Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2002, Blaðsíða 14
14
MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 2002
Skoðun DV
Á KA séns gegn Val?
(Spurt á Akureyri)
Guöný Jóhannesdóttir blaóamaður:
Já, tvímælalaust. Ég þekki þaö af
eigin raun aö engin barátta er von-
laus og mun betra liöiö vinna.
Steindór Gunnarsson KA-maöur:
Þaö er alveg klárt. Ég held aö KA vinni
nokkuö örugglega (í kvöld) en síöan
veröur aö sjá hvernig fer á Hlíöarenda
en ég er bjartsýnn á aö KA vinni.
Slguröur Guömundsson verslunarmaöur:
KA-menn klára þetta 3-2. Égbyggi
þetta á reynslunni. Ég hef fariö á
leikina og styö liöiö heils hugar.
Anna Arnadóttir húsmóöir:
Aö sjálfsögöu. Þeir eru búnir aö standa
sig mjög vel og eiga þaö skitiö.
Sævar Eysteinsson málari:
Nei, ekki séns, Fúsi rústar þessu,
þeir stoppa hann ekki tvo leiki í röö.
KA vinnur fjóröa leikinn en Valur
tekur þetta á Hlíöarenda.
Þorbergur Sverrisson og Ingólfur
Slgfússon nemar:
Já, ekki spurning. Þeir taka þá rétt
eins og Haukana, Þetta veröur ekki
iétt en þeir vinna samt.
V örubílsf armur
vanþekkingar
Eiríkur Berg-
mann Einarsson
er launaður er-
indreki Evrópu-
sambandsins og
stundar áróður
gagnvart íslandi.
í kjallaragrein
DV 30. apríl sl.
fer erindrekinn
með slíkt fleipur
um Evrópusam-
bandið að undrun sætir. I grein-
inni reynir hann að selja þá hug-
mynd að ESB sé smáríkjabanda-
lag.
„Hugmyndafræðingar Evrópu-
samvinnunnar um miðja síðustu
öld sáu að ríki álfunnar voru of
smá til að takast á við öll þau
margslungnu viðfangsefni sem
samfélögin stóðu frammi fyrir“,
skrifar Eiríkur.
Þetta er alrangt. Eiríkur sleppir
því að nefna hvaða ríki gengu til
samstarfs í Kola- og stálbandalaginu
sem var undanfari ESB. Það voru
Frakkland og Þýskaland sem
ákváðu samstarfið en buðu Ítalíu,
Hollandi, Belgíu og Lúxemborg að
vera með. Stórríkin Frakkland og
Þýskaland eru og voru mótandi fyr-
ir ESB og forvera þess. Það voru
ekki vandræði smáríkja sem knúðu
á um stofnun sambandsins heldur
hitt að fyrir skelfileg mistök og
dómgreindarleysi höfðu stórríki álf-
unnar kcillað yfir heimsbyggðina
tvær heimsstyrjaldir á fyrri hluta
tuttugustu aldar. Til aö koma í veg
fyrir að ósætti stórþjóða Evrópu
leiddi í þriðja sinn yfir okkur styrj-
„Stórríkin Fmkkland og
Þýskaland eru og voru mót-
andi fyrir ESB og forvera
þess. Það voru ekki vand-
rœði smdríkja sem knúðu d
um stofnun sambandsins
heldur hitt að fyrir skelfileg
mistök og dómgreindarleysi
höfðu stórríki dlfunnar
kallað yfir heimsbyggðina
tvœr heimsstyrjaldir á fyrrí
hluta tuttugustu aldar. “
aldarfár á heimsvísu var efnt til
samstarfs um kol og stál sem í þá
daga voru ein mikilvæg-
ustu hráefnin í stríðs-
rekstri.
Smárikjatilbúningur
Eiríks er hans eigin hug-
arburður, settur á blað til
að fifla fólk til fylgilags
við málstaðinn. Hann
reynir að læða því inn
hjá lesendum að viðfangs-
efni þjóðrikja séu svo
flókin að þau geti ekki
staðið á eigin fótum. Smá-
þjóðum sé fyrir bestu að
ganga húsbændum erind-
rekans á hönd. Lesendur
þurfa þó ekki að hafa
nema snöggsoðna sögu-
þekkingu til að sjá í gegn-
um áróðurinn. Eftir að
hafa fengið framkvæmda-
valdið heim tókst íslendingum að
byggja upp nútíma þjóðfélag sem
mælist með þeim ríkustu í veröld-
inni. Við erum í allt annarri stöðu
en smáríki á meginlandi Evrópu sem
hafa beinan hag af aðild vegna ör-
yggishagsmuna.
