Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2001, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2001, Blaðsíða 28
5 NISSANj FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 MÁNUDAGUR 9. JÚLÍ 2001 Víkingur á leiö í land. Halamið: Loðnunni mokað upp Mokloðnuveiði var um helgina í grennd við Halamið, út af Vestfjörð- um, að sögn Sigurðar Daníels Hall- dórssonar, stýrimanns á Víkingi AK 100. Víkingur landaði í gær 1400 tonnum af fallegri ioðnu til bræðslu hjá Síldar- og fiskimjölsverksmiðju HB á Akranesi. Elliði AK, skip HB, fyllti sig ►einnig í fyrrinótt og kom á svipuð- um tíma til löndunar á Akranes. Sigurður segir að þetta sé falleg og góð loðna og menn séu að tala um að svo mikið af loðnu hafi ekki sést síðan 1993, það sé mikið af torfum og mikið af loðnu að sjá. Útlitið fyr- ir sumarloðnuveiðina er því þokka- legt. -DVÓ Ekið yfir tjald Stúlka sem var stödd í Úthlið óskaði eftir aðstoð lögreglu aöfaranótt sunnudags þegar bíll ók yfir tjald vinar hennar sem hún taldi hann sofandi í. Nokkrir menn höfðu beðið um að tjaldið yrði fært úr stað og þegar þeim var svarað neitandi óku þeir tvívegis yfir tjald- ið. Til allrar lukku reyndist tjaldið mannlaust. í hamaganginum tókst ökuníðingunum að festa bílinn í drullu en þegar stúlkan hugðist til- kynna brotið símleiðis flúðu þeir af vettvangi. Lögreglan kom skömmu síöar en tókst ekki að hafa uppi á ódæðismönnunum. Að sögn stúlk- unnar var tjaldið skilið eftir og ekki aðhafst frekar i málinu. -sör & Jói útherji Knattspyrnuverslun Ármúla 36 • sími 588 1560 DV-MYND JAK Fólksbíll velti jeppa Harður árekstur lítils fólksbíls og jeppa varð á Suðurlandsvegi, við Hveradali, í gærkvöldi. Fólksbílnum virðist hafa verið ekið ógætilega fram úr langri röð bíla, svo hann lenti á afturdekki jeppans og hvolfdi honum. Ökumaður fólksbílsins er grunaður um ölvun viö akstur. Alls var þrennt í bílunum, tvennt í jeppanum og einn í fólksbílnum og voru þau öll flutt með sjúkraþílum til aöhlynningar á Landspítalann í Fossvogi. Ekkert þeirra taldist alvarlega slasað og þykir mikil mildi að ekki skuli hafa farið verr. Mikil umferð var á Suðurlandsvegi þegar áreksturinn varð um níuleytiö í gærkvöldi. Forstjóri Lyfjaverslunar íslands vill ekki Frumafl: Forstjórastóll að veði - bréf forstjóra rýrir traust á fyrirtækinu, segir Grímur Sæmundsen Sturla Geirsson, forstjóri Lyfja- verslunarinnar, skrifaði stjórnar- mönnum opið bréf í Morgunblaðinu í gær, sunnudag. Þar skoraði hann á stjórnina að ná samkomulagi um það að falla frá kaupum á Frumafli og öll- um málaferlum þar að lútandi. Áskor- unin er afar skorinorð. Lýsir Sturla því afdráttarlaust yfir og styður dæm- um að gangi kaupin eftir muni það valda stórtjóni á báðum fyrirtækjum og jafnvel eyðileggja þau. Með áskoruninni hefur Sturla tekið af skarið og sýnt hvorn málstaðinn hann styður í málinu og þar með hvorn hópinn: Minnihlutann. í kjöl- farið vakna spurningar um samband hans við stjórnarmeirihlutann og Grím Sæmundsen, stjórnarformann, og hvort ekki hljóti að hitna undir for- stjóra sem greini alvarlega á við meirihluta stjórnar? „Þegar ég skrifaði þetta bréf gerði ég mér fyllilega grein fyrir því að það gæti haft afleiðingar. Hins vegar var það mitt mat að ef ég reyndi ekki að koma þessum sjónarmiðum á fram- færi, sem ég tel vera þau réttu, þá Sturla Grímur Geirsson. Sæmundsen. væri ég ekki að vinna að hag félags- ins. Og mér ber að vinna að hag þess en ekki einstakra hluthafa. Ef það er svo að menn meta það þannig að ég sé ekki æskilegur hjá félaginu eftir það þá verður þara svo að vera,“ sagði Sturla Geirsson í gærkvöldi. Sturla vill ekki orða þetta svo að um trúnaöarbrest milli stjórnarmeiri- hluta og forstjóra sé að ræða, þetta sé sjónarmið sem hann hafi viðrað áður og menn viti af. Hann nefnir auk þess þá starfsmenn sem skrifa undir áskor- unina með honum, 8 háttsetta yfir- menn í dótturfyrirtækjum Lyfjaversl- unarinnar. „Það er alveg ljóst að fólk er að hætta starfi sínu, ekki bara ég. Allir þessir starfsmenn sem skrifa undir með mér gera það með því markmiði að koma því til skila að við séum ekki að gera að gamni okkar. Við lítum málið það alvarlegum aug- um, hagsmunirnir eru svo rikir að við erum tilneydd til að gera þetta. Kom- ið er fram að Lyfjaverslun íslands er gríðarlega sterkt félag með bjarta framtíð og þvi tel ég óráðlegt að hætta þeirri björtu framtíð með þessum kaupum. Við erum að hætta djobbun- um okkar fyrir félagið. Það er svo ein- falt.