Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2001, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2001, Blaðsíða 8
Viðskipti___________________________________________________ Umsjón: Viðskiptablaöið Síminn hækkar verð - meðalsímreikningur heimilanna hækkar um 2,4%-3,l% Síminn hækkar ýmsa þjónustuliðl Veröskrá farsímakerfisins breytist ð þann veg að í staö 10 sekúndna upphafsgjalds kemur föst upphæö, Frá 1. ágúst næstkomandi breyt- ist veröskrá Landssímans í fastlínu- og farsímaþjónustu. Breytingin mun leiða til 2,4-3,1% hækkunar á meðalsímreikningi viðskiptavina Landssíma íslands. Breytingin er tilkomin vegna hækkunar á rekstrarkostnaði sem að stórum hluta stafar af lækkun á gengi íslensku krón- unnar. Stjórn Símans hefur ákveðið að bregðast við þessu á tvennan hátt, með lækkun rekstrarkostnað- ar, sem þegar hefur skilað veruleg- um árangri, og hækkun á einstök- um liðum þjónustunnar. Meðalsímreikningur heimilanna í talsímaþjónustu hækkar við þessa breytingu um 102 kr. á mánuði eða úr kr. 4.333 í kr. 4.435. í breytingun- um felst að í almenna kerfinu hækk- ar dagtaxti um 6 aura úr kr. 1,50 í kr. 1,56, eða um 4%. Kvöld-, nætur- og helgartaxti hækkar um 7 aura úr kr. 0,78 í kr. 0,85, eða um 9%. Upphafsgjald sim- tala í almenna kerfinu hækkar um 25 aura úr kr. 3,20 í kr. 3,45, eða um 7,8%. Fastagjald helst óbreytt. Afsláttur í spamaðarleiðinni Vin- ir & vandamenn innaniands hækk- ar úr 10% í 15% og afsláttur í sparn- aðarleiðinni Vinir & vandamenn Intemet breytist þannig að í stað stighækkandi afsláttar sem mestur var 20% eftir 30 mínútur verður fastur 20% afsláttur gefinn eftir 10 mínútur. Niðurstaða breytinganna er að meðalsímreikningur heimila hækkar um 2,4%. Meðalsímreikningur heimilanna í GSM-þjónustu hækkar við þessa breytingu um 110 kr. á mánuði eða úr kr. 3.585 í kr. 3.695. Veröskrá farsímakerfisins breyt- ist á þann veg að í stað 10 sekúndna upphafsgjalds kemur fóst upphæð, ein króna, innan sama kerfis og tvær krónur milli kerfa. Þetta á bæði við um GSM- og NMT-kerfin. Afsláttur í spamaðarleiðinni Vinir og vandamenn GSM hækkar jafn- framt úr 10% í 15%. Þessar breyt- ingar hafa þau áhrif að meðalsím- reikningur í GSM hækkar um 3,1%. Breyting þessi nær ekki til við- skiptavina Frelsisþjónustu Símans en nú nýta um 50.000 manns sér þá þjónustu. „Síminn hefur lagt áherslu á að mæta hækkandi rekstrarkostnaði meö hagræðingu í eigin rekstri og það hefur þegar skilað sér í fyrirsjá- anlegum lækkunum á rekstrargjöld- um. Með þessum aðgerðum gerum viö ráð fyrir að ná okkar rekstrar- markmiðum á árinu,“ segir Heiðrún Jónsdóttir, forstöðumaður upplýsinga- og kynningarmála Sím- ans. „Eftir þessar hækkanir eru tal- símagjöld á íslandi enn sem áður langlægst af OECD-löndunum og fjórðungi lægri en í því landi sem næst kemur, sem er Svíþjóö. Þegar litið er til meðalfarsímakostnaðar OECD-landanna er ísland einnig lægst en næsta land er Finnland." „Það eru fyrst og fremst gengis- breytingar og verðbólga sem hafa rask- að áætlunum Símans og við því er nú brugðist. Jafníramt er í undirbúningi frekara átak til almennrar hagræðing- ar með auknu vægi raffænna við- skipta sem viðskiptavinir Símans koma til með að njóta góðs af.