FIMMTUDAGUR 28. MARS 2002 21 DV Helgarblað Valgerður Sverrisdóttir. Ég vil að Evrópumálin séu skoðuð af fullrí alvöru. Ég er svo praktísk í skoðunum. Ég reyni að horfa á mál- in út frá öllum hliðum, dálítið kalt, með hagsmuni þjóðarinnar í huga. Ein stærsta spurningin núna er staða íslendinga ef Danir, Sviar og Bretar taka upp evruna. Það þarf ekki að taka svo langan tíma hjá þeim að taka þá ákvörðun. Þá verð- um við í erfiðrí stöðu ef við verðum ekki búin að vinna okkar heima- Norðmanni og standa í deilum við Norðmenn? Nei, það er það ekki. Þetta veld- ur ekki óeirðum á heimilinu. Minn maður er búinn að vera hérna síðan 1972 og hann er harðari en ég í við- horfi til Norðmanna þegar honum finnst þeir ekki standa sig sem skyldi." - Hefurðu orðið vör við það að fólki finnist einkennilegt að kona gegni starfi iðnaðarráðherra og telji þig ekki hafa nægilegt vit á þessum málum? Ég held að það eigi við þarna eins og oft er þegar konur fara inn á nýjar brautir að þeim er í byrjun tekið með fyrirvara. Þetta þarf ekki að stafa af fordómum gagnvart kon- um heldur því að fólki þykir þetta óvenjulegt. En ef allt gengur eðli- lega fyrir sig þá breytist þetta. Ég hef aldrei orðið vör við þetta á þann hátt að ég geti nefnt dæmi. En ég hafði þetta á tilfinningunni til að byrja með. Kannski var það vegna þess að ég var dálítið óórugg og ég vissi að ég var fyrsta konan til að gegna starfi iðnaðarráðherra." - Þú hefur meira sjálfstraust í Finnst ég vera á réttum staö I viðtali við Kolbrúnu Bergþórsdóttur rðir Vál- gerður Sverrisdóttir iðn- aðarráðherra um stór- iðju, Evrópumál, stjórn- arsamstarf og ráðherra- starfið - Þáð mæðir mikið á þér þessa dagana, nú þegar umræðan um ál- ver er svo hávær. Guðjón Guð- mundsson, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins, sagði i DV á dögunum að þú hefðir ekki áhuga á stækkun ál- versins á Grundartanga. Er ekki erfitt að fá svona gagnrýni frá þing- manni samstarfsflokksins í ríkis- stjórn? Hluti af stjórnmálum er gagn- rýni. Ég hef ánægju af að fara í rök- ræður því það gefur mér tækifæri til að svara lið fyrir lið hvernig mál- ið er í raun. Við höfum verið i við- ræðum við orkufyrirtæki. Við höf- um líka beitt okkur fyrir því að fá lagalega úttekt á réttarstöðu Þjórs- árveranefndar til að málið geti farið í lögformlegt umhverfismat sem all- ir hljóta að vera sammála um að er aðalatriði. Það er á misskilningi byggt ef einhver heldur að málið sé ekki komið lengra vegna tregðu í ráðuneytinu. Þvert á móti má halda því fram að vegna þess að við höf- um lagt okkur fram í þeim tilgangi að gera fyrirtækinu mögulegt að fara út i frekari framkvæmdir sé málið þó komið þetta langt." Ábyrgð fjölmiðla Prýðileg samvinna stjórnarflokk- anna - Nú spyr maður sig: Ef ekki stór- iðja fyrir Austfirðinga, hvað þá? Þetta virðist ganga æði brösuglega. Já, en við færumst þó alltaf nær af því að við erum að vinna að und- irbúningi að stórframkvæmdum. Þess vegna hefur tíminn ekki far- ið til einskis. Við vitum af áhuga er- lendra fyrirtækja og vonandi þarf ekki langur tími að líða þar til fram- kvæmdir hefjast." - Verður virkjað við Kárahnjúka? Nú er frumvarpið á lokastigi í þinginu og verður samþykkt fyrir vorið. Ég veit að þessi virkjun er hagkvæmur kostur og Austfirðing- ar eiga kröfu á því að nýta þá miklu auðlind sem er í túnfætinum til at- vinnuuppbyggingar. Svo er gott að vita að verkefhið hefur miklu meiri stuðning meðal þjóðarinnar en áður var." - Lítur þú svo á að þú njótir óskoraðs trausts Davíðs Oddssonar í störfum þínum sem iðnaðarráð- herra? Já, ég er viss um það og hann hefur staðið afar vel með mér sem ráðherra." - Nú segjast pólitískir sérfræðing- ar sjá merki þess að stjórnarsam- starfið sé ekki alveg jafn traust og áður: Stjórnarsamstarf flokkanna hef- ur skilað miklum árangri fyrir þjóð- ina en þetta eru tveir flokkar með ólíkan bakgrunn. Þeir eiga þó margt