Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2002, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2002, Blaðsíða 16
28 MÁNUDAGUR 13. MAÍ 2002 Skoðun __________PV Spurning dagsins y Saknarðu þess að ísland skuli ekki vera með í Evróvisjón? Örvar Gelrsson, atvinnulaus: Nei, alls ekki. Viö „sökkum “ í því og semjum ömurleg lög. Þaö hefur reyndar komiö fyrir aö maöur sitji yfir þessu heima. Margét Lind Steindórsdóttlr, nemi og afgreióslumaöur: Já, tvímælalaust. Þaö er gaman og spennandi aö setjast niöur og horfa á þetta og spá um úrslitin. Eyþor Helgi Guömundsson, atvinnulaus: Nei, ekkert voðalega. Ég horfi á þetta ööru hverju, yfirleitt eiginlega. Ég var ekki sáttur viö íslenska lagiö I fyrra. Sigríöur Pálsdóttir verslunarstjóri: Já, þaö skapast oft skemmtileg stemning í kringum þessi kvöld, þegar hópar koma saman og hafa gaman af. HHIí fl, Tmmm Jóhanna R. Aöalbjörnsdóttir nemi: Já, ég geri þaö. Ég horfi oftast á þetta meö fjölskyldunni sem situr öll sem límd viö skjáinn. Stefán Guömundsson sjómaöur: Já, vissulega geri ég þaö. Ég hef fylgst meö þessu frá pví þeir fóru aö sýna þetta í sjónvarpinu. Maöur von- aöi aö viö næöum lengra í fyrra. Króna, dollari, evra Milljarðar króna 15 12 9 6 3 0 Sviss BNA ESB Onnur lönd Erlendar fjárfestingar i atvinnurekstri á íslandi (Heimildir: Vefrit fjármálaráðuneytis og Vefþjóðviljans). Það var mikill „skaði“, að ekki skyldi vera búið að lögfesta af- mælisdag Evr- ópu sem almenn- an frídag. Hún átti nefnilega af- mæli 9. maí. Að vísu bar þann daginn upp á uppstigningar- dag, þannig að þá var frí, svo að við hefðum misst af sérstökum frídegi. En það koma tímar og það koma ráð. Uppstigningardagur verður ekki alltaf 9. maí. íslenskum Evr- ópubandalagssinnum verður kannski að ósk sinni, að koma öllum málum okkar í einn pott í Brussel. Alþingi hefur verið svo vin- samlegt islenskum fyrirtækjum að veita þeim heimild til að færa bókhald sitt og semja ársreikn- inga í erlendum gjaldmiðli til ársreikningsskrár. Að vísu þurfa fyrirtækin að sækja um þessa heimild, en yfir 30 fyrirtæki hafa ekki beðið boðanna og sækja nú um heimild hvert í kapp við annað. Flest þessara fyrirtækja hafa ef- laust haft pata af því, að evran kunni ekki að vera sá ektamiðill sem af var látið framan af, og heyrt eitthvað um að upptaka evrunnar dragi úr svigrúmi á vinnumarkaði og tilkoma hennar muni enn frem- ur auka líkumar á þvi, sem á hag- fræðimáli er nú nefnt „kreppu- atvinnuleysi". Kerfislægt atvinnu- leysi á meginlandi Evrópu má rekja til ósveigjanleika á vinnu- markaði, að mati íslenskra hag- fræðinga. „Það var því að vonum, að 26 þeirra 32 íslensku fyrir- tækja og félaga sem óskað hafa heimildar til færslu bókhalds og samnings árs- reiknings í erlendri mynt kusu að fœra reikningsskil sín í Bandaríkjadollurum, aðeins 4 fyrirtœki kusu evruna. “ Sameigin- legur gjald- miðill Evrópu- ríkjanna virð- ist nú ekki sá lukkugjafí sem að var stefnt. Þetta sjá nú fleiri en færri hag- stjórnarfræð- ingar. Það var því að vonum, að 26 þeirra 32 íslensku fyrir- tækja og fé- laga sem ósk- að hafa heim- ildar til færslu bókhalds og samnings árs- reiknings I er- lendri mynt kusu að færa reikningsskil sín í Banda- ríkjadollurum, aðeins 4 fyrir- tæki kusu evr- una. Hér verður að líta til þeirrar staðreyndar, að á íslandi era það ekki ríki Evrópubandalagsins sem mest fjárfesta i atvinnurekstri, heldur Bandarikin og Sviss. ESB- ríkin era þar skör lægra. Það kann því að orka tvímælis i náinni framtíð þegar framámenn í íslensku viðskiptalífi básúna hve mikill styrkur það væri fyrirtækj- um þeirra að ísland gerðist eins konar tengdabarn ESB. Skynsemin segir þeim þó, að hinn sterki gjaldmiðill, dollarinn, sé vænlegri lausn í ársuppgjörun- um en evran. Skemmtistaðir - veitingastaðir J.M.G. skrifar: Leiðaraskrif Morgunblaðsins 28. apríl sl. um veitingahúsin i miðborg- inni