Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2001, Side 49
57
LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2001
DV Tilvera
Afmælisbörn
Tom Petty 48 ára
Rokksöngvarinn og gítarleikarinn Tom Petty er
afmælisbam dagsins. Petty hefur lengi veriö í
bransanum og gert mörg lögin vinsæl meö hljóm-
sveit sinni, Heartbreakers, auk þess sem hann hef-
ur komið einn fram og starfað mikið með Bob Dyl-
an. Var hann meðal annars í kvintettinum fræga,
The Travelling Willburys, sem hann, Bob Dylan,
Jeff Lynne, George Harrison og Roy Orbison stofn-
uðu á sínum tíma. Þá hefur hann leikið í kvikmynd-
um og í sjónvarpi. Petty er tvíkvæntur og á tvö börn
með fyrri konu sinni, Jane Petty.
Carrie Fisher 45 ára
Bandaríska leikkonan og rithöfundurinn Carrie
Fisher á afmæli á morgun. Hún fæddist í Beverly-
hæðum í Los Angeles og eru foreldrar hennar
Debbie Reynolds og Eddie Fisher, sem skildi við
Debbie til að geta kvænst Elisabeth Taylor. Segja má
að kvikmyndaferill Carrie hafi byrjað meö Shampoo
en það voru hins vegar Stjömustríðsmyndimar sem
færðu leikkonunni heimsfrægð sem hún býr enn að.
Fisher hefur æ meira snúið sér að skrifum og hefur
skrifað metsölubækur, auk þess er hún einn helsti
„handritalæknirinn" í Hollywood. Á níunda ára-
tugnum var hún gift Paul Simon um tíma.
SiiSl
Stjörnuspá
■■■■■■■
Gildir fyrir sunnudaginn 21. október og mánudaginn 22. október
Vatnsberinn I?0. ian.-18. febr.):
Emmzzm
Það borgar sig að gera
öðmm hlutdeild i hugs-
unum sínum. Þeir geta
áreiðanlega gefið góð ráð varðandi
erfitt mál sem er að angra þig.
pa mánudagsms:
Þú þarft að hugsa þig tvisvar um
áður en þú tekur ákvörðun. Gefðu
þér tima fyrir það sem þú hefur
áhuga á.
Hrúturinn (21. mars-19. apríl):
Undarleg staða kemur
upp í vinahópnum og
m sýnist sem mál geti
orðið ansi flókin þó að tilefnið
virðist ekki mikið.
Fiskarnir (19. febr.-20. marsl:
Spá mánudagsins:
Þú ert óvanalega snöggur upp á
lagið. Það er ekki líklegt til þess
að afla þér vinsælda í vinahópi
eða í samstarfi.
Tvíburarnir m. maí-21. iúníi:
Þú gerðir réttast í því
«,// að blanda þér ekki í
deilur annarra heldur
sinna eigin málum. Enginn vill
þiggja ráð frá þér í dag.
Spá mánudagsins:
Þú verður beðinn um að láta skoðun
þína í Ijós. Þetta snýst um eitthvað
innan heimilisins. Hætta er á storma-
sömu tímabili í ástarsamböndum.
Ljórna (23, júií— 22. ágúsfli
Spá sunnudagsins:
Þú ert ekki einn á báti í
vandamáli sem þú stend-
_ | ur frammi fyrir. Vinir
þinir eru fullir velvilja og þú þarft
aðeins að leyfa þeim að komast að.
IJ^TíTCiTiTTúrggTr?B
Miklar framfarir og breytingar
verða á lifi þínu. Þú ferð
í ferðalag sem heppnast
einstaklega vel.
Vogln (23. sept.-23. okt.);
^ / cffii.-iii.i.iikkLá-iiiia
r*y Gerðu þér grein fyrir þvi
\f að ekki snýst allt um þig
' f eða það sem þú ert að
fást við. Það er þreytandi að hlusta á
fólk sem talar eingöngu um sjálft sig.
taiaiMiŒa
Hugur þinn er mjög frjór um þess-
ar mundir. Þér gengur vel að
koma skoðunum þínum á fram-
færi og á þig er virkilega hlustað.
