Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2001, Side 7
MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2001
23
I>V
Sport
Kjörísbikarmeistarar
Grindavíkur 2001
Efri röð frá vinstri: Unndór
Sigurösson þjálfari, Sandra
Guðlaugsdóttir, Elva Sig-
marsdóttir, Sólveig Gunn-
laugsdóttir, Jessica Gaspar,
Gígja Eyjólfsdóttir, Sigríður
Anna Ólafsdóttir. Neðri röð
frá vinstri: Erna Rún
Magnúsdóttir, Jovana Lilja
Stefánsdóttir, Ólöf Pálsdóttir,
Petrúnella Skúladóttir, Rut
Ragnarsdóttir.
OmOf> c-n/
OíMON
nokkurt kæruleysi í leik
liðsins. Við vorum búin
að undirbúa okkur vel
fyrir helgina og stelpurn-
ar gerðu það sem fyrir
þær var lagt.
Við fórum vel yfir leik-
inn, sem við töpuðum
stórt gegn Keflavík um
daginn, og vissum hvað
við þurftum að gera.
Gaman aö sjá til
Sólveigar
Þá er gaman að sjá
Sóveigu spila svona vel.
Annars var það vörnin
sem skilaði þessum bikar.
Við erum með jafnt lið og
allir leikmenn liðsins
leggja sig fram. Þegar
stelpurnar leggja sig
svona fram, eins og þær
gerðu um helgina, erum
við með besta liðið á land-
inu í dag. Ef þær mæta
ekki tilbúnar og leggja sig
ekki 100% fram erum við
bara miðlungslið.
Auðvitað verður þetta
erfiðara þegar lið eins og
Keflavík og KR verða
komin með Kana en ég er
viss um það að þau fá
ekki eins góðan Kana og
Jessicu. Við erum enn þá
að bæta okkur og verðum
sterkari eftir því sem á
líður.
Við ætlum að vinna
þessa tvo leiki, sem við
eigum eftir fram að jól-
um, gegn KR og Njarðvík.
Hver leikur er mikilvæg-
ur eins og deildin er að
spilast í vetur. -Ben
Grindavík Kjörísbikarmeistari í kvennakörfunni:
ar og góðar
Grindavík hafði mikla yfirburði
gegn Keflavík í úrslitum Kjörís-
bikarkeppni kvenna sem fram fór
í Hveragerði í gærdag. Grindavík
sigraði 82-58 eftir að hafa haft sex
stiga forskot í hálfleik, 37-31.
Ótrúlega öruggur sigur hjá
Grindavík miðað við að þessi
sömu lið mættust fyrir stuttu í
deildinni en þá burstaði Keflavík
ungt lið Grindavíkur með 33 stig-
um.
Eins og í undanúrslitaleiknum
gegn KR byrjaði Grindavík leikinn
með miklum krafti. Sólveig Gunn-
laugsdóttir skoraði fyrstu fimm
stigin í leiknum og gaf tóninn um
það sem koma skyldi frá henni.
Hún gerði alls 23 stig í fyrri hálf-
leik og klikkaði varla úr skoti.
Einnig tók hún átta fráköst fyrir
hlé.
Vandræöi aö stilla upp í
sókn hjá Keflavík
Keflavík var í miklum vandræð-
um að koma upp boltanum og
stilla í almennilega í sókn. Krist-
ín Blöndal fékk það hlutverk að
stjórna leik liðsins sem er ekki
eðlileg staða hennar. Petrúnella
Skúladóttir setti góða pressu á
boltann þegar bæði Kristín og
María Anna Guðmundsdóttir voru
að taka boltann upp. Petrúnella
sýndi það í þessum leik að hún er
einn efnilegasti vamarmaðurinn í
kvennaboltanum í dag.
Leikurinn jafnaðist í öðrum
leikhluta. Birna Valgarðsdóttir
fór fyrir sóknarleik Keflavíkur en
vegna þess hversu erflðlega gekk
að stilla upp í sókn þá náði Kefla-
vík aldrei að nýta sér yfirburði
sína inni í teig.
Birna tók Gaspar úr umferö
Keflavík lagði mikla áherslu á
að stoppa Jessicu Gaspar og var
hún tekin úr umferð í fyrri hálf-
leik. Birna fékk það hlutverk að
elta hana um allt á meðan hinir
fjórir varnarmennirnir spiluðu
svæðisvörn. Þetta herbragð gekk
ágætlega og skoraði Jessica aðeins
þrjú stig í fyrri hálfleik og öll
komu af vítalínunni. Hins vegar
losnaði rækilega um Sólveigu og
þakkaði hún fyrir sig svo um mun-
aði.
Það var svo í þriðja leikhluta
sem leiðir skfldu fyrir fullt og allt.
