Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2002, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2002, Blaðsíða 23
FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 2002 35 DV Tilvera Maya Angelou 74 ára Rithöfundurinn, ljöð- skáldið og mannréttinda- baráttukonan Maya Ang- elou fæddist í St. Louis og var skírð Margurita Johnson. Hún hefur á löngum ferli ekki aðeins skrifað verðlaunahækur heldur einnig fengist við að syngja, leika og semja tónlist. Hún átti ömurlega æsku, var nauðgað þegar hún var átta ára og orðin ógift móðir sextán ára gömul. Af mikiili atorku komst hún til metorða, fyrst í tónlistinni en síðan sem rithöfundur. Hún hefur haldið fyrirlestra um mannréttindi og hefur margsinnis verið heiðruð á því sviði. Gildir fyrir föstudaginn 5. apríl Vatnsberinn (?o. ian.-ia. fehr.v Vinur þinn á í basli með eitthvað og þú hefur aðstöðu til að hjálpa honum. Þú ger- sem þú hefur ekki gert lengi og sérð alis ekki eftir því. Fiskarnir (19. febr.-20. mars): Vinnan á hug þinn all- an þessa dagana. Þú verður að gæta þess að særa engan þótt þú hafir lítinn tíma til að umgangast ástvini. Hrúturlnn (21, mars-19. apríD: Einhverjar tafir verða á skipulaginu en láttu þær ekki koma þér úr jafnvægi. Dagurinn verður að öðru leyti ágætur og ekki verður kvöldið verra. ir eitthvað 1 viuuiaiiui iz Nautið (20. april-20. mail: / Ýmislegt skemmtilegt gerist í dag og þú verö- ur fyrir óvæntu happi W seinni hluta dagsins. Nú er góður timi til að gera breytingar. Tvíburarnir (21. mai-21. iúníi: Einhver er í vafa um að ’ það sem þú ert að gera sé rétt. Þú skalt hlusta á það sem aðrir hafa að segja en endanlega ákvöröunin verður þó að vera þín. Krabblnn (22. iúni-22. iúiíl: Gættu þess að vera til- 1 litssamur við ættingja og vini í dag þó að það sé kannski eitthvað semangrar þig persónulega þessa dagana. Líónið (23. iúlí- 22. ágúst): ! Forðastu að baktala samstarfsfólk þitt. Það er aldrei að vita á hvers bandi fólkið í kringum þig er. Rómantíkin blómstrar. Mevian (23. aeúst-22. sept.i: Dagurinn gæti orðið annasamur, einkum ef ^^^lfcþú skipuleggur þig . r ekki nógu vel. Farðu varlega í viðskiptum. Happatölur þínar eru 9,17 og 28. Vogin (23. sept.-23. okt.l: S Það verður mikið um Oy að vera fyrri hluta V f dagsins og þú tekur ef r f til vill þátt í þvi að skipuleggja viðburð í félagslifinu. Kvöldið verður afar efdrminnilegt. Sporðdrekinn (24. okt.-2i. nðv.): Þú átt rólegan dag í vændum sem (einkennist af góðum [samskiptum viö fjölskyldu og ástvini. Rómantíkin liggur í loftinu. Bogmaðurinn (22. nóv.-21. des.): | Farðu varlega í fjár- rmálum og ekki treysta hveijum sem er. Þú ættir að gefa þér tíma til að slappa af og gera eitthvað nýtt og skemmtilegt. Stelngeitin(22. des-19. ianj: Þér gengur vel að leysa verkefni sem ollu þér vandræðum fyrir nokkru. Þú ert í góðu jafnvægi og dagurinn verður skemmtilegur. Skíðalandsmót íslands hefst í dag: Veðurguðirnir setja strik í reikninginn - hætt við risasvig - samhliðasvig í staðinn Skíðalandsmót íslands, sem um leið er alþjóðlegt mót, fer fram á Dalvík og Ólafsfirði dagana 4.-7. apríl. Undanfarna daga hafa hlý- indi raskað nokkuð upphaf- legum áformum. Þannig hef- ur keppni í risasvigi verið felld niður af öryggisástæð- um og i staðinn verður keppt í samhliða svigi. Þá hefur keppni í svigi, sem vera átti í Ólafsfirði, verið flutt til Dalvíkur. Mótið hefst í dag með sprettgöngu í miðbæ Ólafsfjarðar en þetta er í fyrsta skipti sem sprettganga er fullgild keppnisgrein á skíðalandsmóti. Um kvöldið verður formleg mótssetning í Dalvlkurkirkju. Keppni í alpagreinum hefst á föstu- dagsmorgun og síðan rekur hver greinin aðra fram á sunnudag en stefnt er að mótsslitum og verðlaunaaf- endingu um. kl. 15 á sunnu- dag. Að sögn Óskars Óskars- sonar mótstjóra er gert ráð fyrir að um 130 keppendur mæti til leiks, innlendir og erlendir. Keppni í göngu fer fram í Ólafsfirði, skíðastökk- ið átti einnig að vera í Ólafs- firði en enginn keppandi skráði sig til keppni í þeirri grein. Svig, stórsvig og sam- hliðasvig