26 FIMMTUDAGUR 28. MARS 2002 Helgarblað ___^._ Brad faldi sig á bak við skeggið Hjartaknúsarinn Brad Pitt vakti óneitanlega mikla athygli á dögun- um þegar hann kom til frumsýning- ar kvikmyndarinnar Panic Room vestur í Los Angeles. Pilturinn var fúlskeggjaður og með dökk gleraugu á nefinu. Samt tókst honum ekki að blekkja nærstadda, því bæði al- menningur og ljósmyndarar hópuð- ust í kring um stórstjörnuna. Brad Pitt var kjörinn kynþokka- fyllsta Hollywoodstjarnan fyrir nokkrum árum. Þá var hann með skegghýjung, eins og sexí karla er siður, en aldrei fyrr höfðu aðdáend- urnir séð hann jafn loðinn um kinn- arnar og um daginn. Harrison Ford með Calistu Gamla brýnið og húsasmiðurinn Harrison Ford er nú ekki lengi að því sem lítið er. Hann virðist sem sé hafa jafnað sig eftir hjónaskilnaö- inn og er kominn með hina hold- rýru Calistu Flockhart úr Ally McBeal sjónvarpsþáttunum undir arminn, Að minnsta kosti sát til gamla Hollywoodgæjans leiðandi leikkonuna ungu í sólskininu vest- ur í Kaliforníu. Harrison og Calista virtust virkilega njóta þess að vera saman. Þau flissuðu og flissuðu og hún horfðí í augu hans," sagði sjónvar- vottur að öllu saman. Skötuhjúin brugðu sér meðal annars inn í skartgripaverslun. Ikvöld og annað kvöld verður sýnd í Sjónvarpinu ný Islensk heimildar- mynd um Guðberg Bergsson. Um- sjónarmaður myndarinnar er Tómas R. Einarsson sem hingað til hefur fremur verið þekktur fyrir kontrabassann, tón- list og þýðingar. Ég hef verið í smá- vægilegum statistahlutverkum," segir Tómas um reynslu sína af kvikmynda- gerð, en ég hef hins vegar komið nokk- uð nálægt blaðamennsku í gegnum tíð- ina og tekið viðtöl, reyndar aðallega við rithöfunda. Að því leyti er ég ekki reynslulaus. Hinn sjónræni hluti er síð- an í umsjá Þorgeirs Gunnarssonar." Aðaluppreisnarmaðurinn Ég hitti Guðberg Bergsson fyrst fyr- ir 17 árum," segir Tómas, þegar ég tók við hann viðtal fyrir Þjóðviljann. Nokkrum árum síðar samdi ég lag við ljóð eftir hann. Við kjöftuðum líka stundum í síma og þá aðallega um suð- ur-amerískar bókmenntir og spænsk- ar." Verkefnið sem lítur dagsins ljós í kvöld kom þannig til að Tómas hafði legið yfir ævisögum og ljóðabókum spænskra höfunda sem voru félagar Guðbergs í Barcelona um 1960. Það rann upp fyrir mér að þetta væri ekki ótengt islenskri bókmenntasögu. Hann var í Barcelona í átta ár og það um- hverfi skipti rithöfundinn Guðberg Bergsson, aðaluppreisnarmanninn í ís- lenskum bókmenntum á síðari hluta tuttugustu aldarinnar, miklu máli. Þá kviknaði þessi hugmynd um að gera heimildarmynd um Guðberg. Ég færði þetta í tal við Halldór Guðmundsson en hann og Þorgeir Gunnarsson höfðu gert fjóra þætti um Halldór Laxness. Þá kom í ljós að þessi hugmynd hafði einnig borist í tal þeirra á milli. Við slógum saman þrír en slðan þegar Halldór tók við forstjórastöðu hjá Eddu hafði,hann ekki tíma þannig að við Þorgeir tókum verkefnið að okkur." Mikill prakkari Viðar Eggertsson leikstjóri sagði í viðtali í DV um það leyti er hann leik- stýrði Öndvegiskonum eftir Werner Schwab að Guðbergur og Schwab ættu það sameiginlegt að skrifa af fullkomnu miskunnarleysi um fólkið sem þeir þekkja svo vel. Ef manni þykir nógu vænt um fólk þá getur maður sagt því sannleikann," sagði Viðar og Tómas tekur undir orð hans. Þessi hreinskilni Guðbergs er einkennandi," segir Tómas. Hún felst i rauninni i því að hann smjaðrar aldrei heldur segir hug sinn allan án nokkurrar hugsunar um hags- muni. Kannski dvölin á Spáni hafl auð- veldað honum