sameiginlegt og þess vegna hefur samvinnan gengið prýðilega. Við höfum náð gifurlegum árangri en upp á síðkastið hefur borið meira á mismunandi sjónarmiðum. Ég tel að það sé ekki óeðlilegt að eftir langt samstarf komi upp slík staða. En ég er líka sannfærð um að þjóð- in á ekki betri kost en þessa ríkis- stjórn." Þarf að skoða Evrópumálin Eitt sem skilur á milli flokkanna er afstaða formanna þeirra til Evr- ópumála. Þú ert í hópi Evrópu- sinna, allavega opnarðu vel inn á þaumál. Ég vil að Evrópumálin séu skoð- uð af fullri alvöru. Ég er svo praktísk í skoðunum. Ég reyni að horfa á málin út frá öllum hliðum, dálítið kalt, með hagsmuni þjóðar- innar í huga. Ein stærsta spurning- in núna er staða íslendinga ef Dan- ir, Sviar og Bretar taka upp evruna. Það þarf ekki að taka svo langan tíma hjá þeim að taka þá ákvörðun. Þá verðum við í erfiðri stöðu ef við verðum ekki búin að vinna okkar heimavinnu. Sem iðnaðarráðherra hef ég hagsmuni atvinnulífs og iðn- aðar í huga. Rekstur samfélags byggist á ákveðnum þáttum sem verða að vera í lagi. Þetta á til dæm- is við um rekstrarumhverfi fyrir- tækjanna. Þau verða að vera sam- keppnishæf við fyrirtæki annarra Evrópuþjóða. Ef þau eru það ekki þá bera þau sig ekki og þá missum við fólkið úr landi vegna þess að lífskjör hér eru ekki á við það sem þau eru annars staðar." - Hefurðu þá ekki áhyggjur af af- stöðu Sjálfstæðisflokksins til þess- ara mála? Ég veit ekki til að þeir hafi úti- lokað aðild að Evrópusambandinu um alla framtíð og svo er það auð- vitað þeirra mál að móta sína stefnu." - Davíð Oddsson virðist gera það. Mér sýnist að sjálfstæðismenn telji ekki tímabært aö fara i miklar Evrópuspekúlasjónir núna og þyki óöagot á okkur frámsóknarmönn- um." Hef styrkst í starfi - Víkjum aðeins að einkalífinu. Er ekki erfitt fyrir þig að vera gift þessu starfi en áður, er það ekki? Maður sjóast í svona starfi eins og öðrum. Ég kom mjög skyndilega inn i þetta ráðuneyti. Fékk engan umhugsunartíma. Ef stjórnmála- manni er boðinn ráðherrastóll þá tekur maður honum. Ég hef styrkst i þessu starfi." - Ráðherrastarfið er annasamt starf og svo ertu á sífelldu flakki milli landshluta, býrð stundum í Reykjavík og stundum á Lómatjörn. Er þetta ekki slítandi? Það er slítandi en líka mjög gef- andi. Gefandi af þvi ég er mann- eskja sem líður best þegar mikið er að gera og mikið er fram undan. Þannig finnst mér ég vera á réttum stað - kannski í draumastarfi." - Draumastarfið. Nú eru kosning- ar á- næsta ári og ekki sjálfgefið að þú verðir ráðherra, Er ekki erfið til- hugsun að eiga hugsanlega eftir að verða óbreyttur þingmaður aftur? Ég held að það sé mjög mikil- vægt að ráðherra geri sér grein fyr- ir því að ráðherraembætti eru tíma- bundin, þótt stöðugleikinn i þvi starfi hér sé reyndar meiri en al- mennt gerist í nágrannalöndunum. Ég veit reyndar að ég mun sakna mjög mikið starfsfólksins í ráðu- neytunum en maður verður sífellt að hafa í huga að maður á ekki ráð- herrastólinn." ...þar sem meistararnir mceta! Miðwlkudagskvöld til kl 3: Lúdó og Stefán Fimmtudagur Skírdagun Opið til miðnættis Föstudagurinn langl: LOKAO________ Laugardagskvöld tll kl. 3: DJ Siggi Hlö(Frittinn). Páskadagur frá mlðnætti Ul kl. 03: Geirmundur Valtýsson og hljómsveit. I BEINNI A 3 BREIÐTJOLDUM: Miðvikudagur 27. mars Kl. 19.30 írland - Danmörk Kl. 19.30 Holland - Spánn Kl. 20.00 England - Italía Laugardagur 30. mars Kl. 12.00 Leeds - Man.Utd Kl. 15.00 Liverpool - Charlton Kl. 15.00 Arsenal - Sunderland Kl. 19.30 Juventus - Lazio Kl. 20.00 Barcelona - Las Palmas Annar í páskum 1. apríl Kl. 19.00 Blackburn - Southampton Kl. 14.00 Tottenham - Leeds "Þetfo er óvenjulegt skoskt lið, þvíþeir eru meO góða leikmenn." - Javier Clemente, þjálfarí Spánar, að hrósa U21 liði Skota. Stórhöfði 17 www.champlons.is Textavarp 668 Hidegishlaðborð vlrka daga LUDO OG STEFAN GEIRMUNDUR VALTYSSON S I G G I H L 0