Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2001, Blaðsíða 2
2
MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 2001
DV
ÍL
Fréttir
Skyndileg ógnarskelfing veiðimanns við Súlnasker breyttist í óvæntar gælur:
Horfði beint í
opið gin hvalsins
Margt býr í sjónum við Eyjar
Maður sem var aö hamfletta súlu sat á slöngubát sínum og snerí
baki í hafið. Allt í einu ...
Pétur Steingrímsson, lögreglu-
maður í Vestmannaeyjum, lenti i
heldur óvæntri lifsreynslu fyrir
helgi þegar hann var einn á slöngu-
báti að hamfletta súlu við Súlna-
sker. Á skammri stundu breyttist
skyndileg ógnarskelfing í góðlátleg-
an vinafund.
„Ég sat ofan á, eins og maður seg-
ir, annarri pylsunni á bátnum og
var að hamfletta súlu í mikilli blíðu.
Hafflöturinn var svo sléttur og fal-
legur að maður hefði getað ímyndað
sér að ég væri uppi á landi. Ég sneri
bakinu út að sjó og leið mjög vel.
Allt í einu finn ég að það kemur
hnykkur á bátinn. Þetta var eins og
annar bátur hefði siglt á mig. Hvað
er að gerast? hugsaði ég og sneri
mér við.
Ég heyrði eitthvert hvæs á bak
við mig. Þegar ég sá hvað var þarna
i sjónum, nánast alveg ofan í mér,
þá brá mér svo óskaplega að ég hélt
að hjartað myndi stöðvast. Ég
horfði beint ofan í gin hvals. Þetta
var háhymingur - hvílíkt ferlíki að
Dauöaslys í körtuakstri:
„Við erum
harmi slegnir"
Rannsókn lögreglunnar á Sauðár-
króki á körtu (go-cart) banaslysinu á
Aiexandersflugvelli var langt komin
í gærkvöld. Hins vegar verður slysið
rannsakað nánar af fleiri aðilum og
þ.á m. rannsóknarnefnd umferðar-
slysa. Mikið annríki er hjá nefndinni
eftir hrinu banaslysa undanfarið.
26 ára gamall maður lést á flugvell-
inum á laugardag þegar hann var að
aka upphitunarhring á nýuppsettri
braut. Að sögn lögreglumanns á
Sauðárkróki hefur ekkert komið
fram sem bendir til að brautin hafi
verið ranglega hönnuð. Maðurinn
lést er hann lenti á dekkjastæðu.
„Keppendur voru sjálflr í því að
leggja þessa braut og þetta er ekki í
fyrsta eða annað skipti sem svona
brautir eru lagðar. Likurnar virðast í
rauninni vera einn á móti milljón að
svona geti gerst en það er ekki
fullrannsakað hvort bíllinn hefur
verið í lagi,“ segir Kristinn Kristjáns-
son, lögreglumaður á Sauðárkróki.
Erfitt er að segja til um hraðann á
bílnum þegar slysið varð en bíllinn
var í beygju sem bendir til að hann
hafi ekki verið nálægt hámarks-
hraða. Go-cart bílar geta ekið á um
100 kUómetra hraða og eru án örygg-
isgrindar.
Baldur Haraldsson er forsvarsmað-
ur Bílaklúbbs Skagafjarðar sem hélt
mótið. Hann staðfesti í gærkvöld þau
orð lögreglunnar að ekkert hefði fund-
ist athugavert við brautina. „Þetta er
mjög sviplegt og við erum harmi
slegnir,“ sagði Baldur. Verið er að
kanna hvort sambærileg dæmi hafi
komið upp í útlöndum en Baldur seg-
ir lítið um alvarleg slys í íþróttinni.
Körtuslysið er hið fyrsta sem verð-
ur í akstursiþróttum hérlendis. -BÞ
Stunginn þrisvar
Þrettán líkamsárásir voru kærð-
ar til lögreglunnar í Reykjavík eftir
menningarnóttina sem sumir héldu
upp á fram til klukkan níu í gær-
morgun. Engin árásanna er talin
mjög alvarleg. Hins vegar var til-
kynnt um sautján ára pilt klukkan
sex um morguninn sem sagði tvo
pilta af austurlenskum uppruna
hafa ráðist að sér með hnlf fyrir
utan Stjómarráðið við Lækjargötu.
