Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2001, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2001, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2001 DV Fréttir Ökukennari og vill lagabreytingu vegna öryggisbelta í rútum: Ábyrgðinni verði létt af bílstjórunum - engin þörf að breyta lögum, segir aðstoðarmaður dómsmálaráðherra „Það er nákvæmlega ekkert nýtt í þessu máli. Það hefur legið fyrir al- veg frá upphafi að vélin þurfti að hækka flugið og fljúga yfir vegna þess að það var önnur vél á brautinni þannig að það eru engar nýjar upplýs- Stöðugt fjölgar þeim hópferðabif- reiðum hérlendis sem búnar eru ör- yggisbeltum fyrir farþega. Að mati ökukennara virðist þó sem lög um bílbeltanotkun séu alvarlega gölluð og geti komið viðkomandi bifreiða- stjórum í veruleg vandræði komi til slyss. Ámi Ingólfsson ökukennari hefur stundað kennslu á rútubifreiðar um áraraðir. Hann hefur kynnt sér vel þessi mál, m.a. með tiUiti til slyss sem varð á Suðurlandsvegi nýverið. Þar var talið að farþegar rútu sem lenti í árekstri við fólksbíl hefðu sloppið ótrúlega vel vegna öryggis- belta sem í rútunni voru. Unnið er að lögleiðingu öryggis- Aflaaukning í júlí: Samdráttur í heildarafla á árinu Fiskaflinn í júlímánuði sl. var 250.059 tonn. Aflinn í júlimánuði í fyrra nam 192.911 tonnum. Aukningin nemur því alls 57.148 tonnum sem skýrist að mestu af mun betri kolmunnaveiði, loðnuveiði og út- hafskarfaveiði. AIls hafa veiðst tæp 89 þúsund tonn af kolmunna í ár en rétt rúm 47 þús. tonn á sama tíma í fyrra. Þá er loðnuaflinn 15 þúsund tonnum betri í ár og úthafskarfaveið- in rúmum 4 þús. tonnum betri en á sama tíma í fyrra. Síldveiði var hins vegar óveruleg í júlímánuði sl, 1.388 tonn, samanborið við 10 þús. tonna afla á sama tíma í fyrra. Botnflskaflinn siðastliðinn júlí- mánuð nam 46.857 tonnum en var 40.927 tonn í júlímánuði í fyrra. Skel- og krabbadýraaflinn jókst hins vegar úr 4.509 tonnum í 6.108 tonn sem skýrist af rúmlega 1 þús. tonna kúfiskafla síðastliðinn júlímánuð, auk betri aflabragða í humri og út- hafsrækju. Heildaraflinn það sem af er árinu nemur 1.423.745 tonnum sem er samdráttur upp á ein 125 þús. tonn. Samdráttur í síldarafla nemur um 112 þús. tonnum og vegur hér þungt ásamt um 22 þús. tonna minnkun í út- hafskarfaafla. -GG Peugeot 307 frumsýndur í nýjum sýningarsal Um helgina mun Bernhard ehf., umboðsaðili Honda og Peugeot, frum- sýna hinn nýja Peugeot 307 í nýjum og glæsilegum sýningarsal í Vatna- görðum 24. Peugeot 307 hefur fengið mikið lof gagnrýnenda í Evrópu sem og á íslandi. Útlit bílsins þykir marka tímamót í hönnun bíla í þessum stærðarflokki og tækni- og öryggis- búnaður bílsins hefur hingað til ein- ungis sést í dýrustu bílum sem völ er á. Boðið verður upp á reynsluakstur fyrir gesti og gangandi og allir bílaá- hugamenn velkomnir. Opið er á laug- ardag frá kl. 10.00 til 17.00 og sunnu- dag 12.00 til 17.00. belta í hópbifreið- ar. Þegar hefur komið fram gagn- rýni á að í eldri bílum, sem oft eru með trégólfí, geti öryggisbelti gefið falskt öryggi. Sæt- isfestingar i gólfi bílanna þoli ekki átakið þegar far- þegi sem bundinn er við sætið í ör- yggisbelti þeytist fram ef hnykkur kemur á bílinn. Því fylgi sætið ein- faldlega með. Ámi Ingólfsson segir að annar þáttur í þessu ör- yggisbeltamáli sé ekki síður alvar- legur, en það varð- ar ábyrgð bílstjór- anna. Hann