FIMMTUDAGUR 28. MARS 2002 Fréttir DV t Stefnuskráin kynnt Menntamál og efling miöborgarinnar eru meöal helstu stefnumála Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar. Stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningar: Reykjavík í fyrsta sæti - ætla að eyða biðlistum við leikskóla og selja Línu.net Stefhuskrá Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosn- ingar var kynnt á fundi á Hótel Borg í gær. í stefnuskránni er til- greint hvað flokkurinn leggur áherslu á í tólf málafiokkum en kjörorð sjálfstæðismanna í kosn- ingunum er Reykjavík í fyrsta sæti". Kjörorðið endurspeglar að við ætlum að setja nýjan kraft í borg- arlífið. Við ætlum að gera borgina aftur að miðstöð menningar og þjónustu, höfuðborg sem vekur stolt borgarbúa og allra íslend- inga," segir Björn Bjarnason, borg- arstjóraefni Sjálfstæðisflokksins. Við erum að segja að Reykjavík hafi hopað á undanförnum árum og við teljum að kyrrstaða og doði hafi einkennt stjórn borgarinnar. Skuldasöfnun á góðæristímum er til marks um að menn hafa ekki mikla framsýni." Menntamál efst á blaöi Menntamál eru efst á blaði og fá mesta umfjöllun í stefnuskránni. Við lítum svo á að skólarnir séu hjarta í öllum hverfum borgarinn- ar og viljum að þar sé öfiug starf- semi," segir Björn. Því er heitið að biðlistum við leikskóla verði eytt. Þá ætlar Sjálfstæðisfiokkurinn að veita öllum börnum, 18 mánaða og eldri, rétt á leikskólaplássi. Við teljum að það eigi að sjálfsögðu að fylgja eftir því sem ákveðið hefur verið, að leikskólinn sé fyrsta skólastigið og þannig eigi að nálg- ast þetta viðfangsefni," segir Björn. Hefja á tilraun með að heimila 5 ára börnum að fara í grunnskóla. Einnig á að gefa foreldrum tæki- færi til að velja grunnskóla fyrir börn sín, án tillits til búsetu. Efla á samstarf skólastjórnenda, kenn- ara, foreldra og nemenda með því að skipta borginni í skólahverfi og koma á fót fjórum eða fimm skóla- ráðum með fulltrúum þessara að- ila. Þau eiga að koma í stað fræðslu- og leikskólaráða um mál- efni leik- og grunnskóla. Gjöld lækkuö 1 stefnuskránni segir að fast- eignaskattar á húsnæði eldri borg- ara og öryrkja verði stórlækkaðir. Einnig verði tekjuviðmið öryrkja og eldri borgara vegna 50% niður- fellingar fasteignagjalda hækkað og þannig fjölgað þeim sem njóta niðurfellingar að hluta. Þá er þvi heitið að biðlistum eftir hjúkrun- arrýmum fyrir eldri borgara verði eytt. Verja á einum milljarði króna tÚ að mæta brýnni þörf í þessum efnum. Á meðan sjálfstæðismenn fóru með stjórn borgarinnar var mikil áhersla lögð á þennan þátt sem algjörlega hefur verið hunsað- ur af R-listanum," segir Björn. Þá segjast sjálfstæðismenn ætla að leysa húsnæðisvanda fjölskyldna sem eru á biðlistum eftir félags- legu húsnæði. Þeir heita því einnig að lækka fasteignagjöld verulega með þvi að afnema holræsagjald. Hvað fjármál borgarinnar snert- ir segir í stefnuskránni að dregið verði úr skuldasöfnun með hag- ræðingu og sparnaði og eins með tilfærslu verkefna til einkaaðila og