Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2001, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2001, Blaðsíða 24
36 MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 2001 Tilvera I>V DV-MVNDIR EINAR J. Rapp 101 Keppni í rímnaflæöi fór fram á Ingólfstorgi þar sem ungir og efnilegir rapparar stigu á stokk og fluttu nútímarímur af miklum móð. Þessir ungu menn kölluðu sig Rapp 101 og röppuðu um lóur og spóa. Mígandi rigning á menningarnótt lí f iö Sýning á stein- þrykksblöðum Síðastliðinn laugardag var opnuð í sal félagsins íslensk grafík sýning á steinþrykksblöðum frá Grafíska Verkstaðnum í Listasavni Foroya í Þórshöfn í Færeyjum. Fjórir af sýnendunum eru frá Færeyjum, þrír frá Danmörku og einn frá Svíþjóð. Sýningin stendur til 9. september og er opin frá klukkan 14.00 til 18.00 fimmtudaga til sunnudaga. íslensk grafík er til húsa að Tryggvagötu 17 í Reykjavík. Krár PJASS Á KRINGLUKRÁNNI Á mánudagskvöldið verða stórtónleik- ar meö djangóhljómsveitinni "Pearl Django". Þetta er 5 manna djangódjassband sem kemur frá Seattle í Bandaríkjunum. Þeir koma beint frá Akureyri þar sem þeir spil- uðu á fyrstu alþjóölegu djangó djass- hátiðinni á Islandi, Django Jazz 2001. Tónleikarnir hefjast kl. 21. IBöll BIIFF Á GAUKNUM Hljómsveitin Buff sþilar í popparapartíi eftir að allar helstu hljómsveitir landsins hafa spilaö fótbolta í Tryggvagötu. Operutónlist ÓPERUVERKSTÆÐISVINNA AÐ RIMUM I SVARFAPARPAL I Svarf aðardal stendur yfir óperuverkstæð- isvinna sem lýkur með tveimur óp- erukvöldum. Mánudags- og þriöju- dagskvöld kl. 20.30 verða sýnd at- riði úr óperunum Brúðkaupi Fígarós, Töfraflautunni og Idomeneo eftir W.A. Mozart, La Traviata eftir G. Verdi, Carmen eftir G. Bizet og Fidelio eftir L. van Beethoven. Flytj- endur eru 15 ungir íslenskir söngv- arar undir stjórn Mörthu Sharp óp- erusöngkonu og prófessors við Moz- arteum-tónlistarháskólann í Salz- burg í Austurríki. Myndlist DÍANA HRAFNSDÓTTIR SÝNIR í SELINU Mvndlistamaðurinn Díana Hrafnsdóttir sýnir yerk sín í Selinu Gallerí Reykjavík, Óöinsgötumegin. Sýningin ber yfirskriftina Undlr niöri og eru verkin allt tréristur unnar á þessu ári. í verkum sínum fjallar Díana um einstaklingsbundna sýn manna sem tengist eflaust tilfinningum, persónu-leika og þroska hvers og eins svo úr veröur einhvers konar samspil.,Sumt er augljóst en annaö virðist liggja dulið undir yfirborðinu. Sýningin er opin virka daga frá 13 til 18 og laugar- daga frá 13 til 16. Henni lýkur 25. ágúst. MYNPLIST OG UÓÐ í LISTHÚSINU í LAUGARDAL Þessa dagana sýnir Anna Hrefnudóttlr, mynlistarkona málverk og Ijóð I Llstacafé og Veislugalleri. Á sýningunni eru akrýlmálverk sem öll eru máluð á þessu ári. Flest verkin voru gerð í gestavinnustofu Gilfélagsins á Akureyri sl. vetur en þar dvaldi Anna í boði félagsins 1. janúar til 14. febrúar og lauk þeirri dvöl með sýningu í Deiglunni. Sýningin er opin alla virka daga frá klukkan 9 til 19 og laugardaga frá klukkan 10 til 19. Henni lýkur 31. ágúst næstkomandi. Sjá nánar: Lífiö eftir vinnu á Visl.ls Talið er að um og yfir fjörutíu þúsund manns hafi tekið þátt í dag- skrá menningarnætur sem fram fór á laugardaginn. Verður það að telj- ast nokkuð gott, ekki síst í ljósi þess að veður var heldur leiðinlegt, rign- ing og slagviðri. Menningarnótt var nú haldin í sjötta sinn og var dag- skráin fjölbreytt að venju. Tónlist- armenn léku listir sínar um allan bæ, jafnt inni á kafílhúsum og í verslunum sem á götum úti. Hand- verksmenn og listamenn opnuðu smiðjur sínar og vinnustofur eða fóru út á meðal fólksins. Dansglaðir borgarbúar létu ekki veðrið halda aftur af sér heldur dönsuðu dátt í rigningunni og fengu fleiri í lið með Kóngurinn lifir Jósef „Presleyformaður Aðdá- endaklúbbs Elvis Presleys á íslandi, tók þátt í karaoke-keppni á svölum Bankastrætis 11. sér. Hápunktur hátíðahaldanna var flugeldasýning á hafnarbakkanum sem mörgum þótti að vísu ekki komast í hálfkvisti við sýninguna í fyrra. Merkilegur kaöalspotti Finnski ofurhuginn IIRO sýndi áhættuatriöi á hafnarbakkanum þar sem honum tókst að leysa sig úr spennitreyju í áttatíu metra hæð. Á meðan hann klæddi sig úr treyjunni brunnu böndin sem héldu honum og því reið á aö vera snöggur. IIRO tókst að losa sig á elleftu stundu og var ákaft fagnaö af áhorfendum á jörðu niðri. Hér skoöa nokkrir áhorfendur brunna kaðalspottana sem héldu hetjunni. Ung og glöö Götur miðbæjarins fylltust af fólki þegar leið á kvöldið. Þetta þjóðrækna unga fólk rakst Ijósmyndari á í Bankastrætinu. Allir í kór Fjöldi fólks lagði leið sína í Hafnarhúsiö til að hlusta á söng Karlakórs Reykjavíkur. Flugelda notiö á strætóskýli Menningarnótt lauk með flugeldasýningu eins og hefð er fyrir. Var sýning- in í ár þó hjóm eitt miðaö við herlegheitin í fyrra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.