Erindreki Evrópusambandsins
kann ekki einu sinni skil á einfóld-
ustu staðreyndum. Þannig segir
hann að Robert Schuman hafi verið
forseti Frakklands, en hann gegndi
aldrei því embætti. Schuman þessi
var ráðherra í nokkrum skammlíf-
um ríkisstjómum Frakklands eftir
stríð. Við hann er kennd Schuman-
áætlunin, hvers meginmarkmið var
að tvinna saman pólitíska og efna-
hagslega samvinnu Frakklands og
Þýskalands, öhö - afsakið, smáríkj-
anna Frakklands og Þýskalands.
Samræmt próf í stærðfræði
K.E. Sigurösson
skrifar:
Námsmatsstofnun brýtur niður
sjálfstraust ungs fólks á íslandi. í
samtölum sem fjölmiölar hafa átt
við stærðfræðikennara og skóla-
stjóra hefur komið fram það sameig-
inlega mat þessa fólks aö samræmt
stærðfræðipróf, sem fyrir 10. bekk
var lagt í lok aprU, hafi í senn verið
allt of þungt og i litlu samhengi við
það sem bömin höfðu numið.
Hver ber ábyrgð á því að vel lesn-
ir unglingar koma grátandi út úr
stærðfræðiprófi vegna þess að eitt-
hvert fólk sem sýnUega er ekki í
neinu sambandi við raunveruleik-
ann leggur fyrir þá próf sem ekki er
í neinu samræmi við námsefni
þeirra eða undirbúning? Hefur
„Hver ber ábyrgð á því að
vel lesnir unglingar koma
grátandi út úr stœrðfrœði-
prófi vegna þess að eitthvert
fólk sem sýnilega er ekki
í neinu sambandi við
raunveruleikann leggur
fyrir þá próf sem ekki er
x neinu samrœmi við
námsefni þeirra eða
undirbúning?“
kennarinn, menntamálaráðherra
ekkert um þetta að segja? í raun hef-
ur svonefnd Námsmatsstofnun unn-
ið hér stórkostiegt skemmdarverk.
Eða heldur einhver að þetta sé faU-
ið tU að auka sjálfstrausts þessa
unga fólks? Og heldur einhver að
þetta verði tU þess að auka áhuga
þeirra sem nú ljúka 10. bekk á
stærðfræði?
Stærðfræði er alveg nógu erfíð
námsgrein án þess að fólk á vegum
hins opinbera sameinist um að gera
hana ungu fólki enn erfiðari. Þeir
sem þama þekkja tU segja mér að
stærðfræðiprófið hafi einmitt ein-
kennst af gUdrum og flækjum.
Það væri meira en réttiætanlegt
að DV leiddi höfunda þessa prófs og
ábyrgðarmenn þess á vegum Náms-
matsstofnunar fram í dagsljósið.
Þetta fólk er ábyrgt gagnvart al-
menningi, sem borgar laun þess, og
skuldar honum skýringar.
Garri
Líf mitt sem skófla
Ég vaknaði um daginn og fann fyrir einhverj-
um stirðleika í bakinu. Mér fannst ég stífur eins
og stUkur og ekki var laust viö að svolítUs seið-
ings gætti i mér neðanverðum. Já, ég var eins og
lurkum laminn og fannst það skrýtið því ég
hafði ekki verið að gera neitt af mér kvöldiö
áður, tók bara spólu og horfði á upptöku á VUtu
vinna mUljón?-þættinum muniði, þegar prestur-
inn vann. Mjög góður þáttur.
Þegar ég fór að bursta í mér tennumar fram-
an við gamla KEA-spegUinn minn komst ég að
því að ég var ekki lengur sami maðurinn og ég
hafði þekkt um árabU. Það var ekki framhjá þvi
litið. Þaö var ekki lengur um að vUlast. Ég var
orðinn skófla.
Á fjögurra ára fresti
Og svo sem ekki í fyrsta skipti. Ekki svo að
skUja að maður sé orðinn vanur þessu, en þetta
hefur komið yfir mig á fjögurra ára fresti og tek-
ur sig jafnan upp að vori. Þaö er eins og ég um-
myndist og verði að þessu verkfæri í höndum
misviturra manna.
Síðustu daga hef ég verið á ferð og flugi út um
aUan bæ. Ég má ekki sjá tún eða torfu; ég fmn
mig tilknúinn tU aö stinga aUt upp. Og það er
svo skrýtið að úthaldið á hverjum stað er sama
og ekkert. Mér er eiginlega öUum lokið eftir eina
stungu og get ekki fest mig við nokkurt verkefni.
Það er eithvert eirðarleysi í mér. 1 hvert sinn
sem ég dýfi pálnum í svöröinn er hugurinn kom-
inn annað og mig dreymir um að prófa nýjan
blett, nýja veUi, nýja snarrót.
