Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2001, Blaðsíða 9
9
MANUDAGUR 9. JULI 2001
DV
Fréttir
Hársnyrtivörur í úrvali
Skólamál Árborgar til umræðu á bæjarráðsfundi:
Auglýsa eftir skóla
stióra til eins árs
Stofnuö 1918
Rakarastofan
Klapparstíg
Sími 551 3010
Þorlákur
Helgason.
DV, SELFOSSI:
„A fundi skóla-
I nefndar Árborgar á
föstudag var sam-
þykkt að auglýsa
eftir skólastjóra til
starfa í Sólvalla-
skóla til eins árs.
Með því er þó ekki
verið að loka á frek-
ari vinnu við aö at-
huga kosti þess að
sameina skólana," segir Þorlákur
Helgason, fræðslustjóri Árborgar.
Á fundi bæjarráðs Árborgar á
fimmtudagsmorgun var lagður fram
undirskriftarlisti þar sem 79 starfs-
menn Sólvallaskóla og Sandvíkur-
skóla lýsa furðu sinni á frétt í Sunn-
lenska fréttablaðinu 28. júní 2001
um hugsanlega sameiningu Sand-
víkurskóla og Sólvallaskóla.
í svari bæjarráðsins er vakin at-
hygli á að mál þetta er á athugunar-
stigi á grundvelli samþykktar bæj-
arráðs frá 31. maí 2001, eins og
margir aðrir þættir i skólastarfinu í
Árborg, og að engar ákvarðanir
hefðu verið teknar.
Engar ákvaröanir teknar
Þoriákur segir að þó að farið væri út í sameiningu skóla sem stofnana á
miöju skólaári veröi skólastarf á næsta skólaári nokkurn veginn óbreytt frá
því sem nú er.
Tímasett áætlun
Á fundi bæjarráðs 31. maí var
fræðslustjóra Árborgar falið að
koma með tímasetta aðgerðaáætlun
vegna málefna skólanna á Selfossi.
í bókun bæjarstjóra segir aö
fræðslustjóri setji fram drög að
tímasettri áætlun um sameiningu
Sandvíkur- og Sólvallaskóla, þeim
drögum þurfi að fylgja útfærslur og
mat á þeim íjárhagslegu áhrifum
sem það getur haft fyrir sveitarfé-
lagið að sameina þessa skóla
“Á fundi bæjarráðs í gær sam-
þykkti bæjarráð að ég hraðaði
vinnu minni við úttekt á hag-
kvæmni sameiningar Sandvíkur-
og Sólvallaskóla, i þessu máli þarf
ég að skila fyrstu drögum innan
hálfs mánaðar," sagði Þorlákur. Á
fundi bæjarráðs á fimmtudags-
morgun voru ekki teknar neinar
ákvarðanir um ákveðið ferli sam-
einingar skólanna á Selfossi. Út frá
samþykkt skólanefndar má þó ráða
að ekki verði farið út í sameiningu
skólanna fyrr en að ári. Þorlákur
segir að ljóst sé að þó að farið væri
út í sameiningu skóla sem stofnana
á miðju skólaárinu verði skólastarf-
ið á næsta skólaári nokkurn veginn
óbreytt frá þvi sem nú er.
Skólaakstur ekki í
myndinni
Þá samþykkti ráðið að bekkjar-
deildir 1. bekkjar skólanna á Sel-
fossi verði fimm næsta skólaár,
lausn á húsnæði verði fundin innan
núverandi húsnæðis Sólvallaskóla
með hugsanlegri nýtingu húsnæðis
í nágrenni skólans. Með þessu eru
settar út af borðinu þær hugmynd-
ir að ein deild fyrsta bekkjar verði
flutt að Þingborg eins og fram kom
í viðtali við Huldu Finnlaugsdóttur
í DV á föstudag. -NH
Dagblöð
græða land
DV, EGILSSTODUM:
„Þetta er allt í þróun hjá okkur,
raunar tilraunaverkefni. Við feng-
um kurlvél smíðaða hjá Smára
Traustasyni í Vík og kurlum nú
pappa og pappír. Pappakurlið er
hugsað sem undirburður í gripahús
og líkar vel. Dagblaðakurlið setjum
við í hrærivél með mysu eða vatni
og getum blandað með hverju sem
er, svo sem áburði eða fræi. Héraðs-
skógar hafa áhuga á að prófa þaö í
skjólbelti og kæmi það þá í staðinn
fyrir plastþekju," sagði Asta Sigfús-
dóttir á Egilsstöðum en á vegum
sorpsamlagsins á Egilsstöðum hef-
ur hún verið að þróa nýtingu á
pappa og pappír.