Hann hlaut þrjá skurði á hægri
hendi og er einnig talinn hafa nef-
brotnað. -Ótt
því er mér fannst. Það voru bara
tugir sentímetra á milli okkar. Há-
hyrningurinn hafði sett trýnið í bát-
inn og ýtt við mér og hvæsið var
Slökkviliðið í Grindavík var kall-
að út að frystihúsi Fiskimjöls og lýs-
is um tólfleytið aðfaranótt sunnu-
dags. Miklar skemmdir urðu á hús-
inu og er efsta hæð þess talin ónýt.
Að sögn Ásmundar Jónssonar,
slökkviliðsstjóra í Grindavík, var
slökkviliðið kallað út rétt fyrir
klukkan tólf á miðnætti. „Þegar við
komum á staðinn var mikill eldur á
efstu hæð hússins og okkur barst til
eyrna að það væru jafnvel einhverj-
ir krakkar inni í því. Það fór nokk-
ur tími í að ganga úr skugga um það
og sem betur fer var enginn í hús-
inu. Við fengum aðstoð frá slökkvi-
liðinu í Keflavík og frá vellinum.
þegar hann kom upp til að anda. Ég
varð svo skelfingu lostinn á þessu
augnabliki aö ég man varla eftir að
mér hafi brugðið svona mikið.
Við kölluðum líka á körfubíl til að
komast að eldinum. Þakið á húsinu
er afskaplega lélegt og gólfln lika
þannig að við vildum ekki senda
menn inn. Það varð því að vinna
slökkvistarfið utan frá.“
Engin starfsemi er 1 húsinu, fyrir
utan vélasamstæðu á neðstu hæð,
sem er tengd frystigeymslu, áfastri
húsinu. Einnig hefur unglinga-
hljómsveit haft aðstöðu til að æfa í
húsinu.
Ásmundur segir að slökkviliðið
hafi lagt áherslu á að koma í veg fyr-
ir að eldurinn kæmist í vélamar og í
frystigeymsluna. „Eldurinn var erfið-
ur viöureignar og barningur að ná
En svo fór ég að skoða háhyrning-
inn. Þá tók ég eftir að hann var með
nema á sér. Þá áttaði ég mig. Þetta
var Keikó sjálfur. Þá var hann bara
að stugga við mér til að sníkja sér
bita og láta klappa sér. Þegar ég
uppgötvaði þetta klappaði ég honum
góðlátlega og fór að láta vel að hon-
um. En hvílík stærð þegar maður er
með þetta dýr svona alveg ofan í
sér. Ég myndi segja að Keikó sé þó
nokkuð lengri en báturinn sem ég
var á.
Þegar ég fór að líta í kringum mig
sá ég fylgdarbát Keikós, Gandí,
skammt undan. Þeir komu fljótlega
og kölluðu: „Gafstu honum eitthvað
að éta?“ Þeir höfðu mestar áhyggjur
af því,“ sagði Pétur. „En ég gaf hon-
um ekkert, ég bara klappaði honum.
Svo frétti ég að það mætti ekki held-
ur gera.
En þetta var stórkostleg lífs-
reynsla þegar upp er staðið."
Pétur hefur fregnað að Keikó hafi
heilsað upp á fleiri sjófarendur við
Vestmannaeyjar í sumar. -Ótt
honum niður en því var að mestu
lokið um fjögurleytið um nóttina."
Búiö aö hreinsa þakið af
Þorsteinn Már Baldvinsson hjá
Samherja, sem á húsið, vildi ekki
tjá sig um brunann en þetta er í
annað sinn sem kveikt er í hjá Sam-
herja á skömmum tíma. „Málið er í
höndum lögreglunnar og við ætlum
að taka ákvörðun um framhaldið
þegar líða fer á vikuna."
