Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2002, Blaðsíða 19
19
FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2002____________________
lO'V" Tilvera
Lárétt: 1 fjöldi,
4 hlýöið, 7 grín,
8 hænu, 10 heiti,
12 erfðavísir,
13 slóttug, 14 háski,
15 sigti, 16 hár,
18 tæp, 21 úrillu,
22 áhald, 23 innyfli.
Lóðrétt: 1 gimald,
2 elska, 3 myrkur,
4 gagnauga, 5 hljóða,
6 málmur, 9 horfur,
11 strengjahljóðfæri,
16 bekkur, 17 blaut,
19 fjármuni, 20 sjór.
Lausn neðst á síöunni.
Skák
Umsjón: Sævar Bjarnason
Hvítur á leik!
Þeir eiga við ramman reip að draga
þrímenningamir á Kúbu, þeir Hannes
Hlífar, Helgi Áss og Jón Viktor. Hitar
eru vel yfir 40 stig og mikið svitnaö -
sennilega ekki besti timinn tyrir ís-
lendinga að dvelja þama núna, margir
fylgifiskar og kvillar. En þeir reyna þó
að bíta frá sér líkt og Helgi Áss gerir í
þessari skák. Drottning hans virðist
innilokuð en þetta hafði Helgi Áss
auðvitað séð allt íyrir og nú „fórnar
hann sinni“ um stundarsakir.
Hvitt: Helgi Áss Grétarsson (2521)
Svart: Raoul Alonso (2398)
Drottningarbragð.
Minningarmót um Capablanca,
Havana (1), 6.5. 2002
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 d5 4. Rc3
Bb4 5. Da4+ Rc6 6. Bg5 h6 7. Bxf6
Dxf6 8. e3 0-0 9. a3 Bxc3+ 10. bxc3
Bd7 11. cxd5 exd5 12. Db3 Dd6 13.
Bd3 b6 14. 0-0 Had8 15. Dc2 Bg4 16.
Rd2 Bc8 17. c4 Ba6 18. Hfcl Re7 19.
Da4 dxc4 20. Bxc4 Bb7 21. Dxa7
Bxg2 22. Kxg2 Dc6+ 23. e4 Ha8
(Stöðumyndin) 24. Dxc7 Dxc7 25.
Bxf7+ Hxf7 26. Hxc7 HafB 27. f3
Hd8 28. Rc4 Hxd4 29. Re5 Hd2+ 30.
Kh3 Hd6 31. Hbl g5 32. Rxf7 Kxf7
33. Hb7 Hd3 34. Kg4. 1-0.
Bridge
Umsjón: isak Öm Sigurðsson
í vondum samningum þarf oft að
gera ráð fyrir bestu legu til að
standa spil. Jafnvel þó að besta leg-
an sé ekki til staðar gætu heilladls-
irnar komið til bjargar ef vörnin
misstlgur sig. Skoðum hér eitt spil
þar sem vestur var sagnhafi f fimm
laufum, samningi sem leit mjög illa
út. Norður byrjar á þvl að taka ÁK
1 hjarta og spilar síðan laufi:
4 G
M ÁK9743
+ 98
4 10643
4 ÁD83
* G6
4 ÁK62
4 Á85
4 K9752
«4 D105
+ D1043
4 9
VESTUR NORÐUR AUSTUR SUÐUR
14 2 «4 pass 3 4
dobl 3 m pass pass
dob! pass 4 grönd pass
5 4 p/h
Sagnir nokkuð vísindalegar, fjögur
grönd er náttúrlega ekki ásaspuming
heldur bending til félaga um að velja
á milli láglitanna og vestur gerði vel
i því að velja laufið. Sagnhafi var
Sabine Auken frá Þýskalandi og hún
reyndi að byggja upp óskaleguna í
huganum. Hún taldi besta möguleik-
ann felast í þvi að norður ætti spaða-
níuna einspil og
þannig væri hægt að
tvísvína í gegnum suð-
ur. Sabine drap á
laufásinn i þriðja slag,
tók laufkónginn og
spilaði spaðatíunni.