félagasamtaka. Fyrirtæki í eigu borgarinnar sem standa í sam- keppnisrekstri við einkafyrirtæki verða seld. Hlutur Reykjavíkur- borgar í Linu.net verður þannig seldur. Við erum alltaf að sjá betur og betur hve þessi skuldasöfnun er mikil," segir Björn Bjarnason. Það þarf að toga þær upplýsingar út með töngum þannig að við verð- um nú að byrja á því að sjá hvern- ig myndin er. En við ætlum að stöðva þessa þróun. Það er auðvit- að ekki viðunandi sem nú hefur komið fram að skuldir orkufyrir- tækja borgarinnar hafa 160-faldast á átta árum, hækkað úr 125 millj- ónum króna upp í 20 miUjarða króna! Það eru engin rök fyrir þessu með hliðsjón af þeim orku- framkvæmdum sem ráðist hefur verið í." íþróttaskólar í iþrótta- og æskulýðsmálum ber það einna hæst að koma á á laggirnar árlegum Reykjavíkurleikum í frjáls- um íþróttum. Auðvelda á íþróttafélög- um að ráða menntað fólk til að þjálfa börn og unglinga og komið á fót íþróttaskólum í hverfum borgarinnar í samstarfi við grunnskólana. Byggja á upp fullkomin keppnissvæði á fjór- um til fimm stöðum í broginni sem verði samnýtt af hverfafélögunum. Fjölga á opnum svæðum fyrir íþrótta- iðkun barna og unglinga, ekki síst á auðum svæðum í eldri hverfum borg- arinnar. í löggæslumálum er stefnt að því að gera löggæsluna sýnilegri, meðal ann- ars með þjónustusamningi við ríkið um löggæslu í borginni. Sett verði á laggirnar miðborgardeild í samvinnu við lögregluyfirvöld, félagasamtök og hagsmunaaðila. Löggæsla í úthverf- um veröi efld í samvinnu við lögreglu, íbúa og aðra hagsmunaaðila. Sérstök áhersla verði lögð á að uppræta fikni- efhavandann. í samgöngumálum ætla sjálfstæðis- menn að beita sér fyrir því að fyrsta áfanga Sundabrautar ljúki. Áhersla verður lögð á mislæg gatnamót á fjöl- fórnum stöðum. Flokkurinn ætlar að beita sér fyrir lagningu Skerjabrautar í framhaldi af Suðurgötu yfir á Álfta- nes um göng eða brú, eftir því hvort reynist hagkvæmara, og könnuð verð- ur hagkvæmni þess að tengja Sæbraut við Örfirisey með brú. Miöborgín verði efld Ég er alveg undrandi að heyra það haft eftir borgarstjóra, Ingi- björgu Sólrúnu, að menn eigi að búa sig undir aö allur máttur fari úr við- skiptalifi og verslun í miðborginni. Það er engu likara en að það sé búið að setja á einhvern úreldingarlista. Við höfum ekki þá stefnu. Við viljum fjölga íbúum í miðborginni og líka auðvelda fólki að stunda þar atvinnu- rekstur í stað þess að leggja stein í götu þess með vitlausri stefnu i um- ferðarmálum og bílastæðamálum." Stoðir miðborgarinnar á að treysta með þekkingarþorpi í Vatns- mýrinni og ráðstefnu- og tónlistar- húsi við höfnina. Stöðumælagjöld í miðborginni verða afnumin þegar lagt er þar skamman tíma. Jafn- framt verða kannaðar forsendur fyrir rekstri miðborgarstrætisvagns sem tekur 20-25 manns í sæti. Þá ætla sjálfstæðismenn að flytja nekt- ardansstaði út fyrir miðborgar- mörkin í samráði við rekstraraðila staðanna. Þessir menn eiga auðvit- að sinn rétt. Við ætlum ekki á níð- ast á rétti þeirra frekar en nokkurs