“ Samvinnuferðir-Landsýn eignast Bókunarmiðstöð íslands SamviiMiilerðlrLaiids!/ii Samvinnuferðir-Landsýn (SL) hafa keypt eignarhluta annarra hluthafa í netfyrirtækinu Bókunar- miöstöð íslands ehf. (BÍ) og samein- að daglegan rekstur félagsins rekstri SL. SL átti fyrir tæplega 70% hlut í BÍ en aðrir eigendur voru Eignarhaldsfélag Alþýðubankans, VÍS og Olíufélagið hf. BÍ hóf sjálfstæðan rekstur í mars 1999. Auk almennra upplýsinga um ísland og fréttamiðlunar gafst ferða- þjónustu- aöilum kostur að bjóða þjónustu sínu og leigja aðgang að gagna- grunni BÍ. Vefur BÍ er rekinn undir www.discovericeland.com og er einn mest sótti bókunar- og upplýs- ingavefur um íslenska ferðaþjón- ustu síðan hann var tekinn í gagn- ið. Rekstur BÍ hefur ekki farið var- hluta af þeim umbrotum sem átt hafa sér stað á þeim markaði sem netfyrirtæki starfa á. Erfitt hefur reynst að fjármagna áframhaldandi þróun og sjálfstæðan rekstur félags- ins. Sú þróun sem átt hefur sér stað innan BÍ nýtist SL vel í framtíðinni og styður þann ásetning fyrirtækis- ins að taka forystu í netvæðingu ferðaþjónustu á íslandi. Það er stefna SL að reka BÍ sem sjálfstæða einingu innan félagsins og þróa starfsemi þess áfram. Þetta fellur vel að þeirri framtíðarsýn að viðskipti með ferðir munu meir og meir, og jafnvel fyrr en ýmis önnur þjónusta, færast að verulegu leyti yíir á Netið. Hagnaður Frumherja 20 milljónir - jókst um 300% frá sama tímabili í fyrra Samkvæmt rekstrarreikningi Frumherja nam hagnaður fyrstu sex mánuði ársins 19,9 milljónum króna samanboriö við 4,6 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. Rekstrartekjur Frumherja hf. á tímabilinu námu alls 293 milljón- um króna og hækkuðu þær um 31% frá sama tímabili á síðasta ári. Rekstrargjöld að meötöldum afskriftum jukust á sama tíma um 13%. Árshlutareikningurinn er sam- stæðureikningur sem tekur til Frumherja hf. og dótturfélaga. Aukning rekstrartekna er að 2/3 hluta til komin vegna samnings Frumherja hf. við Orkuveitu Reykjavíkur vegna umsýslu sölu- mæla en tekjur byrjuðu að mynd- ast vegna hans um miðjan mars- mánuð. Á meðal rekstrargjalda eru af- skriftir 32,1 milljón króna saman- boriö viö 21,7 milljónir á sama tímabili á síðasta ári. Aukning af- skrifta er fyrst og fremst til komin vegna kaupa félagsins á sölumæl- um Orkuveitu Reykjavikur. Félagið hefur, líkt og mörg önn- ur félög, lent í talsverðu gengistapi vegna skulda félagsins og nam gengismunur 27,2 milljónum króna á tímabilinu. Aukn- ingu fjármagnsliða má einkum rekja til þessa en auk þess jukust vaxta- greiðslur vegna láns sem tekið var .“T á tímabilinu til þess að fjármagna kaup félagsins á sölumælum Orku- veitunnar. Að teknu tilliti til 15,4 milljón króna tekjufærslu vegna verðbreytinga voru fjármagnsliðir neikvæðir um 24,8 milljónir króna. Handbært fé félagsins án vaxta nam 72,5 milljónum króna í sam- anburði við 20,9 milljónir króna fyrir sama tímabil í fyrra. Hand- bært fé frá rekstri nam hins vegar 62,1 milljón króna í samanburði við 16,7 milljónir króna í fyrra. Bókfært eigið fé í júnílok nam 341,9 milljónum króna en þar af nemur hlutafé 77,3 milljónum króna. Eiginfjárhlutfall í júnilok var 43,8% og arðsemi eigin fjár var 