Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2002, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2002, Blaðsíða 27
f 27 r i FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2002 Úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu: Kóngar Evrópu - Real Madrid vann sinn níunda Evrópumeistaratitil Sport Leikmenn Real Madrid fagna hér þriöja sigrinum í meistaradeild Evrópu á aöeins fimm árum. Þaö eru þeir Raúl og Fernando Hierro sem lyfta bikarnum. Reuters Meistara- deildarmolar Real Madrid náöi loksins aö vinna titil á hundrað ára afmæli félagsins en þaö tókst ekki fyrr en í þriðju tilraun. Real hafði fyrir leikinn í gær misst af spænska meistaratitlinum til Valencia á lokakaflanum og tapað bikarúrslita- leiknum gegn Deportivo La Coruna. „Ég er ánægður fyrir hönd stuönings- manna okkar enda var það mjög mik- ilvægt að færa félaginu titil á afmæl- inu ekki síst eftir að hafa misst af hin- um tveimur," sagði þjálfari Real Ma- drid Vicente del Bosque. Real Madrid lék eftir sigur sinn í frá því í úrslitaleik í Evrópukeppni meistaraliða í Giasgow 1960 þegar Al- fredo di Stefano skoraði þrennu í 7-3 sigri á Eintracht Frankfurt. Real vann þá Evrópumeistaratitilinn fimmta árið í röð en líkt og þá voru mótherjarnir þýskir og í svörtum og rauðum búningum. Ruud Van Nistelrooy hjá Manchest- er United varð markkóngur meistara- deildarinnar í ár en hann skorað tíu mörk í keppninni. í öðru sæti voru þeir David Trezeguet hjá Juventus og Oleg Gunnar Solskjœr hjá Manchest- er United með átta mörk hvor. Bayer Leverkusen gat með sigri í gær orðið fyrsta félagið sem vinnur Evr- ópubikar meistaraliða á undan meist- aratitli í sínu eigin heimalandi. Leverkusen hefur fjórum sinnum hafnað í öðru sæti í þýsku Bundeslig- unni og það alit á siðustu fimm árum eða 1997, 1998, 2000 og 2002. Steve McManaman, sem varð Evr- ópumeistari með Real Madrid í gær, er ekki sáttur við það hvernig hann fékk að heyra að hann færi ekki með enska landsliðinu á HM. Sven Göran Erikson las skilaboð þess efnis inn á símsvara á farsíma McManamans. -ÓÓJ/ósk Zinedine Zidane, dýrasti knatt- spymumaður heims, sannaði verð- gildi sitt í gær með stórkostlegu sigurmarki í úrslitaleik Real Ma- drid og Bayer Leverkusen í meist- aradeild Evrópu en leikurinn fór fram í Glasgow. Markið, sem kom á frábærum tíma rétt fyrir hálfleik, tryggði Kóngunum frá Madrid sinn níunda Evrópumeistaratitil meist- araliða í sögunni en ekkert annað félag hefur unnið þennan virta bik- ar oftar en fimm sinnum. 33. mark Raúl Þýska liðið var þrátt fyrir tapið síst verri aðilinn og fengu Þjóð- verjamir bæði fleiri færi og voru meira með boltann. En Real hafði þá Raúl og Zidane sem sönnuðu að ekki má líta af þeim sniilingum. Raúl kom Real yfir eftir aðeins níu minútna leik þegar Roberto Carlos nýtti sér sofandahátt í þýsku vöminni og henti boltanum inn fyrir úr innkasti. Raúl stakk sér inn fyrir og skoraði sitt 33. mark í meistaradeildinni á ferlin- um en enginn hefur skorað svo mörg mörk í sögu keppninnar. Bayer Leverkusen hóf leikinn af miklum krafti og missti ekki móð- inn þrátt fyrir markið og aðeins fimm mínútum síðar hafði Brasil- íumaðurinn Lucio jafnað þegar að hann skallaði inn aukaspyrnu Bemd