Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2001, Blaðsíða 41
-
49>^
LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2001
IDV
Ei Coronel
Haldið í vonina
um betra líf
★★★ Arturo Ripstein
er einn virtasti leik-
stjórinn í heimalandi
sínu, Mexíkó, og byrj-
aði hann feril sinn sem
aðstoðarmaður hjá
Luis Bunuel. Hróður
hans hefur þó ekki
borist öllu lengra en eftir hann
liggja nokkrar gæðamyndir, meðal
annars E1 Coronel no tiene quiene
le escripa, sem hann gerði eftir sögu
Gabriel Garcia Marquez. Titilper-
sóna myndarinnar er gamall her-
maður sem ásamt eiginkonu sinni
býr við slæm kjör í smábæ í
Mexikó. Á hverjum föstudegi fer
hann í sín finustu fót og fer niður á
bryggju til að taka á móti póstskip-
inu í þeirri von að hann fái tilkynn-
ingu um eftirlaun frá hernum.
Hann og eiginkona hans, sem er
veikburða og þarfnast meðala, vita
eins og aðrir þorpsbúar að þessi til-
kynning kemur aldrei en á eitthvað
verða þau að trúa í fátækt sinni.
Sagan, sem komið hefur út á is-
lensku undir nafninu Liðsforingjan-
um berst aldrei bréf, er átakanleg
en um leið innileg lýsing á gömlu
hjónunum sem i upphafi myndar-
innar hafa misst einkason sinn og
veðsett húsið til að eiga fyrir jarðar-
för. Eins og gömlu hjónin eru hæg í
hreyfingum þá er myndin öll á hæg-
um nótum og nálgast það stundum
að vera langdregin. Frábær leikur
Fernandos Lujáns og Marisu Peres í
hlutverkum hjónanna gerir það að
verkum að aldrei er að finna dauð-
an punkt í atburðarásinni og segja
má að sú trú sem þau hafa á forlög-
unum og hvort á öðru geri myndina
að gefandi upplifun. -HK
Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Arturo
Ripstein. Leikarar: Fernando Luján,
Marisu Peres og Salma Hayek. Mexlkó,
1999. Lengd: 113 mín. Leyfð öllum ald-
urshópum.
The Invisible Circus
Falin fortíd @
★ Friður á jörðu var
oftast viðkvæðið hjá
blómabörnum 68-kyn-
slóðarinnar og sjálfsagt
hafa flestir sem aðlög-
uðust hippamenning-
unni reynt að lifa sam-
kvæmt þvi. Þetta tókst
ekki öllum og margir lentu upp á
kant við kerfið; gerðust jafnvel
skæruliðar, og þá fór lítið fyrir frið-
arboðskapnum. The Invisible
Circus fjallar um eina slíka per-
sónu, Faith (Cameron Diaz), sem
hefur framið sjálfsmorð þegar
myndin hefst. Faith hafði verið virk
í friðarsamtökum í Bandaríkjunum
og fer með þann boðskap til Evrópu.
Faith er dýrkuð af yngri systur
sinni, Gail (Jordana Brewster), sem
er sögumaður myndarinnar. Þar
sem lítið er vitað um dauða Faith
fer hún í pílagrímsför til Evrópu til
að leita sannleikans. Unnustinn,
Wolf (Christopher Eccleston), býr í
París og hjá honum fær Gail upplýs-
ingar um Faith sem ekki samræm-
ast minningunni um systur hennar.
Myndin lýsir síðan för þeirra
tveggja til Spánar þar sem Faith
lést, auk þess sem lífi Faith síðustu
vikurnar eru gerð góð skil.
The Invisible Circus er kvik-
mynd sem er ákaflega upptekin af
sjálfri sér og boðskapnum sem hún
á að færa áhorfendum, svo upptek-
in að hún er hreint og beint leiðin-
leg. Persónurnar eru flatar, auk
þess sem mun betri myndir um
sama málefni hafa verið gerðar.
Hvað varðar skuggahliðar hippa-
menningarinnar þá er lýsingin á
þýskum hryðjuverkasamtökum
barnaleg og i þeim atriðum þar
sem þau hafa sig í frammi er nán-
ast eins og um færibandafram-
leiðslu sé að ræða. -HK
Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Adam
Brooks. Leikarar: Jordana Brewster,
Christopher Ecoleston og Cameron Diaz.
Bandaríkin, 2000. Lengd: 93 mín. Bönn-
uö börnum innan 12 ára.
Helgarblað
DVWIYND HILMAR
Fleiri tónverk fyrir karlakóra
/ tilefni af sjötíu og fimm ára afmæli Karlakórs Reykjavíkur efnir kórinn til samkeppni um tónverk fyrir karlakór. Verkiö
á aö vera sjö mínútna langt og velja tónskáldin texta sjálf. Fyrstu verölaun er prjú hundruö þúsund krónur en önnur
verölaun eitt hundraö og fimmtíu þúsund. Á myndinni eru Halldór Guönason, Gylfi Sigurösson, Jón Hallsson og Guö-
mundur Sigþórsson, formaöur kórsins.
Rafstöðvar
Mikið úrval bensín og
dísil rafstöðva.
Hagstætt verð!
YANMAR Kffi®
Sími 594 6000