segir að fram komi i lögum um öryggis- belti að ökumanni beri að sjá til þess að börn að 15 ára aldri noti beltin og er ábyrgðin þá ökumanns. „Sem hópferðabifreiðastjóri til margra ára veit ég að ekki er fræði- lega mögulegt fyrir ökumann í akstri með marga tugi farþega að sjá til þess að hvergi sitji farþegi án öryggisbeltis." Ámi telur að samkvæmt gildandi lögum gæti ökumaður rútu hrein- lega orðið öreigi vegna ábyrgðar á bílbeltanotkun ef alvarlegt slys ber að höndum. Hann telur óréttlátt að Hópferðabílar Stööugt fjötgar þeim rútum sem búnar eru öryggisbeltum hver eigi aö bera ábyrgö á notkun beitanna, í farþegasætum. Nú er sþurt um þaö bílstjórinn eöa farþeginn. varpa ábyrgð af notkun beltanna þannig á ökumann eins og gert sé í gildandi lögum. Því verði að breyta lögunum. Ingvi Hrafn Óskarsson, aðstoðar- maður dómsmálaráðherra, segir forsendu bótaskyldu í hugsanlegu máli af þessum toga ekki geta orðið nema vegna þess að gáleysi sé sann- að á bílstjórann. Hann segir að þetta ákvæði í lögunum um ábyrgð bíl- stjóranna hafi verið sett til að tryggja það að ökumenn gerðu sitt ýtrasta til að börn væru með beltin spennt. Ef dæma ætti bílstjóra fyrir að belti séu ekki notuð þyrfti að sanna að hann hafi ekki sinnt því á neinn hátta að leggja það að farþeg- um að nota beltin. Ekki sé hægt aö flokka það sem gáleysi þótt bílstjóri í akstri geti ekki fylgst með ef far- þegar losi af sér beltin. Hann segir því mjög langsótt að ökumaðurinn verði dæmdur í slíku máli. - Er þá engin þörf á að breyta lög- unum? „Ekki hvað þetta varðar. Það hef- ur reyndar ekkert verið rætt,“ segir Ingvi Hrafn Óskarsson. -HKr. Flugmálastjórn um upptökur í flugturni: Engar nýjar upplýsingar - dæmi um sorglegt getuleysi Flugmálastjórnar, segir aðstandandi ingar í þessari frétt Fréttablaðsins," segir Heimir Már Pétursson, upplýs- ingafulltrúi Flugmálastjórnar, um þá túlkun að óbirtum segulbandsupptök- um úr flugturninum í Reykjavík beri ekki saman við þær niðurstöður flug- slysanefndar að flugmaður flugvéiar- innar sem fórst í Skerjafirði um versl- unarmannahelgina í fyrra hafi komið of fljótt inn til lendingar. Á segulbandsupptökunum heyrist flugumferðarstjórinn sem var á vakt segja að Dorniervél íslandsflugs hafi verið „svo lengi að rýma“ brautina og sú vél hafi verið svo lengi að fara út af brautinni að annað hafi ekki verið réttlætanlegt en að „púlla upp“ vélina sem fórst, en það er að láta hana hækka flugið að nýju úr aðflugs- stefnu og fljúga yfir brautina. „Vélinni sem fórst var sagt að hætta við lendingu vegna þess að Dorniervélin var enn á brautinni, það hefur legið fyrir allan tímann og það er ekkert óeðlilegt að flugvél þurfi að hætta við lendingu, það gerist af og til,“ segir Heimir Már. „Það er bara verið að reyna að halda áfram ein- hverjum málatilbúnaði til að halda fjórða valdinu við efnið. Hvort sem það var að vélin sem fórst tók of stutt- an umferðarhring og var þar af leið- andi of fljót inn á eftir Dorniervélinni eða hvort það var vegna þess að Dorniervélin var of lengi út af braut skiptir engu máli. Vélin þurfti að hætta við lendingu vegna þess að það var önnur vél á brautinni og ástæður þess skipta engu máli,“ segir Heimir Már. Friðrik Þór Guðmundsson, faðir Flugslysiö í Skerjafirði Flugmálastjórn og aöstandendur fórnariambanna takast enn á. ungs manns sem fórst af völdum slyssins, segir það sorglegt ef