Schneider. Frábært mark, frábær sókn Mark Zidane kom síðan nánast upp úr þurra á frábæram tíma og úr frábærri sókn minútu fyrir leikhlé. Sóknin hófst með glæsi- legri sendingu Santiago Solari upp vinstri vænginn, þá góðu hlaupi og fyrirgjöf Roberto Carlos og loks stórkostlegu viðstöðulausu skoti Zidane upp í bláhomið. Á lokakafla leiksins sóttu leik- menn Leverkusen stíft og Iker Casillas sem kom inn á í mark spænska liðsins á 68. mínútu vegna meiðsla aðalmarkvarðarins varði þrisvar úr dauðafærum auk þess að kollegi hans úr marki Leverku- sen, Hans Jörg Butt, átti góðan skalla rétt yfir. En þrátt fyrir frá- bæra baráttu og góðan leik tókst þýska liðinu ekki að skora og Real hafði unnið sinn þriðja meistara- deildartitil á aðeins fimm áram. Casillas fékk fá tækifæri I vetur en var ómetanlegur þegar meiðsli Cecar komu upp á slæmum tíma. „Hinir leikmenn liðsins eiga allan heiðurinn skilinn því það er þeim að þakka að við komumst í þennan úrslitaleik," sagði Casillas. Femando Hierro tók við bikarn- um í leikslok og endaði þar með frá- bæran ferfl hjá félaginu. „Þetta er æðislegur endir á ferli mínum sem leikmanni. Ég hef unnið meistara- deUdina þrisvar sinnum og það hafa ekki aUir afrekað. Ég hef trú á að þetta lið láti ekki hér við sitja heldur vinni fleiri titla í framtíð- inni,“ sagði Hierro. Versti dagur ferilsins Á einni og hálfri viku hefur Bayer Lerverkusen misst af þrem- ur titlum, Evrópumeistaratitlinum, þýska meistaratitiinum og þýska bikarnum og þjálfari liðsins var svekktur í leikslok. „Þetta er versti dagurinn á ferlinum. Við vorum inni í leiknum aUan tímann og feng- um færi tU þess að skora og því er þetta afar svekkjandi," sagði Topp- múUer sem var þó svekktari yfir því að missa af þýska meistaratitli- unum. „Það var enn sárara að missa af meistaratitlinum því við leiddum deUdina nánast aUan vet- urinn og fengum ótal tækifæri tU að tryggja okkur á lokasprettinum. Málið er bara að við höfum ekki eins mikla breidd og Barcelona og Manchester sem gátu hvUt lykU- menn og það spiUti mikið fyrir okk- ur á lokasprettinum." -ÓÓJ Hér aö ofan sést Zinedine Zidane skora sigurmark Real Madrid á stærri myndinni og vera fagnaö af félögum sfnum á þeirri minni. Reuters Ég vil enda ferilinn hjá Real Madrid - sagði Zinedine Zidane, hetja Real Madrid, í úrslitaleiknum Zinedine Zidane vann í gær þann titU sem vantaði í safhið á frábærum ferU hans en hann er nú heimsmeist- ari landsliða, Evrópumeistari lands- liða og Evrópumeistari félagsliða á sama tíma. Þetta var í þriðja sinn sem Zidane lék í úrslitaleik meistaradeUd- arinnar en hann hafði tapað með Juventus 1997 og 1998, seinna árið gegn Real Madrid. „Eftir að hafa tapað tvisvar var það fyrir öUu að klikka ekki í þriðja sinn. Það var gaman að skora þetta mark og ég lét bara vaða á markið án þess að hugsa. En þetta snýst ekki um mig heldur um liðið sem vann þennan tit- U og aUir 22 leikmenn vaUarins ál skUið að fá þessa útnefningu," saf Zidane um það að vera valinn mað leiksins en hann ætlar að vera áfh hjá Real Madrid. „Ég hef góðan san ing við Real, þetta er frábær Idúbb og hér vU ég enda ferilinn," sagði a- dane enn fremur. -ÓÓJ \» i i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.