Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš Vķsir - DV

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31 . . . . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 74. tölublaš - Helgarblaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš Vķsir - DV

						FIMMTUDAGUR 28. MARS 2002

Fréttir

J>W

Töluverð frávik þegar komin fram gagnvart gjaldahliö f járlaga:

Ríkiö á að fórna

segir varaformaður fjárlaganefndar sem er bjartsýnn á skattheimtuna

Ljóst er að gjöld ríkisins hafa orð-

ið töluvert meiri á fyrstu þremur

mánuðum ársins en fjárlög gerðu

ráð fyrir. Sem dæmi má nefna að

ríkisstjórnin varði rúmum mUljarði

króna til að vernda rauðu strikin í

janúar og dró þá m.a. hækkun á

heilbrigðisþjónustu til baka. Þá

verður ríkið að kaupa hlutabréfin af

þeim sem keyptu í Landssímaútboð-

inu í fyrra, óski þeir þess. Samning-

ar við sjúkraþjálfa kosta 150 millj-

ónir króna aukalega og ef vörugjald-

ið á bensín verður lækkað verður

hið opinbera af tekjum sem nema

hundruðum milljóna króna.

Stjórnarandstaðan    heldur   því

fram að fjárlógin hafi ljós-

lega verið hriplek og halli á

þessu ári muni reynast

miklu meiri en áætlanir

gerðu ráð fyrir. Einar Odd-

ur Kristjánsson, varafor-

maður fjárlaganefndar, er

hins vegar bjartsýnn og

segir aðgerðir ríkisstjórn-

arinnar vera nauðsynlegar.

„Það eru bæði tekjur og

gjöld í fjárlögunum. Ég tel

að að sé engin spurning fyrir af-

komu efnahagslífsins í heild að rík-

ið á þessari stundu leggi sig gervallt

fram um að hér verði stöðugt verð-

lag og eigi þess vegna að fórna gríð-

Elnar Oddur

Kristjánsson,

arlega. Það er öllum í hag og

rétt og ábyrg peningastefna

til að tryggja stöðugleika,"

segir Einar Oddur. Hann

styður mjög eindregið að

lækkun vörugjalds á bensíni

komi til framkvæmda.

Einar Oddur segir að

stöðugleiki muni verða afi-

vaki hagvaxtar og hann sé

handviss um að hann komi

til framkvæmda á þessu ári

en ekki því næsta eins og Þjóðhags-

stofnun hafi spáð. Spurður hvort

hin hraða lending í efnahagslífinu

muni minnka tekjur ríkisins miðað

við áætlanir telur Einar Oddur því

öfugt farið. Tekjurnar verði hærri

þar sem hagvexti verði fLýtt.

„Fjárlögin eru ekki komin í

meira uppnám en svo að síðan við

gerðum þau er að verða sá viðsnún-

ingur að það er að verða hagvöxtur

sem við gerðum ekki ráð fyrir við

samningu fjárlaganna. Það eru því

að verða mjög jakvæðar breytingar

fyrir forsendum þeirra," segir vara-

formaður fjárlaganefndar. Hann

segist hins vegar áfram ætla að

hamra á aðhaldi í ríkisrekstri. Ekki

sé nægilegt taumhald á opinberum

fjármunum og varnaðarorð gegn

því eigi við nú eins og fyrr.

-BÞ

Lettneski raðmorðinginn á Dalvík:

Fólki brá mjög þegar

fréttirnar barust

Fólki á Dalvík og nágrenni brá

mjög þegar fréttist að Jurijs Eglitis

hefði játað á sig fimm morð á fimm

ára tímabili í Riga í Lettlandi. Eitt var

framið með exi en tvö fórnar-

lambanna skaut Eglitis. Foreldrar

ungrar konu sem hafði verið í sam-

bandi við Eglitis í nokkra mánuöi

hafa búið í fjögur ár á Dalvík. Þau

tóku fréttirnar mjög nærri sér, ekki

síst þar sem þau og fólk nyrðra höfðu

talið Eglitis mjög geðugan mann.

Hann hafði verið í vinnu i þrjá daga

hjá litlu fiskvinnslufyrirtæki á Dalvík,

Norðurstjörnu, þegar lögreglumenn

frá ríkislögreglustjóra fóru norður og

handtóku hann eftir að framsalskrafa

kom fram frá Lettlandi. Þorgils

Guðnason,    vélstjóri   hjá   Norður-

Selfossprestakall:

Frestur liðinn

Umsóknarfrestur um embætti sókn-

arprests á Selfossi rann út í gær. Hjá

Biskupsstofu fengust þær upplýsingar

að þar sem enn gætu verið bréf í pósti

til embættisins væri ekki hægt að

gefa upp fjölda umsækjenda fyrr en

eftir páskahelgina. Gunnar Björnsson,

settur sóknarprestur á Selfossi, og

Kristinn Ágúst Friðfinnsson, sóknar-

prestur í Hraungerðisprestakalli, hafa

báðir lýst því yfir að þeir sæki um

embættið.                                  -NH

stjörnu, segir að Eglitis hafi komið

„afskaplega vel fyrir".

