Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2002, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2002, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 4. MAÍ 2002 Fréttir DV Heimild fyrir 20 milljarða ríkisábyrgð vegna deCODE samþykkt: Einungis þrettán þingmenn á móti 27 atkvæði með - veiðigjald á aflaheimildir orðið að lögum Frumvarp um heimild til fjár- málaráðherra að áhyrgjast allt að 20 milljarða skuldabréfalán deCODE Genetics var samþykkt með 27 atkvæðum gegn 13 á Al- þingi í gær. 12 þingmenn - þar af þrír stjómarliðar - sátu hjá við at- kvæðagreiðsluna en 11 voru fjar- verandi. Ekki er vafi á að frumvarpið nýtur stuðnings meirihluta þing- manna. Engu að síður vekur at- hygli að það var ekki samþykkt með atkvæðum meirihluta þing- heims. í ljósi víðtækrar andstöðu í þjóð- félaginu vekur líka athygli að ein- ungis þrettán þingmenn greiddu atkvæði gegn málinu. Þetta voru Pétur H. Blöndal, Sjálfstæðisflokki; allir þingmenn Vinstri hreyfmgar- innar - græns framboðs nema Steingrímur J. Sigfússon sem var fjarverandi; sex af sautján þing- mönnum Samfylkingarinnar og báðir þingmenn Frjálslynda flokksins. Stjórnarliðamir þrír sem sátu hjá voru Þorgerður Katrin Gunn- arsdóttir, Sjálfstæðisflokki, og Jón- ína Bjartmarz og Magnús Stefáns- son, Framsóknarflokki. Auk þeirra Síðasti þingdagur Fundum Alþingis var í gær frestaö til septemberioka. sátu níu þingmenn Samfylkingar- innar hjá, þeirra á meðal Össur Skarphéðinsson, formaður flokks- ins, en hann lýsti stuðningi við málið þegar það var fyrst kynnt. Fimm þingmenn Sjálfstæðis- flokks voru fjarverandi, tveir þing- menn Framsóknarflokks, tveir þingmenn Samfylkingar og tveir þingmenn Vinstri grænna. Ef þeir sem ekki treystu sér til að styðja frumvarpið - þeir sem sátu hjá - hefðu greitt atkvæði gegn því hefði það engu að síður verið samþykkt með 27 atkvæðum gegn 25. Þingmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks em alls 38. Ell- efu þeirra - eða meira en einn af hverjum fjórum - greiddu ekki at- kvæði með frumvarpinu; einn var á móti, þrír sátu hjá og sjö vom fjarverandi. Fjarverandi sfjómar- liðar voru sjálfstæðisþingmennim- ir Árni Mathiesen, Bjöm Bjarna- son, Lára Margrét Ragnarsdóttir, Sólveig Pétursdóttir og Tómas Ingi Olrich og framsóknarþingmenn- imir Hjálmar Ámason og Ólafur Örn Haraldsson. Alþingi samþykkti einnig í gær framvarp til laga um stjórn fisk- veiða sem felur í sér að afkomu- tengt veiðigjald verður lagt á sjáv- arútveginn. Frumvarpið var sam- þykkt með 29 atkvæðum gegn 23. Fundum Alþingis var frestað í gær til septemberloka. Nokkur framvörp voru tekin af dagskrá í fyrrakvöld þegar meiri- og minni- hluti sömdu um þinglok, þ.á m. umdeilt frumvarp um að gera lág- markskunnáttu í íslensku að skil- yrði fyrir veitingu ríkisborgara- réttar. -ÓTG Krœktu í metsölubók a broslegu verði Adeins 1.490 kr. lestrar Mci.só'ybttkor Jí bhbwi mh j | II*\) N 1/» í1 **tt**,r (Leíðbeinöntíi ótsöíuv 6 vandaðar metsölubækur í kiljubroti Z dstarsaga Hann var kallaður „]»etta“ Leggðu rœkt við sjólfan þig Eyðimerkurblómið Artemis Fowl Konan í köflótta stólnum 1 ' JPV ÚTGÁFA Bræðraborgarstígur 7 • Sími 575 5600 Fréttablaðið: Fréttastjórinn hættir Pétur Gunnarsson, frétta- stjóri Fréttablaðsins, mun láta af störfum þar á næstu dögum. Hann hefur gert samning um starfslokin við útgefendur blaðsins og hyggst fyrst um sinn sinn vinna sem sjálfstætt starfandi blaðamað- ur i ýmsum útgáfu- og kynn- ingarverkefnum. í samtali við DV í gærkvöld sagði Pétur að Pétur Gunnarsson. brotthvarfið væri að hans frumkvæði. Fyrst um sinn mun Pétur sinna ýmsum útgáfumálum fyrir lista framsóknar- manna og óháðra i Garða- bæ. „Pétur mun vinna fyrir okkur að pólítískri mark- aðssetningu," sagði Einar Sveinbjörnsson sem skipar efsta sæti listans. -sbs Endurskipulagning Eddu - miðlunar: Allt að 100 milljóna króna hlutur ~ Björgólfs Guðmundssonar ef áætlanir standast „Hafin er vinna að áætlun og það á að vinna hana hratt og vel,“ sagði Halldór Guðmundsson, forstjóri Eddu - miðlun- ar & útgáfu, við DV. Eins og greint