Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš Vķsir - DV

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31 . . . . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 74. tölublaš - Helgarblaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš Vķsir - DV

						FIMMTUDAGUR 28. MARS  2002

x>v

37

Helgarblað

Guölaugur vildi fá að

vera með Drottni

„Svo var ég einn daginn aö aka í

Cadillacnum eftir Suðurlandsbraut-

inni og þá hringdi síminn. Þetta var

Eiríkur Sigurbjörnsson, stofnandi

Omega, sem bauö mér að vera með

vikulegan þátt á stöðinni. Ég ræddi

við þá og fór heim og bað til Guðs

og var að reyna að átta mig á því

hvort þetta væri hans vilji. Þá rifjað-

ist allt í einu upp fyrir mér sýn sem

ég sá 1992 þegar ég var \ biblíu-

skóla í Ameríku. Þá sá ég sýn, sjálf-

an mig á hvítu tjaldi, og þegar ég

mundi þetta ákvað ég að segjajá."

þeirra sem biðja til Föðurins að játa

syndir sínar, biðjast fyrirgefningar

sem og að fyrirgefa öðrum. Þetta

sagði Frelsarinn mér og leiðbeindi

mér um það hvernig ég ætti að

kenna Faðirvorið."

Fyrir þá sem eru ekki vanir að

sjá aðra en þá sem eru af þessum

heimi og eiga við mann jarðbundin

erindi eins og gamlar skuldir, óunn-

in verk eða vilja selja manni bíl, er

þetta dálítið stór biti að kyngja. En

það er augljóst að fyrir þeim sem

hefur höndlað Herrann eins og seg-

ir í kvæðinu er þetta lifandi og virk-

ur sannleikur og veruleiki.

Bænin og hjónabandið

Guðlaugur segist hafa alist upp við

mikið og lifandi trúarlíf en foreldrar

hans voru mjög trúaðir og móðir

hans var alin upp í Betel-söfnuðinum

í Vestmannaeyjum. Hann starfar sem

trúboði í dag og rekur sitt eigið

kristniboðsstarf ásamt eiginkonu

sinni, Kolbrúnu B. Jónsdóttur, sem er

jafnan með honum í þáttunum á

Omega eins og þeir sem horfa á stöð-

ina kannast eflaust við. Guðlaugur

segist hafa beðið Drottin mikið um

það á sinum yngri árum að hann

mætti verða hamingjusamur og hann

segist vera hamingjusamur í sínu

hjónabandi meðal annars vegna þess

að þau hjónin eru samstiga í trúnni

og biðja saman.

„Það er svo nauðsynlegur þáttur í

sambandinu og ég á erfitt með að

hugsa mér fullkomið hjónaband án

þess."

Guðlaugur var í sambúð áður og

segist heiðra þá konu og virða sem

jafnframt er móðir þriggja barna

hans. Með Kolbrúnu á hann tvö börn

og í ljósi þess hve Guðlaugi verður

tíðrætt um að velja það rétta í lífmu

er freistandi að spyrja hann hvort

það sé ekki erfítt verkefni að ala upp

börn í nútímaþjóðfélagi í réttum

kristilegum anda.

Guð er hvorki kýr né kanína

„Það er það alls ekki. En það verð-

ur að hjálpa þeim og kenna þeim að

velja rétt, að velja það sem gefur góð-

an andlegan ávöxt en ekki það sem er

neikvætt og ber dauðann í sér. Það er

gríðarlegt framboð af alls konar efni í

blöðum, fjölmiðlum og kvikmyndum

sem ber með sér andlegan dauða. Við

leitumst við að lifa lífinu lifandi og

njóta blessana Föðurins í Kristi Jesú

en hins vegar að forðast það sem elur

á synd holdsins.

Líkaminn er muster GUðs, okkar

musteri og það má ekki gleyma þvi að

Guð skapaði manninn í sinni mynd.

Þegar við sjáum Guð þá er hann í

mannsmynd. Hann er hvorki kýr né

kanína heldur hefur útlit sem maður.

Það má ekki þvinga börnin heldur

kenna þeim að velja rétt og forðast

freistingar en ég myndi ekki segja að

það væri erfitt. Ef maður elskar

Drottin i hjarta sínu, þá langar okkur

að þóknast vilja hans."

Stærsti sértrúarsöfnuðurinn

- Þegar ég spyr Guðlaug hvort fjöl-

skylda hans tilheyri einhverjum sér-

trúarsöfnuði þá svarar hann því til að

þetta orð eða heiti sé yfirleitt rang-

lega notað:

„í minum huga er stærsti sértrúar-

söfnuður landsins lúterska kirkjan.