„Hann var rólegur og hægur piltur

og kom vel fyrir þann stutta tíma sem

hann var hjá okkur. Auðvitað brá

fólki þegar þessar fréttir bárust. Þetta

kom mjög á óvart. Þetta sýnir manni

að lengi skal manninn reyna," sagði

Þorgils.

Fyrirtækið hafði sótt um leyfl fyrir

Eglitis til að hann mætti vinna hjá

Norðurströnd. Allir pappírar höfðu

reynst vera i lagi. Fólk á Dalvík hefur

samkvæmt upplýsingum DV reynt að

styðja foreldra unnustu EgUtis. Hún

kom til Dalvíkur í sumarfrí en varð

síðan að hverfa úr landi þar sem hún

hafði ekki dvalarleyfi. Búist er við að

hún muni reyna að fá varanlegt leyfi

til að dvelja hér á landi hjá foreldrum

sínum.

Eglitis var hafður í einangrun á

Litla-Hrauni áður en hann var fram-

seldur héðan til heimalands hans þar

sem fangelsismálayfirvöld vildu fyrir-

byggja að hann fremdi morð á sam-

föngum eða fangavörðum til að kom-

ast hjá framsali til Lettlands. Ekkert

hafði þó komið fram um að Eglitis

hefði slikt í hyggju en öryggið var haft

í fyrirrúmi þar sem afbrotamenn frá

löndum þar sem fangelsisaðstaða er

mjög bágborin, hafa framið morð til

að fá frekar dóm í því landi þar sem

skárra er að vera í fangelsi.

-Ótt

Gengið yfir Miklubraut

Framkvæmdir eru hafnar viö gerö göngubrúar yfir Miklubraut á móts viö Kringl-

una. Steypuframkvæmdum mun Ijúka um mitt sumar en stálbrúin veröur sett

upp í heilu lagi í lokjúlí. Heildarverklok eru áætluð um miöjan ágúst. Nýirgöngu-

stígar munu tengjast brúnni og auövelda alla umferö gangandi vegfarenda um

svæöiö. Þá veröur akrein bílaumferðar frá Kringlunni einnig breytt.

Þungt í Austfirðingum vegna bakslagsins í álversmálinu:

Reiöin beinist að Hydro en ekki stjórnvöldum

- segir Einar Rafn Haraldsson, formaður Afls fyrir Austurland

„Það er auðvitað ekkert notalegt að

sitja undir því að væntingar manns

séu að fara í súginn. Seinkun fram-

kvæmdanna hér fyrir austan kemur

sér mjög illa fyrir marga og ég neita

því ekki að mörgum finnst sem Norsk

Hydro hafi verið svikult á sinni ferð.

Viðbrögð fólk eru eflaust á ýmsan hátt

en maður heyrir þær raddir að það

standi ekki á því að ráðast í fram-

kvæmdir ef þær eru á vesturhelmingi

landsins á sama tíma og öllu er slegið

á frest hér," segir Einar Rafn Haralds-

son, formaður samtakanna Afl fyrir

Blaöiö í dag

Austurland, um þau tíðindi

sem gerst hafa í álversmálinu

á Reyðarfirði.

Einar Rafn segist ekkert

hafa við stækkunaráform ál-

verksmiðju Norðuráls í Hval-

firði að athuga, það sé án efa

þjóðhagslega hagkvæmt að

ráðast að því verkefni með

krafti. „Það er alls ekki hægt

að láta það fara í taugarnar á

sér þótt það gangi vel hjá öðr-

um. Hins vegar heyrir maður að það

er ansi þungt í fólki hér um slóðir og

Elnar Rafn

Haraldsson

reiðin beinist að , Norsk

Hydro en ekki að íslenskum

stjórnvöldum. Því er þó ekki

aö leyna að svo virðist sem

stjórnvöld hafi ekki verið

með neinar áætlanir uppi

varðandi það við hvern

skyldi ræða ef svona færi, en

það er reyndar varla hægt að

búast við að það sé hægt að

gera samdægurs. En það

stendur upp á iðnaðarráð-

herra að gera grein fyrir þvi við hvaða

aðila á að hefja viðræður."

