Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš Vķsir - DV

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31 . . . . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 74. tölublaš - Helgarblaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga breidd


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš Vķsir - DV

						FIMMTUDAGUR 28. MARS 2002

55

DV

Tilvera

Myndgátan

Myndgátan hér

til hliöar lýsir

orðtaki.

Lausn á gátu nr. 3267:

Lífbein

Bridge

EM í para- og sveitakeppni 2002:

ítölsku stór-

meistarárnir

sigruðu

Parasveitakeppni Evrópumótsins

í Ostende lauk sl. föstudagskvöld

með sigri ítölsku stórmeistaranna,

Duboins, Versace, Ferraros, Cuzzi,

Erharts og svo kostarans, Maria

Lavazza. Sterk frönsk sveit, með

gómlu kempunni Stoppa, fékk

silfrið en blönduð sveit Búlgara,

ísarela og Tyrkja bronsið.

Besti árangur íslendinga í sveita-

keppninni var 29. sæti hjá sveit

Önnu ívarsdóttur (Þorlákur, Bryn-

dís, Ómar), 39. sæti hjá sveit Krist-

jáns Blöndals (Hjördís, Matthías,

Ljósbrá) og 47. sæti hjá sveit Öllu

(Valur, María, ísak, Ragnheiður).

Sveit Öllu, sem dregur nafn sitt af

gælunafhi eiginkonu Vals Sigurðs-

sonar, stóð sig vel og var í sjötta

sæti að loknum níu umferðum af

sextán. Hún spilaði flesta leiki sína

fyrri hluta mótsins á efstu borðum

og mætti þar af leiðandi mörgum

sterkustu sveitum mótsins. I ní-

undu umferð mætti hún sterkri ítal-

skri sveit, sem kallaðist FIGB 1. Sá

leikur vannst 22-8 og spilið i dag á

stóran þátt í því.

V/Allir

*  G9S4

»1097

*  A943

*  62

Stefán

Guðjohnsen

skrifar um bridge

*  D10G3

»Á632

*  876

*  KIO

N

V      A

S

*  872

WKDG8

*  KDS

*  ÁG4

?  ÁK

»54

?  G102

?  D987S3

Sagnir á báðum borðum voru

eins, eftir opnun austurs á einu

grandi og hálitaspurningu vesturs,

varð austur sagnhafi í fjórum hjört-

um.

í lokaða salnum spilaði suður út

tigulgosa gegn fjórum hjörtum Vals.

Norður drap á ásinn og spilaði

meiri tígli. Valur átti slaginn og

hann tók nú trompin og spilaði

spaða. Slétt unnið og 620 til Öllu.

í opna salnum sátu ísak Sigurðs-

son og Ragnheiður Nielsen n-s.

Ragnheiður var alls ekki í vafa,

hvernig spila bæri vörnina. Hún

spilaði út spaðakóngi, ísak lét fjark-

ann, síðan spaðaás og nú kom nían

frá ísak. Það var greinilega tígulkall

og tígull fylgdi í kjölfarið. ísak drap

á ásinn, spilaði spaða sem Ragn-

heiður trompaði. Einn niður og Alla

græddi 12 impa.

í síðasta þætti féll lokasögnin nið-

Ragnheiður Nielsen

var alls ekki í vafa, hvernig spila

bæri vðrnina.

ur hjá ísaki, en glöggir lesendur

hafa áreiðanlega fundið út, að hún

var þrjú grönd.

íslandsmótið í bridge

Úrslitakeppni íslandsmótsins í

bridge er hafið og er spilað í nýju

húsnæði Bridgesambands íslands

við Síðumúla 37. Áhorfendur ættu

ekki að láta hjá líða að fylgjast með

flestum bestu bridgespilurum lands-

ins keppa um hinn eftirsótta titil.

Ekta fiskur ehf.

J     S. 4661016 J

Utvalnaóttr saltfiskttr,

án be'ina, tiludsjóöa.

Sérútvatnadur saltfisktir,

án beina, tilað stetkja.

Saltfisksteikitr (Lomos)

Jyrir veitingahús.

Hérna og jæja

Ég viðurkenni það hér með að

ég er haldinn þeim kæk að láta

kæki annarra fara heilmiklð í

taugarnar á mér og þá sérstak-

lega þegar ég sit og horfi á fólk

í sjónvarpinu. Þetta hefur færst

í aukana með árunum og um

daginn skipti ég hreinlega um

stöð eftir að hafa talið yfir tutt-

ugu „hérna" hjá einum viðmæl-

anda sem sat fyrir svörum. Þau

hafa eflaust verið fleiri því að

ég byrjaði ekki að telja fyrr en

um mínúta var liðin af viðtalinu

og veit ekki hvað það var langt.

