Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš Vķsir - DV

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 149. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga breidd


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš Vķsir - DV

						ttw

NISSAN MICRA-

FRETTASKOTIÐ

SÍMINN SEM ALDREI SEFUR

Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,

hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert

fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,

greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið

í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar

er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan

sólarhringinn.

550 5555

MANUDAGUR 2. JULI 2001

«.VS-

Skrílslæti í Uthlíð:

Lögregla varð

frá að hverfa

Gerður var aðsúgur að Selfosslögregi-

unni þegar hún reyndi handtöku i Út-

hlíð í Biskupstungum í fyrrinótt. Mikil

ölvun og samsöfnuður fólks var á svæð-

inu og í kjólfar dansleiks upphófust

slagsmál og óspektir meðal ballgesta.

Um 5 til 700 manns voru í Úthlíð og réð

6 manna lögreglulið sem var til skipt-

anna í Árnessýslu á tímabilinu ekki

neitt við neitt.

„Það voru almennar óspektir meðal

fólksins og þegar iögreglumenn reyndu

að handtaka mann fyrir ofsaakstur

gerði lýðurinn aðsúg að þeim. Við urð-

um frá að hverfa og gátum ekkert gert

þótt verið væri að brjóta rúður í bílum

og berja mann og annan," segir Svanur

Kristinsson, lögreglumaður á Selfossi.

Svanur segir skipulagsleysi valda því

að illa fer.

„Ballinu lýkur klukkan þrjú og þá er

ekkert við að vera fyrir fólkið. Á venju-

legum útihátiðum er eftirlit og gæsla á

vegum aðstandenda hátíðanna. Þarna

var greinilega gert ráð fyrir því að lög-

reglan tæki að sér þessi störf en hún er

alltof fáliðuð og getur ekkert gert til að

hafa hemil á skrílnum sem er með

óspektir," segir hann.                    -jtr

Lokuö matvörubúð:

Mjólkurpeningar

gáfu 2,4 milljónir

Hún datt aldeilis í lukkupottinn,

konan á fertugsaldri sem ætlaði að

versla i 10-11 í Glæsibæ í gærkvöldi

klukkan 19.30. Hún kom að luktum

dyrum þar sem nú stendur yfir

vörutalning í verslunum landsins.

Hún skellti sér í staðinn með

mjólkurpeningana í spilakassa Gull-

námu Happdrættis Háskóla íslands

í sama húsi, í Ölveri í Glæsibæ, og

vann 2.386.099 kr.

Að sögn starfsmanns í Ölveri

varð konunni mikið um. Konan,

sem ekki vildi láta nafns síns getið,

sagði að vinningurinn kæmi sér að

sjálfsögðu vel enda væri hún að fara

i sumarfrí í útlóndum eftir 2 vikur.

Vinningurinn er ekki síður

skemmtilegur þar sem Happdrætti

Háskólans var að breyta kerfi sínu í

Gullnámunni á fóstudag og er þetta

því fyrsti Gullpotturinn í nýja kerf-

inu.                                        -DVÓ

Ofsaakstur:

Fullur á 150

- sofnaði

Ökumaður um tvítugt var tekinn

á tæplega 150 kílómetra hraða nærri

Laugarvatni um fjögurleytið aðfara-

nótt sunnudags. Þegar lögreglan tók

hann tali reyndist hann undir áhrif-

um áfengis. Maðurinn sofnaði ölv-

unarsvefni í bíl lögreglunnar þegar

hún ræddi viö hann.                  -jtr

DV-MYND INGÓ

Þórsmerkurgleði

Ekki finna sig allir knúna til að stunda slagsmál og ólæti í sumarfríum sínum. Þessi kátu ungmenni í Þórsmörk létu

gleöina ráöa ríkjum og höföu engar áhyggjur af skrílslátum margra annarra. Og þannig á sumariö aö vera.

Þroskaþjálfaverkfall:

Verð að vera

bjartsýn

- segir Sólveig Steinsson

„Það er verkfall í gangi og mikil al-

vara á ferðum en ég verð að vera bjart-

sýn," segir Sólveig Steinsson, formað-

ur Þroskaþjálfafélags íslands. Samn-

ingafundur milli félagsins og samn-

inganefndar ríkisins verður haldinn

eftir hádegi í dag og kveðst Sólveig

vonast til að ríkið komi með eitthvað

bitastætt svo núverandi ástandi linni.

„Við þurfum að gera miðlægan samn-

ing við rikið til að geta gengið frá

samningum við sjálfseignarstofhanir.

Það er ljóst að peningarnir verða að

koma frá ríkinu," segir Sólveig.

Þroskaþjálfar eru búnir að ganga frá

samningum við Reykjavíkurborg og

launanefnd sveitarfélaganna. Ósamið

er við Skálatún og Styrktarfélag van-

gefmna sem eru sjálfseignarstofnanir

og Reykjalund sem telst einkastofnun.

