36 MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2001 -r Tilvera 3>V líf iö Hef ð og saga Sumarsýning Listasafhs Sigurjóns Ólafssonar ber heitið Hefð og saga. Þar getur að líta úrval verka eftir Sigurjón Ólafsson frá þrjátíu ára tímabili, 1930-60. Á sýningunni eru þrjátíu ljósmyndir og tuttugu og fjögur skúlptúrverk, bæði raunsæ portrett og abstraktverk, meðal annars verk sem ekki hafa verið sýnd opinberlega í fjóra áratugi. Sýningar I KIRKJA. ARKITEKTUR. SKRUÐI Sýningin Samræmd heildarmynd - Klrkja, arkltektúr, glerlist, skrúðl stendur yfir í Fella- og Hólakirkju. Þar eru sýnd frumdrög aö teikningum kirkjunnar, frumdrög vinnuteikningar og Ijósmyndir af vinnuferli glerlistaverkanna og skrúðans. Hönnuðir eru Leifur Breiðfjörð og Sigríður Jóhannsdóttir. Sýningin stendur til 8. júlí og er opin alla virka daga kl. 10-16. ¦ ÍSLENSKAR ÞJÓÐSÖGUR OG ^yjNTYRJ Sumarsýning i sgrímssafns að Bergstaðastræti 4 í Reykjavík ber heitiö íslenskar 'jóðsögur og ævintýri. Þar eru largar af frægustu þjóðsagna- , nyndum listamannsins. Einnig er 'innustofa hans, heimili og innbú lans til sýnis. ¦ VÍKINGAR í BYGGÐASAFNI HAFNARFJARÐAR Gótulíf víklnganna í York og Blóðug vígaferli eru sumarsýningar Byggðasafns Hafnarfjarðar. Þar er endurgerð á götu í víkingaþorpi þar sem hægt er að sjá fólk við vinnu sína og hins vegar má sjá beinagrind og hauskúpur víkinga sem féllu í bardögum. Á sýningunni eru raunverulegar líkamsleifar sem geta valdið óhug hjá viðkvæmum sálum. Sýningin er opin alla daga frá 13-17. ¦ UST FRÁ LKMNNI ÖLD í LISTASAFNI ASI Svninein List frá liðlnni öld stendur yfir í Llstasafni ASÍ. Þar eru öndvegisverk i eigu Listasafnsins. Litiö er til fyrri hlutar síðustu aldar og sjónum meðal annars beint að yngri verkum frumherjanna. ¦ SVIPIR LANDS OG SAGNA í ÁSMUNDARSAFNI Svning á verkum Ásmundar Sveinssonar í Listasafnl Reykjavíkur, Asmundarsafni, heitir Svipir lands og sagna. Þar eru verk sem spanna allan feril listamannsins. Sýningin er opin daglega frá 10-16. ¦ 1461 DAGUR Á KJARVALSSTOÐUM í Mlðrými Kjarvalsstaða er sýningin 1461 dagur. Þar sýnir Grétar Reynisson verkefni sem hann hefur unnið að frá 1. janúar 1977 og sér ekki fyrir endann a. Þetta er nefnilega vaxtarverkefni. ¦ KRISTBERG Á AKUREYRI Verk Krlstbergs O. Péturssonar eru sýnd í Ketilhúsinu á Akureyri um þessar mundir. Sýningin stendur til 8. júní. ¦ ÞORRI í LÓNKOTI Þorrl Hringsson ætlar aö framlengja sýningu sína í Galleríi Sölva Helgasonar í Lónkotl til 7. júlí. Krár_______________ ¦ DUNDURFRETTÍR Á GAUKNUM Dúndurfréttir verða aftur á sínum stað á Gaukl á Stöng í kvöld og færa okkur allt þetta helsta. ¦ TRÚBBINN EINAR Trúbadorinn Einar Orn frá litla bænum Bolungar- vík ætlar að trylla KR-inga á Rauða Ijónlnu f kvöld. Fókus 3 ára: Fjor a Fókushátíð - líf færðist í Hljómskálagarðinn Hljómskálagarðurinn iðaði af lífi síðastliðinn fóstudag þegar vikurit- ið Fókus fagnaði þar þriggja ára af- mæli sínu. Nokkrar af fremstu hljómsveitum landsins tróðu upp af þessu tilefni og má þar nefna Jagú- ar, X Rottweilerhunda og í svórtum fötum. Einnig tók misheppnaði kyn- skiptingurinn Hedwig tvö lög fyrir gesti og var fagnað ógurlega að söng loknum. Leiktæki stóðu yngstu kyn- slóðinni til boða og voru langar rað- ir í þau fram eftir kvöldi. Þeir sem vildu fá meiri útrás og adrenalín- flæði í likamann gátu skellt sér í teygjustökk og nýttu margir sér það tækifæri. Hápunktur kvöldsins var þó valið á Herra Fókus. Um þá eftir- sóttu nafnbót kepptu fimm vaskir sveinar sem voru hver öðrum þokkafyllri og átti dómnefnd því svo sannarlega úr vöndu að ráða. Knattspyrnukarlar Keppt var í svokölluðu Human Table" í Hljómskálagarðinum á föstudaginn en sá leikur líkist risa- vöxnu fótboltaspili með lifandi leik- mönnum. Fylgst með Herra Fókus Jafnt stelpur sem strákar fylgdust af áhuga með Herra Fókus og létu álit sitt á keppendum óspart í Ijós. X Rottweilerhundar Þaö ríkti engin lognmolla í kringum rappsveitina X Rottweilerhunda frekar en fyrri daginn. I lokalaginu djammaði fönksveitin Jagúar með þeim pilt- um og hefur annar eins samhljómur aldrei heyrst á íslandi. Veiðidans Einn keppenda í Herra Fókus stíg- ur nokkur eggjandi dansspor áhorfendum til mikillar gleði. Hálf öld frá 29. júní 1951: íþróttaafreka minnst Föstudagsins 29. júní 1951 verður lengi minnst af íþróttaáhugamönn- um en þann dag unnu íslenskir íþróttamenn mikil afrek. Ekki var nóg með að íslenska landsliöið í knattspyrnu ynni sigur á sænska landsliðinu heldur unnu íslenskir frjálsíþróttamenn einnig glæsta sigra á norskum og dönskum frænd- um sínum. Á föstudaginn var liðin nákvæmlega hálf öld frá þessum mikla dýrðardegi í íslenskri íþrótta- sögu og af því tilefni komu gamlar íþróttakempur saman og minntust liðinna stunda. Dagskráin hófst með athöfn í Neskirkju þar sem látinna félaga var minnst en síðan var geng- ið fylktu liði yfir á Hótel Sögu þar sem snæddur var hátíðarkvöldverð- ur og hetjurnar heiðraðar. Gamlar kempur Hluti landsliðs íslands í knattspyrnu árið 1951 stillir sér upp til mynda- töku í kvöldsólinni. SJá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísi.is DV-MYNDIR EINAR J. Fram, fram fylking Að lokinni athöfn í Neskirkju var gengið undir fánum til kvöldveröar á Hótel Sögu. Ráðherra íþróttamála Menntamálaráðherra heiðraði íþróttahetjurnar meö nærveru sinni. Hér er hann ásamt eigin- konu sinni, Rut Ingólfsdóttur tónlistarmanni, og Ellerti B. Schram, forseta íþróttasambands ís- lands, eftir athöfnina í Neskirkju. Sjá máttl fána og merki hlnna ýmsu íþróttafélaga í göngunni Hér er fáni Knattspyrnufélags Reykjavíkur bor- inn í hús. Ellert B. Schram fylgist með.