6,23%. í mars 2001 var undirritaður samningur til 5 ára á milli Frum- herja hf. og Orku- veitu Reykjavíkur hf. um þjónustu er tengist sölumælum Orkuveitunn- ar. Jafnhliða keypti Frumherji hf. alla sölumæla Orkuveitu Reykja- víkur og leigir Orkuveitan þá af Frumherja hf. Helstu fjárfestingar sem félagið lagði í á tímabilinu voru kaup tengd ofangreindum samningi við Orkuveitu Reykjavíkur á sölumæl- um og prófunarbúnaði og upp- byggingu á prófunarstofum og lag- erhúsnæði. Alls námu fjárfesting- ar félagsins vegna þessa um 280 milljónum króna sem fjármagnað var að hluta til með 219 milljón króna láni frá Orkuveitu Reykja- víkur. í janúar 2001 var Athugun hf., sem keypt var á árinu 2000, sam- einuð í eitt félag undir nafni Frumheija hf. Rekstur Frumherja hf. hefur styrkst á árinu með tilkomu nýs verkefnis tengdu sölumælum fyrir rafmagn og vatn sem hefur haft í för með sér betri nýtingu á hús- næði og starfsmönnum auk þess að gefa félaginu tækifæri tO frek- ari útvíkkunar á þessu sviði til framtíðar. Áhrifa þessa nýja verk- efnis er enn ekki farið að gæta aö fullu í rekstri félagsins og mun ekki gera það fyrr en á næsta ári. Ekki eru fyrirséðar breytingar á öðrum núverandi starfssviðum fé- lagsins á árinu. BIFREIÐASKOÐUN ÞRIDJUDAGUR 24. JÚLÍ 2001 I>V KasjJiraaaaaiaEEEa HEILDARViÐSKIPTI 1100 m.kr. -Hlutabréf 60 m.kr. -Húsbréf 400 mkr. MEST VIÐSKIPTI © Pharmaco 27 m.kr. Q Sjóvá-Almennar 4 m.kr. © Eimskip 3 m.kr. MESTA HÆKKUN © Húsasmiöjan 2,6% © Kögun 2,6% © Össur 1,6% MESTA LÆKKUN © MP-Bio 10,5% © Eimskip 2,1% © Samheiji 1,4% ÚRVALSVÍSITALAN 1036 stig - Breyting o -0,11% OPEC boðar samdrátt í olíuframleiðslu OPEC gæti þurft að draga veru- lega úr olíuframboði til þess að stöðva verðlækkun undanfarinna vikna og hækka verð á olíu að nýju, segir Ali al-Naimi, olíumálaráð- herra Sádí-Arabíu. Næsti fundur OPEC, sem fram- leiðir um 25 mUljón tunnur á dag eða um þriðjung heimsframboðs af olíu, er ekki áformaður fyrr en í lok september. En eftir að olíuverð féll niður í 22,78 dollara i lok vikunnar, sem er við neðri mörk 22-28 dollara verðbilsins sem OPEC hefur sett sem markmið, hafa komið fram hugmyndir meðal ráðamanna OPEC-ríkja að kalla til neyðarfund- ar og grípa til ráðstafana til að tryggja að olíuverð lækki ekki meira og hækki jafnvel nokkuð. IFO í Þýska- landi í fimm ára lágmarki IFO-vísi- talan í Þýskalandi, sem mælir efnahags- ástandið í Þýskalandi, féll snögg- lega og meira en vænst var i júní og endaði í fimm ára lágmarki. Um leið gefur þetta vísbendingar um aö samdráttur efnahagslífsins í Evru- landi sé ekki liðinn undir lok. Þessi lykilvísitala efnahagsástandsins í Þýskalandi, sem er talin einn besti mælikvarð- inn á efnahagshorfur fyrir þau 12 lönd sem standa að evrunni, féll úr 90,8 stigum í maí í 89,5 stig í júni en vænst hafði verið að vísitalan myndi haldast fyrir ofan 90 stigin. Vísitalan hefur því lækkað um meira en 10 stig síðustu 12 mánuði. Vísitalan gefur til kynna að upp- gangur í þessu stærsta hagkerfi Evrulandsins sé ekki í augsýn og hefur leitt til aukins þrýstings á Seðlabankann að lækka vexti. Náöu forskotS í viöskiptum é Vfsl.ls Notaðu visifingurinn!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.