Ein af hugmyndum Ástu er að
búa til mottur úr pappírskurli. Þær
mætti nota til að hindra illgresis-
vöxt og einnig til uppgræðslu. Tveir
starfsmenn eru við þessa fram-
leiðslu eins og er auk Ástu sem hef-
ur umsjón með verkefninu. -SB
DV-MYND SIGRÚN BJÖRGVINSDÓTTIR
Mottur úr dagblaðakurll
Kristján og Páll sýna mottu sem sáö hefur verið í grasfræi og sprettur vel. Á
bak við þá er Ásta Sigfúsdóttir, umsjónarmaður þessa tilraunaverkefnis, og
heldur á mottu.
d! á
æru verðií
óamnr jeppalelgur )
Stærðin 15" 16" 17“
o
GVS
Gdmmíviimustofan ehf.
Réttarhálsi 2
Skipholti 35,
Þjónustuaðilar um land allt
sími: 587 5588
sími: 553 1055
Fýrst og f remst
sandfangari
DV. HORNARRDI:
Bygging grjótgarðs frá
Austurfjörum i Horna-
firði út í Þinganessker
miðar vel og verður verk-
inu lokið um miðjan
þennan mánuö. Garður-
inn er 300 metra langur
og 5,95 metrar á hæð.
Áætlað er að 15.830
rúmmetrar af sprengdu
grjóti fari í garðinn og
sunnar og í innsigling-
arrennuna. Þetta eykur
líkumar á að meira
dýpi verði á grynnslun-
um utan við skerin og
nái að hreinsa burt
sandölduna sem þar
dv-mynd JÚLIA imsland hefur myndast. Með
þessu eykst dýpi og
er fyrir
Betri innsigling
Garðurinn út í Þinganessker
sem erviö innsiglinguna um stærri skip ^3^
Hornafjaröarós.
um 17 þúsund rúmmetrar af fínna efni.
„Þetta er fyrst og fremst sandfang-
ari, eins og garðurinn sem lagður var
út frá Austurfjörutanga fyrir
nokkrum árum sem safnar sandi í
krókinn þar til víkin fyllist," segir
Helgi Már Pálsson byggingaverkfræð-
ingur.
„Þessi garður á að taka sandinn sem
kemur að austan og koma straumnum
á Hornafjörð," segir
Helgi Már og þetta á að tryggja betri
innsiglingu og stoppa efnisburð líka.
Helgi Már segir að svona garðar
þurfi tvö ár til að eðlilegt jafnvægi ná-
ist og á þessum tveim árum fer fram
mikil rannsóknarvinna. Eftir tvö ár
kemur í ljós hvort dæla þurfi upp úr
innsiglingunni eöa hvort ósinn nái að
ryðja þetta sjálfur þannig að góð dýpt
verði í innsiglingunni. -JI
BALENO
WAGON 4X4 - Fjölskyldubíllinn
Meðaleyðsla 7,41
“ 1.875.000,-
SUZUKI BILAR HFN;
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
Hellbrigðls- og trygglngamálaráðuneytlð
Brevtingar á tóbaksvarnalögum 1. ágúst 2001
Breytingar á tóbaksvarnalögum taka gíldi 1. ágúst1 n.k. og breytast þá
skilyrði fyrir smásölu á tóbaki. í þessu samþandi er rétt aö taka fram:
Það þarf að sækja um leyfi til heilbrigðiseftirlits á viðkomandi svæði til að selja tóbak
leyfið er veitt til fjögurra ára í senn
þeir einir fá leyfi sem fullnægja almennum skilyrðum laga um verslunarrekstur
Athygli er vakin á að umsóknir þurfa að hafa borist heilbrigðiseftirliti á viðkomandi
svæði fyrir 15. júlí til að unnt sé að ganga frá leyfunum fyrir 1. ágúst n.k.
Eftir því sem við á skulu umsóknir sendar:
Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Suðurlandsbraut 14, 108 Reykjavík
Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, Garðatorgi 7, 210 Garðabæ
Heiibrigðiseftirliti Kjósarsvæðis, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Heilbrigðiseftirliti Vesturlandssvæðis, Borgarbraut 13, 310 Borgarnesi
Heilbrigðiseftirliti Vestfjarðasvæðis, Aðalstræti 21-23, 415 Bolungarvík
Heilbrigðiseftirliti Norðurlandssvæðis vestra, Pósthólf 92, 550 Sauðárkróki
Heilbrigðiseftirliti Norðurlandssvæðis eystra (Akureyrardeild), Glerárgötu 26, 600 Akureyri
Heilbrigðiseftirliti Norðurlandssvæðis eystra (Húsavíkurdeiid), Ketilsbraut 22, 640 Húsavík
Heilbrigðiseftirliti Austurlandssvæðis, Búðareyri 7, 730 Fjarðabyggð
Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, Austurvegi 56, 800 Selfossi
Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja, Fitjum, 260 Reykjanesbæ
Auglýsing þessi er birt í samráði við umhverfisráðuneytið á grundvelli 7.
gr. laga nr. 95/2001 um breytingar á lögum nr. 74/1984 um tóbaksvarnir
Lög nr. 95/2001 um breytingu á iögum nr. 74/1984 um tóbaksvarnir