Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš Vķsir - DV

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31 . . . . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 74. tölublaš - Helgarblaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš Vķsir - DV

						FIMMTUDAGUR 28. MARS 2002

TTi-^r

Fréttir

Lögreglan í Reykjavík ákærir fimm unga innbrotsþjófa í „einum pakka":

Stálu og skemmdu fyrir

12-15 milljónir króna

- brotist var inn í 253 íbúðir og 543 verslanir og fyrirtæki í Reykjavík á síðasta ári

Fimm 17-24 ára karlmenn hafa

verið ákærðir fyrir innbrot og

þjófnaði þar sem verðmætum var

stolið eða reynt að stela fyrir 7,7

milljónir króna. Lögreglan telur

ekki óvarlegt að ætla að piltarnir

hafi valdið tjóni fyrir a.m.k. 5 millj-

ónir króna. Hraðbanki í MH, pen-

ingaskápur í fyrirtæki, fjöldi far-

tölva og stafrænna myndavéla var

meðal þess sem þjófarnir glímdu

við. Þeir hafa játað flest af því sem

lögregian hefur ákært þá fyrir - inn-

brot og þjófnaði á tugi staða, flest í

fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu. í

sumum tilfellum voru einungis

skemmdarverk unnin.

Flest atvikin áttu sér stað á síð-

asta ári en allt það ár voru alls á

sautjánda hundrað innbrota framin

í Reykjavík einni (Mosfellsbær og

Seltjarnarnes teljast með). 253 inn-

brot voru í íbúðir, 543 i verslanir,

fyrirtæki, skóla og stofnanir en 834

í bíla. Lögreglan segir að í langflest-

um tUfellum liggi fíkniefnaneysla

að baki. í flestum þessara innbrota

séu þjófarnir neytendur sem eru

annaðhvort að afla sér fjármuna til

að greiða fíkniefnaskuldir eða til að

fjármagna áframhaldandi neyslu.

5 innbrot 09 þjófnaðir voru fromdir utan svaaðlslns

Innbrotiö á Jólanótt

Hraðbanki að andviröi 2 milljónir

króna var stórskemmdur i húsakynn-

um Menntaskólans við Hamrahlíð.

Innbrot á jólanótt

Ungu mennirnir fóru víða og

frömdu afbrot sín á ýmsum tímum -

meðal annars á jólanótt. Þá brutu

tveir þeirra sér leið inn í Mennta-

skólann við Hamrahlið, brutu rúðu

i útihurð og spenntu svo upp báðar

útidyrahurðirnar. Reyndu þeir að

brjótast inn í hraðbanka Búnaðar-

bankans innandyra með því að

skera og brjóta ytra byrðið en án ár-

angurs. Reyndu piltarnir síðan að

stela hraðbankanum, sem er að

verðmæti 2 milhónir króna, með

því að losa festingar hans en flúðu

af vettvangi þegar styggð kom að

þeim. Annar þeirra hafði sömu nótt

farið inn í húsnæði Olís við Sunda-

garða, spennt upp glugga og stolið

frímerkjum og peningum fyrir tæp-

ar 50 þúsund krónur. Hann fór

einnig inn í Húsasmiðjuna við

Skútuvog og Olís í Grafarvogi þar

sem hann stal peningum.

Fartölvur eftirsóttar

Fartölvur eru greinilega mjög eft-

irstóttar hjá þjófum sé miðað við

mál fimmmenninganna. Einn af

ungu mönnunum fór meðal annars

inn i Elkó og BT-tölvur í Kringlunni

þar sem hann stal tölvum fyrir and-

virði rúmlega 400 þúsund krónur.

Hann braust einnig inn í fyrirtækið

Vélar og þjónusta við Járnháls þar

sem hann stal ferðatölvu að verð-

mæti 220 þúsund.

Einum af mönnunum er gefið að

sök að hafa tvo daga í röð brotist

inn í versluniha BT-tölvur í Garða-

bæ. Annan daginn stal hann ferða-

tölvum og stafrænum myndavélum

að verðmæti tæpar 1,2 milh'ónir

króna.

Peningaskápur

Eigendur fyrirtækisms Stál og

stansar við Vagnhöfða voru svo for-

sjálir að festa peningaskáp fyrirtæk-

isins tryggilega. Tveir af mönnun-

um brutust þar inn á annan í jólum,

spenntu upp útidyrahurð og reyndu

svo að stela skápnum. Þeim tókst

ekki að losa hann og hurfu því á

braut.

