Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2001, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2001, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2001 DV Fréttir Fjármálaráðuneytið kallar á lægri vexti í vefriti sínu í gær: Seðlabanki sýnir ánægjulega festu - segir Ágúst Einarsson prófessor sem telur að vextir lækki á næstu mánuðum Seölabankinn Ný lög um seölabanka hafa skapaö alveg nýja stööu hvað varöar samskipti framkvæmdavalds og bankans. Geir H. Haarde og fjármálaráöu- neytið hafa nú bæst í hóp þeirra sem opinberlega kalla á vaxta- lækkun frá Seölabankanum og er nú greinilegt að ekki einungis fjár- málaráöherra, heldur líka forsæt- is- og utanríkisráöherra ásamt þorra talsmanna bankakerfis og atvinnurekstrar telja orðiö mjög brýnt aö lækka vexti. Seölabank- inn er enn fastur við sinn keip og þaö er hann sem ræöur. Fjármála- ráöuneytiö birti í gær samantekt í vefriti sínu þar sem leitast er viö aö greina efnahagsstöðuna og þær misvísandi upplýsingar sem fram hafa komið varöandi hana. Niöur- staða ráðuneytisins er ótviræö: „Aö öllu samanlögðu er þaö mat fjármálaráðuneytisins aö fremur sé ástæöa til aö óttast samdrátt í efnahagslífinu en ofþenslu. Þannig bendir flest til þess að hagvöxtur á yfirstandandi ári verði minni en síðustu spár gerðu ráö fyrir og fari niður fyrir 1% og á næsta ári gæti landsframleiðsla jafnvel, aö öðru óbreyttu, dregist saman. Við þess- ar aöstæður hljóta megináherslur í hagstjórn að miöa aö þvi aö bæta rekstrarskilyrði atvinnulífsins og stuöla þannig aö auknum hagvexti og traustu efnahagsumhverfi. Annars vegar með lækkun vaxta. Hins vegar meö lækkun skatta. Sú staðreynd að áhrif slíkra aðgeröa skila sér alla jafna með nokkurri töf út í efnahagslífið gerir ákvarð- anatöku í þessum efnum enn brýnni en ella.“ Greiningardeild Landsbankans- Landsbréfa telur á vefsíöu bank- ans margháttuð rök mæla með og ýmis á móti lækkun stýrivaxta. Telur deildin að Seðlabankinn standi frammi fyrir erfiðri ákvörð- un um tímasetningu vaxtalækkun- ar. „Það er viöurkennd staðreynd að breytingar á stýrivöxtum geta Stöðugt verðlag mikilvægast Eins og fram kom í DV í gær er þetta síður en svo sama niðurstaöa og Birgir ísleifur Gunnarsson kynnti fyrir hönd bankans í fyrra- dag og er ljóst að enn um sinn verð- ur stál í stál í túlkun á þessum at- riðum. Það hefur hins vegar vakið nokkra athygli að staða af þessu tagi hefur ekki áður komið upp hér á landi og má rekja það til nýrra laga um Seðlabankann sem sam- þykkt voru í fyrra. í 3. gr. laga um Seðlabanka segir: „Meginmarkmið Seðlabanka íslands er að stuðla að stöðugu verðlagi. Með samþykki forsætisráðherra er Seðlabankanum heimilt að lýsa yfir tölulegu mark- miði um verðbólgu. Seðlabankinn skal stuðia að fram- gangi stefnu ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum, enda telji hann það Ágúst Geir H. Einarsson. Haarde. ekki ganga gegn meginmarkmiði sínu skv. 1. mgr.