Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš Vķsir - DV

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31 . . . . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 74. tölublaš - Helgarblaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš Vķsir - DV

						14

FIMMTUDAGUR 28. MARS 2002

Helgarblað

I>V

Olíufélögin segjast þegar hafa slegið af bensínverði upp á hálfan milljarð á árinu:

Takmörk fyrir því

sem við getum gert

- segir forstjóri Olíufélagsins - ríkisstjórnin væntanlega með kærkomið útspil

Innlendar fréttir víkun

Eins og DV greindi frá í gær

eru miklar líkur á að ríkisstjórn-

in muni leggja fram frumvarp

um að vörugjald af bensini verði

lækkað timabundið til að vernda

rauða strikið svokallaða. Að

óbreyttu stefndi í að bensín-

hækkun gæti orðið 4-6 krónur

um mánaðamótin en ríkið á

drjúgan þátt i veröi hvers bens-

ínlítra. Hugmyndir eru innan

fjármálaráðuneytisins um að

lækka almenna vörugjaldið úr 10

krónum og 50 aurum á hvern

lítra um 3-4 krónur samkvæmt

upplýsingum DV úr fjármála-

ráðuneytinu. Með því myndi rík-

ið missa verulegan spón úr aski

sínum því hver króna í bensín-

verði jafngildir um 200 milrjón-

um króna árlega.

„Því er ekki aö leyna að þetta

er til skoðunar," sagði Bolli Þór

Bollason, skrifstofustjóri í fjár-

málaráðuneytinu, í samtali við

DV í gær.

Hraðar hendur

Ljóst er að menn þurfa að hafa

hraðar hendur í fjármálaráðu-

neytinu og á þingi í kjölfarið þar

sem semja þarf nýtt frumvarp

um málið. Talið er að einungis

verði um tímabundna ákvörðun

að ræða. Hækkun á heimsmark-

aðsverði sé árstíðabundin og í

ljósi mikilvægis þess að halda

friði á atvinnumarkaði nú og

tryggja stöðugleika sé rétt að

bregðast við með þessum hætti.

Lagabreytingin sjálf getur að

líkindum ekki orðið fyrr en eftir

mánaðamót.

Olíufélögin gert sitt

Talsmenn efhahagslífsins hafa

lýst áhyggjum vegna málsins að

óbreyttu og hafa forvarsmenn ASÍ átt

viðræður við bæði riki og olíufélögin

um hvort þau geti ekki gripið til að-

gerða. Áður en þessar hugmyndir um

útspil ríkisstjórnarinnar komu fram

ræddi DV við ýmsa aðila um þá vá

sem steðjaði að rauða strikinu vegna

fyrirhugaðrar stórhækkunar á elds-

neyti og spurði m.a. Hjörleif Jakobs-

son, forstjóra Olíufélagsins Esso,

hvort röðin væri ekki komin að olíu-

félögunum, ekki síst vegna ágætrar af-

komu þeirra í fyrra. Hjörleifur benti á

að Olíufélagið hefði lagt sitt af mörk-

um það sem af væri ársins. Sem dæmi

hefði bensínverð átt 1. janúar sl. að

Dropinn dýri

Efstjórnvöld samþykkja frumvarp um lækkun vörugjalds á bensíni þurfa íslendingar ekki

aö óttast 6 króna bensínhækkun um mánaöamótin. Nógu dýr er dropinn fyrir, eöa þrefalt

dýrari en í Bandarikjunum.

Björn

Þoriáksson

blaóamaöur

Innlent fi ettalios

lækka um 1 krónu og 65 aura hérlend-

is miðað við gengi og heimsmarkaðs-

verð en verðlækkunin hefði orðið 2

krónur. 1. febrúar sl. hefði verðið átt

að hækka um rúma krónu en þá hefði

verðið staðið í stað. í mars hefði verð-

ið átt að lækka um 25 aura en hafi al-

mennt lækkað um eina krónu. Miðað

Stendur tíl að koma saman fsumar?

Á Úlfljótsvatni er mjöggðð aðstaða fyrir allar stairðir

hópa til styttri eða lengri dvala. Frábairt tjaldstœði fyrir

allargerðir tjalda og tjaldvagna, fjölbreytt leiktceki fyrir

börnin, stór útigrill og 220 fermetra risatjald.

------------------------------------------------------------------                  Jfc<4» i

Leitið upplýsinga ísíma 894 2074           ÚTILlFSMIÐSTÖD SKÁTA,'

eða www.scout.is/ulfljotsvatn                                      ÚlfljóTSVATNI

við heildarsölu á ársgrundvelli hafi

þvi íslenski olíumarkaðurinn tekiö á

sig affóll miðað við heimsmarkaðs-

verð og gengi sem nemi rúmum 400

milljónum króna á bensínmarkaði og

nálægt 80 milljónum króna í dísilolíu.

