ættir ef

hægt er að láta erfið

verkefni bíða. Reyndu

að gera eitthvað uppbyggjandi.

iteingeítln

Visindi

MAP út í geiminn:

Leitað uppruna

alheimsins

Á laugardag sendi NASA nýja

ómannaða athugunarstöð út í geim-

inn. Stöðin, sem gengur undir nafn-

inu MAP (Microwave Anisotropy

Probe), mun gera nákvæmnismæl-

ingar á örbylgjukliðnum. Ör-

bylgjukliðurinn er um 14 milljarða

ára gómul rafsegulgeislun sem kem-

ur frá frumheimi. Reiknað er með

að mælingarnar gefi mikilvægar

nýjar upplýsingar um gerð og þróun

alheimsins, hulduefni, hulduorku

og margt fleira.

Stöðin fer fyrst til tunglsins og

tekur sú ferð kringum mánuð.

Þyngdarafl tunglsins verður síðan

notað til þess að slöngva athugunar-

stöðinni enn lengra út í geim, til

staðar sem kallaður er L2

(Lagrange-punktur nr. 2 fyrir kerfið

sól-jörð). Staðurinn er nefndur eftir

franska stærðfræðingnum Jósef

Lagrange (1736-1813). L2 er í 1,5

milljón km fjarlægð frá jörðu (til

samanburðar má nefna að meðal-

fjarlægð tungls frá jörðu er 384 þús-

und km). Eftir um það bil þriggja

mánaða ferð verður MAP kominn á

leiðarenda og byrjar að framkvæma

mælingarnar, vinna úr ör-

bylgjukliðnum úr frumheimi. Áætl-

að er að mælingar og gagnaúr-

vinnsla taki um eitt og hálft ár. Ef

allt    gengur    samkvæmt   áætlun

MAP

Gerir nákvæmnismælingar á örbylgjukliönum.

munu niðurstöður því liggja fyrir

innan tveggja ára.

MAP hefur verið nokkur ár í

smiðum og er kostnaðurinn sem

svarar 15 milljörðum íslenskra

króna.

Lögbann á myndir

Hjónakornin Dav-

id og Victoria Beck-

ham fengu í síðustu

viku sett lögbann á

birtingu mynda af

nýju húsi sem þau

hafa látið byggja í

Hertfordshire         á

Englandi.

Dagblaðið The Sunday People ætl-

aði að birta myndirnar um fyrri helgi

en þær fékk það frá ónefndum aðila.

Blaðið neitaði að gefa upp nafn hans.

Hjónin telja að verkamaður eða ein-

hver annar hafi tekið myndirnar á

meðan á byggingu hússins stóð. Dóm-

arinn bannaði það hins vegar og sagði

að blaðið mætti bara birta myndir

sem það ætti fyrir og sendar hefðu

verið til fjölmiðla.

Fær skilorðs-

bundinn dóm

Ruddarapparinn

Eminem fékk í síð-

ustu viku eins árs

skilorðsbundinn

dóm fyrir tvö atvik

þar sem hann bar og

beindi    byssu    að

öðru fólki. Auk þess

var hann dæmdur til að sinna samfé-

lagsþjónustu í 21 dag.

Eminem, réttu nafni Marshall

Bruce Mathers III, mun í rifrildi við

rappara úr rappgrúppunni Insane

Clown Posse hafa veifað skammbyssu.

Þetta er annar dómurinn sem

Eminem fær á þessu ári. Hann var

dæmdur í tveggja ára skilorðsbundið

fangelsi fyrr á árinu fyrir að berja

mann í andlitið með byssu.

Hársnyrtivörur í úrvali

Sundraði ekki

sambandi Júlíu

Kvennagullið og hjartaknúsarinn

George Clooney hefur brætt margt

hjartað frá því hann birtist fyrst í

sjónvarpsþáttunum Bráðavaktinni.

Hann segir hins vegar að það sé af

og frá að hann hafi átt þátt í máli

með sambandsslit konunar með

fallegu tennurnar, Júliu Róberts, og

hennar ástvinar, Benjamin Bratt.

Júlía og Bratt bundu enda á fjög-

urra ára langt samband sitt í sein-

ustu viku. Þessar fréttir komu flatt

upp alla sem fylgst höfðu með sam-

bandinu þessi fjögur ár. Allt var

talið leika í lyndi hjá turtildúfunum

og voru sumir jafhvel farnir að bíða

eftir að boðsmiðar í brúðkaup færu

að detta inn um bréfalúgur vina og

kunningja. Samkvæmt heimildum

mun það hafa verið Bratt sem sleit

sambandinu og er ástæðan sögð

vera tregða Júlíu um að bindast

honum í hjónabandi.

Ástæðan fyrir því að Clooney er

talinn vera púkinn sem kom upp á

milli þeirra er að hann og Júlía léku

saman i myndinni Ocean's Eleven

og þóttu ná vel saman. Eins og áður

sagði þá þvertekur Clooney fyrir

þessar sógusagnir. Hann segir eina

af sónnunum fyrir því vera að sam-

kvæmt slúðurblöðum í Bandaríkj-

unum hafi hann verið of upptekinn

við að rústa hjónabandi Nicole Kid-

man og Tom Cruise.

Clooney er nú í fríi á ítalíu með

kærustu sinni Lisu Snowdown.

TfMAMÓTABÍLL

Meðaleyðsla 6,11

1.095.000,- I

Stofnuð 1918

Hárgreíðslustofan

Kíapparstíg

Sími 5513010

Onnum kafinn við að skjóta nlður sambönd

Samband Júlíu og Bratt er ekki það eina sem Clooney hefur verið sakaöur

um. Hann á einnig að hafa eyðilagt hjónband Cruise og Kidman.

Meg dömpaöi

Russell

Meg Ryan og Russell Crowe voru

eitt umtalaðasta parið í Hollywood í

fyrrahaust. Þegar sambandsslitin

áttu sér stað, eins og virðist óum-

flýjanleg örlög flestra sambanda hjá

stjörnum þessa heims, þá var það

talið að Russell hefði verið sá sem

hjó á hnútinn.

Sky News sögðu hins vegar frá

því fyrir stuttu

að þvi hefði verið

öfugt farið. Meg,

sem nýstigin var

úr skilnaði við

eiginmann sinn

Dennis Quiad,

mun hafa þótt

umtalið of mikið

og  ákveðið  að  enda  sambandið.

Russell mun hafa tekið því illa enda

svo ástfanginn að hann samdi lög og

ljóð fyrir dömuna.

\

V

-^Jtéf

í

Vorum aö fá

mikið úrval af

þýskum svefnsófum

á góöu verði

ÁRMÚLA 19 . 108 REYKJAVÍK • S. 553 9595 / 553 9060

Opið mán.-föstud. 8-18

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
14-15
14-15
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40