þetta því það er erfitt að vera hreinskilinn í mjög smáu samfé- lagi. En þó held ég að það hafi ekki skipt sköpum, þetta er karakter Guðbergs. Hann getur verið mjög óvæginn og það birtist helst í blaðagreinum hans. Fáir eru þó eins mikil prúðmenni í viðkynn- DV-MYND HARI Hin öfluga hljómkviða Þetta er engin hundraö prósent hallelújamynd enda hefði þaö veriö fáránlegt að gera slíka mynd um Guöberg Bergsson. Þaö má segja að tilgangurínn með þessarí mynd sé aö hluta til að reyna að skilja hvernig hann varð þessi helsti uþpreisnarmaður íslenskra bókmennta sem sló nýjan tón með hinni öfíugu hljómkviðu sem Tómas Jónsson: metsölubók var," segir Tómas R. Einarsson um nýja heimildarmynd um Guöberg Bergsson sem sýnd verður I Sjónvarpinu í kvöld og annað kvöld. Enginl00% hallelújamynd - Tómas R. Einarsson ræðir um nýja heimildarmynd um Guðberg Bergsson ingu og Guðbergur en hins vegar býr i honum mikill prakkari og í því felst einn af hans stóru kostum sem rithöf- undar." Nýrtónn Tómas vill að aðrir dæmi um það hvort takist að lýsa Guðbergi. Ég er ekki ósáttur við niðurstöðuna," segir hann. í rauninni er sá sem klippir saman svona mynd að búa til sinn eigin Guðberg; að einhverju leyti er maður ábyrgur fyrir þeirri mynd sem er dregin upp. Það var þó ekki lagt upp með fyrirfram- gefna sýn sem við vildum ná fram. Miovikudaginn 17. apríl / næstkomandi fylgir DV glæsilegur blaöauki um brúokaup. Fjallao verour il um allt bao sem viokemur Églundirbúningi og framkvæmd brúokaupsins ásamt nauösynlegum hollráöum til aö dagurinn megi veröa sem eftirminnilegastur fyrir brúöhjónin og gesti þeirra. Auglýsendur, athugið Síöasti skiladagur auglýsinga er föstudagurinn 12. apríl. Sími 550 50001 Fax 550 5727 I Netfang auglysingar@dv.is Það má segja að hún hafi sprottið eðlilega. Þetta er engin hundrað prósent hall- elújamynd enda hefði það verið fárán- legt að gera slíka mynd um Guðberg Bergsson. Það má segja að tilgangurinn með þessari mynd sé að hluta til að reyna að skilja hvernig hann varð þessi helsti uppreisnarmaður íslenskra bók- mennta sem sló nýjan tón með hinni öfl- ugu hljómkviðu sem Tómas Jónsson: metsölubók var. Ég held að þar komi til ýmsir þættir, bæði er það upprunaleg skapgerð Guðbergs, uppvöxturinn i Grindavík og það að lenda i suðupotti framandi menningar í Barcelona." Hann horfir í kvöld Verkefnið óx Tómasi aldrei í augum. Þetta var fyrst og fremst skemmtileg vinna. Það er til dæmis gaman að tala við Guðberg, meðal annars vegna þess að sjónarhorn hans er oft óvænt og fjarri því að vera það sem maður býst við. Hann er oft illynnislega fyndinn, líka býsna spakur og allt þar á milli." Hann veit ekki hvernig Guðbergi muni líka verkið. Hann verður bara að horfa í kvöld," segir Tómas því Guðbergur hefur ekki enn séð myndina. Hann hefur ver- ið tilbúin í öll viðtöl og flakkað með okk- ur um Spán. Hann hefur hins vegar aldrei spurt út í myndina að öðru leyti. Þetta er á okkar ábyrgð og hann skilar sínu. Það væri heldur ekki í hans anda aö reyna að hafa áhrif á útkomuna." Jaime Salinas, útgáfufstjóri og vinur Guðbergs, hefur verið Tómasi og Þor- geiri haukur í horni við gerð myndar- innar. Hann hefur reynst okkur ótrú- leg hjálparhella," segir Tómas. Hann þekkir bókmenntalífið á Spáni út og inn og það virtist nóg að nefna þau nöfn sem við höfðum áhuga á að tala við og þá sá hann um afganginn. Þar var engin fyr- irhöfn spöruð. Ef ég vil þakka einhverj- um þá er það Jaime Salinas og svo auð- vitað Guðbergi Bergssyni sjálfum." -sm