Framlög olíufélaganna séu því nálægt

hálfum mUljarði á fyrstu þremur

mánuðum ársins sem sé há fjárhæð

miðað við framlegð markaðarins á

ársgrundvelli.

„Það er Olíufélaginu mikið hags-

munamál að rauðu strikin haldi en

það eru takmörk fyrir því sem við get-

um gert. Við munum skoða málið vel

yfir páskana," segir Hjörleifur.

Engin sérstök gjafmildi

Runólfur Ólafsson, framkvæmda-

stjóri FÍB, er ekki alveg sammála

Hjörleifi um þessa „gjafmildi" oliufé-

laganna undanfarið. Hann bendir á að

álagningarhlutfall olíufélaganna hafi

hækkað verulega um mitt síðasta ár

umfram meðalálagningu síðusta miss-

era og olíufélögin hafl virst vera að

mæta óhagstæðri gengisþróun með

þeim breytingum. Nú sé komið jafh-

vægi á markaðinn og því sé eðlilegt að

þeir hafi snúið blaðinu við. „Verðið

hélst óbreytt í febrúar og þá hefði ver-

ið lag til verðbreytinga upp á við. Ef

viðmiðunarpunkturinn er þessi

hækkun á álagningu síðasta árs kann

svo að vera en ef við tökum meðal-

talsálagningu síðustu ára sjáum við

ekki þessum orðum þeirra stað," seg-

ir Runólfur.

Með hæstu álögum

Ónafngreindur háttsettur starfs-

maður eins olíufélagsins taldi það

ekki sanngjarna nálgun að gera olíu-

félögin ábyrg fyrir rauðu strikunum

um mánaðamótin. Vitaskuld ætti rík-

ið að slá af sköttum á bensíni á þess-

um viðkvæmu tímum.

Runólfur Ólafsson segir álagningu

ríkisins hafa verið með því

hæsta sem menn þekki í heimin-

um í verðmyndun hvers bensín-

lítra. Bretar og Norðmenn hafi

verið í flokki með okkur en alla

jafna sé mun minni skattheimta

af eldsneyti en hérlendis. Run-

ólfur er sáttur við þann skerf

sem fari til vegagerðar í landinu

en þar með sé ánægja hans með

skattana upptalin.

Kostar 13 krónur

Ef verðmyndun bensínlítra er

skoðuð og miðað við 91,20 kr.

verð á útseldan lítra af 95 okt-

ana bensíni með afgreiðslu kem-

ur í ljós að strípað heimsmark-

aðsverð er um þessar mundir

um 13 krónur; allt hitt er álögur.

Föst krónutala er innheimt í

formi vörugjalds sem er 10 krón-

ur á hvern lítra. Síðan leggst 65

aura flutningsjöfnunargjald á

dropann, bensingjaldið eða

vegaskatturinn er föst upphæð,

28 krónur og 60 aurar. Virðis-

auki er tæpar 18 krónur miðað

við útsóluverðið nú. Eftir stend-

ur að 57 krónur og 70 aurar eru

skattar af verði 91 krónu bensín-

lítra. Vörugjaldið er almenn

skattheimta og telur Runólfur

hægt að klípa af þvi.

Væri skelfilegt

Gylfl Arnbjörnsson, fram-

kvæmdastjóri ASÍ, sagði við DV

skömmu áður en upplýsingar

bárust um að lækkun vörugjalds

væri til skoðunar hjá ríkinu að

það væri skelfilegt ef verðhækk-

anir á eldsneyti myndu stefna

rauða strikinu í hættu. Þess

vegna teldi ASÍ eðlilegt að ríkis-

stjórnin skoðaði það mjög gaum-

gæfilega hvort hún gæti hlaupið tíma-

bundið undir bagga. Hluti hækkunar-

innar á heimsmarkaði væri vegna

tímabundinnar óvissu. Bandaríkja-

menn hefðu verið dálítið „aggressíflr"

gagnvart íran og fleiri þjóðum og sú

staða hefði áhrif á bensínverð. „Það

væri langeinfaldast að gera þetta í

gegnum vörugjaldið og við höfum

komið því á framfæri við stjórnvöld

hvort ekki sé tímabært að aðhafast

núna," segir Gylfi.

Hann sagði ASÍ hins vegar aldrei

hafa skrifað undir aðferðafræði olíufé-

laganna varðandi verðlagningu á

bensíni en miðað við hana sé rétt að

olíufélögin hafi undanfarið ekki farið

fram með breytingar í samræmi við

fyrri vinnubrögð þeirra. Gylfi tekur

undir orð Runólfs um að einsýnt, sé

sbr. afkomu olíufélaganna í fyrra, að

þá hafi félögin hækkað álagningu um-

talsvert. „Það er því ekki þannig að ol-

íufélögin eigi einhverjar stórar fjár-

hæðir inni," segir Gylfi.