var frá í gær hefur náðst samkomulag um innkomu Björgólfs Guðmundssonar í fyrirtækið, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Aðilar hafa skrifað undir ákveðna verkáætlun þar að lútandi. Halldór sagði að áfram yrði unnið að spamaði þeim hjá fyrirtækinu sem kynntur hefði verið á síðustu mánuð- um. Þær aðgerðir gengju út á endur- skipulagningu og íjármögnun félagsins. I yfirlýsingu um innkomu Björgólfs í fyrirtækið segir m.a. að stefiit sé að verulegri eignaraðild hans. Þegar end- urskipulagningunni verði lokið verði v é-Jt : haldinn hluthafafundur og skýrt nánar frá niðurstöðum í kjölfar hans. Ekki er getið um hve stór eignarhlutur Björgólfs verði ef áætlunin gengur upp, en sam- kvæmt upplýsingum DV getur hann orðið allt að 100 milljónum króna. Hall- dór kvaðst ekki vilja tjá sig um þann þátt samkomulagsins. Spurður um framtíð hins gróna fyrir- tækis Máls og menningar sagði Halldór að það væri eignarhaldsfélag sem ætti sem stæði meirihlutann í Eddu. Það væri að aðili að samkomulaginu. Þau forlög sem aðild ættu að Eddu myndu starfa áfram. Auk Máls og menningar eiga Ólafur Ragnarsson og fjölskylda, svo og íslandsbanki, auk smærri hlut- hafa, hlut i fyrirtækinu. -JSS Hfi Flókin staða í Færeyjum Erlent fréttaljós Davíð of einráður Stelngrímur Hermannsson Bækur skipta máli íslendingur siglir í strand Gunnar Marel Eggertsson Umkringdur óvinum Eggert Haukdal Fegurstu byggingar borgarinnar Skoöanakönnun 34 ■■ - Meiriháttar í bræðslu Mozzarella Bankinn græðir Hagnaður Búnað- arbanka íslands hf. á fyrstu þremur mánuðum ársins var 1.036 milljónir króna fyrir skatta. Arðsemi eigin fiár var 36% fyrir skatta. Rekstrará- ætlun bankans fyrir árið 2002 gerir ráð fyrir 2,5 milljarða króna hagn- aði á árinu. Bankastjóri Búnaðar- bankans er Ámi Tómasson. Friðsæld í Eyjum Það skortir deilmnál í bæj- arpólítíkinni i Vestmannaeyjum, að því er fram kemur í Eyjafréttum. Þrír framboðslistar koma fram og er í blaðinu vakin athygli á því, til marks um friðsældina í bæj- arpólítíkinni, að enginn hafi enn á þessu ári séð sig knúinn til að skrifa viðhorfsgreinar um hana. Kolmunnaafli góður Búið er að landa tæplega 13.600 tonnum af kolmunna það sem af er vertíð. í tilkynningu frá Samtökum fiskvinnslustöðva kemur fram að Ingunn AK. og Faxi RE hafi landað samtals rúmlega 3.000 tonnum og færeyska skipið Christian i Grótin- um um 1.960 tonnum. Sjúkrahús fær styrk Gamla sjúkrahúsið á ísafirði fær hæsta styrk sem úthlutað er úr Húsafriðunarsjóði i ár, sjö milljónir króna. Alls voru veittir 157 styrkir, að upphæð rúmlega 31 milljón króna. Önnur hús sem fengu háa styrki í ár era Syðstabæjarhús i Hrísey, Reykholtskirkja í Borgar- firði og Austurstræti 20 í Reykjavík. Safna handa langveikum Rúmlega 80 nemendur i 10. bekk Réttarholtsskóla munu á næstu dög- um fara í sjálfboðavinnu til að safna fyrir Umhyggju, félagi til stuönings langveikum bömum. Þeir verða á ferðinni í 24 fyrirtækjum og stofn- unum, svo sem Blómavali, Eimskip, Grímsbæ, Landspítalanum og Olís. Samið um leiguflug Flugleiðir - leiguflug hf. og Flug- félagið Atlanta hf. hafa gert hvort sinn samninginn til 18 mánaða við dóminíska flugfélagið Aeromar Air- lines um að hvort félag leggi dóminíska flugfélaginu til eina flug- vél á tímabilinu. Vélamar annast daglegt flug á milli borga í Dóminíska lýðveldinu og New York. Hæstiréttur staðfestir Hæstiréttur hefur staðfest úr- skurð héraðsdóms um aö hafna kröfu Skeljungs og Olís um að Sam- keppnisstofnun eyði öllum tölvu- skjölum sem hald var lagt á við hús- leit hjá olíufélögunum í desember. Félögin tvö höíðu einnig krafist við- urkenningar á því að stofnuninni væri óheimilt að opna skjölin. Þorfinnur óhræddur Þorfinnur Ómarsson, fram- kvæmdastjóri Kvik- myndasjóðs, segist í RÚV ekki óttast út- tekt Ríkisendur- skoðunar. Formað- ur sjóðstjómar, Vil- hjálmur Egilsson, að stjómin fengi til að vildi nýlega menntamálaráðuneytið áminna Þorfinn fyrir ófullnægjandi reikningsskil. Ekki var hljómgrunn- ur fyrir því í stjóm. -sbs
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.