Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2001, Blaðsíða 47

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2001, Blaðsíða 47
59 LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2001 DV Tilvera Minningarmótið um Paul Keres Undirritaður hefur verið á ferðalagi um skáklendur Evrópu að undanfórnu og margt borið á góma. Ég hélt tO Tall- inn í Eistlandi og tók þátt í minning- armóti um Paul Keres sem var hér áður fyrr oft nefndur Páll 11 eöa krón- prins skákarinnar því hann lenti svo oft í öðru sæti á heimsmeistaramót- um. Hann var eiginlega búinn að vinna sér rétt til að tefla heimsmeist- araeinvígi við Aljechin 1938 en þá kom „blessað stríðið" og að þvi loknu áttu Eistlendingar ekki upp á pallborðið hjá Rússunum. En skákmann eins og Keres gátu þeir notað og Keres, sem var annaðhvort í Svíþjóð eða tefldi á yfirráðasvæði Þjóðverja í stríðinu, voru boðin grið, að undirlagi Bot- vinniks sem síðar varð heimsmeistari. Sumir hafa haldið því fram að griða- skilmálar Keresar hafi verið að vinna ekki heimsmeistaratitilinn í skák, hvað veit maður um það í þessari skrýtnu veröld? Alla vega, Rússlandsmeistarinn 2001, Sakaev vann mótið örugglega og ég fékk 5,5 v. af 9 mögulegum og er þokkalega ánægður með það. Fékk meira að segja verðlaun og víst er að velvild Eistlendinga er mikil i garð okkar íslendinga. Núna erum við staddir á Norður- landamótinu í Björgvin í Noregi í góðu yfirlæti, ég með 3,5 af 6, Amar Gunnarsson og Þröstur Þórhallsson stórmeistari með 4 v. af 6. Allir erum við í Taflfélagi Reykjavíkur, eins gott aö það komi fram. Það eru 30 ár síðan ég tók þátt í mínu fyrsta Norðurlanda- móti, í Reykjavík 1971. Fyrir heims- meistaraeinvígi Fischers og Spasskís! Það hefur alltaf verið ánægjulegt að taka þátt í mótum þessum, þau hafa að vísu dottið niður síðustu árin í þeirri merkingu að mótið hefur ekki verið opið öllum. En nú eru yfir 100 þátttak- endur og Björgvinjarbúar ánægðir mjög! Mótið er styrkt rneð fríðunv. flokki ungra meyja frá Póllandi, ka- þólskum og með abbadís sér til full- tingis. En sú ágæta kona sér sem bet- ur fer ekki allt eða getur það verið að hugarfar þeirra hafi breyst!? Efstur í mótinu er Arthur Kogan frá ísrael með 6 v. af 6 mögulegum. „Það eru kyrrðin og rólegheitin hér sem hafa þessi áhrif á mig,“ segir Arthur en hann þarf aö gegna her- þjónustu nokkra mánuði á ári hverju. Einhver reyndi að segja hon- um frá spengjuárásunum í ísrael en fékk þvílíkan hneykslunarsvip til baka að viðkomandi hrökklaðist í burtu. „Ég botna ekkert i þessu en ég er að tefla,“ sagði Arthur við mig en við hittumst á skákmóti í Niðurlönd- um fyrir nokkrum árum. Það var gaman að sjá Amar valta yfir þenn- an stórmeistara eins og að drekka vatn. Arnar hefur fengið færri vinn- inga en efni hafa staðið til en þó er áfangi að alþjóðlegum meistaratitli innan seilingar. Hvitt: Arnar Gunnarsson (2263). Svart: Nicolaj Mitkov (2547). Enski leikurinn. Norðurlandamótið Bergen (5), 08.08. 2001. 1. c4 e5 2. Rc3 Rc6 3. Rf3 Rf6 4. e3 Nú er komið að uppskeruhátiðinni. Amar hefur sannarlega teflt betur en „enginn"! 38. Hxc6 Hxc6 39. Dxc6 Rxe5 40. Hxe5 Hxe5 41. fxg6 fxg6. Og nú skákar hvítur af honum allt „draslið". 42. Dc8+ Kf7 43. Dxb7+ He7 44. Dd5+ Kg7 45. Re6+ Hxe6 46. Dxe6 Dcl+ 47. Kg2 Dd2+ 48. Kh3 Dxb4. 49. De5+ Kh7 50. Bd4 Df8 51: Dxb5 Dc8+ 52. Kg2 Dc2+ 53. KÍ3 Ddl+ 54. Ke4 Dg4+ 55. Kd5 Df3+ 56. Kc4 Dfl+ 57. Kb4 Del+ 58. Kc5 De7+ 59. Kd5 Dd8+ 60. Ke4 De7+ 61. De5 Db7+ 62. Ke3 Db3+ 63. Bc3 Db6+ 64. Kf4 Df2+ 65. Kg5 DfB 66. Dh8+ 1-0 Enginn teflir skemmtilegar en Þröstur þegar sá gállinn er á honum. En hér í Björgvin hefur honum gengið illa að fá eitthvað út úr taflinu með svörtu. En með hvítu mönnunum er hann stórhættulegur. h6 5. Dc2 Bc5. Nú kemur smáfórn til að hrista upp í stríðshrjáðum Makedóniumanninum. 