“ í þessari lagagrein kemur vel fram að það markmið Seðlabankans að halda verðbólgunni í skefjum, eða halda „stöðugu verðlagi" eins tekið upp undir tvö ár að ná fram fullri virkni í hagkerfinu ... Hag- tölur nýliðinna mánaða hafa gefið tilteknar vísbendingar um að þenslan sé í rénun en hagtölur næstu mánaða munu gefa mikil- vægar vísbendingar um hvert stefnir," segir á vefsíðu Lands- bankans. -BG Davíð , Halldór Oddsson. Ásgrímsson. og það heitir í lögunum, er mikil- vægara en það markmið bankans að vinna að framgangi stefnu ríkis- stjórnarinnar. Síðustu daga hafa einmitt þessi tvö markmið verið að stangast á. Banki gegn ríkisstjórn Ágúst Einarsson, prófessor við Háskóla íslands, segir umhverfið nú mjög breytt frá þvi sem áður var. Nýju lögin geri beinlínis ráð fyrir því að Seðlabankinn hafi fullt sjálf- stæði á sviði peningamála. í ljósi þess sjálfstæðis hafi mátt búast við því að sú staða kæmi upp að ágrein- ingur yrði milli Seðlabankans ann- ars vegar og svo framkvæmdavalds- ins og/eða hagsmunaaðila í at- vinnulifmu hins vegar. „Það má e.t.v. segja að það sé ekkert sérstak- lega nýtt við það að hagsmunasam- tök skammist út i Seðlabanka, ríkis- stjórn eða aðra fyrir að allt sé að fara fjandans til vegna hárra vaxta. Það nýja í stöðunni er þessi ágrein- ingur milli ríkisstjómar og Seðla- banka. Þótt maður fagni nú yfirleitt ekki því að menn standi í deilum, þá er óneitanlega ánægjulegt að sjá að Seðlabankinn hefur tekið hlut- verk sitt og möguleika alvarlega og lætur ekki undan þrýstingi. Það finnst mér vera lofsvert," segir Ágúst. Enn þensla Varðandi efnislega hlið ágrein- ingsins, þ.e. hvort tilefni sé til vaxtalækkunar eða ekki segist Ágúst vera þeirrar skoðunar að menn eigi að fara sér hægt í vaxta- lækkunum enn um sinn. „Það er enn mikil þensla í gangi og verð- bólgan á miklum skrið, en það verða vaxtalækkanir hér á næstu mánuðum. Seðlabankinn er því á réttri braut með það aðhald sem hann sýnir en hann má heldur ekki ganga of langt í þeim efnum,“ segir Ágúst. -BG Greiningardeild Landsbanka-Landsbréfa: Vaxtalækkun tímabær Sprengjuhólkur Einn af þeim pappahólkum sem voru sprengdir viö Fellaskóla í gær. Sprengt við Fellaskóla Þrír unglingar stóðu fyrir miklum sprengingum á bílastæði við skólalóð Fellaskóla um tíuleytið í gærmorgun. Að sögn ibúa við Eddufell, sem þusti á vettvang, var hópur unglinga með tölu- vert af pappahólkum sem þeir sprengdu hvem af öðrum. „Þetta er stórhættulegt og erfitt að horfa upp á þetta, ekki síst vegna fjölda yngri bama sem var þarna í grennd. Neista- flugið var gríðarlegt og hávaðinn eftir því,“ sagði íbúinn, sem ekki vill láta nafns síns getið af ótta við hefndarað- gerðir. Hann tilkynnti atvikið síðan til lögreglu. Þegar lögreglumenn komu á staðinn brast flótti í hópinn en einn sprengju- mannanna náðist. Að sögn lögreglu var hann með smáræði af sprengiefni á sér. Hinir drengimir em ófimdnir. Að sögn íbúans er Fellahverfi alla jafna rólegt hverfi og því setja tiðindi af sprengingum sem þessum ugg að fólki. -aþ Skildinganes: Bílbruni - einn á sjúkrahús Slökkviliðið í Reykjavík var kvatt að