hafa vakið undran margra. Framkoma fólks á veitingahúsunum er almennt góð, en tíðarandinn er nokkuð breyttur og er það ekki óháð því hvemig pólitískar línur liggja. Flestir þeir sem láta mest fyrir sér fara utan dyra um helgar koma ekki á veitingahúsin og því á ekki að kenna skemmtiatriðunum um. Menn ættu ekki að nota ónefni um veitingahús og kalla þau „búllur“ eða „súlustaði" í neikvæðum skilningi. Veitingahús eru skilgreind í stjómar- tíðindum. Þar stendur: ..... nætur- klúbbur... Veitingastaður með reglu- bundna skemmtistarfsemi, þar sem aðaláhersla er lögð á áfengisveitingar og sýningu nektardans í atvinnu- „Fœri svo að nœturklúbb- unum yrði lokað myndi fjöldi fólks missa atvinnuna ofan í það atvinnuleysi sem fyrir er. Það œtti að vera hlutverk Eflingar (stéttarfé- lagsins) og starfsfólks í veit- ingahúsum að beita sér fyr- ir því að bjarga atvinnu fólks sem þarna vinnur og koma í veg fyrir að nœtur- klúbbunum sé lokað. “ skyni“ (Stjómartíðindi A 6 árið 2000 bls. 170). - Löggilt nafn þessara skemmtistaða er því „næturklúbbur". Færi svo að næturklúbbunum yrði lokað myndi fjöldi fólks missa atvinn- una ofan í það atvinnuleysi sem fyrir er. Það ætti að vera hlutverk Eflingar (stéttarfélagsins) og starfsfólks i veit- ingahúsum að beita sér fyrir því að bjarga atvinnu fólks sem þama vinn- ur og koma í veg fyrir að næturklúbb- unum sé lokað. Það sæmir illa R-listanum að láta loka fjölda skemmtistaða og senda fólk á vonarvöl. R-lista fólkið segist vera félagshyggjufólk, kennir „íhald- inu“ um atvinnuleysið og ætlar að banna fyrirtækjum í veitingarekstri að starfa. Fegurð og lifsgleði er ekki klám. Verkalýðshreyfmgin hlýtur að láta málið til sín taka. Þeir sem vilja hafa atvinnu í borginni biðja ekki um borgarstjóra sem lætur loka atvinnu- fyrirtækjum. Vaðið í villu og svima -> Ámi Johnsen, fyrrverandi alþingismaöur og nú- verandi Vestmannaeyingur, á alla samúð Garra. Allt frá þvf í fyrrasumar, þegar Ámamálið var í al- gleymingi, hefur Garri staðið í þeirri trú að Ámi Johnsen hefði stolið og logið i þvílikum mæli að hann ætti sér ekki viðreisnar von og því síður aft- urkvæmt á Alþingi. Það væri einungis formsatriði að dæma manngreyið til refsingar fýrir þau brot sem hann hafði framið. Sjálfsbjargarviðleitni En eftir tvö sjónvarpsviðtöl í kjölfar ákæru á hendur Áma er Garra orðið ljóst að hann hefur vaðið í villu og svima. Ámi er fómarlamb samsær- is. Það er deginum ljósara að Árni Johnsen vann T mikið og óeigingjamt starf fyrir byggingamefnd Þjóðleikhússins og fleiri nefndir í mörg ár og fékk ekki annað fyrir en skitnar 10 þúsund krónur á mánuði. Hann átti miklu meira skilið fyrir erfiðið og óeigingirnina og því ekki nema eölilegt að hann tæki af skarið og sækti sér þau laun sem hann taldi eðlileg fyrir allt stritið, hvort sem það var í formi vöruúttekta eða einhvers annars. Sér nú hver sjálf- an sig. Að menn skuli gera veður út af því að Ámi ** hafi náð sér í timbur, óðalskantsteina, eldhúsinn- réttingar eða annað smotterí og látið byggingar- nefnd Þjóðleikhússins blæða er með öllu óskiljan- legt. Að heilbrigð sjálfsbjargarviðleitni Áma skuli stangast á við lög getur ekki verið hans vandamál og gefur fráleitt tilefhi til ofsókna á hendur mann- inum. Þarna eiga þeir sem greiða manninum laun fyrir nefndarstörfin alla sök og þeir ættu hreinlega að skammast sín fyrir að hafa neytt Árna út í þessi ósköp. Ofsóknir Og Garra er einnig orðið ljóst að afsögn Áma sem þingmanns, lögreglurannsóknin og nú ákæran er fjölmiðlum að kenna og engum öðrum. Blaða- og fréttamenn skilja ekki að þegar menn fá ekki það sem þeim ber eiga þeir einfaldlega að sækja sér það sjálfir. Þetta heitir sjálfsbjargarviðleitni og er alda- gömul og viðurkennd íþrótt hér á landi. Nei, blaða- og fréttamenn voru knúnir áfram af annarlegum hvötum og höguðu sér eins og blóðþyrstar hýenur gagnvart manni sem