Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2002, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2002, Blaðsíða 8
MÁNUDAGUR 6. MAl 2002 Fréttir DV Dekkjahótel vib geymum dekkin fyrir þig gegn vægu gjaldi SÓlNfíUG (oníineníaF Kópavogi - Njarðvík - Selfoss tGitarinn eht M stórhöfða 27 alwiagg-atga 08 888-8376 * ☆ ☆ ☆ ☆ ☆ ☆ B0 m KlaBBÍakur kaBftafl >° ^ . tit M Stálstronglasttai* f/ >. 16.900 § M Barnagítarar 7.900 61, og snura. www.gitarinn.is . gitarinn@gitarinn.is 'k'k'k'k'k'k'k'k'k'k'k'k'k'k'k'kk; "the pc ;rfect pizza" John Baker «^ 520 3500 520 3500 Gnoðavogur M Brekkuhús zL Stjórnarfrumvarp um breytingar á þungaskatti: Olíugjald verði 36,50 krónur á lítra - gjaldfrí olía verði lituð og kílómetragjald á bíla yfir 10 tonn Fjármálaráðherra, Geir H. Haarde, lagði þriðjudaginn 30. apríl fram frumvarp ríkisstjómarinnar um olíugjald og kílómetragjald. Gert er ráð fyrir að olíugjald verði 36,50 á hvem lítra og komi það í stað nú- verandi innheimtukerfis þunga- skatts. Samkvæmt frumvarpinu verður olía lituð til gjaldfrírra nota og kílómetragjald greitt af bifreið- um og tengivögnum sem eru að heildarþyngd 10 tonn eða meira. Talið er frekar ólíklegt að takist að ljúka afgreiðslu frumvarpsins á yf- irstandandi þingi. Þama er um að ræða mál sem búið er að velkjast í kerfmu í áraraðir og var samþykkt breyting á lögum í þessa veru um miðjan síð- asta áratug m.a. dregin til baka árið 1998. Málið hefur legið á borði fjár- málaráðherra í vetur en nefhd skil- aði af sér skýrslu um það í haust. Liðið er vel á sjöunda ár síðan lög um olíugjald á dísilolíu voru lögð fyrir Alþingi. Lög um olíugjald voru lögð fyrir Alþingi árið 1995 en gildistöku þeirra var frestað í tvígang, eða þangað til þau voru felld úr gildi árið 1998. Var ýmsu borið við, svo sem að nauðsynleg litun á olíu til að aðgreina olíu á bíla frá skipaolíu væri of dýr. Málið var síðan sett í nefnd sem skilaði loks áliti með til- lögu að reglugerð á síðasta ári. í frumvarpi ríkisstjómarinnar er gert ráð fyrir að undanþegin gjald- Mikið tap KVH á Hvammstanga vegna Goða og sameininga sem brugðust: Afskriftir um 400 þúsund krónur á hvert heimili Úr umferðinnl Ef frumvarp um olíugjald nær fram aö ganga má búast við aö íslendingar geti á næstu árum fariö aö nýta sér meira en áöur kosti dísilknúinna bifreiöa. skyldu verði lituð olía til nota á skip og báta, olía til húshitunar, olía til nota i iðnaði og á vinnuvél- ar, olía til nota á dráttarvélar í land- búnaði, olía til raforkuframleiðslu og olía á ökutæki sem ætluð eru til sérstakra nota samkvæmt nánari skilgreiningu. Óheimilt verður sam- kvæmt frumvarpinu að nota litaða olíu á almenn skráningarskyld öku- tæki. Aðeins þeim sem leyfi hafa fengið til þess frá ríkisskattstjóra er heimilt að bæta litar- og/eða merki- efnum í gas- og dísilolíu samkvæmt frumvarpinu. Gert er ráð fyrir að tekjur til vegagerðar lækki með tilkomu þess- ara breytinga um 300 til 400 milljón- ir króna á ári. Er lagt til að því verði mætt með hækkun á sérstöku vörugjaldi af bensíni sem er eyma- merktur tekjustofn til þessa mála- flokks. Á móti þeirri hækkun komi hins vegar samsvarandi lækkun á almenna bensíngjaldinu sem nú rennur beint í ríkissjóð. -HKr. „Þetta er óskapleg útkoma úr þessu Goðadæmi og menn sjá það núna að það var ekki gæfuspor að fara í þess- ar sameiningar á sláturhúsunum, fyrst Norðvesturbandalagið og svo Goða. Það gekk vel með sláturhúsið á Hvammstanga þangað tO og það skil- aði góðu inn í reksturinn