Skildinganesi um tvöleytið í nótt en þar stóð nýlegur bíll í ljósum log- um. Öryggiskerfi bílsins hafði farið í gang og var eigandinn að berjast við eldinn þegar slökkvilið bar að garði. Að sögn varðstjóra var bíleig- andinn fluttur á sjúkrahús vegna gruns um reykeitrun. Bíllinn er mikið skemmdur eftir brunann. -aþ Veöriö i kvöld 9&É -jrr 1 Solnrguiigur og sjnvnrföll JM Sólariag I kvöld REYKJAViK 20.47 AKUREYRI 20.41 Sólarupprás á morgun 06.10 05.49 Síftdogisflóft 17.32 22.05 -s> Árdegisflóft á morgun 05.47 10.20 U* Skýringar á veðurtáknum vffi >) Þykknar upp suövestan til Heldur vaxandi austan- og suðaustanátt og þykknar upp suövestan til en annars fremur hæg suðaustanátt og dálítil súld á Suöausturlandi en léttskýjaö noröan til. Austan 13-18 m/s og rigning sunnan- og vestanlands en hægari suöaustanátt og skýjaö á Noröausturlandi í nótt. ^VINDATT 10V-HITI 15J -10° & \ViNDSTYRKUR i metrum & sokúndu N.FH0ST HEIÐSKÍRT % £3; O LÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAO SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ í? w lí? RIGNING SKÚRIR SLYODA SNJÓKOMA ! Ö"': & ÉUAGANGUfí ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA Vegir landsins Allar upplýsingar um vegi landsins, færö á vegum, vegalokanir, framkvæmdir og ástand fjallvega er hægt aö fá á heimasíðu Vegageröarinnar eöa í upplýsingasíma hennar. 'firméUaí , ^ -n.% v\. )ir írlA,- •' v.* V. \ -ÁVj ■■I ■■ p|gg WmÆ' V»gtr á skyggdum avaAum •ru loksAir þar til annaA , ; ■' .Mur«,giv.i www.v«gaSJa/fawr<l Veðrið íi niorgun mmm MÉimM:::, t10" ý- /J® Austan- og noröaustanátt Austan- og noröaustanátt, 10 til 15 m/s allra nyrst en annars heldur hægari, rigning einkum austan til og hiti 8 til 14 stig. If Manuda Vindur; 3-8 m/* Hiti 6° til 13° Fremur hæg norðlæg átt. Smáskúrir nor&austan til en iéttskýjaö á Subur- og Vesturlandi. Hitl 6 tll 13 stig, hlýjast á Suéuriandl. Vindur: ( 8—13 nvs'— Hiti 7° til 13° Norftvestanátt 8-13 m/s og smáskúrir meé noréausturströndlnni en annars hæg V- og NV-átt og víéa léttskýjaé. Hltl 7 tll 13 stlg, mlldast sunnan tll. aasBBBga/- l%> Vindur; 3-8 nýs Hiti 9° til 14° Hæg sunnanátt og skýjaft vestan tll á landlnu en léttskýjaft austan tll. Hltl 9 tll 14 stig. AKUREYRI alskýjaö 5 BERGSSTAÐIR BOLUNGARVÍK heiöskírt 4 EGILSSTAÐIR skýjaö 3 KIRKJUBÆJARKL. skýjaö 8 KEFLAVÍK lágþokublettir 4 RAUFARHÖFN skýjaö 4 REYKJAVÍK léttskýjaö 5 STÓRHÖFÐI úrkoma 8 BERGEN rigning HELSINKI skýjaö KAUPMANNAHÖFN skýjaö ÓSLÓ rigning STOKKHÓLMUR súld ÞÓRSHÖFN skýjaö ÞRÁNDHEIMUR skýjaö ALGARVE léttskýjaö AMSTERDAM skúrir BARCELONA skýjaö BERLÍN skýjaö CHICAGO rigning DUBLIN skýjað HAUFAX heiöskírt FRANKFURT skýjaö HAMBORG rigning JAN MAYEN úrkoma LONDON skýjaö LÚXEMBORG þoka MALLORCA skýjaö MONTREAL heiöskírt NARSSARSSUAQ rigning NEWYORK alskýjaö ORLANDO skýjaö PARÍS skýjaö VÍN skýjaö WASHINGTON þokumóöa WINNIPEG heiöskírt SJSSES 12 12 16 14 12 10 12 18 15 19 14 21 11 15 13 15 5 12 13 20 19 9 24 27 15 17 20 5 orrr.’.w

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.