Keflavík byrjaði í maður á mann
vöm og losnaði þá um Jessicu sem
skoraði 11 stig um leið. Það skipti
engu þó að Keflavík færi í svæðis-
vörn. Grindavík hélt áfram að
bæta við forskotið og slökuðu leik-
menn liðsins aldrei á og héldu
sama dampi út leikinn.
Grindavík sýndi það um helgina
að þarna er sterkt lið á ferðinni
sem hefur alla burði að vinna
fleiri titla í vetur. Veikleiki liðs-
ins er inni í teig þar sem Sigríður
Anna Ólafsdóttir er sú eina sem
hefur ágæta hæð. Sigríður átti
góðan leik í sókn og vörn gegn
Keflavík.
Baráttan, áræðnin og leikgleðin
voru svo sannarlega tfl staðar hjá
Grindavíkurliðinu og njóta stelp-
urnar þess að vera að vinna eftir
tvö erfið tímabil á undan.
Koma Jessicu Gaspar tO
Grindavikur hefur breytt miklu
fyrir kvennakörfuna þar í bæ.
Hún er hjartað og mótorinn í lið-
inu og drífur aðra leikmenn liðs-
ins áfram. Þó svo að hún hafi ekki
skorað mikið í leiknum þá var
hún að opna fyrir hinar með því
að laða að sér vörnina hjá Kefla-
vík. Þannig gerir hún hinar betri.
Hún er einfaldlega besti leikmað-
urinn í kvennakörfunni í dag.
Eftir að hafa verið nokkuð róleg
i leiknum við KR sýndi Sólveig
það að það má ekki líta af henni.
Hún átti frábæran leik og þrátt
fyrir að hún skoraði mikið í sókn-
inni þá var alltaf gott flæði í kring-
um hana og var hún ávaflt tilbúin
að gefa á samherja sem var frír.
Hjá Keflavík var Birna Val-
garðsdóttir sú eina sem lék af eðli-
legri getu. Liðið náði ekki að nýta
Erlu Þorsteinsdóttur sem skyldi
undir körfunni og skrifast það á
vandræði í stjórn fyrir utan.
-Ben
Besta liðið á landinu í dag
- þegar við leggjum okkur hundrað prósent fram
Unndór Sigurðsson ,
þjálfari Grindavíkur, var
ánægður með að vinna
Kjörísbikarinn. Unndór
hefur ásamt Pétri Guð-
mundssyni verið að
byggja upp þetta lið í
nokkur ár og eru Grind-
víkingar að njóta þess
starfs í dag eftir tvo erfiða
vetur.
„Þegar við komum til-
búin tO leiks gengur allt
miklu betur hjá okkur.
Eftir góða byrjun á Is-
landsmótinu hefur verið
Sigríður Anna Ólafsdóttir, hinn tvítugi fyrirliði Grindavíkur, sést hér með
Kjörísbikarinn eftir glæsilegan sigur á Keflavík i gær.
Grindavík-Keflavík 82-58
8-0, 16-7, 16-14 (22-14), 25-21, 30-22,
32-29 (37-31), 43-31, 47-35,
56-35,(64-41), 69^8, 75-48, 82-58.
Stig Grindavikur: Sólveig Gunn-
laugsdóttir 34, Jessica Gaspar 16, Sig-
ríður Anna Ólafsdóttir 12, Ólöf Páls-
dóttir 7, Petrúnella Skúladóttir 5,
Jovana Stefánsdóttir 4, Sandra Guð-
laugsdóttir 4.
Stig Keflavíkur: Birna Valgarös-
dóttir 25, Erla Þorsteinsdóttir 11,
Kristín Blöndal 8, Theódóra Káradótt-
ir 6, Svava Stefánsdóttir 4, María
Anna Guðmundsdóttir 2, Gréta Guð-
brandsdóttir 2.
Fráköst: Grindavík 48 (20 í sókn, 28 í
vörn, Jessica 16, Sólveig 14), Keflavik
34 (9 i sókn, 25 í vörn, Erla 11).
Stoðsendingar: Grindavik 25
(Jessica 11), Keflavik 11 (Svava 4).
Stolnir boltar: Grindavík 18 (Jessica
7), Keílavík 7 (Birna, Kristin 2).
Tapaóir boltar: Grindavík 13, Kefla-
vík 26.
Varin skot: Grindavík 3 ( Petrúnella
2), Keflavík 6 (Erla 3).
3ja stiga: Grindavík 11/23, Keflavík
6/17.
Víti: Grindavík 11/18, Keflavík 16/18.
Dómarar (1-10): Rögnvaldur Hreið-
arsson og Einar Einarsson, 8.
Gœði leiks (1-10): 8.
Áhorfendur: 80.
Maður leiksins: Sólveig
Gunnlaugsdóttir, Grindavík