Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2002, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2002, Blaðsíða 6
20 + 21 + MÁNUDAGUR 15. APRlL 2002 MÁNUDAGUR 15. APRÍL 2002 Sport Sport Þriðji jakkinn á þremur árum - Tiger Woods vann öruggan 3ja högga sigur á US Masters og varð þriðji kylfingurinn til að vinna mótið tvö ár í röð Tiger Woods vann nokkuð auðveldan sigur á US Masters stórmótinu í golfi sem lauk seint í gærkvöld á Augusta National golfvellinum í Georgíu í Bandaríkjunum. Tiger lék samtals á 12 höggum undir pari og virtist hafa sigur- inn í hendi sér allan síðasta dag- inn. íslandsvinurinn Retief Goosen frá Suður-Afríku varð einn í öðru sæti á 9 höggum undir pari. Hann byrjaði mjög illa á lokadeginum í gær og átti í raun aldrei möguleika á sigri. Ljóst er þó að hann hefur með þessari frammistöðu skipað sér á bekk með allra bestu kyifing- um heims. Fyrir þriðja hring mótsins var Tiger Woods einum fjórum höggum frá efsta manni. Á þriðja hring lék hann mjög gott golf og fyrir lokahringinn var hann einn i forystunni, 11 högg- um undir pari. Merkilegur sigur Tiger Woods varð í gær þriðji kylfingurinn í sögu US Masters til að vinna mótiö tvö ár í röð. Það gerði Jack Nicklaus árin 1965 og 1966 og Nick Faldo árin 1989 og 1990. Þetta er í þriðja skipti á síðustu fimm árum sem Tiger Woods vinnur US Masters og fær græna jakkann að laun- um, auk allra miUjónanna og heiðursins. „Ég get ekki neitað þvi að ég er þreyttur en að sama skapi ánægður. Ég lék 26 holur á þriðja degi mótsins og það var erfitt vegna rigningarinnar. Það er auðvitað mjög sérstakt fyrir mig að verða þriðji kylfingurinn sem nær því að vinna þetta mót tvö ár í röð,“ sagði Tiger Woods eftir að sigurinn var í höfn. „Ég hugsaði fyrst og fremst um að leika öruggt golf á lokadeginum og reyna allt sem ég gæti til að leika undir parinu. Þetta tókst og ég er í sjöunda himni með ár- angurinn," sagði Tiger. Um tíma á seinni níu holun- um í gær var eins og Tiger gæfi örlítið eftir. Á sama tíma gerðu kylfingarnir í næstu sætum hver mistökin á fætur öðrum. Sérstaklega fór mikið fyrir Vijay Singh í þessum efnum. Singh var 10 höggum undir pari eftir tvær holiu- í gær. Þegar hann kom að 11. holunni hafði hann tapað 5 höggum. Phil'iMickelson verður áfram besti kylfingur heims sem aldrei hefur unnið stórmót. Hann end- aði í þriðja sæti í gær á 8 högg- um undir parinu. Óheppnin elti hann á köflum og um tíma gekk ekkert upp hjá þessum skemmti- lega kylfingi. Jose Maria Olazabal náði fjórða sæti á mótinu á 7 höggum undir pari og Ernie Els og Pa- drick Harrington komu næstir á 6 höggum undir pari. Vijay Singh endaði á 5 höggum undir pari og Sergio Garcia kom næst- ur á 4 höggum undir pari. Þrátt fyrir mjög miklar breyt- ingar á vellinum í Augusta náðu kylfingar mjög góðu skori. Þó var það áberandi að í efstu sæt- unum á mótinu voru nær ein- göngu högglangir kylflngar. Arnold Palmer, sú mikla golf- goðsögn, lék í síðasta skipti á US Masters að þessu sinni. Pal- mer er 72 ára og hefur verið með á 48 Masters-keppnum í röð og unnið mótið fjórum sinnum. Líklegt er að Palmer muni leika upphafshögg mótsins á næstu árum. -SK Tiger Woods f græna jakkanum eftir sigurinn í gærkvöld. 