Ekki tók betra við á næstu stöð

því það var hin heimsþekkta

Omega þar sem aðalpersóna

þáttarins sagði „halelúja" í tíma

og ótíma. Þá var komið að

þriðju stöðinni og þá var ég

kominn að því að slökkva þegar

fimm „jæja" höfðu bæst í kækja-

hópinn eftir rúmlega mínútu

áhorf. Gat þetta hérna verið til-

viljun á einni kvöldstund eða

eru kækir hérna orðnir landlæg-

ir. Jæja, kannski er ég svona

sjálfur, hugsaði ég og ákvað að

taka hérna strax á málinu áður

en það ylli hérna frekari heilsu-

skaða. Var mögulegt að ég væri

sjálfur með kæk sem ég hérna

gerði mér ekki grein fyrir eins

og hérna áðurnefnd fórnarlömb?

Jæja, ég rifjaði því í gamni

upp ýmsa kæki sem þekktir eru,

en gat hérna sem betur fer ekki

beint heimfært neinn þeirra á

mig sjálfan, eða það held ég.

Jæja, alla vega ekki kækinn sem

hérna hrjáði einn skólabróður

minn sem var hérna sá að hann

hneppti hérna sífellt tölum þess

sem hann talaði við. Þetta gat

hérna stundum orðið vandræða-

legt, eftir því hver átti hérna í

hlut.

Myndasögur

Sandkorn

Umsjón: Birgir Guömundsson • Netfang: sandkorn@dv.is

Ymsar skipulagsbreytingar eru

nú í gangi hjá Ríkisútvarpinu og

heyrist því fleygt að fljótlega eftir

páska verði auglýst eftir tveimur

nýjum yfir-

mönnum i kjöl-

far skipulags-

breytingar.

Þetta eru stöð-

ur rásarstjóra

Rásar 2 og rás-

arstjóra Rásar

1. Kemur þetta

til í kjölfar

áforma um að

flytja höfuðstöðvar Rásar 2 norður

til Akureyrar þar sem m.a. stendur

til að flytja starfsemina á nýjan

stað. Ýmsir hafa verið nefndir sem

kandídatar í þessi störf en það hef-

ur vakið athygli að deildarstjóri

RÚAK fyrir norðan, Sigurður Þór

Salvarsson, er kominn í nokkurra

mánaða frí og mun því ekki taka

þátt í undirbúningi fyrir breyting-

arnar á Akureyri. Engu að síður er

talið að Sigurður eigi góða mögu-

leika á rásarstjórastöðu á Rás 2 ef

hann sækir um hana ...

En það er víðar hjá RÚV sem

verið er að breyta til því samhliða

þessum breytinginu á stöðum rás-

arstjóra er verið að vinna að breyt-

ingu á frétta-

stofum. Að því

verki koma

sem kunnugt

er m.a. ráðgjaf-

ar frá Deloitte

og Touche. I

bígerð er að

gera að raun-

veruleika hug-

myndina um

að stofna stöður yfirmanns frétta-

deilda, eins konar yfirfréttastjóra,

sem muni þó fyrst og fremst sjá

um rekstrarlega hluti og það sem

lýtur að samvinnu fréttastofu Út-

varps og Sjónvarps. Ekki mun hug-

myndin að hreyfa við Kára

Jónassyni enda stýrir hann frétta-

stofu Útvarps með sérlega styrkum

hætti en sagt er að Bogi Ágústs-

son muni verða yfirmaður frétta-

deilda en Elín Hirst verði frétta-

stjóri Sjónvarps ...

Talsverð títrÍngS er nú farið

að gæta í stjórnarsamstarfinu og

tala þingmenn nú orðið opinskátt

um að ákveðin þreytumerki séu far-

in að koma í ljós.

Til marks um

þetta segja menn

að séu ýmsar at-

hugasemdir sem

liðsmenn stjórn-

arflokkanna láta

falla án þess að

skeyta          um

hvort það komi

samstarfsflokk-

um eða einstaklingum vel. Á sama

hátt segja menn að þeir sem verði

fyrir athugasemdum af þessu tagi

frá samstarfsaðilanum séu fljótir að

stökkva upp á nef sér. Þannig mun

t.d. framsóknarmönnum ekki hafa

verið skemmt þegar Davíð Odds-

son notaði orðalagið „yfirgripsmik-

ið þekkingarleysi" um þá sem vilja

skoða ESB-aðild og töldu skeyti

þessu á lítt dulbúinn hátt beint að

framsóknarráðherrum ...

Umræðan á Alþingi um utan-

ríkismál varð nokkuð heit í fyrradag

og það vakti athygli að hitinn varð

einna mestur milli þeirra stjórnar-

andstöðuleið-

j toga, Össurar

Skarphéðins-

sonar og Stein-

gríms J. Sig-

fússonar.

Steingrími leist

ekki á Evrópu-

dekur Össurar

• og gerði lítið

úr því að Sam-

fylkingin væri hrifin af Evrópumál-

unum og sagðist ekki geta haft

áhyggjur af sálarástandi Össurar. Af

þessu tilefni orti Halldór Blöndal:

Um sálarástand Össurar

er það helst til frásagnar,

aö ýmsum þykja áleitnar

augnagotur Framsóknar.

Eg kleif upp á fjall oq hitti

þar gamlan oq vitran mann

sem sagði mér hver vasri

lykillinn að hamingjunni.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64