Sömu menn brutust nóttina eftir

inn í Merkúr hf. í Skútuvogi 12a,

spenntu upp útidyrahurð en stálu

svo 4 tölvum, 4 tölvuskjám og 4

lyklaborðum að verðmæti um 700

þúsund krónur. Sömu nótt fóru þeir

inn í fyrirtækið Uppdælingu að

Fosshálsi 1 þar sem þeir stálu tölvu,

Reyndu aö taka peningaskáp

/' húsnæði Stáls og stansa við vagn-

höfða voru eigendur svo forsjálir að

festa skápinn tryggilega.

prentara og skjá að verðmæti 120

þúsund krónur.

Og enn einni nótt síðar voru

greipar látnar sópa í Hans Petersen,

Laugavegi 178. Þá var tölvu að verð-

mæti 420 þúsund krónur stolið.

Bíll tekinn á Selfossi

Tveir úr hópnum fóru í janúar

síðastliðnum í Bílasölu Selfoss þar

sem þeir tóku bíl ófrjálsri hendi og

óku honum til Reykjavíkur. Hann

var falinn i Seljahverfi. Tveimur

nóttum síðar fóru þeir á bílnum að

húsnæði Ofiice í Skeifunni og þaðan

annað. Síðar brutust þeir inn í

Oflice og stálu tölvu og 2 skjávörp-

um samtals að verðmæti 1,5 milljón-

ir króna.

Fimmmenningarnir         frömdu

fjölda annarra innbrota og þjófnaða

þar sem þeir náðu sér í ýmislegt fé-

mætt (sjá graf). Engu að síður voru

ýmsir staðir þar sem einungis

skemmdir voru unnar, það er að

mönnunum tókst ekki að komast

yfir það sem þeir ætluðu sér. Þeir

hafa allir mætt fyrir dómara þar

sem þeir viðurkenndu allir nema

einn þau brot sem lögreglan ákærir

þá fyrir. Dómur verður upp kveðinn

innan nokkurra vikna.

-ótt

DV og Terra Nova-Sól semja um afslátt í leiguflugsferðir til Portúgals og Hollands:

Allt að 35 þúsund króna

afsláttur til áskrifenda DV

DV og Ferðaskrifstofan Terra

Nova-Sól hafa gert með sér sam-

komulag annað árið í röð um sér-

stakan afslátt til áskrifenda hlaðs-

ins. Um er að ræða verulegan afslátt

í leiguflugsferðir til Algarve i Portú-

gal og í sumarhús í Kempervennen

í Hollandi.

Báðir þessir staðir eru íslending-

um að góðu kunnir en þeir hafa ver-

ið með vinsælustu áfangastöðum ís-

lenskra ferðaskrifstofa um árabil.

Ferðir Terra Nova-Sólar til Portú-

gals eru flognar í beinu vikulegu

leiguflugi fram til loka október.

Flogið er með SATA International

sem er annað tveggja ríkisflugfélaga

Portúgals. Áskrifendum DV stendur

til boða val milli tveggja íbúðahót-

ela í Albufeira. Annað þeirra er

Paraiso de Albufeira, sem fullyrða

má að sé eitt allra glæsilegasta

íbúðahótel sem íslenskar ferðaskrif-

stofur bjóða í Suður-Evrópu.

Farþegar     til     Kempervennen

20.000-30.000 króna afstáttur

Rúmlega 1.300 áskrifendur nýttu sér ferðaávísanir DV í fyrra og ferðuðust

með Terra Nova-Sól til sólarlanda. Afhending Ferðaávísana DV 2002 hefst

þriðjudaginn 2. apríl en það erjafnframt fyrsti söludagur á ferðum til Portú-

gals og Hollands.

munu fljúga með þýska flugfélaginu

Aero Iioyd til Dusseldorf en þar

tekur fararstjóri Terra Nova-Sólar á

móti farþegum og fylgir þeim til

Kempervennen sem er í eins og

hálfs klukkustundar akstursfjar-

lægð. Ævintýraheimur Kemper-

vennen er engu líkur og fjölbreytt-

ari dægradvöl fyrir fjölskyldur er

óvíða að finna.

Ferðaávísanir DV í ár eru að

verðmæti 20.000-35.000 krónur, allt

eftir því hve lengi viðkomandi hefur

verið áskrifandi að blaðinu. Áskrif-

endur DV sýndu sl. sumar að þeir

kunnu svo sannarlega að meta að fá

ferðaávísun upp á tugi þúsunda og

ferðuðust rúmlega 1.300 áskrifendur

með Terra Nova-Sól til sólarlanda á

þessum sérkjörum.