11 oðru eins - sagði Guðbjörg Norðfjörð eftir ótrúlega endurkomu KR-liðsins Guðbjörg Norðfjörð hóf keppnistímabilið með sínu gamla félagi, Haukum, en skipti yfir í KR á miðjum vetri, því liði sem hún hefur spilað með nánast allan sinn feril og leikur hennar hefur farið stigvaxandi og hún var liði sínu ómetanleg á loka- sprettinum. Hún hafði þetta að segja í leikslok: „Ég veit ekki hversu oft ég hef spilað í lokaúrslitunum, líklega einum tíu sinnum, og þetta er þriðji íslandsmeist- aratitilinn sem ég hampa og þetta er alltaf jafn ótrúlega ljúft. Við trúðum þvi allan tímann að við gætum þetta þrátt fyrir að byrja ilia og við vorum einfaldlega hikandi í fyrstu tveimur leikjunum. Síð- an fórum við einfaldlega yfir hlutina og sáum að við þyrft- um að stoppa tvo leikmenn í þeirra liði, Öldu og Over- street, og gerðum okkur grein fyrir því að hópurinn hjá okk- ur er talsvert breiðari og það var einfaldlega það sem gerði gæfumuninn. Þessi úrslita- keppni er búin að vera alveg ótrúleg og ég hef aldrei lent í öðru eins, það er bara alltbú- ið að gerast og þetta er alveg meiri háttar fyrir kvenna- körfuna," sagði hinn frábæri leikmaður og baráttuhundur, Guðbjörg Norðfjörð. Komum aftur aö ári ívar Ásgrímsson tók við þjálfun ÍS fyrir þetta keppnis- tímabil og undir stjórn hans hefur liðið náð mjög góðum árangri, hampaði deildar- meistaratitlinum og var ná- lægt þeim stóra. Hann var að vonum svekktur eftir leikinn en brattur þó: „Þessi úrslitakeppni er búin að vera mjög jöfn og oft hefur heppni ráðið miklu en það vantaði herslumuninn hjá okkur. Eftir að við unnum fyrstu tvo leikina var eins og okkur vantaði herslumuninn í leikjunum sem á eftir komu og trúin á að við gætum þetta var ekki alveg nógu mikil þrátt fyrir góða stöðu en við komum bara aftur að ári og þá reynslunni ríkari," sagði ív- ar. Þurftum tvo tapleiki til þess aö vakna Kristín Jónsdóttir, fyrirliði KR, á ekki langt að sækja hæfileikana en faðir hennar er einmitt Jón Sigurðsson, lík- lega besti körfuboltamaður sem við íslendingar höfum eignast. Kristín gefur þó foður sínum ekkert eftir og hún hef- ur á undanfömum árum hampað ófáum bikurum. Hún var, eins og gefur að skilja, í skýjunum eftir leikinn og hafði þetta að segja: „Þetta er án efa ótrúlegasta úrslitakeppni sem ég hef tekið þátt í en við tókum okkur taki eftir fyrstu tvo leikina og breyttum varnartaktíkinni því að þær eru með tvo mjög góða leikmenn sem sókn þeirra gengur aðallega út á. Eftir að við stoppuðum þær nokkurn veginn fóru hlutim- ir að ganga betur og við þurft- um þessa tvo tapleiki til þess að vakna almennilega