“ Hef ekki safnað llði Grímur Sæmundsen, stjórnarfor- maður Lyfjaverslunar íslands, segist ekki hafa nokkra tilfinningu fyrir því hvort minnihluti stjórnar sé búinn að ná meirihluta atkvæða fyrir hluthafa- fundinn á þriðjudag, og því síður hvort einstaka stjórnarmenn séu orðnir tvístíga í málinu, eins og Ósk- ar Magnússon og Bolli Kristinsson. „Ég hef ekki verið í því að safna einhverju liði heldur reynt að vinna faglega að málefnum félagsins," segir Grímur Sæmundsen. „Það olli mér vonbrigðum að bréfi Sturlu Geirssonar skyldi með skipu- lögðum hætti vera komið til fjölmiðla og ekki vera jákvætt fyrir fyrirtækið, raunar til þess fallið að rýra traust á félaginu að ósekju. Ég er ósammála því að félagið sé komið að fótum fram því þetta er öflugt félag með bjarta framtíö. Þessi mál leysast á hluthafa- fundinum á þriðjudag. Ég skil vel að Sturla sé uggandi og undir miklu álagi en mér fmnst að hann hafi tekið of djúpt í árina. Það er leiðinlegt að fé- lagið verður fyrir þyngsta högginu. Það verður engin stjórnarfundur fyrir hluthafafundinn, og þar er vantraust- stillaga á stjórn og nýtt stjórnarkjör. Sama stjórn eða ný stjórn mun vænt- anlega ræða þetta mál.“ Grímur segir það mjög bagalegt ef dómur Hæstaréttar vegna áfrýjunar á lögbannskröfunni liggi ekki fyrir hluthafafundinum. Þar sem búið sé að skila inn öllum greinargerðum geri hann sér vonir um það, það sé öllum málsaðilum til bóta. -fln/GG Á heimleið af kvöldvakt á elliheimilinu Grund: Miðaldra konu rænt úr strætóskýli Fimmtugri starfskonu á elliheim- ilinu Grund við Hringbraut í Reykja- vík var rænt úr strætisvagnaskýli gegnt elliheimilinu þar sem hún beið eftir vagni að lokinni kvöldvakt. Kvöldvakt lýkur klukkan 23.30 en at- burðurinn átti sér stað í síðustu viku. „Það er náttúrlega skelfUegt tU þess að hugsa að fólk geti ekki beðið eftir strætisvagni án þess að eiga von á svona ósköpum," sagði Ágústa Ólafsdóttir, yfirmaður starfskonunn- ar á deUd V2A á elliheimilinu Grund. „Mér skUst að þetta hafi ver- ið þrír strákar sem renndu upp að Strætisvagnaskýllö gegnt Grund Starfskonan stóð og beið eftir vagni í lok kvöldvaktar. Sú bið endaöi á annan hátt en hún hugði. strætisvagnaskýlinu og þóttust vera að spyrja tU vegar. Fyrr en varði kipptu þeir konunni upp í bUinn og heUtu einhverri ólyfjan upp í hana á meðan brunað var niður í miðbæ. Þeir hentu henni síðan út úr bílnum við Herkastalann í Aðalstræti," sagði Ágústa. Starfskonan fékk taugaáfall þar sem hún stóð fyrir framan Hjálpræð- isherinn og vissi vart í þennan heim né annan. Fékk hún aðstoð tU að kom- ast á slysadeild þar sem hún fékk við- eigandi meðferð auk þess sem reynt var að dæla ólyfjaninni upp úr henni. „Það var að sjálfsögðu ómögulegt að segja til um hvað það var sem pUtarn- ir heUtu ofan í hana,“ sagði Ágústa. Starfskonan sjálf vildi sem minnst tjá sig um'lífsreynslu sína í gærkvöldi en sagði þó: „Ég er ekki búin að ná mér enn en geri það vonandi síðar. Þessir piltar voru aUir drukknir og bílstjórinn líka.“ Starfskonan gaf lögreglu skýrslu um atburðinn en kærði hann ekki. Sagði að það þýddi ekkert: „Þegar ég sagði lögreglunni að bílstjórinn hefði lika verið drukkinn var mér svarað þvi tU að það gæti ekki staðist. Þá fannst mér fokið í Uest skjól," sagði starfskonan. -EIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.