á hverju Þar sem gengi krónunnar er hagstætt í dag getum við boðið þér frábært verð á þessum Renault bílum. ári. Þetta er ein sorgai'saga," segir Heimir Ágústsson, bóndi á Sauða- gilsá i Húnaþingi vestra. Þegar upp verður staðið mun láta nærri að tap vegna Goða hafi verið um 400 þúsund á hvert heimili í héraðinu sem á að- ild að kaupfélaginu, miðað við þær af- skriftir og tap sem varð á KVH á síð- asta ári. Mikið tap varð á Kaupfélagi Vest- ur-Húnvetninga á síðasta ári, meira en um áraraðir, eða 134,2 milljónir, í samanburði við 5,5 milljóna króna hagnað árið á undan. Tapið er tilkom- ið vegna afskrifta eignarhluta í Goða og öðru því tengdu. Tap á eignarhlut- um í Goða voru í reikningum KVH fyrir síðasta ár 114 milljónir og af- skriftir vegna viðskiptareiknings við Goða 30 milljónir. Eiginfjárlilutfall KVH er engu að síður gott, 36%, eigið fé 255,5 milljón- ir og veltufjárhlutfall 2,5. Staða fé- lagsins er því sterk eftir sem áður, að mati Björns Elísonar kaupfélags- stjóra. Árstekjur voru á síðasta ári 386 milljónir. KVH hefur jafnan haft talsverðar vaxtatekur en á síðasta ári voru þær aðeins um ein milljón en voru 27 milljónir árið á undan. KVH var með sláturhúsið í rekstri fjóra síðustu mánuði ársins, eftir nokkurra ára hlé, og greip þar inn í vegna ófremdarástands í slátr- unarmálum. Að sögn Bjöms Elíson- ar kaupfélagsstjóra kom þetta inn- grip út á nánast sléttu. Hann segir allt aðrar rekstrarforsendur fyrir þetta ár en það síðasta, þar sem Goðamálin séu uppgerð. Aðspurður sagði hann að ekki væru horfur á sameiningu félagsins við kaupfélag- ið á Borðeyri. Einungis óformlegar viöræður hefðu átt sér stað og ekk- ert slíkt í spilunum sem líklegt væri að leiddi til formlegra við- ræðna. -ÞÁ. Renault Laguna II fólUsbHI Bilalán,aftorgunámán. Rekstrarteiga: 39.351 Veröáður 2.090.000 Verð nú 2.006.000 Renault Scénic fólksbHI Bilalán, afborgun á mán. Rekstraiteiga: 38.665 VerSáður 2.050.000 Verð nú 1.368.000 MT-bílar Renault Mégane Berline fólksbill Bílalán.afborgunámán. Rekstrarleiga: 31.758 Verðáður 1.630.000 Vertnú 1564Æ00 KEA kaupir stóran hlut Grjóthál* 1 -Sfmi 575 1200 Sóladcild 575 1220 • www.bl.is ReMrerieiganertl36mán„m.uvið20000kmááriogeriendamyn1köffu.Rekstrarieigaeraðeinslboðitilrekstrafaðila( fyrirtækja). Bilalán miðast við 30% úlborgun og 84 mán. samning. Allar tölur eru með vsk. Stjórn Kaupfélags Ey- firðinga svf. samþykkti á fundi í síðustu viku að kaupa stóran hlut í MT- bílum í Ólafsfirði, en fyr- irtækið framleiðir slökkvibíla. KEA kaupir 17 milljóna króna hlut af 25 milljóna króna hluta- fjáraukningu í fyrirtæk- inu. Eftir hlutafjáraukn- inguna á Nýsköpunarsjóöur 31% hlut í fyrirtækinu, Sigurjón Magnússon, stofnandi og framkvæmdastjóri MT- bíla 28%, KEA svf. 21% og Tækifæri hf. 20 %. Nýverið samþykkti bæjarstjórn Ólafstjarðar að kaupa þriggja milljóna hlut í fýrirtækinu og koma þeir fjár- MT slökkvibíll munir inn í fyrirtækið á næstu þremur árum. Verkefnastaða MT-bíla er mjög góð um þessar mundir. Á næstu dögum mun fyrirtækið afhenda Slökkviliði höfuðborgar- svæðisins nýja Scania slökkvibifreið, þá full- komnustu sem MT-bilar hafa smíðað til þessa. Nú eru í smiðum þrjár slökkvibifreiðar, ein fer til Tálknafjarðar, önnur til Færeyja og samningar eru á lokastigi um þá þriðju. Á næsta ári liggur fyrir að afhenda tvær slökkvibifreiðar, önnur er fyrir Slökkvilið höfuðborg- arsvæðisins og hin fer til Bolungar- víkur. -hiá

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.