til lífs- ins. Við misstum aldrei trúna og erum fyrsta liðið til þess að snúa dæminu við eftir að hafa tapað fyrstu tveimur leikjunum í lokaúrslitum og það segir meira en mörg orð um okkar lið,“ sagði fyrirlið- inn, Kristin Jónsdóttir, sigurreifö. -SMS Talið frá vinstri: Hildur Siguröardóttir, Gréta María Grétarsdóttir, Guðbjörg Norðfjörö, Helga Þorvaldsdóttir og Kristín Björk Jónsdóttir fagna sigri í gær en þær eru betur þekktar sem hið geysisterka og samheldna byrjunarlið ísiandsmeistara KR í kvennaflokki árið 2002. DV-mynd ÞÖK KR tókst hiö ómögu lega Erum færar í flestan sjö Hildur Sigurðardóttir lék vel í úrslitaleiknum og hún var varla búin að ná andanum þegar DV- Sport ræddi við hana í leikslok: „Þrátt fyrir slæma byijun í þessari rimmu við ÍS þá misstum við aldrei trúna á því að við gætum snúið við blaðinu. Við vorum reyndar ekki að spila vel í undanúrslitunum en komumst þó áfram og það sagði okkur að við værum færar í flestan sjó og tilbúnar til að mæta mótlæti. Við fórum ekki almennilega í gang fyrr en þrir leikir voru eftir af úrslitakeppninni en það var nóg og þessi úrslitakeppni er búin að vera í heildina séð mjög skemmtileg og gaman að taka þátt í þessu og hvað þá að fara alla leið," sagði Hildur og brosti allan hringinn. -SMS varð Islandsmeistari þrátt fyrir að hafa lent 2-0 undir í einvíginu gegn ÍS KR varð íslandsmeistari í kvenna- körfunni í gærkvöld eftir að hafa unnið ÍS í þriðja sinn, nú 64-68 í Kennaraháskólanum, en um hreinan úrslitaleik var að ræða þar sem bæði höföu unnið tvo leiki. Það sem gerir sigur KR merkilegan er það að hðið kom til baka eftir að hafa verið 2-0 í einvíginu en tókst það sem engum hefur tekist áður að snúa dæminu við og vinna næstu þrjá leiki. ÍS hafði framkvæði í leiknum í gærkvöld til að byrja með og leiddi eftir fyrsta leikhluta, 19-14. Sóknin gekk vel með Meadow Overstreet í fararbroddi. 1 byrjun annars leik- hluta hélt ÍS áfram að bæta við for- skotið og var komið níu stigum yfir fljótlega í öðrum leikhluta, 28-19. Þá hrundi leikur liðsins algerlega og KR gerði næstu 15 stigin og breytti stöð- unni í 28-34. Munurinn var þrjú stig í hálfleik, 33-36, og galopinn. Lovísa Guð- mundsdóttir var búin aö spila ghmr- andi vel fyrir stúdínur i fyrri hálfleik en hún þurfti að setjast á bekkinn um miðjan annan leikhluta og í kjölfarið tók KR leikinn i sínar hendur en Lovísa hafði verið miðjan i leik ÍS. Vörn KR var farin að smeha sam- an fyrir hálfleik og var jafn sterk í þriðja leikhluta. Stúdínur komust lít- ið áleiðis og skoruðu aðeins átta stig í leikhlutanum og KR var byrjað að sigla fram úr með góðum leik. Hhd- ur Sigurðardóttir sphaði mjög vel á þessum kafla og Guðbjörg Norðfjörð var farin að færast í aukana. Munurinn fór síðan í 13 stig í upp- hafi fjórða leikhluta, 42-55, og ein- hverjir famir að afskrifa ÍS en annað kom á daginn. Overstreet tók sig th og skoraði tvær 3ja stiga