Bogmaðurlnn (22. nóv.-21. des.):
pá sunnudagsins:
V þú tekur til hendinni á
W heimilinu og sýnist
\ ekki vanþörf á því.
Svo virðist sem eitthvað mikið
standi til í fjölskyldunni.
Það verða einhver vandræði fyrri
hluta dags vegna loforðs sem þér
var gefið. Síðari hlutinn verður
mun betri að öUu leyti.
Spá sunnudagsins:
\ I
^JLj^Bþú stendur i stórræð-
^ f um á viðskiptasviðinu.
\ Svo virðist sem fast-
eignakaup eða eitthvað sllkt sé á
döfinni. Þú ert í essinu þínu.
pa manudagsms:
Mikið verður um að vera hjá ein-
hverjum þér nákomnum. Þú hjálpar
mest til með því að sýna þolinmæði
og æsa þig ekki upp í öllum látunum.
Nautið 120. april-20. maí.l:
Spa sunnudagsins:
- Láttu smámuni ekki
draga úr þér kjarkinn
varðandi ákvörðim sem
þú þarft að taka varðandi framtíð
þína. Þú getur það sem þú vilt.
Spa manudagsins:
Það er ekki hægt að tala um aö
stórslys verði í dag en röð óhappa
einkennir daginn í dag. Reyndu
að forðast ÖU vandræði.
Krabbinn (22. iúní-22. iúir>:
Spa sunnudagsms:
i Þú stendur á krossgöt-
um í vissum skilningi.
Það er upplagt að
reyna eitthvað nýtt í stað þess að
hjakka sífellt í sama farinu.
Spá mánudagsins:
Þér hentar mun betur að vinna einn
en með öðrum í dag. Hætt er við að
ef þú reynir að gefa einhveijum ráð
í dag taki hann það óstinnt upp.
Mevian (23. áeúst-22. sept.):
Spá sunnudagsins:
Gerðu þér grein fyrir
^V^L-því að allir eiga við sin
' vandamál að stríða,
ekki bara þú. Þér hættir til að
loka þig af i eigin heimi.
Spá mánudagsins:
Þú ert einum of auðtrúa og hefúr
tilhneigingu til að treysta þeim
sem eru ekki traustsins verðir.
Happatölur þínar eru 4,13 og 29.
Sporðdrekinn (24, okt.-2i. nóv.):
Spá sunnudagsins:
Gerðu ráð fyrir að þú
J verðir fyrir truflunum
' ” síðari hluta dags. Þér
finnst lífsbaráttan hörð en hagur
þinn fer batnandi.
pa mánudagsins:
Þú ert óþarflega viðkvæmur fyrir
gagnrýni sem þú verður fyrir. Þú
ættir að reyna að sláka pínulítið
á. Peningamálin standa vel.
Steingeitin (22. des.-19. ian.):
[^/ Eitthvaö verður til að
minna þig á löngu hðna
tið og þér fmnst eins og
aUt hafi verið betra þá. Mundu að þú
lifir í nútíðinni en ekki fortíðinni.
Spá mánudagsins:
Þú ert ekki sérlega þolinmóður við
þá sem þér leiðast og ólikiu- sjálf-
um þér að ýmsu leyti. Þú færð sér-
staka ánægju út úr vinnunni.
Sýningin sett
Þorsteinn Njátsson, læknir og bæjarfulltrúi, opnaði sýn-
inguna.
Sýningin skoöuö
Þaö er margt merkilegra listaverka sem prýöir sýninguna
í Hafnarborg. Hér er eitt sem greinilega vekur forvitni.
