Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2002, Blaðsíða 13
13
ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2002__________________________________________________________________________________________________
Útlönd
virka da
alla
kl. 03:00 ffðstu- og laugai
til kl. 01:00 sunnudaga
Kok forsætisráðherra sagði morðið
ekki aðeins harmleik heldur væri það
tilræði við lýðræðið í Hollandi og bað
hann fólk að halda ró sinni.
Til óeirða kom við þinghúsið i
Haag strax í gærkvöldi þar sem nokk-
ur hundruð reiðir stuðningsmenn
Fortuyns mótmæltu morðinu og var
flöskum og grjóti kastað að óeirðalög-
reglunni.
Talið er að morðið geti haft ófyrir-
sjáanlegar afleiðingar um alla Evrópu
og hafa stjómmálaleiðtogar víða um
heim fordæmt verknaðinn. Sagði Gay
Verhofstadt, forsætisráðherra Belgíu,
það með ólíkindum að svona nokkuð
gæti gerst á 21. öldinni.
Bresk og bandarísk stjómvöld em
meðal þeirra sem fordæmt hafa morð-
ið og varaði Tony Blair, forsætisráð-
herra Bretlands, við hugsanlegum af-
leiðingum þess.
Sjálfur hafði Fortuyn í síðustu viku
lýst áhyggjum sínum yfir því að á
hann kynni að verða ráðist og sagðist
hafa fengið fjölda hótana.
Bandaríkin saka
fleiri lönd um að
reyna að smíða
gjöreyðingarvopn
Bandarísk stjórnvöld sökuðu í
gær þrjú ríki til viðbótar um að
reyna að koma sér upp gjöreyðing-
arvopnum og vöruðu við því að
tryggt yrði að þau létu þau ekki i
hendur hryðjuverkamönnum.
Ríkin þrjú sem hér um ræðir eru
Líbýa, Sýrland og Kúba. Það var
John Bolton aðstoðarutanríkisráð-
herra sem nafngreindi þau i ræðu
sem hann kallaði „Handan öxul-
velda hins illa“. Þar vísaði hann í
fleyg orð Georges W. Bush forseta
sem í vetur kaflaði írak, íran og
Norður-Kóreu „öxulveldi hins illa“.
„Bandaríkin eru staðráðin í að
koma í veg fyrir næstu öldu hryðju-
verka,“ sagði Bolton aðstoðarutan-
ríkisráðherra í ræðu sem hann
flutti hjá Heritage Foundation,
íhaldssamri rannsóknarstofnun.
Bolton sagði engan vafa leika á
þvi að Líbýumenn héldu áfram að
reyna að koma sér upp kjarnorku-
vopnum, svo og bæði efna- og sýkla-
vopnum. Þá sagði hann að of lítið
væri gert úr ógninni sem öryggi
Bandaríkjanna stafaði af Kúbu.
REUTERSMYND
Vill ekki vera meö
George W. Bush Bandaríkjaforseti
hafnar þátttöku í föstum alþjóðleg-
um stríösglæpadómstól.
Bush hafnar al-
þjóðlegum stríðs-
glæpadómstól
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti og stjóm hans hafá kosið að
hunsa ráð helstu bandamanna
sinna og hafna því að vera með í
stofmm alþjóðlegs stríðsglæpadóm-
stóls, mannréttindasamtökum til
mikiflar armæðu. Bandaríkjamenn
vilja ekki að dómstóllinn verði mis-
notaður til að ofsækja bandaríska
embættismenn og hermenn.
Bandarísk stjórnvöld hafa til-
kynnt afstöðu sína formlega með
bréfl til Sameinuðu þjóðanna. Sú
ákvörðun þýðir að Bandaríkjamenn
áskilja sér rétt til að virða að
vettugi fyrirskipanir dómstólsins,
fyrsta fasta dómstóls sinnar tegund-
ar sem ætlað er að sækja menn til
saka fyrir stríðsglæpi, þjóðarmorð
og glæpi gegn mannkyninu.
Stjómvöld í Kanada og ríkjum
Evrópusambandsins lýstu í gær
vonbrigðum sínum með afstöðu
stjórnar Bush.
Stjórn Bills Clintons, fyrrum
Bandaríkjaforseta, undurritaði
samninginn árið 2000 til að Banda-
ríkin gætu verið með í undirbún-
inginum.
Barni rænt af
fæðingardeild
Tveggja daga gömlu stúlkubarni
var rænt af fæðingardeild í Stour-
bridge á Englandi á sunnudag á
meðan móðir þess svaf. Barnið
fannst síðan heilt á húfi aðeins
nokkrum klukkustundum síðar, að
því er lögregla greindi frá í gær.
Litla stúlkan fannst í húsi í ná-
grenni bæjarins Dudley eftir að
ábendingu hafði verið komið til lög-
reglunnar. Tvær konur og karlmað-
ur voru handtekin i húsinu.