Suður kom hins vegar
tii bjargar með því að leggja kónginn
á. Sabine drap á ásinn, lagði niður
ÁK í tígli og renndi trompum í botn.
Suður lenti i þvingun í spaða og tígli
i lokin og þessi harði samningur fékk
því aö standa.
•jbui 02 ‘QÚB 61 ‘5jOJ i\ ‘}3S 9i ‘niQtj n
‘Iipn 6 ‘ui; 9 ‘ndæ s ‘iSuuAuuncj {? ‘iuAsSgnxs g ‘;sb / ‘de§ i iijajQoq
•jnQi 82 ‘Mæj zz ‘nSnuo li ‘límBU 81 ‘AJ)S 91 ‘Bts si
‘iqoa i?i ‘Sæis 81 ‘uo§ 2i ‘ujbu oi ‘njnd 8 ‘dnB>(s i ‘i§æcj {? ‘sbi8 i :paJBi
allt fyrir heimiliö
550 5000
Órói á miðjum
varptímanum
Ég er svo heppinn að búa á stað
þar sem ennþá hefur ekki tekist að
hrekja fugla himinsins á brott úr
náttúrunni og er það að þakka
óbyggðu svæði í nágrenninu þar
sem mófuglinn fær enn frið til að
byggja hreiður sín, þó fækkandi
fari.
Ég vakna því á morgnana við
þægilegt hnegg hrossagauksins
sem þessa dagana er byrjaður
morgunæfingar sínar upp úr fjög-
ur á nóttunni, en það gerir bara
ekkert til þar sem það er einmitt
minn fótaferðartími.
En á þessu varð óvænt breyting
aðfaranótt 14. maí þegar allt ann-
að og leiðinlegra hljóð vakti mig
upp með andfælum og það mun
fyrr en venjulega. í staðinn fyrir
vin minn gaukinn var nú annar og
meiri fugl farinn að hringsóla um
loftin blá, eða sjálfur stálfuglinn
Orion, sem samkvæmt nokkuð
áreiðanlegum heimildum heldur
hreiður sitt á Miðnesheiði.
Eflaust hefur gauksi ályktað
sem svo að þarna væri illfygli á
feröinni, því hann lét lítið fyrir
sér fara næstu tvo dag þó svo að
minna bæri á stálfuglinum sem nú
hafði hækkað flugið til muna. Og
hvernig átti gauksi greyið svo sem
að vita að þarna færi sjálfur boð-
beri friðarins, náskyldur dúfunni,
en ekki hræðilegur ránfugl sem
væri til alls vís.
En hvað skyldi hafa hvatt Orion,
þennan boðbera friðarins, svo
langt frá hreiðri sínu? - Kannski
vildi hann bara vera við öllu búinn
ef óvænta ránfugla bæri að garði á
varptímanum eða þá að útungunar-
spennan hefur haft þessi áhrif.
Alla vega stóð þessi órói hans
ekki lengi og vonandi getur hann
og aðrir fuglar nú einbeitt sér aft-
ur að útunguninni sér og sínum til
gleði og ánægju.
Sandkorn
Umsjðn: Höröur Kristjánsson • Netfang: sandkorn@dv.is
Kristinn H. Gunnarsson
virðist ætla að gera garðinn frægan
í Byggðastofnun sem og víðar. Nú
eru þeir komnir í hár saman, hann
og forstjórinn,
Theodór Agnar
Bjarnason. Ekki
nóg með það,
starfsmenn í lykil-
hlutverkum virð-
ast líka standa
uppi í hárinu á
Kidda. Ekki fæst
betur séð en deil-
urnar í Byggðastofnun séu að verða
að stórvandamáli innan Framsókn-
arflokksins, því æðsti yfirmaður
stofnunarinnar, Valgerður Sverr-
isdóttir, ráðherra framsóknar-
manna, veit vart lengur sitt rjúk-
andi ráð. Kristinn er svo sem ekki
óvanur að standa á sínu gagnvart
toppum Framsóknar og nægir þar
að nefna baráttu hans við að breyta
kvótastefnu flokksins þvert á vilja
Halldórs Ásgrímssonar. Sagt er að
nú biði menn með öndina í hálsin-
um og þá hvort aflar þessar hárreyt-
ingar leiði til alvarlegs uppgjörs ...
