Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2001, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2001, Blaðsíða 4
FIMMTUDAGUR 16. AGUST 2001 Þriðja árið í röð hjá Tiger? Tiger æfir sveifluna. Bandaríska PGA-meistaramótið i golfi, það 83. í röðinni, hefst á Highlands-golf- vellinum í Atlanta í Georgíufylki í dag. Mótið er fjórða og síðasta risamótið í golfi á keppnistímabilinu þar sem þeir bestu í heiminum reyna með sér, en hin þrjú eru Mastersmótið, US-Open og Brit- ish-Open. Bandaríski snillingurinn Tiger Woods, sem nú er langefstur á heims- afrekalistanum, hefur sigrað á mótinu tvö síðustu árin og mun nú gera atlögu að þriðja sigrinum í röð sem engum hefur tekist síðan Walter Hagens vann það fjögur ár í röð á þriðja áratugnum. Wood hefur ekki náð að sýna sitt rétta andlit í keppnum sumarsins og er því engan veg- inn öruggur um sigur. Hann náði til dæmis aðeins 25. sæti á British Open fyrr í sumar og hefur ekki spilað eins illa á stórmóti síðan árið 1998. -ek Bland i poka Argentinumenn urðu fyrstir Suður- Ameríkuþjóða til að tryggja sér farseðil- inn í úrslitakeppni HM, sem fram fer í Japan og Kóreu næsta sumar, þegar þeir sigruðu Ekvador, 2-0, í und- ankeppni Suður-Ameríkuþjóða í gær. Juan Sebastian Veron og Hernan Crespo skoruðu mörk Argentinumanna sem nú eru í toppsæti SA-riðilsins með 35 stig eftir 14 leiki sem tryggir þeim eitt af Qórum efstu sætunum í riðlinum sem öll gefa HM-sæti. Brasiliumenn unnu í gær mikilvægan sigur í sömu keppni þegar þeir lögðu Paragvœ, 2-0, í Porto Alegre með mörkum Marcelinho Paraiba og Rivaldo. Brassar eru þar með komnir í tjórða sætið, fjórum stigum á undan Úr- úgvæ sem eru í fimmta sætinu þegar Qórar umferðir eru eftir. Paragvœ er i öðru sætinu þrátt fyrir tapið. Handtökum vegna átaka tengdra knatt- spymu fjölgaði um 8,1% á Englandi á síðasta ári. Alls var 3391 fótboltabulla tekin höndum og hlutu áhangendur Newcastle þann vafasama heiður að vera efstir á listanum, en alls 191 Newcastle-aódándi var handtekinn í fyrra. í öðm sæti koma 166 áhangendur Sunderland, í þriðja sæti 150 áhang- endur meistara Manchester United og þar á eftir fylgjendur Manchester City (148) og Leeds (119). Derby-aódáendur voru lægstir á lista úrvalsdeildarliða, „aðeins" 28 þeirra vom handteknir vegna óláta. -ek/ók Frank de Boer, fyrirliði Hollendinga, teygir á vöövunum á White Hart Lane-leikvanginum í gær en félagar hans í hollenska liðinu unnu Englendinga, 0-2, í vináttuleik. De Boer tók ekki þátt í leiknum vegna meiðsla en fyrir skömmu var ársbann hans vegna lyfjamisnotkunar stytt og var honum því frjálst að klæöast landsliöstreyjunni á ný. Reuters > Urslit landsleikja í gærkvöld Undankeppni HM: Júgóslavía-Færeyjar . 2-0 Eistland-Kýpur . 2-2 Vináttulandsleikir: Ísland-Pólland . 1-1 England-Holland . 0-2 Danmörk-Frakkland . 0-1 Ungverjaland-Þýskaland . 2-5 Austurríki-Sviss . 1-2 Bosnía-Malta . 2-0 Búlgaría-Makedónía . 1-0 Tékkland-S.-Kórea . 5-0 Finnland-Belgía . 4-1 Írland-Króatia . 2-2 Lettland-Úkraína . 0-1 Litháen-ísrael . 2-3 Noregur-Tyrkland . 1-1 Portúgal-Moldavia . 3-0 Rússland-Grikkland . 0-0 Slóvakia-íran . 3—4 Slóvenía-Rúmenía . 2-2 Svíþjóö-S-Afríka . 3-0 Nýr Kani til Þórs Þórsarar frá Akureyri hafa fengið sér Bandaríkjamann fyrir komandi leiktið. Sá heitir Stevie Johnson og kemur frá Iowa State-háskólanum sem er mjög sterkur skóli. Johnson er um 190 cm og þykir mjög fjölhæfur. Hann lék ekki körfuknattleik síðasta vetur þar sem hann hefur verið að leika amerískan fótbolta. Þá hafa Þórsarar ráðið John Caraglia liðsstjóra með Hirti Hjartarsyni sem tók við af Ágústi Guðmundssyni í vor. -Ben Andlausir Englendingar - töpuðu 0-2 gegn sprækum Hollendingum á White Hart Lane Hollendingar unnu auðveldan 0-2 sigur á Englendingum þegar þjóðirnar mættust í vináttulandsleik á White Hart Lane í Lundúnum í gærkvöldi. Þetta var fyrsti tapleikur enska liðsins undir stjóm Svíans Sven-Göran