Að sögn Hjalta Bogason, vélstjóra
sem starfar viö frystigeymsluna, er
búið að hreinsa þakið af húsinu og
starfsemi frystigeymslunnar er með
eðlilegum hætti. -Kip
DV MYND ÞGK
Eldur í Grindavík
Eldurinn var erfiður viðureignar og barningur að ná honum niður en því var að mestu lokið um fjögurleytið um nóttina.
Eldur í frystihúsi Fiskimjöls og lýsis í Grindavík:
Talið að um íkveikju
sé að ræða
Grasagarðurinn fjörutíu ára
Grasagarðurinn í
Reykjavík varð
fjörutíu árá í síðustu
viku. í veislu, sem
haldin var af því til-
efni, sagði Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir
að garðurinn væri
eitt af flaggskipum
borgarinnar. Einnig var sagt frá
hugmynd um að stofna Hollvinasam-
tök Grasagarðsins í Reykjavík.
Umferðgekk vel
Talið er að 50 þúsund manns hafi
verið í miðbænum þegar flugelda-
sýningin fór fram. Eftir það hélt
fjölskyldufólk flest heim og gekk
umferðin nú miklu betur en á síð-
asta ári. Lögreglumenn voru við
helstu gatnamót og gul ljós voru lát-
in blikka þannig að tafir yrðu sem
minnstar. Engir teljandi hnútar
mynduöust. Um 5 þúsund manns
urðu eftir í miðborginni að lokinni
flugeldasýningu. Þynntist hópurinn
síðan með morgninum.
Ekki leyfilegt
Kærunefnd í fjöleignarhúsamál-
um hefur ályktað að rekstrarfélag
Kringlunnar hafi ekki haft leyfi til
að fjarlægja tvo rúllustiga í Kringl-
unni. Mþl. greindi frá.
Sumarfoústaður brann
Að sögn lögreglunnar á Selfossi
brann sumarbústaður rétt hjá
Stokkseyri til kaldra kola um
helgina. Bústaðurinn var mannlaus
en fólk hafði verið í honum fyrr um
daginn.
Fylgst með tveimur kjóum
í sumar voru sendar festir á tvo
kjóa til að fylgjast með ferðum
þeirra. Litlar upplýsingar eru til um
ferðir kjóans en með sendunum er
vonast til að bætt verði úr þvf. Guð-
mundur A. Guðmundsson fuglafræð-
ingur vinnur að verkefninu í sam-
vinnu við sænskan starfsfélaga sinn.
Vestfiröingar fróðleiksfúsir
Aldrei hafa jafn margir Vestfirð-
ingar skráð sig í fjarnám á háskóla-
stigi eins og næsta vetur. Tæplega
50 manns eru skráðir í rekstrar-
fræði til BS-prófs við Háskólann á
Akureyri, níu nemendur eru á loka-
ári í hjúkrunarfræði við Háskólann
á Akureyri og 10 eru að hefja ís-
lenskunám til BA-prófs við Háskóla
íslands. RÚV greindi frá.
13 líkamsárásir
Lögreglumenn eru almennt sáttir
við útkomuna, að því undanskildu
að líkamsárásirnar voru heldur
margar. Einnig telur lögreglan að
foreldrar hafi virst vera heldur of
viljugir að leyfa börnum sínum að
vera lengi úti. Voru talsverð brögð
að því að ungmenni væru fylgdar-
laus í bænum eftir miðnætti.
Starfslaun listamanna
Á laugardaginn var tilkynnt
hvaða listamenn hlytu starfslaun
Reykjavíkurborgar fyrir árið 2001.
Fimmtán listamenn hlutu samtals
laun í fimmtíu og tvo mánuði. Meðal
þeirra sem hlutu starfslaun i þetta
sinn eru Magnús Pálsson og Bjarni
H. Þórarinsson myndlistamenn,
Hróðmar I. Sigurbjörnsson tónskáld
og Vala Þórsdóttir leikskáld.
Lest til Keflavíkur
Sturla Böðvars-
son samgönguráð-
herra telur eðlilegt
að skoða kosti þess
að leggja hraðlest
til Keflavíkur. Talið
er að slík lest
myndi kosta á milli
30 og 40 milljarða.
-Kip/Ótt