Hafnarborg:
Myndlist gegn tóbaksreykingum
DV-MYNDIR: BRINK
Þorgrímur og fjölskylda
Þorgrímur Þráinsson, framkvæmdastjóri Tóbaksvarnarráös, var mættur á
sýninguna ásamt eiginkonu sinni Ragnhildi Eiríksdóttur og barni þeirra
í vikunni var opnuð sérstök
myndlistarsýning í Hafnarborg í
Hafnarfirði. Um er að ræða sýningu
sem hefur yfirskriftina Listverkun -
Evrópsk myndlist gegn tóbaksreyk-
ingum. Það er Evrópudeild Alþjóða
heilbrigðisstofnunarinnar WHO
sem stendur fyrir þessu verkefni og
vill meö þvi virkja menningu til að
takast á við eitt stærsta heilbrigðis-
vandamál okkar tima. Tuttugu af
framsæknustu listamönnum Evr-
ópu voru fengnir til að starfa að
þessu markmiði og hafa verk þeirra
sem nú eru komin til íslands verið
sýnd í flestum höfuðborgum álfunn-
ar auk þess sem prentuð hafa verið
veggspjöld með verkunum til aö
leggja áherslu á boðskapinn. Margir
lögðu leið sína á opnunina til að sjá
þessi forvitnilegu listaverk. Sýning-
in stendur til 12. nóvember.
Með listfræðing á eyranu
Á morgun kynnir Listasafn Reykja-
víkur til sögunnar GSM-leiðsögn um
Erró-sýninguna í Hafnarhúsinu. Leið-
sögnin er unnin í samvinnu við ís-
landssíma og er ekki óskyld hljóðleið-
sögn (“audio-guide") sem er algeng
víða í söfnum erlendis en byggir á út-
breiddri farsímaeign þjóðarinnar.
Gestir geta sem sé hringt í ákveðið
númer úr farsíma sinum og hlustað á
kynningu um sýninguna og hvernig
best sé að fara um hana til að fá heild-
stæða mynd af ferli listamannsins. Þá
er hægt með ákveðnum skipunum að
velja um ellefu fróðlegar umsagnir
um verk Errós og ákveðin tímabil í
lífi hans sem íslenskir listamenn og
listfræðingar hafa samið og lesið inn.
í tilefni þessara timamóta verður
ókeypis aðgangur fyrir alla gesti
Listasafns Reykjavíkur í Hafnarhús-
inu i dag frá kl. 14-18 og boðið upp á
ýmsa skemmtan fyrir fjölskylduna.
Meðal annars verður yngri gestum
safnsins boðið upp á myndlistar- og
tónlistarsmiðju þar sem unnið verður
í anda verka Errós. Börnin verða að-
stoðuð við að búa til stórt vegglista-
verk úr klippimyndum, hljóð- og
tölvusnillingurinn Bibbi leikur og
vinnur með börnunum að gerð hljóð-
verks sem unnið er upp úr teikni-
myndum og í útiportinu verður boðið
upp á leiki og ýmsa aíþreyingu.
Vefsíða Listasafns Reykjavíkur,
www.listasafnreykjavikur.is, hefur
verið endurgerð og verður opnuð
formlega sama dag en þar er m.a. að
finna sýndarferð um Erró-sýninguna í
Hafnarhúsinu sem fyrirtækið Land-
mat hefur unnið í samvinnu við safn-
ið.
Gamanleikrit
Guömundur L. Þorvaldsson og
Ágústa Sigrún Ágústsdóttir í hlut-
verkum sínum.
Leikfélag Kópavogs:
Tom Stoppard
á léttum nótum
Leikfélag Kópavogs frumsýnir í
kvöld, gamanleikritið Hinn eini sanni
eftir Tom Stoppard, Sýningin sem er í
leikstjórn Bjarna Guðmarssonar er í
Hjáleigunni í Félagsheimili Kópavogs.
Höfundur Hins eina sanna, Tom
Stoppard hefur verið eitt af frumleg-
ustu leikskáldum Breta undanfarna
fjóra áratugi og vakti fyrst verulega
athygli fyrir leikrit sitt Rosencrantz
and Guildernstern are dead. Hinn eini
sanni sem heitir á frummálinu The
Real Inspector Hound, var fyrst settur
á svið árið 1968 og er það verka Stopp-
ards sem hvað oftast er leikið. í verk-
inu leikur Stoppard sér með velþekkt-
ar klisjur úr leikhúsi, bókmenntum og
kvikmyndum á kómískan hátt.
VIDEOHÖL LIN
Á. t>ínu bandl—
r
■i-
1