körfur í röð og Lovísa kom með með tvær mikh- vægar körfur. Þegar þrjár mínútur voru eftir var munurinn kominn nið- ur í þrjú stig, 56-59, og spenna komin í leikinn. Þá kom Guðbjörg Norðfjörð með stóra 3ja stiga körfu sem fór langt með að klára leikinn en stúdínur reyndi hvað þær gátu en KR hélt haus og fór með sigur af hólmi. Stúd- ínur fóru að brjóta i lokin og freista þess að KR myndi misnota vítaskotin en leikmenn KR nýttu vítin enda reynslu miklir leikmenn þarna á ferð. Þar með bætti kvennalið KR enn einum bikamum í safnið og sýndi lið- ið ótrúlegan karakter að koma th baka eins og útlitið var orðið dökkt eftir fyrstu tvo leikina. Liðshehdin hjá liðinu er gríðarlega sterk og mannskapurinn sterkur. Liðið var að fá á sig yfir 80 stig í fyrstu tveim- ur leikjunum en eftir það var varnar- leikurinn aht annar. Það má segja að KR hafi gert sér mjög erfitt fyrir í úr- slitakeppninni þetta árið en hðið var í vonlausri stöðu í oddaleiknum gegn Keflavík en kom th baka og sigraði og siðan kom liðið th baka gegn ÍS og braut blað í sögu úrslitakeppna í körfunni. Stúdínur geta borið höfuðið hátt enda hefur hðið staðið sig vel í vetur og hefúr ívar Ásgrímsson náð miklu út úr þeim hópi sem hann hefur. Þrátt fýrir aht er svekkjandi fyrir lið- ið að vera eins nálægt því að fara aha leið eins og raun varð á. ÍS haföi þrjá leiki th að klára dæmið eftir frábæra byrjun en taka verður í dæmið aö KR-hðið hefur margfalt meiri reynslu og því er þetta eitthvað sem Stúdínur verða að læra af. -Ben Meistaramolar Kvennalið KR varð fyrsta körfuboltalið- ið á íslandi til að koma aftur og vinna einvígi eftir að hafa lent 0-2 undir. Sautján lið höfðu komið sér í sömu stöðu, 11 í karlaflokki og sex í kvennaflokki, og ekkert hafði náð að tryggja sér oddaleik hvað það sigur. Kristin Björk Jónsdóttir varð í gær fyrsti fyrirliöinn í sögu úrslitakeppni kvenna til að taka við íslandsbikamum tvö ár í röð. Keflavík er eina liðið sem hafði áður unniö íslandsbikar kvenna tvö ár í röð eftir úrslitakeppni en þá tók Björg Hafsteinsdóttir við bikamum 1993 en Anna María Sveinsdóttir 1994. KR varó ennfremur eina liðið í sögu úr- slitakeppni karla og kvenna í körfubolta til að vinna þrjá leiki í röð í lokaúrslitum tvö ár í röð. KR vann Keflavík 3-0 í loka- úrslitunum í fyrra og síðan þrjá síðustu leikina í ár eftir að hafa lent 0-2 undir. Guóbjörg Norðjjörð á nú tvö met í loka- úrslitum kvenna en enginn leikmaður hefur skorað fleiri stig (391) eða skoraö fleiri þriggja stiga körfur (44) í úrslita- leikjum um titihnn. Guðbjörg á einnig leikjametið með Kristínu Björk Jóns- dóttur en báðar hafa þær leikið 35 úr- slitaleiki um íslandsmeistaratitilinn. Meadow Overstreet, erlendur leikmað- ur ÍS, setti met í lokaúrslitunum með því að skora 18 þriggja stiga körfur og bætti þar með tvö met Bjargar Hafsteinsdóttur sem skoraði 3,3 þriggja stiga körfur að meðaltali með Keflavík í lokaúrslitynum 