Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2002, Page 24
40
MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2002
Tilvera I>V
Gull- og silfurflugan afhent
Ingvar Guömundsson hlaut Gull- og
silfurfluguna í ár fyrir aö hafa veitt
stærsta lax ársins á öllum veiöi-
svæöum fétagsins. Hér tekur hann
viö gripnum góöa úr hendi Siguröar
Steinþórssonar.
Árshátíð Stangaveiðifélags Reykjavíkur:
Tíu glæsileg
verðlaun veitt
Hún var fjörleg árshátíö Stanga-
veiðifélags Reykjavíkur sem haldin
var á Hótel Sögu á laugardagskvöld-
ið. Skemmtiatriði voru mörg og fjöl-
Tekiö á móti blómum
María Karen Siguröardóttir forstööumaöur afhendir Guðmundi blómvönd.
Guðmundur Ingólfsson í Grófarsal:
Óðöl og innréttingar
A laugardaginn var opnuð sýning á
verkum Guðmundar Ingólfssonar ljós-
myndara í Grófarsal Ljósmyndasafns
Reykjavíkur. Guðmundur er í hópi okk-
ar kunnustu ljósmyndara og er hver
sýning á verkum kærkomin öllum
áhugamönnum um ljósmyndun. Sýning-
in í Grófarsal ber yfirskriftina Óðöl og
innréttingar og samanstendur af flórum
myndaseríum sem Guðmundur hefur
unnið i gegnum tíðina í Reykjavík og
nágrenni. Bregður ljósmyndarinn með-
al annars upp myndum af mannlífi í
miðborginni, gömlum sjoppum og
horfnum pylsuvögnum sem minna okk-
ur á hvemig okkar nánasta umhverfí
breytist með tíð og tíma.
breytt en veislustjóri var Gísli
Marteinn Baldursson og heiðurs-
gestur Halldór Ásgrímsson. Veitt
voru verðlaun fyrir stærstu laxa
sumarsins, tíu glæsileg verðlaun
voru veitt en þau afhentu Valtýr
Guðmundsson og Ari Þórðarson úr
fræðslunefnd félagsins.
Afreksbikar kvenna
Að þessu sinni krækti Ragnheið-
ur Halldórsdóttir í þennan bikar
fyrir stærsta lax veiddan á flugu af
konu á öllum veiðisvæðum félags-
ins. Ragnheiður veiddi fiskinn i Hít-
ará 9. september á fluguna Collie
Dog. Fiskurinn vó 7 kg.
Konubikarinn
Ragnheiður Halldórsdóttir fær
einnig þennan bikar fyrir 7 kg lax-
inn sem hún veiddi á fluguna Collie
Dog í Hítará þann 9. september eins
og áður hefur komið fram.
Útilífsbikarinn
Þetta árið hreppir Pétur H. Ólafs-
son bikarinn fyrir 3,6 kg lax veidd-
an á fluguna Black Braham þann 19.
júlí en hann er veittur fyrir stærsta
lax veiddan á flugu í Elliðaám.
Cortlandbikarinn
Jens P. Clausen fær bikarinn fyr-
I kjól og hvítt
Bubbi Morthens, tóntistarmaöur og stangaveiöimaöur meö meiru, lét sig aö
sjálfsögöu ekki vanta á árshátíöina. Hér er hann ásamt Siguröi Steinþórs-
syni, hönnuöi Gull- og silfurflugunnar eftirsóttu'.
ir 7,8 kg lax veiddan á fluguna Black
Braham í Norðurá þann 24. ágúst.
Ron Thompson-styttan
Stærsta lax á flugu í Stóru Laxá
fékk Guðmundur Stefán Maríasson.
Hann veiddi 9,2 kg fisk 30. septem-
ber á svæði III og tók fiskurinn
rauða Francis-keilu.
Veiðivonarbikarinn
Sogið státar oft af stórum löxum
og þetta árið reyndist stærsti lax
veiddur á flugu koma í hlut Ingvars
Guðmundssonar. Hann veiddi 9,5 kg
fisk á Blue Charm þann 6. septem-
ber á svæði Alviðru.