annars manns. Við getum ekki gert þetta nema í góðu samráði við þá. Þannig á auðvitað að nálgast málið en ekki með þeim hætti sem Stefán Jón Hafstein talar um, að það eigi að kæfa þá í einhverri skriffinnsku. Það verður að standa sæmilega að þessu og í samræmi við öll réttindi sem menn hafa." Stefnt er að öflugu átaki til að treysta mannlíf í miðborg Reykjavik- ur og gera hana fjölskylduvæna á ný. Hreinsa á til í miðborginni og hefja markvisst uppbyggingarstarf, til dæmis með því að tryggja að frið- unaráform komi ekki í veg fyrir eðli- lega uppbyggingu og þróun. Áhersla verður lögð á að fjölga íbúum í mið- borginni og treysta forsendur versl- unar og annarrar atvinnustarfsemi. Forsendur verslunar, þjónustu og viðskipta á að treysta í borginni allri en með sérstakri áherslu á miðborg- ina eins og áður segir. I stefnuskránni er heitið nægu lóðaframboði í borginni, bæði fyrir fólk og fyrirtæki. Lóðauppboð verði afnumið. í skipulagsmálum verði lögð áhersla á strandbyggð og skipu- lagningu blandaðrar byggðar í Geld- inganesi, Gufunesi og Gunnunesi, auk íbúðabyggðar á landsvæöi Keldna. Lóð SVR við Kirkjusand á að nýta undir íbúðabyggð og fleira mætti nefna. -ÓTG Í^SJál7:íi/jSJJ REYKJAVÍK AKUREYRI Sólariag í kvöld 20.07 19.52 Sólarupprás á morgun 06.57 06.42 Síðdegisflóö 18.28 23.01 Árdegisflóð á morgun 06.43 11.16 Slydda og rigning Það verður norðaustlæg átt, 13 til 18 metrar á sekúndu og slydda eða rigning sunnan- og austanlands. Lít- ils háttar snjókoma eða él norðvest- an til. Lægir heldur í kvöld og nótt. Hiti 0 til 5 stig sunnanlands, annars frost 1 til 5 stig. Veðrið á !Átij£!JjJ Viða slydda Suðlæg átt og víða slydda eða rigning en úrkomulítið norðaustan til. Veðriönæ Laugardagur ÍiíiÍílrJSJ Sunnudagur Mánudagur HiB0,> tii3c Virsdur. 1-3=1/8 Suolajgáttog vífta slydda eöa rigning. úr- komulítlo norb- Ttll. Hiti 0° «13° Vimlur: 3-5"i/» Austlægáttog sllyddaeoa Notoanátt mo6 snjokomu eöa rignlng um land cljum og kölnar I allt veM Vindhraöi Logn Andvari Kul Gola Stinningsgola Kaldl Stinningskaldi Allhvasst Hvassviöri Stormur Rok Ofsaveöur Fárviöri VeðriðW. m/s 0-0,2 0,3-1,5 1,6-3,3 3,4-5,4 5,5-7,9 8,0-10,7 10,8-13,8 13,9-17,1 17,2-20,7 20,8-24,4 24,5-28,4 28,5-32,6 >= 32,7 '&g&J AKUREYRI snjóél -1 BERGSSTAÐIR snjókoma -1 BOLUNGARVÍK snjóél 0 EGILSSTAÐIR snjókoma 1 KIRKJUBÆJARKL slydda 1 KEFLAVfK snjókoma 0 RAUFARHÖFN alskýjaö 0 REYKJAVÍK slydda 1 STÓRHÖFÐi rigning 4 BERGEN alskýjaö 5 HELSINKI hálfskýjaö 10 KAUPMANNAHÖFN léttskýjað 8 ÓSLÓ alskýjaö 5 STOKKHÓLMUR 8 ÞÓRSHÖFN rigning 10 ÞRÁNDHEIMUR alskýjaö 7 ALGARVE heiöskírt 21 AMSTERDAM léttskýjaö 9 BARCELONA skýjað 14 BERLÍN léttskýjaö 5 CHICAGO alskýjaö -3 DUBUN skýjaö 13 HALIFAX skúr 2 FRANKFURT léttskýjaö 7 HAMBORG léttskýjaö 6 JAN MAYEN úrkoma -1 LONDON skýjaö 11 LÚXEMBORG heiöskírt 7 MALLORCA MONTREAL -1 NARSSARSSUAQ heiöskfrt -10 NEW YORK alskýjaö 8 ORLANDO þokumóða heiðskfrt 17 PARÍS 9 VÍN skýjaö 5 WASHINGTON hálfskýjaö 5 WINNIPEG léttskýjaö -3 BU-.i;v Ai'm.vsiNcuMimvrnuiiMoti isiands