1993 og alls fimmtán þriggja stiga körfur í lokaúrslitunum 1994. Það er óhœtt að segja að þetta hafi ver- ið spennandi og skemmtilegur vetur í kvennakörfúnni. Bikarúrslitaleikurinn var framlengdur, deildarmeistaratitillinn réðst á síðustu sekúndu í úrslitaleik í lok mótsins og úrslitaeinvígið fór alla leið í oddaleik sem réðst á fiórum stigum. Þetta þrennt hafði aldrei gerst á sama árinu í sögu kvennakörfunnar á Islandi. -ÓÓJ Trúin og breiddin Keith Vasseh (að ofan) var að vonum ánægður með lið sitt að leik loknum og aðspurður hvort hann hefði verið farinn að missa trúna á liði sínu eftir fyrstu tvo leikina sagði hann: „Nei, við vissum að við gætum unnið þær þrisvar og þótt við heföum tapað úrslitaleiknum um dehdarbikarinn þá vorum við með á hreinu hvað við gætum. Við vorum reyndar lengi í gang en stelpumar áttuðu sig á því eftir töpin tvö að það væri ekki nóg að mæta bara á svæðið og halda að hlutimir gerðust af sjálfu sér, þær yrðu að fara að spha eins fyrir þær var lagt og það var einmitt það sem þær gerðu. Vissulega gerðum við okkur erfitt fýrir en trúin á sjálfa okkur og breiddin gerðu einfaldlega gæfumuninn,“ sagði þjálfari kvennaliðs KR, Keith Vassell, sem skhaði báðum stóru bikurunum í hús á sínu fyrsta ári sem þjálfari liðsins. -SMS IS-KR 64-68 Úrslit 1. deildar kvenna 14. apríl 2002 0-2, 5-2, 7-8, 9-10, 14-10, 17-12 (19-14), 24-16, 24-19, 28-19, 28-34 (33-36), 35-36, 37-44, 41-46 (41-50), 42-55, 50-55, 50-59, 56-59, 56-66, 62-66, 62-68, 64-68. Mín. Skot vm É -W co •a 03 AldaLeif 39 15/4 7/4 8 9 13 Overstreet 37 21/9 0/0 5 4 23 Þórunn 25 7/2 0/0 9 1 5 Hafdís 37 7/2 2/0 5 4 5 Lovlsa 28 13/7 6/2 9 2 16 Svana 11 2/0 0/0 2 0 0 Jófríður 14 3/0 0/0 2 0 0 CecUia 9 3/1 0/0 1 0 2 Svandis 0 Steinunn 0 Skotnýting: 71/25, 35%. Fráköst: 41. Sóknarfráköst: 15 (Þórunn 4, Hafdís 3, Lovísa 3, Alda Leif 2, Jófríður 2, Cecilia) Stolnir boltar: 13 (Alda Leif 4, Lovbísa 3, Hafdís 2, Overstreet 2, Þórunn 2) Varin skot: 12 (Hafdís 5, Alda Leif 4, Lovísa 2, CecUia) 3ja stiga skot: 26/8 31% (Overstreet 13/5, Þórunn 1/1, Hafdís 2/1, Alda Leif 8/1, Lovísa 2/0) Tapaðir boltar: 17. Villur: 22. Mfn. Skot Vlti o 03 a 03 Hildur 37 16/7 2/0 4 2 15 Kristín 36 10/3 2/2 2 1 8 Helga 38 13/4 8/7 4 0 16 Gréta 22 6/1 4/2 5 2 4 Guðbjörg 30 8/5 4/4 5 4 16 Coffman 27 5/2 8/5 17 4 9 Linda 10 3/0 0/0 3 1 0 Guðrún A. 0 Hafdís 0 Guðrún E. 0 Skotnýting: 61/22, 36%. Fráköst: 40. Sóknarfráköst: 14 (Coffman 4, Kristín 2, Linda 2, Gréta 2, Guðbjörg 2, Hildur, Helga). Stolnir boltar: 9 (HUdur 4, Linda 2, Helga 2, Gréta 2). Varin skot: 2 (Kristín 2) 3ja stiga skou 10/4, 40% (Guðbjörg 2/2, Hildur 2/1, Helga 4/1, Gréta 1/0, Kristín 1/0). Tapaðir boltar: 19. Villur: 16. Dómarar (1-10): Kristinn Óskarsson og Sigmundur Már Herbertsson (8). Gceói lelks (1-10): 7. Áhorfendur: 400. Maður leiksins: Guðbjörg Noröfjörö, KR +

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.