Afhending Ferðaávisana DV hefst

þriðjudaginn 2. apríl. Það er jafn-

framt fyrsti söludagur á ofangreind-

um ferðum.

-hlh

Lágmarkslíf-

eyrir verði

tryggður

Guöjón A.

Kristjánsson.

Sverrir

Hermannsson.

Þingmenn

Frjálslynda flokks-

ins hyggjast bera

upp tillögu til

þingsályktunar um

tryggan lágmarks-

lífeyri íslendinga.

Þar er skorað á Al-

þingi að bæta þjóð-

félagsstöðu lífeyris-

þega sem fa minni

lífeyri greiddan úr

lífeyrissjóði sínum

en 40 þús. kr. á

mánuði með því að

breyta bótareglum

almannatrygginga

þannig að lífeyris-

greiðslur undir 40

þús. kr. á mánuði

skerði ekki grunn-

lífeyri, tekjutrygg-

ingu, heimilisupp-

bót eða aðrar bætur lífeyrisþegans. Fyr-

ir hverjar 10 þús. kr. sem lífeyrir er um-

fram 40 þús. kr. verði skerðingin fjórð-

ungur þess sem nú er, fyrir hverjar 10

þús. kr. sem lífeyrir er umfram 50 þús.

kr. verði skerðing helmingur þess sem

nú er og fyrir hverjar 10 þús. kr. um-

fram 60 þús. kr. 3/4 þess sem nú er.

í greinargerð segir að vitað sé að líf-

eyrisgreiðslur séu of lágar til að geta ver-

ið meginstoð lífeyrisþega. „Rétt er að

vekja athygU á þvi að eins og reglan er út-

færð minnkar hún svokölluð jaðarskatta-

áhrif. Verði ullagan samþykkt og fram-

kvæmd eftir efiii sínu verður hagur líf-

eyrisþega með lágan lífeyri mun tryggari

en nú er," segir í greinargerðinni.    -BÞ

Harður árekst-

ur í Djúpadal

Mjög harður árekstur tveggja bifreiða

varð í Djúpadal, milli Hellu og

Hvolsvallar, skömmu eftir hádegi í gær.

Annarri bifreiðinni var ekið yfir

brúna yfir Eystri-Rangá en þegar bif-

reiðin var rétt komin yfir brúna rann

hún til vegna hálku og hvassviðris og

hafnaði á bifreið sem kom úr gagn-

stæðri átt. Áreksturinn var mjög harð-

ur en fólk í bifreiðunum sakaði þó

ekki. Bifreiðirnar báðar þurfti hins

vegar að færa í burtu með krana. -gk

Sonja W.B. de

Zorrilla látin

Sonja Wendel Benjamínsson de

Zorrilla kaupsýslumaöur lést á

Landspítalanum í Fossvogi að

morgni föstu-

dagsins 22. febrú-

ar sl. Hún var

fædd i Reykjavík

18. nóvember

1916. Foreldrar

hennar voru

Ólafur Benja-

mínsson stór-

kaupmaður og

María Emelie Wendel.

Sonja bjó í Danmörku, Þýska-

landi, Bretlandi og Frakklandi á ár-

unum 1932 til 1939 og stundaði nám

í myndlist og tískuteiknun, auk

þess að læra fjölda tungumála. Um

það bil sem seinni heimsstyrjöldin

skall á hélt hún með spænsku

kaupfari tíl New York þar sem hún

bjó næstu sex áratugina.

í New York lagði hún fyrir sig

myndlist og fjárfestingar á Wall

Street. Sonja þótti útsjónarsöm í

viðskiptum. Hún ritaði fjölda

greina um tísku í Morgunblaðið á

árabilinu 1938 til 1963.

Sonja kynntist verðandi eigin-

manni sínum, Alberto Zorrilla,

Ólympíumeistara í 400 metra skrið-

sundi, í New York. Þau bjuggu alla

sína tíð á Park Avenue á Manhatt-

an. Alberto lést árið 1986. Þau voru

barnlaus. Sonja kom að mestu al-

komin til íslands áriö 2000.

Útior Sonju verður gerð frá

Reykjavík en síðar verður haldin

minningarathöfn um hana í New

York.                                      -rt

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64