Nanoq-bikarinn
Gylfi Valtýsson veiddi stærsta lax
á flugu í Hítará árið 2001 og það
geröi hann 14. september á rauða
Frances-túbu. Laxinn vó 7,1 kg.
Redingtonbikarinn
Þessi bikar er veittur fyrir
stærsta lax eða sjóbirting veiddan á
flugu í Tungufljóti og þetta árið var
það Svend Ricter sem vann það af-
rek þann 18. október. Fiskurinn tók
Snældu og vó 9,3 kg.
Vesturrastarbikarinn
Stærsta lax á leyfilegt agn á öllum
ársvæðum Stangaveiðifélags
Reykjavíkur árið 2001 veiddi Stefán
Kristjánsson. Stefán veiddi 10,2 kg
fisk á Devon 27. september í Soginu
fyrir landi Bíldsfells.
GuU & silfur-flugan
Þau verðlaun sem flestir taka eft-
ir eru verðlaun Gull & silfurversl-
unarinnar og það reyndist vera
Ingvar Guðmundsson sem hana
hlýtur fyrir stærsta lax veiddan á
flugu á öllum ársvæðum SVFR á
síðasta ári. Laxinn var 9,5 kg og
kom á Blue Charm þann 6. septem-
ber í Soginu við Alviðru.
-G.Bender
Breiðholt í nýju ljósi
DV-MYNDIR EINAR J.
Fræknir veiöimenn
Verölaunahafar á árshátíö Stangaveiöifélags Reykjavíkur stilla sér upp til
myndatöku ásamt verölaunagripum sínum.
Sungiö af lyst
Söngvararnir Jóhann Friögeir, Andrea Gylfadóttir og Diddú skemmtu stanga-
veiöimönnum meö himneskum söng sínum.
DV-MYNDIR EINAR J
Skipulagshöfundar heiöraöir
Viö opnun sýningarinnar fengu skipulagshöfundar Breiöholtshverfis afhenta
blómvendi fyrir störf sín. Frá vinstri: Guörún Jónsdóttir, Knútur Jeppesen,
Ágústa Kristófersdóttir sýningarstjóri, Stefán Örn Stefánsson (fyrir hönd
Reynis Vilhjálmssonar) og Gunnar Friöbjörnsson (fyrir hönd Geirharðs Þor-
steinssonar).
Áhugi á skipulagsmálum hefur auk-
ist til muna á undanförnum árum,
meðal annars í kjölfar umræðu um
framtíð Vatnsmýrarsvæðisins og bygg-
ingu tónlistarhúss í miðborginni. Á
laugardaginn var opnuð í Listasafni
Reykjavíkur sýning sem ber yfirskrift-
ina Byggt yfir hugsjónir, Breiðholt frá
hugmynd að veruleika. Eins og nafnið
gefur til kynna er þar brugðið ljósi á
Breiðholtshverfi í Reykjavík og Qallað
um skipulag hverfisins og byggingu
þess frá ýmsum hliðum. Ágústa Krist-
ófersdóttir, sagnfræöingur og safnvörð-
ur í Listasafni Reykjavfkur, ber hitann
og þungann af sýningunni og hefur
hún viðað að sér efni úr ýmsum áttum
til að gefa sem gleggsta mynd af hverf-
inu. Meðal annars notar hún gamlar
blaðagreinar, sjónvarpsmyndir, skipu-
lagsuppdrætti og líkön.
Borgarstjóraefnlö kynnir
sér Breiöholtiö
Björn Bjarnason, menntamálaráð-
herra og borgarstjóraefni, var meöal
gesta á Breiðholtssýningunni. Hér
sýnir Eiríkur Þorláksson, forstööu-
maöur Listasafns Reykjavíkur, Birni
líkan af hverfinu góöa.
yO'BÍLABÚD
VTtABBA
:: Tangarhöföa 2 :: Sími 5671650 ::
.— 4
lao vfltpai*ævintýrí fýrir norðan! I
flUGFÍlAG ÍSLANDS
SPORTFEMHR
Akureyri - Mývatn
Netfang: sporttours@sporttours.is
www.sporttours.is - sfmi 461 2968
SBA-NORÐURLEIÐ