Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2002, Blaðsíða 1
ÞETT UM BYGGÐINA
BLS
:l^-
|T—
\ t—
;t—
|T—
' T-
!On
!sO
LT»
DAGBLAÐIÐ VÍSIR 109. TBL. - 92. ÁRG. - MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 2002 VERÐ í LAUSASÖLU KR. 200 M/VSK
i
i
i
i
i
i
*
i
DV-MYND GVA
Utanríkisráðherrar eiga morgunstund
Utanríkisráðherrar íslands og Bandaríkjanna, Colin Powell og Halldór Ásgrímsson, áttu fund í Ráöherrabústaðnum við Tjarnargötu í morgun. Powell sagði að
hann hefði átt góðan og árangursríkan fund með Halldórí í sinni fyrstu heimsókn til íslands, samskipti iandanna hefðu veríð rædd sem og vera íslands í NATO
sem værí mikilvæg. Powell haföi skilning á sérstöðu landsins en um áframhaldandi veru varnarliðsins í Keflavík sagði hann að ekki væru aö sinni fyrirhugaðar
neinar breytingar.
Kenneth Peterson segir allt frumkvæði koma frá Línu.Neti:
Engar alvarlegar
viðræður í gangi
Frumkvæði að óformlegum við-
ræðum Columbia Ventures Cor-
poration (CVC) og forsvarsmanna
Línu.Nets um hugsanleg kaup í fé-
laginu kom frá Línu.Neti og móð-
urfélagi þess, Orkuveitu Reykjavík-
ur, að því er fram kemur fram í yf-
irlýsingu sem Kenneth D. Peterson,
eigandi og forstjóri CVC, gaf út í
gær í kjölfar frétta íslenskra fjöl-
miðla um áhuga félagsins á
Línu.Neti.
Áhugi CVC á Línu.Neti var í gær
staðfestur af Alfreð Þorstéinssyni,
stjómarformanni Línu.Nets og
Orkuveitunnar, í fréttaviðtölum.
„Hann [Peterson] hafði samband
við Línu.Net og óskaði eftir viðræð-
um við okkur um aðkomu aö fyrir-
tækinu," sagði Alfreö í fréttum
Sjónvarpsins.
Peterson svaraði spurningum
DV um málið með yfirlýsingu í
gærkvöld. Þar segir m.a.: „Að boði
Línu.Nets og móðurfyrirtækis þess
voru okkur veittar tilteknar upp-
lýsingar um fýrirtækið fyrir rúm-
um mánuði. Engar alvarlegar við-
ræður hafa farið fram. Hér er að-
eins um að ræða eitt af mörgum til-
boðum sem við höfrnn fengið, um
að skoða upplýsingar um íslensk
fyrirtæki sem gætu haft áhuga á að
fá CVC inn sem fjárfesti."
í yfirlýsingunni segir Peterson
að í kjölfar jákvæðra breytinga á
skatta- og reglugerðarumhverfi á
íslandi hafi orðið til áhugi hjá fé-
Kenneth Peterson.
laginu almennt á fjárfestingum á
íslandi, sem meðal annars hafi leitt
til fjárfestingar í símafyrirtækinu
Halló - Frjálsum fjarskiptum.
Áhugi sé til staðar hjá CVC að
halda áfram að leita að góðum
tækifærum til fjárfestinga hér á
landi.
Alfreð Þorsteinsson, stjómarfor-
maður Línu.Nets og Orkuveitu
Reykjavíkur, segir að frumkvæði
að viðræðunum hafi komið frá
Kenneth Peterson. Bjami Þorvarð-
arson, framkvæmdastjóri fyrir-
tækjaþróunar CVC, segir að því sé
þveröfugt farið. -ÓTG
■ NÁNARI UMFJÖLLUN
Á BAKSÍÐU
B^ggðastofnun:
Ómöguleg
staða
„Þetta er gjörsamlega ómöguleg
staða fyrir Byggðastofnun. Það
gengur ekki að formaður og
stjómarformaður geti ekki unnið
saman í þessari stofnun. Stofnun-
in hefur mjög mikilvægt hlutverk
þannig að vandinn er augljós,"
sagði Valgerður Sverrisdóttir
byggðamálaráðherra í samtali við
DV í morgun.
Deilur Kristins H. Gunnarsson-
ar, stjómarformanns Byggðastofn-
unar, og Theódórs Bjamasonar,
forstjóra Byggðastofnunar, hafa
stigmagnast á síðustu dögum og
ganga harðar ásakanir á víxl. í
samtali við DV í dag segist for-
stjórinn hafa orðið fyrir „svívirði-
„Það gengur ekki að
jormaður og stjómar-
formaður geti ekki
unnið saman í þessari
stofnun, “ segir Valgerð-
ur Sverrisdóttir.
legri niðurlægingu" af hálfu
stjómarformanns en í gær sagði
Kristinn að starfsmenn stofnunar-
innar hefðu komið aftan að hon-
um. Samstarfsmaður Kristins í
stjórn Byggðastofhunar lýsir
áhyggjum af stöðu mála.
Valgerður segir að deilur þess-
ara tveggja séu ekki nýjar af nál-
inni. Um skeið hafi henni verið
kunnugt um að ekki væri allt með
felldu. Aðspurð hvort erjurnar
hafi staðið nánast frá fyrstu kynn-
um Theódórs og Kristins segir
hún svo ekki vera. Á sinum tíma
hafi verið einróma skoðun stjóm-
ar að ráða Theódór.
Ráðherra segist vitaskuld munu
beita sér fyrir friði í Byggðastofn-
un en vill ekki taka efnislega af-
stöðu til ávirðinga tvímenning-
anna. „Ég get á þessari stundu
ekki svarað því nákvæmlega
hvemig því starfi verður háttað en
ég mun fara í ýmsar viðræður við
fólk sem vel þekkir til mála og síð-
an mun ég taka á þessu.“ Aðspurð
hvort Valgerður telji fullreynt með
að Kristinn og Theódór geti starfað
saman segist hún ekki ætla að full-
yrða neitt um það eða hvort annar
eða báðir verði að víkja. Hún vill
ekki tjá sig um hvor eigi meiri sök
en segir að sjaldan valdi einn þá
tveir deili. -BÞ
NANARI UMFJOLLUN
Á BLS. 2
SERSTÆTT SAKAMAL
FYRIR DÓMI:
Milljónasvik
Kongómanns
KNATTSPYRNUSUMARIÐ
2002:
Úrvalsdeildarlið
karla kynnt
19-30
punktur'nn Íslandssími
islandssimi.is