Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2002, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2002, Blaðsíða 4
Fréttir MÁNUDAGUR 6. MAÍ 2002 J3V Kjúklingaskortur í verslunum borgarinnar - eftirspurn hefur aukist, segir Kristinn Gylfi Jónsson á Móiun. Bændur spá vaxandi framleiðslu í sumar Kjúklingaframleiöendur hafa lent í miklum hremmingum und- anfarin misseri. Matvara sem nýt- ur vaxandi eftirspumar nær varla að fylla kælana i stórmörkuðum. Kaupmenn og kúnnar þeirra kvarta. Jarðskjálftarnir á Suður- landi sumarið 2000 eru partur af óhappaferli í kjúklingarækt. Þeir urðu til þess að Reykjagarður, langstærsta kjúklingabú landsins, varð fyrir búsifjum. Afraksturinn af stofhinum varð slakur i kjölfar- ið. En fleira fylgdi á eftir, bann við innflutningi frjóeggja til landsins vegna Newcastle-veiki í hænsfugli i Svíþjóð - og þegar banni var aflétt kom upp gin- og klaufa- veikifaraldur sem tafði enn fyrir framleiðslunni. „Það er skelfilegt að geta ekki boðið kjúkling nema endrum og eins, svo vinsæll sem hann er. Þannig er ástandið núna og hefur verið talsverðan tíma,“ sagði Guð- mundur Marteinsson, fram- kvæmdastjóri Bónus-búðanna, í gærkvöld. Skortur á kjúklinga- kjöti kemur einmitt þegar mikil og vaxandi eftirspurn er eftir vör- unni. Bónus og fleiri verslanir hafa oft boðið sérstök tilboð á kjúklingum þegar toppar hafa ver- ið á framleiðslunni. Nú er því ekki fyrir að fara. Þá sést frosinn kjúklingur ekki lengur, aðeins ferskur. Kristinn Gylfi Jónsson við- Stóraukln eftirspurn Kjuklingabændur stefna ab því ab stórauka frambob á kjúklingi á næstunni. skiptafræðingur sem rekur m.a. fuglabúið að Móum á Kjalarnesi sagði í gærkvöld að kjúklinga- framleiðslan hefði gengið í gegn- um ótrúlega erfiðleika. „En það skemmtilega er að núna er framboð okkar ekki minna en það hefúr verið - en eftirspumin hefrn- stóraukist. Það er ekki leyndarmál að ætlunin var að stór- auka framleiðslu á kjúklingakjöti en það tókst ekki um sinn. En kjúklingurinn kemur, sannaðu tÚ,“ sagði Kristinn Gylfi. „Það stefnir núna hraðbyri í að framboðið vaxi á ný,“ sagði Geir Gunnar Geirsson á Vallá í gær- kvöld en bú hans selur vöruna i Bónusbúðunum. -JBP DV-MYND HARl Olíuboranlr vlð Geldinganes? Afþessari mynd ab dæma er engu líkara en olíuboranir séu ab hefjast milli Reykjavíkur og Geldinganess. Þetta mannvirki hefur í þab minnsta vakib athygli margra sem hafa litib út á sjó í bjartvibrinu sem var á subvesturhorninu fyrir helgi. Hinn meinti borpallur er þó ekkert meira en einhvers konar vísir ab bryggju enda litla olíu ab fmna á þessum slóbum. Athugun heilbrigðisráðuneytis og landlæknis: Notkun sterkra verkjalyfja eykst ört Notkun morfíns og annarra sterkra verkjalyfja hefur farið ört vaxandi á síð- asta áratug, samkvæmt upplýsingum frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðu- neyti og landlækni. Þannig hefúr notk- un morfins farið jafiit og þétt vaxandi á tímabilinu. Þar er einkum um að ræða lyfið Contalgin. Notkun kódeíns í blöndum, svo sem íbukód sterkar, Panacod og Parkótín forte hefur farið ört vaxandi, en virðist þó örlítið hafa slaknað síðustu árin. Notkun lyfseðilsskyldra lyfja sem innihalda kódeín, svo sem Kódímagnyl, Parkódín og Parakód, hefur farið mjög minnkandi eftir 1995 en notkun sömu lyíja í þeim pakkningastærðum sem eru undanþegnar lyfseðilsskyldu, svo sem parkódín og parakód, bæði töflur og stil- ar, hefur farið ört vaxandi. Nýtt á markaði er fentanýl í plástraformi. Norkun þess fer nokkuð ört vaxandi. Lyfið tramadól kom á markað 1994 og hefur notkun þess einnig farið mjög vaxandi. Notkun methýlfenídats tók að aukast mjög eftir 1955 og virðist ekkert lát á þeirri þróun. Öll eru þessi lyf eftirritunarskyld nema tramadól. -JSS Landburður af fiski á Flateyri: Sumir tvíhlaða í sama róðri - fimm tonna bátur með 100 tonn á steinbítsvertíð DV-MYND GS Aflamaðurinn HaraldurÁmi Haraldsson, skipstjóri og útgerbarmaöur, hefur verib fengsæll á steinbítinn á Vestfjarbamiðum. „Það er mjög gott fiskirí héma fyrir vestan,“ sagði Haraldur Ámi Haralds- son, útgerðarmaður og skipstjóri á Mar- gréti ÍS 42 frá Flateyri, þar sem hann var að landa nær fuilum báti annan dag- inn í röð á laugardag. Afli Margrétar, sem er fimm tonna plastbátur, reyndist vera sjö og hálft tonn en daginn áður