Ríkið hefur greiningarstöðvar og

svæðisskrifstofur fatlaðra á sinni

könnu og þar er allt í lamasessi meðan

verkfall varir.                           -Gun

Slagsmál og drykkjulæti í Þórsmörk:

Fólk þarf reglulega að

láta eins og skepnur

- segir læknir sem sendi eftir aukabirgðum af tvinna

Um 1500 manns voru samankom-

in í Langadal í Þórsmörk á laugar-

dagskvöldið. Samfögnuðurinn ein-

kenndist af " slagsmálum og

drykkjulátum og þurfti fjöldi fólks

að leita ásjár læknis og Rauða

krossins. Lögreglan á Hvolsvelli

þakkar Ólafi Árna Sveinssyni, af-

leysingalækni á Hvolsvelli og Hellu,

fyrir að ófremdarástand skapaöist

ekki í Þórsmörk. Ólafur stóð vakt-

ina i Langadal frá kvóldi laugardags

fram á miðjan sunnudag, samtals 18

tíma. Hann segir stöðugan straum

illa haldins fólks hafa legið til sín.

„Ég hef ekki tölu á því hversu

margir komu til mín en það hlýtur

að hafa nlaupið á tugum. Það var

ljótt að sjá hvernig fólk var farið.

Menningarstigið var komið ansi

langt niður þarna um nóttina og

hrottafengin slagsmál voru mörg.

Það fylgir kúltúrnum á íslandi að

fólk þarf að láta eins skepnur við

og við til þess að fá útrás," segir

Ólafur.

Ástandið var slíkt í Þórsmörk að

lögreglan þurfti að sækja aukabirgð-

ir af tvinna til Hvolsvallar, svo vett-

vangslæknirinn í Mörkinni gæti

haldið áfram að sauma.

Þyrla Landhelgisgæslunnar var

tvisvar kölluð á svæðið á laugardag.

í annað skiptið var það vegna þess

að maður sem talinn var ölvaður

prílaði í klettum við hlíð Vala-

hnjúks. Hann féll niður sex metra

hæð og brotnaði á báðum höndum.

Auk þess var hann talinn með inn-

vortis blæðingar. Annar var sóttur

eftir að hafa fallið niður meðvitund-

arlaus af ókunnum orsökum. Þess

utan kærði einn maður líkamsárás

þar sem hann var sleginn í andlitið

með glerflösku. Hann skarst mikið í

andliti.

Ólafur læknir segist vona að fólk

muni endurskoða þennan hátt sem

það hefur á sumarfríum sínum.

„Mikil hætta fylgir því ef fólk

hópast saman ölvað á svæði eins

og Þórsmörk. Þar eru gil og klettar

sem eru slysagildrur fyrir fullt fólk

sem finnur oft hjá sér hvöt til að

fara i gónguferðir hingað og þang-

að. Það þarf að endurskoða þessar

samkomur rænulítils fólks."     -jtr

DV-MYND ARNI MAACK

Þyrlan í Þórsmörk

Tvö útkalla þyrlu Landhelgisgæslunnar voru í Þórsmörk.  Þarna er hún að

sækja mann sem hrapað hafði í klettum og þrotnað á þáðum höndum. Hér

er verið að þera manninn slasaðan um þorð.

V   SKEPNUSKAPUR!

/öAUMASKAPUR OG\     Neistaflug milli vélstjóra og annarra í forystusveit fiskimanna

Hef noga til að tala við

- segir Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafélagsins

LM

t': A

„Ef Sævar ætlar aldrei að ræða við

mig aftur, þá verð ég að búa við það, ég

hef nóga til að tala við. Við stungum

engan i bakið með rýtingi en gerðum

bara kjarasamning fyrir félagið. Haldi

Sævar það virkilega að við hefðum feng-

ið að vera í verkfalli marga mánuði í

viðbót, þá er ég honum fullkomlega

ósammála. Ég veit að allar ríkisstjórnir

hefðu gripið inn í deiluna," sagði Helgi

Laxdal, formaður Vélstjóraféiags ís-

lands, í gærkvöldi. Aðrir forystumenn

fiskimanna hafa fordæmt framgöngu

Helga og félaga hans harðlega i fram-

haldi af kjaradómi sem úrskurðaði sjó-


•%

mönnum launahækk-

anir um helgina.

Helgi hafnar því að

pólitísk afskipti sín

hafi haft nokkuð með

samninga vélstjóra að

gera.

Helgi segist ekki

vilja úttala sig um

hvort enn stæði verkfall á fiskiskip-

um ef ekki hefði verið gripið inn í en

segir að markmið útgerðarmanna

hafi verið að fá niðurstöðu í mönnun-

armálum. Hann sagði að ljóst væri að

Kristján Ragnarsson hafi ekki síst lát-

Helgi Laxdal.

ið af störfum vegna þessara mála.

„Varðandi þennan dóm þá hef ég

ekkert með það að gera í sjálfu sér. En

mér sýnist að margt sé skárra hjá þeim

ef eitthvað er. Grétar Mar var að tala

um launalækkun hjá einhverjum sínum

mönnum, skipstjórum á uppsjávarveið-

um, en við sömdum auðvitað ekki fyrir

skipstjóra. Þeirra samningur gildir í tvö

og hálft ár en okkar í fjögur og hálft ár.

Þeir hafa því svigrúm til að sækja bætt

kjör fyrir sína umbjóðendur án þess að

Vélstjórafélag íslands komi þar nokkuð

nærri," sagði Helgi Laxdal.          -JBP

- Nánar bls. 2.


Jói útherji

Knattspymuverslun

Ármúla 36 • sími 588 1560

Verd frá

35.500

£VRÓ

Allarstærðir     Gsre«

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
14-15
14-15
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40