Tvær grunsamlegar konur höfðu
sést á fæðingardeildinni skömmu
áður en litla stúlkan hvarf.
Þingkosningarnar í Hollandi í uppnámi:
Leiðtogi hægri öfgamanna
skotinn til bana í gær
REUTERSMYND
Norsku konungshjónin í Kanada
Haraldur Noregskonungur og Sonja drottning hans eru nú í opinberri heimsókn í Kanada og sjást hér í opnum hestvagni í
fylgd kanadísku riddaralögreglunnar á leiö til Rideau-hallar í Ottawa þar sem þau hittu kanadíska ráöamenn.
Enn ríkir óvissa eftir kosningarnar í Færeyjum:
Stjórnarmyndunarviðræður
Kallsbergs sigldar í strand
Anfinn Kallsberg, lögmaður Fær-
eyja, viðurkenndi seint í gærkvöld
að tilraunir hans til að mynda nýja
landstjóm væru sigldar i strand.
„Það er ekki gerlegt að mynda
breiða samsteypustjóm nú,“ sagði
Kallsberg í viðtali við færeyska
blaðið Sosialurin skömmu eftir mið-
nætti í nótt.
Vika er nú síðan Færeyingar
gengu að kjörborðinu og kusu nýtt
lögþing. Úrslit kosninganna voru á
þann veg að fylkingar stjómar og
stjómarandstæðinga fengu jafn-
marga þingmenn, sextán hvor. Sam-
bandsflokkurinn, sem hefur verið í
stjórnarandstöðu og er andvígur
sjálfstæðisáformum Kallsbergs og
félaga, var hins vegar sigurvegari
kosninganna.
Hvorki hefur gengið né rekið í
þreifingum Kallsbergs frá því á
föstudag þegar stjórnarflokkamir
þrír, Fólkaflokkurinn, sem Kalls-
Anfinn Kallsberg
Lögmanni Færeyja hefur lítiö orðiö
ágengt í tilraunum til stjórnarmynd-
unar eftir lögþingskosningarnar.
berg veitir forystu, Þjóðveldisflokk-
ur Hogna Hoydals og Sjálfstýris-
flokkurinn, ákváðu að standa sam-
an að myndun nýrrar stjómar.
Um tima var útlit fyrir að Jafnað-
arflokkurinn myndi taka þátt í
stjómarsamstarfinu en eftir að
Fólkaflokkurinn og Sjálfstýrisflokk-
urinn ákváðu að mynda bandalag
saman drógu jafnaðarmenn sig út
úr viðræðunum.
Joannes Eidesgaard, leiðtogi jafn-
aðarmanna, sagði að hann vildi
ekki vera eins konur björgunarfleki
fyrir sitjandi landstjóm.
Stjórnarandstæðingar krefjast
þess að Kallsberg hætti stjómar-
myndunartilraunum sínum. Þeir
vilja að formenn allra flokka verði
boðaðir til fundar við forseta lög-
þingsins og að hann feli síðan þeim
manni stjómarmyndun sem líkleg-
astur þykir til að takast að ljúka
verkinu og mynda stjóm.
Pim Fortuyn, leiðtogi hægri öfga-
manna í Hollandi, var skotinn til
bana á bflastæði í bænum Hflversum
í miðhluta Hollands í gærdag þegar
hann var að koma út úr útvarpshúsi í
bænum þar sem hann hafði verið í
viðtali vegna þingkosninganna sem
fyrirhugaðar eru í Hollandi þann 15.
maí nk.
Tilræðismaðurinn, 33 ára gamall
Hollendingur, hvítur á hörund, var að
sögn sjónarvotta einn að verki og
skaut hann Fortuyn sex skotum í höf-
uð, háls og brjóst þar sem hann var á
leið inn í eðalvagn sinn sem beið á
bflastæði utan útvarpshússins.
Að sögn lögreglunnar var tilræðis-
maðurinn handtekinn strax eftir
verknaðinn eftir að sjónarvottar og
lögregla höfðu yfirbugað hann á bíla-
stæðinu en þar var fjöldi fólks saman-
kominn og varð vitni að morðinu.
Wim Kok, forsætisráðherra Hol-
lands, kallaði rikisstjóm sína og for-
ystumenn hægri öfgaflokks;Fortuyns
þegar saman til fundar í morgim, þar
Moröinu á Fortuyn mótmælt
Tugir stuöningsmanna hægri öfgamannsins Pims Fortuyns, sem skotinn var
til bana í gær, mótmæltu í gærkvöldi og kom til óeiröa viö þinghúsiö í Haag.
sem ákvörðunar var að vænta um það verið spáð mikilli velgengni í kosn-
hvort þingkosningunum yrði frestað í ingunum og mældist með um 15%
kjölfar morðsins en flokknum hafði fylgi í nýlegri skoðanakönnun.