Á vefsíðunni frelsi is var ný-
verið gert grín að fyrirhyggjusemi
borgaryfirvalda sem vilja banna
konum að sýna nekt sína á svoköll-
uðum súlustöðum
bæjarins. I raun sé
: hins vegar verið
að bola ákveðnum
hópi af löglegum
skemmtistöðum
úr miðbænum. í
rökum gegn þess-
ari starfsemi hef-
ur gjaman verið
bent á að þar þrífist vændi og jafn-
vel eiturlyfjasala sem hvoru tveggja
þykir lítt sæma sómakærri höfuð-
borg. Athygli vekur þó að alveg
virðist hafa gleymst að tala við
aumingja stúlkumar sem skaka sér
í súlunum ógurlegu. í það minnsta
hafa þær nú risið upp til mótmæla
og sent borgarfulltrúum erindi þar
sem þær og annað starfsfólk stað-
anna óttast atvinnumissi í kjölfar
aðgerða yfirvalda. Velta menn því
fyrir sér hvort borgin verði þá ekki
að sjá þessu fólki fyrir atvinnubóta-
vinnu um leið og súlumar verða
látnar safna ryði...
Sagt GF að Kristján Ragnars-
son, stjórnarformaður LÍÚ, sé í
þann mund að fá mun öflugri óvin í
kvótamálunum en sloruga
trillukarla. Miklar
líkur eru á að inn-
an ferðamála-
geirans komi upp
hávær krafa um
að fetað verði í
fótspor Norð-
manna sem heim-
| ila hverjum ferða-
manni að veiða
20-25 kíló af fiski á stöng eða hand-
færi. Þar í landi eru það helst þýsk-
ir ferðalangar sem ásælast þetta
sport og hefur íjöldi ferðamanna
sem koma í þessum tilgangi vaxið
úr 35 þúsund 1995 í 224 þúsund á
síðasta ári. Frá því er greint á inter-
seafood.com að afli ferðamannanna
á ári sé um 15 þúsund tonn ...
Alfreð Þorsteinsson fer á
kostum þessa dagana og virðist í
virkilegu stuði, enda stutt til kosn-
inga. Ýmsar skemmtilegar hug-
myndir hafa komið
fram hjá kappan-
um og ekki er ann-
að að sjá en and-
j stæðingum hans í
pólitíkinni sé
: verulega skemmt.
Þannig hugðist
Alfreð selja
Perluna í Öskju-
hlíð, enda eitt helsta minnismerki
frá tíð Davíðs Oddssonar í borg-
arpólitíkinni. Enginn fannst þó
kaupandinn. Þá datt Alfreð í hug
svona til gamans að kaupa Lands-
símann. Ekkert hefur þó heldur orð-
ið af því. Alfreð datt þá annað snjall-
ræði í hug, nefnilega að selja um-
deilt fyrirtæki, Línu.Net, og slá
þannig öflugum vopnum úr höndum
andstæðinganna. Eini gallinn er aö
helsti tilgreindi kaupandinn virðist
lítið vita af fyrirætlunum sínum um
að kaupa. Nú bíða menn í ofvæni
eftir næsta stjömuleik Alfreðs ...
Myndasögur
1
I
■o
£
Gott kvöld dömur mínar og
herrar... Eg er hínn óviðjafnan-
legi Garðar oq þetta er
talandi hundurimu^___________
Hafliði!
Hafliði... Segðu
eitthvað fallegt við
táhorfendur m
Greindarvísitala fram-
eóknarmanna
er á við eggaldin
öíðasta sinn! Ekki
tala um pólitík!
TveirtímaHNú er
nóg komíð! Eg skal
kenna henni lexíu!
ÓTRÚLEGA BUDIN
Hálftíma
of sein!