verður háð á Dal- vík. Óskar segir að reynt sé að gera mótið eins áhorf- endavænt og kostur er, m.a. með þvi hafa keppni í göngu í miðbæ Ólafsfjaröar. Undirbúningur hefur gengið vel Óskar segir að undirbúningur mótsins hafi gengið mjög vel og mótstjóm verið að störfum síðan í september 2000. Samvinna félag- anna tveggja er með miklum ágæt- um, enda hafa þau staöið sameig- inlega að ýmsum stórmótum á undanfomum ámm. Framan af vetri höfðu menn verulegar áhyggjur af tíðarfarinu og þeirri staðreynd að nánast allt var til staðar nema snjórinn. Upp úr ára- mótum rættist úr en þó er snjór- inn í lágmarki. Aðalstyrktaraðilar mótsins eru ESSO og Útilíf. Fjöl- margir aðrir styrktaraðilar koma að mótinu og þar ber helst að nefna Tóbaksvamanefnd sem leggur mótinu lið eins og Ung- lingameistaramótinu. „Við höfum í framhaldi af samstarfinu ákveð- ið að Skíðamót íslands verði tó- bakslaust og emm því fyrstu fé- lögin sem halda íslandsmót þar sem öll tóbaksnötkun er bönnuð. Við vonum að allir sem koma á mótið virði þessa ákvörðun og sýni um leið samstööu með okkur og sleppi tóbakinu!" segir Bjöm Þór Ólafsson, einn forsvarsmcmna mótsins. Framvaröasveitin meö Böggvisstaöafjall í baksýn; Jóhann Bjarnason, Þorsteinn Skaftason, Daníei Hilmarsson, Jón Konráösson, Óskar Óskarsson, Björn Þór Ólafsson, Sigríöur Gunnarsdóttir, Brynjóifur Sveinsson, Haraidur Gunnlaugsson. son, Dalvík, og Kristján Uni Ósk- arsson, Ólafsfirði, verða einnig meðal keppenda. Þá mætir Krist- inn Bjömsson frá Ólafsfirði en aö öllu óbreyttu verður þetta siðasta stórmótið sem hann tekur þátt í. Vilt þú keppa við þá bestu? Á föstudag og laugardag gefst áhorfendum á Skíðamóti íslands á Dalvík og i Ólafsfirði kostur á að taka þátt í Símaþrautinni. Sima- þrautin er nýlunda hér á landi þar sem besta skíðafólk landsins keyr- ir stutta svigbraut með um 15 hlið- um i tímatöku. Tími þeirra er síð- an skráður á þar til gerð viðmið- unarblöö og almenningi gefst sið- an kostur á að reyna sig á móti þeim bestu. Allir sem taka þátt fá verðlaunamerki Símaþrautarinn- ar, gullverðlaun hlýtur sá sem er 0-5 sek. á eftir fyrsta keppanda, silfurverðlaun eru veitt þeim sem verða 6-10 sek. á eftir og brons- verðlaun eru veitt þeim sem verða 11 sek. eða meira á eftir fyrsta keppanda. Það er Síminn, einn af aðalstyrktaraðilum Skíðasam- bands íslands, sem býður upp á Símaþrautina en á dögunum var undirritaður samningur við Sím- ann vegna þessa viðburðar. Mark- miðið með Símaþrautinni er að gefa almenningi tækifæri til að keppa á móti okkar besta skíða- fólki sem og að prófa eitthvað nýtt. Þess má að lokum geta að heimasíða mótsins er komin í loft- ið og slóðin á hana www.skidal- vik.is/sli2002. Þar verða allar upp- lýsingar settar jafnóðum inn og veröur hún síðan uppfærð móts- dagana um leið og hlutimir ger- ast. -HIÁ Mótstjórinn Óskar Óskarsson. Keppni í svigi og stórsvigi á Skíðamóti Islands verður jafh- framt alþjóölegt FlS-mót. Nú ligg- ur fyrir að átján erlendir keppend- ur mæta til leiks; einn frá Ástral- íu, einn frá Belgíu, einn frá Bret- landi, fjórir frá ísrael, fimm frá Noregi og sex frá Hollandi. DV vantar blaðbera í Keflavík. Erlendir keppendur 130 keppendur eru skráðir til leiks á Skiðamóti Islands að þessu sinni. Þar af eru 88 keppendur skráðir til leiks í alpagreinum og 43 keppendur í göngu. Keppendur 1 göngu era fleiri að þessu sinni en oft áður sem kemur annars vegar til af því að í fyrsta skipti er keppt á landsmóti í sprettgöngu og hins vegar að boðið verður upp á keppni í eldri aldursflokkum, 35-49 ára, og 50 ára og eldri. Heimamenn eiga titla að verja Reiknað er með að allir sterk- ustu skiðamenn landsins mæti til leiks. Dalvíkingamir Harpa Rut Heimisdóttir og Björgvin Björg- vinsson mæta til leiks en þau eiga fjóra titla að verja frá síðasta landsmóti. Ungir og efnilegir skíðamenn, sem hafa verið að gera góða hluti erlendis að undan- fömu, svo sem Kristinn Ingi Vals- Upplýsingar veitir umboðsmaður DV í síma 421 3053.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.