Einar Rafn segir fróðlegt að fylgjast

með viðbrögðum svokallaðra náttúru-

verndarsinna í þessu máli. „Við tökum

auðvitað eftir því að „Hjörleifarnir"

sem hafa andskotast út í allt og allt hér

fyrir austan segja ekki neitt þegar rætt

er um stækkun álveranna á Grundar-

tanga og í Straumsvik. Ég lít hins veg-

ar alls ekki svo á að hér hafl neinar

framkvæmdir verið slegnar af, að mínu

mati er einungis um seinkun að ræða,

seinkun sem kemur sér vissulega illa."

segir Eínar Rafn.                          -gk

ttgti^

Breska stráið

óttast tuddann

frá Bagdad

Erient fréttaljós

Takmörk fyrir

því sem við

getum gert

Innlent fréttaljös

Flogið í

snjónum

Jeppaferö í Setriö

—,—,----_^_-------,— 20	Listin er 1 margslunginn draumur Hafliol Hallgrimsson

	Evrópumál í alvöru Valgerður Sverrisdöttir

Stuttarfréttir

Grétar ver strikið

Grétar Þorsteins-

son, forseti ASÍ,

mætti i Kringluna í

gær þar sem ýtt var

úr vör áskorun til

verslana þar um 3%

verðlækkun til að

verja rauða strikið.

Grétar aðstoðaði við

að hengja upp áberandi merkingu þar

um.

Viðræður af stað

Tilkynnt var i gær að viðræður um

sameiningu Útgerðarfélags Akureyr-

inga hf. og Skagstrendings hf. væru að

fara af stað. Eimskipafélag Islands jók

nýlega eignarhlut sinn í þessum félög-

um og lýsti í kjölfarið áhuga sínum á

samvinnu eða samruna þeirra.

Vöruskipti hagstæö

Vöruskipti Islendinga við útlönd í

febrúar voru hagstæð um 2,7 miHjarða

króna. Þetta er mikill viðsnúningur en

þau voru óhagstæð um 1,5 milljarða í

febrúar í fyrra. Á tveimur fyrstu mán-

uðum ársins voru þessi skipti útflutn-

ingi hagstæð um átta milljarða króna.

Fækkar með Flugleiöum

Farþegum Flugleiða á leiðum til og

frá fslandi fækkaði um 5,1% í febrúar

í samanburði við síðasta ár. Farþegum

sem flugu milli Bandaríkjanna og Evr-

ópu fækkaði um nær 48%. Flugleiðir

hafa lagað framboð sitt að minnkandi

eftirspurn, segir i frétt frá félaginu.

Veskið ræður

Ólafur Ólafsson,

formaður Félags

eldri borgara í

Reykjavík, sagði í

RÚV að lyfjaverðs-

könnun ASÍ sýndi að

aðgangur að lyfjum

réðist ekki af þörf

fyrir þau heldur

þykkt peningaveskisins. Mesta hækk-

un hjá lífeyrisþegum var um 400% á

lyfinu Roaccutan sem notað er við

húðkvillum.

Ráðgera uppsagnir

Tugir heilsugæslulækna ráðgera að

segja upp störfum vegna ákvörðunar

Kjaranefndar og heilbrigðis- og trygg-

ingaráðuneytis að taka þann pól í hæð-

ina að útgáfa læknisvottorða skuli telj-

ast til aðalstarfs þeirra. Þetta segir í yf-

irlýsingu frá srjórn Félags islenskra

heimilislækna.

Bdci einhugur

Ekki var einhugur í bankaráði

Seðlabanka íslands um þá hálfs pró-

sent vaxtalækkun sem tilkynnt var á

þriðjudag. Skv. þvi sem Viðskiptablað-

ið segir var einn bankastjóri á móti.

Birgir ísleifur Gunnarsson bankastjóri

vildi í RÚV ekki svara þessu öðruvísi

til en lækkun vaxta væri veruleiki.

Bænaganga á Þingvöllum

Bænaganga verður á Þingvöllum

eftir helgistund í Þingvallakirkju kl. 14

á föstudaginn langa. Gengiö verður að

Lögbergi, Drekkingarhyl og fleiri stöð-

um. Þar verður stansað og flutt bænar-

gjörð fyrir íslensku þjóðinni og öðrum

þjóðum. Gangan endar aftur við kirkj-

una klukkustund síðar.

Snjóroghraði

Lögreglumenn á Húsavík voru hálft

í hvoru ánægðir með að farið væri að

snjóa þar nyðra eins og staðan var síð-

degis í gær. Þeir vænta að slíkt dragi

úr ökuhraða sem hefur verið mikill í

Þingeyjarsýslum síðustu viku. Margir

hafa verið teknir á 120 til 140 km

hraða.

Leiðrétting

Föðurnafn Dagfríðar Pétursdótt-

ur, eiginkonu Sveins heitins Þor-

móðssonar, misritaðist í blaðinu í

gær. Beðist er velvirðingar á mis-

tökunum.                             -sbs/aþ

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64