var einungis að reyna að ná sér í réttláta þóknun fyrir mikið og óeigingjamt starf. Og þeir héldu að þeir gætu vaðið hugsunar- laust áfram í ofsóknunum á hendur Árna af því hann var þjóðareign, umdeildur í meira lagi og var illa við homma. Er nema von að Ámi hafi hagrætt sannleikanum gagnvart þessu liði. Hefðu fjölmiðlar ekki verið að lepja velluna úr litlum mönnum úti um allan bæ og hagað sér síðan eins og subbur hefði Ámi aldrei lent í þessum ógöngum. Þá væri Ámi enn alþingismaður og for- maður byggingarnefndar Þjóðleikhússins, hann hefði ekki þurft að skila neinu og enginn hefði ver- ið ákærður. Þá væri mannlífið sannarlega fallegra og Ámi hefði fengið að njóta ávaxta erfiðisins í friði. Eins og honum bar. CfidTfi Frá Akureyri Hjálparvana án ríkisins? Akureyri hjálparvana? ibúi á Akureyri hringdi: „Fólk liggur hjálparvana út um all- an bæ“ sagði fulltrúi Vinsti grænna í bænum og gagnrýndi framgang bæjar- stjómar Akureyrar. Heilbrigðisráð- herra tók undir gagnrýnina og sagði sofandahátt hafa ríkt um þessi mál af hálfu bæjarstjómarinnar. Kemur þá ekki bæjarstjórinn sjálfur, svarar ráð- herra fullum hálsi og segir að skortur á öldrunarrýmum sé fyrst og fremst vandi ríkisins! En hvernig getur það verið vandi ríkisins að við á Akureyri sjáum ekki sóma okkar í að hlúa að öldnum og sjúkum borgurum sem hafa byggt upp þennan bæ, að vera á hrakhólum á ævikvöldinu? Þeir eiga betra skilið. Við Akureyringar eigum að vera stoltir og leita sem minnst til hins opinbera á landsvísu. Og þannig var það, þar til ef til vill nú. Eru það hótanir? Þorsteinn Einarsson skrifar: Nú erum við íslendingar í góðum málum, búið að festa í umræðunni deiluna um hvort við viljum ganga í ESB eða ekki. Ég hélt nú að búið væri að kanna það svo ekki verður um villst að íslendingar em andvigir inngöngu í ESB. Verði hins vegar skipt út gjald- miðlmum með tengingu við sterka er- lenda mynt, þá er vart um aðra mynt í því sambandi að ræða en annaðhvort dollarann eða svissneska frankann, þær tvær myntir sem hér eru sterkast- ar vegna erlendra tjárfestinga. En að hrópa „hótanir“ eins og þeir hjá Sam- tökum iðnaðarins, og tala um leiðandi spumingar, það er lítt traustvekjandi. Raunar hrein móðursýki. Frá Alþingi Peningar í spilinu enn og aftur. Varaþingmenn inn Halldór Kristjánsson skrifar: Það hefúr tíðkast í seinni tíð að þingmenn sem bregða sér frá störfum nokkra daga, jafhvel vikur í senn, hafa ekki látið kalla á varaþingmann til að sinna þingskyldum. Viðkom- andi þingmaður heldur þá sinum launum óskertum, en varaþingmaður tekur annars sinn toll af þeim. Nýjasta dæmið er, samkvæmt frétt- um, af þingmanninum Ólafi Emi Har- aldssyni, sem tók sér leyfi tO að að- stoða son sinn við klifur hæsta fjallstindsins. Þessi tregða þingmanna að kalla inn varaþingmann er hvnn- leið. Þingforseti á að hafa vald til að afnema þennan ágalla í þingstörfum. Ekki rífa Hlemm Kristinn Sigurðsson skrifar: Þvi miður munu einhverjir „vitring- ar“ innan R-listans vilja að glæsileg strætisvagnastöðin við Hlemm verði rifin, og í staðinn komi stórt verslunar- húsnæði, með enn einni kránni að sjálfsögðu. Verði þessi fráleita hug- mynd að veruleika er R-listinn að þóknast auðvaldinu og hundsa þær þúsundir sem fara um miðstöðina sem er nú til fyrirmyndar að öllu leyti. Ég fer þama um vinnu minnar vegna tvisvar á dag og þar er allt til fyrir- myndar. Strætó stendur mörgum of nærri til þess að fyrirhugað skemmd- arverk á Hlemmi verði látið óátalið. Ég skora á borgarbúa að mótmæla niður- rifi á Hlemmi eða við Lækjartorg. DV Lesendur Lesendur geta hringt allan sólarhring- inn í síma: 550 5035. Eöa sent tölvupóst á netfangið: gra@dv.is Eöa sent bréf til: Lesendasí&a DV, Skaftahlíö 24,105 ReyKjavík. Lesendur eru hvattir til að senda mynd af sér til birtingar meö bréfunum á sama póstfang.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.