Torfur á loft - með brosi
Ég er búinn að taka 42 skóflustungur á síðustu
þremur vikum og flestar hafa heppnast alveg
glimrandi vel. Fólk er farið að taka eftir þessu.
Og fyrir aUlöngu fór að bera á áhuga fjölmiðla-
manna á þessu háttalagi mínu. Nú birtast iðulega
af mér myndir í blöðunum þar sem ég sést kasta
torfunum á loft og brosa svolítið í leiðinni. Já,
það er gaman að þessu. Og gerir engum Ult.
Ég veit sem er að ég losna við skóOuna á
næstu vikum. Þetta hefur aldrei
háð mér í langan tima í einu.
Á gjalddegi eöa eftir eindag?
- Allt eftir samkomulagi.
Gjalddagi - eindagi
Óskar Sigurðsson skrifar:
Það gætir óskUjanlega mikils mis-
ræmis miUi banka og sparisjóða hér
t.d. varðandi gjalddaga og eindaga.
Einn banki hefur reglu um aðeins
viku miUi gjalddaga og eindaga, aðrir
kannski 30 daga. Svo er manni sagt að
þetta ráðist bara af „samkomulagi"
miUi bankans og viðkomandi við-
skiptavinar! Eins er þetta um kostnað-
arliði sem bankar krefja greiðendur
um, t.d. dráttarvexti og „kostnað" sem
oft er ótUgreindur á greiðsluseðli.
Bankarnir koma út með ofsagróða
þessa dagana. Ágætt í sjálfu sér, en
ekkert slaka þeir á gagnvart við-
skiptavinum sínum sem aUt byggist
þó á - að greiði ekki fyrr en á eindaga.
Því þá græðir bankinn mest! Hver
sagði „bananabankaland"?
✓
I boði borgarstjóra
Ólöf hringdi:
Borgarstjóri hefur undanfarin ár
boðið þeim sem verða 70 ára á árinu
tU mannfagnaðar 1. maí og eru þá veit-
ingar fram reiddar. Mér finnst það
samt ekki sanngjamt að þeir sem
drekka áfenga drykki geta valið á
mtili þriggja tegunda; rauðvíns,
hvítvíns eða bjórs, en okkur hinum
sem ekki sniakka áfengi er einungis
boðið upp á eina óáfenga tegund,
nefnilega djús eða appelsínusafa.
Þarna er um mismunun að ræða sem
ég karrn ekki við. Þeir sem skvetta í
sig eru þama settir skör hærra en hin-
ir. VU þó ekki segja að borgarstjóra
beri nein nauðsyn að bjóða þessum
hópi fólks, en mismunun í veitingum
á þennan hátt er erfitt að þola.
Sjóðir undir smásjá
Páll Sveinsson skrifar:
Loks er far-
ið að örla á
meira eftirliti
með öUum
þessum opin-
beru sjóðum
og styrkjum
sem ríkið, þ.e.
við skattborg-
arar stöndum
undir. Það var
laukrétt hjá
formanni Kvikmyndasjóðs að láta
fara ofan í saumana á fjármálastjóm
sjóðsins, ef ástæða var tU að ætia að
reikningshaldið væri ekki eins og
þurfa þykir. Það á að halda áfram á
þessari braut og láta kanna aUa opin-
bera sjóði, hverju nafni sem nefhast,
tti þess að ekki faUi blettur á stjórn
sjóðanna eða formenn þeirra. í dag
dugar ekkert nema harkan sex þegar
um fjármál er að ræða i þessu landi.
Ekki þarf að vera um að ræða neinn
sérstakan ágreining, bara hert eftirlit.
Fóstureyðing
J.M.G. skrifar:
Sú spuming vaknar hvort læknir
einn (kona) hafi framið trúnaðarbrot
þegar hann sagði, að erlendar dans-
meyjar sem hér starfa óski í „auknum
mæli“ eftir fóstureyðingu. Fróðlegt
væri að vita hvers vegna íslenskar
konur óska eftir fóstureyðingu. Tæp-
lega eru þær allar dansmeyjar. Þessi
hópur útiendra kvenna er ekki stærri
en svo að með úrtakskönnunar-aðferð-
inni væri hægt að finna út um hvaða
einstaklinga er að ræða. Læknir er
hins vegar bundinn þagnarskyldu sem
hann virðir ekki er hann birtir upp-
lýsingar um trúnaöarmál og notar þær
síðan í áróöri sínum. - Réttir aðtiar
hljóta að taka á málinu.
IPV Lesendur
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eöa sent tölvupóst á netfangiö:
gra@dv.is
Eöa sent bréf til: Lesendasíða DV,
Skaftahlíö 24,105 ReyHjavík.
Lesendur eru hvattir til aö senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.
Úthlutun úr Kvik-
myndasjóði
- Flekklaus fjár-
málastjórn?