Flug- málastjórn telji þessar upptökur ekki skipta máli. Það sé eins og annað hjá þeirri stofnun, vinnubrögðin séu ekki til fyrirmyndar. Friðrik segir um- ræddar segulbandsupptökur úr flug- turninum í Reykjavík sýna ótvírætt að skýrsla rannsóknamefndar flug- slysa um slysið sé ómarktæk og bend- ir á að hugtakið „púila upp“ sé sér- stök flugaðgerð. Flugvélin sem fórst hafi fengið grænt ljós um að koma inn til lendingar yfir Tjörninni og var þvi ekki að koma inn of snemma. Upptökurnar sýna í samhengi við annað að flugumferðarstjómin klikk- aði hrapallega og að allt tal um að flugstjórinn hafi farið krappan hring fyrir lendingu af ótta við bensínleysi og því komið inn of snemma er horf- ið og átti aldrei við nein rök að styðj- ast,“ segir Friðrik. -gk/BG Umsjón: Höröur Kristjánsson netfang: hkrist@£f.is Aldraðir Rollingar Sagt er að 58 ára gamla Roll- ingnum, Mick Jagger, hafi verið brugðið þegar hann komst að því að mynd af honum var notuð tif að prýða for- síðu á tímariti eldri borgara í Bretlandi. Öðru- vísi honum áður brá enda hefur hann talið sig fram til þessa kyn- tröll og helsta goð ungmeyja heimsins. Mun þetta þó valda víð- ar vanda en hjá Jagger sjálfum. Helsti sérfræðingur hérlendur í málefnum Rolling Stones, Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á ísafirði, verður nú að taka upp nýja hætti til að fylgjast með goð- unum. í stað þess að rýna í popp- tímarit og fjölmiðla unga fólksins verður hann nú að fara að fletta tímaritum eldri borgara til að afla sér nýrra fróðleiksmola. Þar komi sérrit um slitgigt og ellihrörleika mjög sterklega til greina ... Steingrímur íhald? Á vefsíðu Sambands ungra framsóknarmanna, Maddömunni, er hart vegið að Steingrími J. Sigfússyni og Vinstri-grænum vegna baráttu þeirra gegn Kára- hnjúkavirkjun. Þar segir að al- þjóðahyggjan, sem eitt sinn var aðals- merki sannra sósíalista, hafi vikið fyrir þjóðernishyggju sem orðin sé kjaminn í baráttu og stefnu flokksins. Steingrími J. Sigfússyni hafi tekist að gera flokk íslenskra sósíalista að íhaldsflokki. Þá hafi nýlegur úrskurður Skipulagsstofn- unar komið líkt og köld vatnsgusa framan í stuðningsmenn fyrirhug- aðra stóriðjuframkvæmda á Aust- urlandi. Ætla mætti að úrskurður- inn væri „vatn á myllu VG“. í heita pottinum þykja þetta tíðindi. Steingrímur J. sé ekki bara orðinn argasta íhald heldur sé hann greinilega að koma í veg fyrir samkeppni frá Landsvirkjun og vilji þess í stað nýta vatnið til að knýja eigin vatnsmyllu ... Betri í upphlut Á Hólahátíð 12. ágúst var mikið um dýrðir. Forsætisráðherra lagði homstein að nýrri Auðunar- stofu og Sólveig Pétursdóttir dóms- og kirkju- málaráðherra flutti ræðu. Hún var í upphlut og þótti bera hanr heldur vel. Sr. Hjálmar Jónsson gat ekki orða bundist: Stjórnin heföi styrk af þvi og störfin gengju betur kœmi Sólveig upphlut i til Alþingis i vetur. Pálmi hvirfilbylur Séra Pálmi Matthíasson átti af- mæli 21. ágúst. Haldið var upp á það með pomp og prakt en Pálmi 1 er sagður ein- staklega duglegur maður. Sr. Hjálmar Jónsson lýsti því þá hvað það hefði verið erfitt að vera vin- ur hans á mennta- skólaárum. Sífellt ný uppátæki og aldrei stundlegur friður, alltaf eitt- hvað nýtt að gera. Varð þá til þessi vísa: Pálmi teygar lifsins loft og Ijúfar bœnir þylur. Þess á milli er hann oft eins og hvirfilbylur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.