Sértúarsöfnuðir eru þeir sem nota

hluta af Guðs orði en hafna öðru og

gera það sem þeim hentar og búa

þannig til sínar eigin trúarathafnir

gegn Guðs orði. Við eigum að tilbiðja

Föðurinn í anda og sannleika, Faðir-

inn leitar slíkra. Andinn er í Heilög-

um anda og sannleikurinn er Guðs

Orð. Sumir segja að Biblían sé aðeins

mannanna verk og sumt sem þar

stendur eigi ekki erindi til okkar en

ég segi að Guðs orð úreldist aldrei.

Allt sem er ritað þar er satt. Það er

líka talað um bókstafstrúarmenn í

neikvæðum skilningi en ég er bók-

stafstrúarmaður því við eigum að

trúa orðinu og rannsaka það."

Ellefti september - hefnd

fyrir hórdóm

- Það er freistandi að spyrja Guð-

laug, sem heldur þvi fram að myrkrið

muni vaxa á síðustu tímum og að

heimurinn sé að fara í gegnum sitt

lokaskeið og endi síðar með dómi og

heimsendi þar sem óllu sem tilheyrir

Djöflinum þar með töldum öllum

þeim sem vantrúaðir eru verði varp-

að í eldsdíki, hvort hryðjuverkin sem

framin voru ellefta september í

Bandaríkjunum hafi einhverja sér-

staka merkingu í þessu samhengi.

Eru þau með einhverjum hætti tákn

um að heimsendir sé í nánd?

„Ég held að turnarnir tveir hafi

verið tákn um stærilæti mannsins og

bandaríska þjóðin hefur drýgt stórar

syndir. Þótt þeir sem frömdu hryðju-

verkin hafi ekki verið kristnir þá

blöskraði þeim sá hórdómur og sið-

spilling sem Bandaríkin dreifa um

allan heim gegnum sínar kvikmyndir

og tónlist. Það er sannarlega verk

Frelsarinn mættur

- Af þessu má ráða að hinum

hreintrúuðu finnist við lifa á við-

sjárverðum timum og þegar litið er

yfir listann yfir allt það sem er at-

hugavert við okkar tima þá hljótum

við að telja þetta nokkuð hörð orð.

„Þetta eru ekki hörð orð," segir

Guðlaugur. „Þetta er sannleikur-

inn."

Guðlaugur er nefnilega eins og

aðrir sem trúa. Hann virðist ekki ef-

ast því hann veit að hann er hólp-

inn. Þegar hann situr andspænis

dauftrúuðum blaðamanni DV og

nær sér á flug í orðræðu sinni um

vonsku heimsins en mildi Guðs og

réttlæti þá skynjar maður þann sér-

stæða sannfæringarkraft sem

mönnum af hans tagi er gefinn.

Samt er sumt af því sem Guðlaugur

segir frá óneitanlega á jaðri þess að

vera af þessum heimi.

Hann segir frá því eins og hvers-

dagslegum hlut þegar Frelsarinn

birtist honum eitt sinn um nótt fyr-

ir fáum árum og var mikið niðri

fyrir. Hann vildi fá Guðlaug til þess

að endurskoða Faðirvorið. „Ég bað

hann að útskýra þetta nánar fyrir

mér og það gerði hann. Síðan hef ég

alltaf beðið eins og hann kenndi

mér: Fyrirgef oss vorar syndir svo

sem vér og fyrirgefum öðrum,

þeirra syndir. Þannig hefur bænin

tilætlaðan framgang og tilgang í lífi

DV-MYNDIR ÞOK

Guðlaugur og Kolbrún, kona hans, eru saman á skjánum

„Guðlaugur segist hafa beðið Guð mjög mikið um það á sínum yngri árum að hann mætti verða hamingjusamur og

hann segist vera hamingjusamur í sínu hjónabandi meðal annars vegna þess að hjónin eru saman í trúnni

og biðja saman. Pilturinn á myndinni er sonur þeirra sem aðstoðar við beinar útsendingar.

Djöfulsins sem þar leggur undir sig

salir mannanna og ef það má segja

eitthvað um þessa atburði þá voru

þeir viðvörun til Bandaríkjamanna

og heimsins áminning til okkar um

að þjóðir geta gerst syndugar og geng-

ið í berhögg við orð Drottins rétt eins

og einstaklingar og kalla þar með yfir

sig dóm, en þá er að iðrast og gera

betur."