Eriks- sons, landsliðsþjálfara, en undir hans stjóm hafði það unnið fimm leiki í röð. Leikur Englendinga í gær var and- laus frá upphafi til enda, en á móti léku Hollendingar oft frábæran bolta, sem uppskar mörkin tvö, sem skoruð voru með mínútu millibili þegar langt var liðið á fyrri hálfleikinn. Það fyrra gerði Mark van Bommel á 38. mínútu, sannkölluð bomba af um 35 m færi, sem small uppi í samskeyt- unum, óverjandi fyrir Nigel Martyn markvörð Englendinga. Það seinna gerði Ruud van Nistelrooy, leikmaður Manchester United, eftir að Martyn hafði varið firnafast skot frá Boudewi- jn Zenden af löngu færi. Nistelrooy var svo stuttu seinna nálægt því að bæta við öðm marki en vippaði á slá. Eriksson gerði átta breytingar á liði sínu í leikhlé og hafði áður en yfir lauk notað alla ellefu varamenn sína. Hann sagði eftir leikinn að sinir menn heföu sýnt Hollendingum allt of mikla virðingu. „Þeir eru með frábært lið, en við heföum þó mátt sækja meira. Það býr miklu meira í liðinu, en það var einfaldlega ekki okkar dagur. Ungu leikmennimir stóðu sig vel og það er mjög mikilvægt þegar verið er að byggja upp,“ sagði Eriksson. Góöur sigur Tékka Tékkar sem mæta íslendingum í undankeppni HM þann 1. september n.k. á Laugardalsvelli, unnu 5-0 stór- sigur á liði Suður-Kóreu í gær þegar liðin mættust í Drnovice. Varamaður- inn Miroslav Beranek, leikmaður FC Köln í Þýskalandi, skoraði þrennu fyr- ir Tékka, öll í seinni hálfleik. Pavel Nedved, sem nýlega gekk til liðs við Juventus á Ítalíu, fékk afhentan „Gullknöttinn" fyrir leikinn og þakk- aði fyrir sig með fyrsta marki leiksins á 30. mínútu og var staðan 1-0 í háif- leik. Siðan var komið að áðurnefndum Baranek sem skoraði annað markið á 66. mínútu aðein mínútu eftir að hann kom inná. Lokvenc skoraði svo þriðja markið á 74. mínútu áður en Baranek fullkomnaði þrennuna í lokin. Stórsigur Finna á Belgum Finnar unnu óvæntan 4-1 stórsigur gegn Belgum í Helsinki, eftir að hafa komist í 3-0 eftir 30. mínútna leik og bætt við því fjórða á 79. mínútu. Þeir Forssell, Kolkka, Litmanen og Tihinen skoruðu mörk finna en Goor fyrir Belga. Frændur okkar Norðmenn fengu Tyrki í heimsókn til Osló og skUdi lið- in þar jöfn 1-1 með mörkum Ole Gunnar Solskjær og Sukur. Frakkar fengu Dani í heimsókn til Nantes og unnu þar 1-0 sigur með marki Robert Pires á 13. mín. Sjá úrslit úr landsleikjum gærdags- ins hér að ofan. -ek Haukadalsá í Dölum: 400 bleikjur og 10 laxar „Veiðiskapurinn gengur vel hjá okkur, en við erum komnir með 400 bleikjur og 10 laxa á land núna, en í fyrra veiddist bara einn lax hjá okkur en hellingur af bleikju," sagði Þór Jónsson, einn af leigutökum Efri-Haukadalsár i Dölum, í samtali við DV-Sport, er við spurðum um stöðuna í ánni. í Miðá í Dölum hefur veiði- skapurinn gengið ágætlega og þá sérstaklega í bleikjunni. Það sama má segja um Hörðudalsá í Dölum. En það sem þarf i Dölunum núna eru rigningar og það stórar. Litið hefur rignt þar. -G.Bender Kristín Harðardóttir aö landa rokvænni bleikju í Laugardrætti fyrir fáum dög- um. DV-myndir G.Bender Einar Einarsson meö meö maríulaxinn sinn sem hann veiddi á Hrauninu í Laxá í Aðaldal en fiskurinn var 17 pund. Laxá í Aðaldal: Veiddi maríu- laxinn í fyrsta kasti Það var heldur betur fjör hjá honum Einar Ein- arssyni fyrir fáum dögum en þá veiddi hann 17 pund lax á Hrauninu í Laxá í Aðaldal og var þetta maríulaxinn hjá honum. „Fiskinn veiddi Einar í fyrsta kasti og þetta var bardagi í 25-30 mínútur," sagði veiðifélagi hans, sá sem sá laxinn taka agnið. „Þetta var skemmtileg viðureign og gaman að fá laxinn svona í fyrsta kastinu," sagði veiðifélag- inn enn fremur. Þeir félagarnir veiddu líka heilmikið af væn- um urriða og hefur fiskurinn stækkað verulega hin síðari ár. Enda hefur miklu af fiski verið sleppt þarna síðustu árin. Urriðarnir, sem veiðimennirnir veiddu, voru frá einu upp i fjögur pund. -G.Bender

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.