landaði hann átta og hálfu tonni. Afar góð aflabrögð hafa ver- ið hjá trillunum á Flateyri það sem af er steinbítsvertíðinni og hefur iðulega komið fyrir að bátamir gætu ekki dregið alla línu sína þar sem of mik- ill afli hefur verið á henni til að koma honum í bátana. Sumir hafa því tvihlaðið báta sina í sama róðrinum. „Ég er búinn að fiska 100 tonn frá því að steinbítsver- tíðin byrjaði í mars. Það er fiskur um allt, sama hvort verið er á línu eða handfærum. Það var einn bát- ur hjá mér að byija á færunum í dag og hann var með rúmlega þijú tonn eftir daginn, einn maður á,“ segir hann. Haraldur gerir út sex smábáta og eru þeir ýmist á þorskaflahámarki eða i dagakerfinu þar sem einungis má róa 23 daga á ári. „Maður verður sifellt að laga bátana að þeim reglum sem era hverju sinni. Núna er ég að láta smíða nýjan Sómabát fyrir mig hjá Bátasmiðju Guð- mundar í Hafnarfirði. Þeir bátar henta langbest í dagakerfið. Það verður að nýta tímann til veiða og vera fljótur á miðin og í land aftur því allur sá tími dregst frá þessum 23 dögum. Þessi nýi bátur hefur þann kost að komast á yfir 20 sjómílna hraða, jaftivel þótt komin séu í hann liðlega þijú tonn af fiski," segir þessi ungi athafiiamaður sem er að bæta sjöunda bátnum við flota sinn. -GS Jóga fyrir stirða og stressaða karlmenn Viltu sofa betur? Losa um vöðvabólguna? Eiga auðveldara með að slaka á? Þá er þetta 4 vikna námskeið fyrir þig. 8. maí til 5. júní. Kennari: Guðjón Bergmann. Verð: 9.900 Jóga hjá Guðjóni Bergmann, Ármúla 38, 3. hæð Sími: 690-1818 Tölvupóstur: gbergmann@strik.is www.gbergmann.is Líkamsárás í Breiðholtinu Ráðist var á karlmann á sextugs- aldri aðfaranótt sunnudags við Gerðuberg i Breiðholti. Árásarmað- urinn var 15 ára gamall piltur. Ekki er vitað hver ástæða árásarinnar var en að sögn lögreglunnar var ekki um rán að ræða. Pilturinn var handsamaður af lögreglunni en maðurinn sem hann réðst á var fluttur ökklabrotinn á slysadeild. Lögreglan flutti piltinn á meðferðar- heimilið á Stuðlum þar sem ekki náðist í foreldra hans þar sem ekki er leyfílegt að handtaka ólögráða unglinga. -snæ Bílvelta í Reyðarfirði Betur fór en á horfðist þegar fólksbíli valt í gær viö sunnanverð- an Reyðarfjörð. Ökumaður, sem var einn í bílnum, var á leið frá Reyöar- firði til Fáskrúösfjarðar þegar hann velti bilnum móts við Hafnames og endaði bíllinn á toppnum. Ökumað- urinn slapp lítiö meiddur en fólks- bíllinn er talsvert skemmdur. -snæ —' ........." Framsókn á Hornafirði: Varamaður í sæti oddvita Framsóknar- menn á Homa- firði hafa kynnt framboðslista sinn og þar er Elín Magnús- dóttir fótaað- gerðafræðingur í fyrsta sæti, Reynir Amarson sjómaður er ann- ar á listanum og Ólafur Sigurðsson ferðaþjónustu- bóndi þriðji. Önnur sæti listans skipa: 4. Frið- rik Þór Ingvaldsson, 5. Þóra Vil- borg Jónsdóttir, 6. Aðalheiður Fanney Björnsdóttir, 7. Margrét Ingólfsdóttir, 8. Gunnar Ingi Val- geirsson, 9. Gunnar Öm Reynis- son, 10. Elísabet Einarsdóttir, 11. Reynir Gunnarsson, 12. Olga Frið- jónsdóttir, 13. Sigurlaug Gissurar- dóttir og í heiðurssæti listans er Hermann Hansson. -Jl Elín Magnúsdóttir. Mjölskip strandaði í Grindavíkurhöfn Mjölskipið Svanur strandaði í innsiglingu Grindavíkurhafnar að- faranótt laugardagsins. Skipið var á leið út frá Grindavík þar sem ný- búið var að lesta það með 1260 tonnum af loðnumjöli. Sterkur hliðarvindur var á skipið sem olli því að það rak upp í vesturkant innsiglingarinnar og sat þar fast. Betur fór þó en á horfðist þvi drátt- arbát tókst að draga skipið aftur á flot eftir aðeins 10 mínútur og lagð- " ist það aftur að bryggju við höfn- ina I Grindavík. Kafari var sendur niður til þess að kanna skemmdir en þær voru á við kattarklór, að sögn starfsmanns við Hafharvigt- ina i Grindavík, engar beyglur og stýri og skrúfa í góðu lagi. Skipið beið því rólegt eftir næsta flóði og lagði út um kaffileytið á laugardag. -snæ Réttindalaus í bíltúr Piltur án ökuréttinda skellti sér í bíltúr á Húsavík aðfaranótt sunnudagsins. Drengurinn, sem enn hefur ekki náð aldri til þess að bera ökuskírteini, var ekki bara undir áhrifum áfengis þegar hann rúntaði um bæinn heldur stal p hann einnig ökutækinu. Ekki komst hann þó langt áður en hann 1 var stöðvaður af lögreglunni. -snæ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.