Þrefalt lægra hjá Könum

íslendingar hafa löngum rennt öf-

undaraugum til Bandaríkjamanna en

þar er litrinn á bensíni nú undír 30

krónum. Ef handahófskenndar

stikkprufur eru teknar um saman-

burðarlönd kemur í ljós að Islending-

ar greiða þó ekki hæst verð allra

þjóða fyrir bensín. Þannig sýnir sam-

anburður frá janúar sl. að Bretar

borguðu 116 krónur fyrir 95 oktan,

Finnar 100 krónur, Norðmenn 97, Hol-

lendingar 95, Danir 95 og við 92. Ef

haldið er alla leið til Spánar var verð-

ið þar 66 krónur og 50 hver lítri.

DV spurði Valgerði Sverrisdóttur,

viðskipta- og iðnaðarráðherra, út í

málið en hún sagðist ekki vera skatta-

málaráðherra og vildi ekki rjá sig

nánar.

Lækka vörugjald

Ríkisstjórnin mun væntanlega

leggja fram frumvarp um að vöru-

gjald af benslni verði lækkað tíma-

bundið til að vernda rauða strikið

svokallaða. Að óbreyttu stefnir i að

bensínhækkun geti orðið 4 til 6 kr.

um mánaðamótin. Á móti gæti ríkið

lækkað vörugjaldið af hverjum litra

um 3 til 4 kr.

Vextir lækka

TUkynnt var um 0,5% lækkun

stýrivaxta á ársfundi Seðlabankans

á þriðjudag. Forsætisráðherra segir

þetta tryggja mjúka lendingu í efna-

hagsmálum - og framkvæmdastjóri

ASÍ fagnar. Bankastjóri Landsbank-

ans segir þessa ákvörðun Seðla-

bankans hafa verið skynsamlega og

býst við frekari lækkun vaxta.

Amfetamín í lagi?

Sú fáheyröa staða er komin upp í

réttargæslukerfinu að uppgötvast

hefur að frá því í júní á síðasta ári

hefur láðst að sérmerkja amfetamín

með svokallaðri b-merkingu. Hún

gefur amfetamíni sérstöðu meðal

annarra lyfja á þann hátt að refsi-

vert sé að flytja efhið inn án leyfis

og í öðru skyni en til lækninga. Mál

þetta hefur vakið efasemdir hjá

meðal annars lögreglu um hvort

innflutningur og notkun am-

fetamíns hafi því verið refsiverður

á þessum tíma.

Hnakkadramb og lambakjöt

Taka verður í

hnakkadrambið

á þeim útflytj-

endum lamba-

kjöts sem bera

ábyrgð á því að

henda þurfti

nokkrum tonn-

um kjöts sem átti

að fara á markað

í ESB-löndunum. Þetta er mat

Guðna Ágústssonar landbúnaðar-

ráðherra sem sagði þetta þegar mál-

ið kom til umræðu á Alþingi. For-

maður Bændasamtakanna óttast

um innanlandsmarkað lambakjöts.

Framkvæmdastjóri Norðlenska seg-

ir íslenska sláturleyfishafa til-

neydda til útflutnings á kjöti - og

vill losna við söluskylduna.

Sprengjukona í steininn

íslensk kona, sem kom með þotu

Flugleiða til Minneapolis á sunnu-

dagskvöldið, brá fyrir sig gaman-

málum við tollverði í flugstöðinni

þar. Hún sagði að sprengja væri í

skónum sem hún var í. Sú yfirlýs-

ing var tekin trúanleg og konunni

stungið í steininn. „Þetta er enn eitt

dæmið um að fólk á að tala varlega

í flugstöðvum," sagði Guðjón Arn-

grímsson, blaðafulltrúi Flugleiða.

Ðætur í vinnuna

Dætur starfs-

manna víða um

land fóru með for-

eldrum sínum í

vinnuna á þriðju-

dag í nafni Auðar

í krafti kvenna.

Lögreglustöðin í

Reykjavik var þar engin undantekn-

ing. „Við erum að reyna að fá stelp-

ur til að hugsa um atvinnusköpun og

tilgang fyrirtækja," segir Þorbjörg

Vigfúsdóttir, sem stýrði þessu átaki,

um tilgang þess.

Illdeilur í Hveragerði

nideilur eru meðal sjálfstæðis-

manna i Hveragerði vegna ágrein-

ings um hvað gera skuli við lóðina

Fagrahvammstún. Formaður bæjar-

ráðs vill kaupa lóðina undir eigin

garðyrkjustarfsemi en hluti íbúa,

með Knút Bruun bæjarfulltrúa

fremstan í flokki, vill að íbúðabyggð

rísi á lóðinni. Ásakanir um spUl-

ingu og hagsmunapot hafa gengið í

málinu.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64