Guðlaugur segir að miðja heimsins

sé ísrael í trúarlegum skilningi og

svo muni verða svo lengi sem jörðin

stendur. Sáluhjálp heimsins sé fólgin

í ísrael því þaðan kom Frelsarinn og

mun aftur koma. Hann segir að sig

varði ekkert um það sem nútíminn

segir, að stofnun Israelsríkis hafi ver-

ið mistök og þeir verði að draga sig

frá hernumdum svæðum.

Það fer ekki hjá því að Djöfullinn

berist í tal þegar rætt er við mann

sem er eins harðtrúaður og Guðlaug-

ur. Það kemur i ljós að hann þekkir

vel til hans og verka hans og ítrekar

að hann sé raunverulegur meðal

mannanna og sitji um sál þeirra nótt

og dag og leitist við að koma þeim i

freistingu og afbrot.

Lifa á nöglunum

- Guðlaugur segir að hann og Kol-

brún séu meðal þeirra sem koma

fram í sjálfboðavinnu á Omega en

þeirra lifibrauð er annars frekar jarð-

bundið því Kolbrún rekur snyrtistofu

og er tvöfaldur Islandsmeistari í

gervinöglum. Guðlaugur viðurkennir

að segja megi að þau hafi verið upp-

hafsmenn að þeim faraldri gervinagla

sem notið hefur mikillar hylli undan-

farin ár.

„Kolbrún er afar fær í þessu fagi og

eftirsótt. Henni hefur verið boðið að

taka þátt í stærstu keppnum bæði

austan og vestan hafs."

Þau hjón hafa sótt biblíuskóla í

Bandarikjunum í nokkur skipti og

sóst eftir að kynna sér það sem efst er

á baugi í þessum efnum. Guðlaugur

segir að það standi enginn söfnuður

að baki Omega heldur sé sjónvarps-

stöðin óháð og nokkurs konar predik-

unarstóll og tækifæri fyrir þá sem

hafa fram að færa lifandi boðskap til

þjóðarinnar, þeir geti keypt sér tíma

á stöðinni."

Hann segir að sjónvarpsstöðin sé

rekin á frjálsum framlögum og jafn-

framt séu aðilar sem kaupa tíma á

stöðinni

Fermingin er ónauðsynleg

-  Páskarnir sem nú ganga í garð

eru stórhátíð kirkjuársins og ferm-

ingar setja mjög svip sinn á þessa há-

tíðisdaga. Það er freistandi að spyrja

eins rétttrúaðan mann og Guðlaug

hver afstaða hans sé til ferminganna.

„Það er ekkert i ritningunni sem í

raun styður fermingu né barnaskírn.

Fólk þarf að gera sér grein fyrir að

maðurinn þarf að endurfæðast til ei-

lífs lifs, maðurinn þarf að deyja sjálf-

um sér til að lifa Kristi Jesú og verða

eitt með Orðinu. Almennt talað hefur

barnaskírn eða ferming Utið með ei-

líft lif að gera, mér sýnist ekki heldur

að þetta fólk vilji gangast við Orði

Guðs né heldur að ganga Guðs veg yf-

irleitt, heldur frekar breiðan veg

syndar sem liggur til helju. Þó er al-

gengt að fullorðið fólk segi; ég hef

mína trú, sem það þá jafnvel kallar

barnatrú en er þó þegar betur er að

gáð einhver trú sem byggð er á ein-

hverjum hefðum sem viðgengust í

þeirra uppeldi en miðast ekki við

Guðs Orð og er því margbreytileg eft-

ir einstaklingum."

Vill ekki heyra sannleikann

„Spurningin er bara þessi: Ætla

menn að vænta þess að Frelsarinn

vilji við þá kannast eða ætla þeir að

segja Guðs Orð húga? Það er mikil

trúarvakning í landinu okkar góða en

það er kannski ekkert sérstaklega

mikill áhugi fyrir því hjá fólki að

heyra sannleikann, né heldur að fólk

vilji játast því að Biblían sé Orð Guðs

og sé hinn eini sannleikur og satt að

segja eru þeir fáir sem vilja beygja sig

undir Orð Drottins. Sannleikurinn á

ekki upp á pallborðið hjá fjöldanum.

En það þýðir samt ekki að skirrast

við að segja sannleikann annað veif-

ið," segir hinn einbeitti sjónvarpspré-

dikari að lokum.                       PÁÁ

+

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64