6. Rxe5 Rxe5 7. d4 De7 8. dxc5 Dxc5 9. a3 a5. Og enn blæs hann, 10. - axb4 11. axb4 gengur ekki vegna þess að svarti hrók- urinn er óvaldaður. 10. b4 De7 11. Hbl axb4 12. axb4 d6 13. Be2 b6 14. 0-0 Bb7 15. e4 0-0 16. f4 Rc6 17. Hdl Hfe8 18. Bf3 Rd8 19. Hel d5 Það er athyglisvert hversu svarta staðan versnar með hverjum leik, sér- staklega eftir næsta leik Amars. Svartur er eiginlega rekinn í krappa vöm og það kann ekki góðri lukku að stýra. 20. e5 dxc4 21. Bxb7 Rxb7 22. Bb2 Rh7 23. Rd5 Dd7 24. Dxc4 b5 25. Db3 Hac8 26. Hbdl Dg4 27. h3 Dg6 28. Df3 Dc2 Hér hafði þó svartur kjark til að bjóða jafntefli! Það sakar ekki að spyrja. 29. Bd4 c6 30. Re3 Dg6 31. f5 Dg5 32. g3 h5 33. h4 Dh6. Eftir mikið ferðalag húkir drottningin þama og getur lítið gert. Þvilik yfir- burðastaða hjá hvítum. 34. Rg2 Rf8 35. Bb6 g6 36. Rf4 He7 37. Hcl Rd7 Hvitt: Þröstur Þórhallsson (2456) Svart: Geir Tallaksen (2239). Spánski leikurinn (?). Norðurlandamótið Bergen (5), 08.08.2001. 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Rf6 4. De2 Be7 5. c3 0-0 6. d3 d6 7. h3 Ra5. Staðan breytist nú yfir í spánskan leik. Þröstur vildi hvíla skoska leikinn sinn því þessir „djöflar" skoða allt í tölvunni! 8. Bb5 a6 9. Ba4 b5 10. Bc2 c5 11. Rbd2 Dc7 12. Rfl Bb7 13. Re3 Hfe8 14. 0-0 Bf8 15. Rh2 d5 16. Rhg4 Rxg4 17. Rxg4 Had8. Nokkuð venju- legar tilfæringar í þessari ágætu byrj- un en nú lætur Þröstur gamminn geisa! 18. f4 dxe4 19. dxe4 exf4 20. Bxf4 Bd6 21. e5 Dc6 22. Hf3 Bf8. En það þarf að vinna unnu stöðum- ar til að fá vinninginn skráðan! Næsti leikur er ansi óþægilegur. 28. e6 Rb7 29. Dxh7+ Kf8 30. exf7 Hxf7 31. Hxf7+ Kxf7 32. Dg6+ Kf8 33. Df5+ Kg8 34. De6+ Kf8. Allt þvingað samkvæmt Þresti. Næsta leik höfðum við gaman mjög afl Bakdymar era opnar! Og síðasta hald- reipi svarts slitnar. 35. Bh7 Bh8 36. Dxh6+ Ke7 37. Dh4+ Kd7 38. Bf5+ Kc7 39. De7+ Kb6 40. Be4 Hb8 41. Bxb7 Hxb7 42. Dd8+ 1-0. Nú kannast maður við kappann! 23. Rh6+ Dxh6 Ekki hefði 23. - gxh6 24. Hg3+ fylgt af 25. Dg4 og svartur fær ekki við neitt ráðið! En nú fellur of mikið lið. 24. Bxh6 Bxf3 25. Dxf3 gxh6 26. Hfl He7 27. Df5 Bg7 M ■i k i i i % i i WM §§ A A A A & Æíw. A H ■ I fij Sævar Bjarnason skrifar um skák Skákþátturinn •** sti fara aennaSmi^ Seljum síðustu sýningarvagna sumarsins með góðum afslætti bæði á Akureyri og í Reykjavík. Coleman vagnar af öllum stæróum og gerðum, hlaónir lúxusbúnaði! __________ ’dmLLL OY FLMCTWOOD. Nokkrir vagnar eftir!!!!!!!!!!!!!!! afsláttur af sérmerktum aukahlutum BÍLASALA AKUREYRAR HF Sími 461 2533 EVRO Grensásvegí 3 (Skeitumegin) • s: 533 1414 • www.evro.is < Nvme-r e-íH' í noh/Pum bílum! Laugavegi I74,105 Reykjavík. sími 590 5000 Opnunartími: Mánud. - föstud. kl. 9-I8 og laugard. kl. 10-14 Velkomin á Laugaveg 174 og www.bilatning.*, BÍLAÞINGÍEKLU VW Passat V5 4x4, 2,3 bensín, f. skrd. 28.06. 2000, ekinn 14 þús. km, d-grár,5 dyra, bsk. Verð 2.430 þús. Opel Corsa 1,2 bensín, f. skrd. 18.11. 1998, ekinn 30 þús. km, grár, 3 dyra, bsk., álfelgur, spoiler. 'rerð 720 þús. VW Golf st. 1,6 bensín, f. skrd. 20.07. 2001, ekinn 0 þús. km, rauður, 5 dyra, bsk. VW Golf Comf. 1,6 bensín, f. skrd. 23.11. 2000, ekinn 13 þús. km, grár, 5 dyra, bsk., 15" álfelgur, spoiler og cd. Verð 1.670 þús. Hvar er best aö gera bílakaupin? www.bilathing.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is •

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.